Dagur - 05.05.1976, Page 1

Dagur - 05.05.1976, Page 1
•ókukennsua SlGURÐUR E‘NARSb Unguhn5 5-^12 LIX. árg. — Akureyri, miðvikudaginn 5. maí 1976 — 19. tölublað FILMUhúsis akureyri Karlakórinn Geysir hélt söng- skemmtun, þá fyrstu af fjórum þessa daga, í Borgarbíói á laug- ardaginn. Stjórnandi er tírólinn Sigurður Demetz Fransson og undirleikari Thomas Jackman, báðir kennarar í Tónlistarskóla Akureyrar. Söngskráin er fjöl- breytt og skemmtileg og kórinn býr yfir þrótti og raddfegurð. Að þessu sinni sungu einsöng og tvísöng: Sigurður Svanbergs son, Helga Alfreðsdóttir, Krist- ján Jóhannsson, Aðalsteinn Jónsson og Guðrún Kristjáns- dóttir, og auk þess söng kvenna kór þrjú lög með karlakór og einsöngvurum. Fjölbreytt söngskrá og fersk- leiki einkenna söngskemmtanir Geysis að þessu sinni. Þær eru orðnar margar ánægjustundirnar, sem Karla- kórinn Geysir á Akureyri hefur veitt bæjarbúum og þjóðinni allri í meira en hálfa öld. □ Form. ÍBA afhendir bæjarstjóra undirskriftalista, áskorunlSOO bæjarbúa um svæðis-íþróttahús. Á fundi bæjarráðs Akureyrar 29. apríl sl. komu íþróttafulltrúi bæjarins, Hermann Sigtryggs- son, formaður IBA, ísak Guð- mann, og formenn íþróttafélag- anna Þórs og KA, þeir Haraldur Helgason og Haraldur Sigurðs- son. Þeir afhentu bæjarstjóra undirskriftalista með nöfnum 1800 bæjarbúa, sem skora á bæjarstjórn, að hefjast þegar handa um raunhæfar aðgerðir í framhaldi af þeirri ákvörðun að byggja hið fyrsta annan áfanga Lundarskóla á Akureyri, sem er barnaskóli, fór fram út- boð á byggingunni. í síðustu viku lagði bæjarráð til við bæj- arstjórn, ao taka tilboði Barkar h.f. á Akureyri í smíði hússins. En það fyrirtæki átti lægsta til- boðið. Þrjú tilboð bárust og eftir að þau höfðu verið yfirfarin og borin saman, reyndust tilboðs- upphæðirnar vera, sem hér segir: Tilboð Barkar h.f. 96 millj. og 497 þúsund krónur. Tilboð Smára h.f. var 107 millj. og 747 þúsund krónur. Tilboð Norður- verks h.f. var 111 millj. og 348 þúsund krónur. Áætlaður byggingarkostnaður af teiknistofu húsameistara Akureyrarbæjar var 111 millj. og 237 þúsund krónur. Annar áfangi Lundarskóla er af líkri stærð og sá, sem risinn er og tekinn í notkun. Gert er ráð fyrir, að efri hæð hússins verði tilbúin til notkunar haust- ið 1977. □ í byggingu nýs svæðis-íþrótta- húss í bænum. í framhaldi af þessari afhend- ingu samþykkti bæjarráð, að sækja um fjárveitingu til ríkis- sjóðs, svo unnt sé að hefja fram kvæmdir við húsið af fullum krafti á næsta ári. Nú þegar hafa verið unnar frumteikningar af íþróttahúsinu og þær samþykktar. Samkvæmt grófri áætlun, er gert ráð fyrir að húsið verði tekið í notkun, að hluta, haustið 1979. Við það er fjárbeiðni til ríkissjóðs miðuð Húsið á að rísa á Sundlaugar- túninu, suðvestanverðu. Ekki liggja ennþá fyrir nákvæmar áætlanir um kostnað. □ Dagur kemur næst út miðvikudaginn 12. maí. Sauðárkróki, 4. maí. Aðalfundur Mjólkursamlags Kaupfélags Skagfirðinga var haldinn í Héðinsminni við Stóru-Akra 29. apríl. Fundinn sátu 67 fulltrúar og deildarstjór ar, auk framkvæmdastjóra sam- lagsins, Sólbergs Þorsteinsson- ar, og Helga Rafns Traustason- ar kaupfélagsstjóra, sem setti fundinn. Fundarstjóri var séra Gunnar Gíslason, Glaumbæ. Fram kom meðal annars, að inn vegið mjólkurmagn til samlags- ins var á síðasta ári 8.716.743 lítrar og hafði minnkað um 3,92% frá fyrra ári. Meðalfitan var 3,873%. Framleiðendur voru 274, sem lögðu inn á 265 innleggsnúmer, og hafði þeim númerum fækkað um 21. Sala á neyslumjólk var 11,1% mjólkurinnar. Fullnaðarverð til bænda var kr. 47,31 fyrir hvern líter og vantar því 35 aura á grundvall- arverð hér en 65 aura miðað við landsgrundvallarverð á lítra. Heildargreiðsla samlagsins til framleiðenda á sl. ári var yfir 412 milljónir króna. Á liðnu ári voru fjórir bænd- Sunnudaginn 16. maí er fyrir- hugað að halda firmakeppni Léttis. Um 60 fyrirtæki taka þátt í keppninni, sem mun fara fram á skeiðvelli félagsins við Eyjafjarðarár. Þar munu flestir af bestu hestum bæjai'ins mæta til leiks og keppa fyrir hin ýmsu fyrirtæki. Er fólk hvatt til að koma og sjá þarna fallega og góða hesta. Þá er ákveðið að hinar áiiegu kappreiðar Léttis vei'ði þann 27. maí á sama stað og.firma- keppnin. Búist er við mikilli þátttöku bæði í kappreiðunum og góðhestakeppninni, þar sem fjórðungsmót verður hér í Eyja- firði í sumar og þau hross sem best munu standa sig verða full- trúar Léttis á fjórðungsmótinu. Firmakeppnin og kappreiðarn ar verða auglýstar í blaðinu síðar. Myndin er af hópreið hesta- manna á Akureyri á sumardag- inn fyrsta. (Ljósm.: E. D.) ur, sem lögðu inn yfir 100 þús- und lítra mjólkur hver. Þeir eru: Trausti Sveinsson, Bjarnar gili, Sigurbjörn Þorleifsson, Langhúsum, Leifur Þórarins- son, Keldudal og Ólafur Þórar- insson, Flugumýrarhvammi. Ályktun var gerð til stuðn- •ings tillögu Ármanns Héðins- sonar um verndun mjólkur í verkföllum. G. Ó. Tónleikar í Skjólbrekku Mývatnssveit, 4. maí. Laugar- daginn 1. maí voru nemenda- tónleikar tónlistarskólans í Mý- vatnssveit haldnir í Skjól- brekku, að viðstöddum fjölda áheyrenda, sem fagnaði hinu unga tónlistarfólki vel. Tón- listarskólinn hér er deild úr Tónlistarskóla Húsavíkur. Nem endur voru 44 í vetur. Aðal- kennari er Sigríður Einarsdóttir fiðluleikari, en hún hefur á síð- ustu þremur árum unnið frá- bært starf að tónlistarmálum í Mývatnssveit. Kór Reykjahlíðar k i r k j u gekkst fyrir kirkjukvöldi 2. maí. kórinn söng undir stjórn Jóns Árna Sigfússonar. Undirleikari á píanó var sóknarpresturinn, séra Örn Friðriksson.. Sigríður Einarsdóttir lék á fiðlu við undirleik séra Arnar og prestur inn sýndi litskyggnur. Loks söng kórinn aftur. Mikil ánægja var með þessa kvöldstund í Reykjahlíðarkirkju. J. I. Tónlistarskólinn á Akureyri varð 30 ára 20. jariúar í vetur. Skólinn efnir til fimm vortón- leika í maímánuði. Hinn 8. maí í Borgarbíói klukkan 15.00, hinn 11. maí í Samkomuhúsinu á sama tíma og í Akureyrarkirkju 16. maí. Aðgangseyrir, sem er 100 luúnur, rennur £ Minningarsjóð Þorgerðar Eiríks'dottur. Þá verða tónleikar í Tónlistar skólanum 20. maí kl. 20.30 og 23. maí á sama stað og á sama tíma. Tónlistarskólanum verður svo slitið í Borgarbíói 29. maí ldukkan 14.00 og þar afhent prófskírteini. □

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.