Dagur - 05.05.1976, Qupperneq 5
4
Z7
Skrifstofur, Hafnarstræti 90, Akureyri
Símar 1-11-66 og 1-11-67
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
ERLINGUR DAVÍÐSSON
Auglýsingar og afgreiðsla:
JÓHANN K. SIGURÐSSON
Prentverk Odds Björnssonar h.f.
Gróska í lisfum
Veruleg gróska er í ýmsum greinum
menningar norðan fjalla á síðustu
tímum. Má í því efni minna á leik-
listina, sem iðkuð er í sveitum og
bæjum allt frá Blönduósi til Þistil-
fjarðar og nær undantekningarlaust
undir stjórn hæfra manna, en þá
fyrst er iðkun leiklistarinnar leik-
endum góður skóli í framsögn og
framkomu og áheyrendum verðug
skemmtun. Á Akureyri var sjónleik-
urinn Tangó framsýndur í haust,
síðan Kristnihald undir Jökli, Gler-
dýrin, Rauðhetta og nú síðast Um-
hverfis jörðina á áttatíu dögum, og
auk þessa var þjóðskáldsins frá Fagra
skógi minnst með kvöldvöku. Eitt
þessara leikhúsverka verður flutt á
Listaviku í Reykjavík í vor og annað
sýnt víðsvegar utn land. Leikliús
Akureyrar er nú búið að hef ja sig til
meiri vegs en áður undir stjórn dug-
legs leikhússtjóra og með veralegri
aðstoð samfélagsins. Þá sýndu nem-
endur M. A. sjónleikinn Elliheimilið
og nýlega stofnað leikfélag á Akur-
eyri sýnir frumsamið leikhúsverk,
Krummagull, víða um land. Sýnir
þetta allt hina miklu grósku í höfuð-
stað Norðurlands í þessari listgrein,
en á öðram stöðum er hún tiltölu-
lega eins mikil eða meiri, svo sem í
sumum fámennum byggðarlögum.
En söng- og hljómlist er einnig
vaxandi í þessum landshluta. Kórar
hafa lengi einkennt Norðurland. En
nú eru til viðbótar einnig starfandi
tónlistarskólar á ýmsum stöðum og
tónlistarfélög og era þeir að breyta
viðhorfum almennings til tónlistar-
mála, auk skilnings á gildi söngs og
hljómlistar. Kórarnir, sem lengi hafa
verið eftirlæti þorra fólks halda enn
fullri reisn. Til marks um það á
Akureyri má nefna Geysi, sem um
þessar mundir lieldur samsöngva,
Karlakór Akureyrar, sem ekki lætur
sitt eftir liggja, Söngfélagið Gígjuna,
Passíukórinn og kirkjukórana. í
Tónlistarskóla Akureyrar ganga
hundruð ungmenna fyrstu spor á
tónlistarbraut og tónlistarfélag bæj-
arins laðar listamenn söngs og tóna
hingað norður. Lúðrasveit bæjarins
setur svip á bæinn við hátíðleg tæki-
færi.
Akureyri er hér tekin sem dæmi
um gróandi leik- og tónlistarlíf á
Norðurlandi, en er aðeins dæmi um
landshlutann, sem í þessu efni fylg-
ist að. Við getum auðvitað lifað án
leiklistar og hljómlistar og einnig án
þess að æfa kóra, og það gerði þjóðin
um aldir. En síðan barátta manna
beindist inn á aðrar brautir en brauð
stritið eitt, era hinar ýmsu listgrein-
ar lífsfylling, sem ber að styðja. □
í byrjun sumars barst sú harma
fregn um bæinn, að hafnarstjór-
inn okkar, Pétur Bjarnason,
væri látinn. Hann hafði látizt
síðasta vetrardag, 21. apríl, að-
eins 37 ára að aldri, en hann
var fæddur þann 4. janúar
1939.
FÆDBUR 4. JANÚAR 1939. DÁINN 21. AFRÍL 1976.
Hann hafði átt við vanheilsu
að stríða svo skamma hríð, að
engan gat grunað að sú mikla
umbreytingarstund væri . að
nálgast, er hann skyldi flytjast
búferlum úr vistaverum mann-'
legs jarðlífs yfir á æðra tilveru-
stig. Hann var svo ungur ' að
árum að sjálfsagt virtist, að
hann ætti enn fyrir höndum
langan starfsdag hérna megin
móðunnar miklu. Samt var
hann nú horfinn sjónum okkar
dauðlegra manna óg við sitjum
eftir í vanmegna skilningleysi á
þau æðri rök tilverunnar, er
ákveða mönnum örlagastund
eftir svo skammt lífshlaup. En
ekki tjóir að deila við dómara
allra lifenda og við hneigjum
höfði okkar í lotningu fyrir
höfundi tilverunnar um leið og
við biðjum hann að halda
almáttugri verndarhendi sinni
yfir Pétri Bjarnasyni í nýjum
bústöðum .sálar hans.
Pétur Bjarnason hóf störf
sem eftirlitsmaður með bygg-
ingu dráttarbrautarinnar á Ak-
ureyri -að loknu námi 1966. Er
byggingu dráttarbrautarinnar
lauk, varð hann hafnarstjóri
Akureyrar og því embætti
gegndi hann allt til dauðadags.
Á þessum tíma hefur verið við
veruleg vandamál að stríða hjá
Akureyrarhöfn tæknilegs eðlis,
sem erfitt hefur verið að fást
við. En Pétur Bjárnason lét
aldrei hugfallast, heldur rækti
störf sín af alúð og kostgæfni
og með þeirri einstöku dagfars-
prýði, sem honum er eiginleg.
Fyrir störf hans öll flytur bæjar
stjóm Akureyrar honum að
leiðarlokuni innilegar þakkir
um leið og alúðarfyllstu samúð-
arkveðjur eru sendar elskuleg-
um og traustum lífsförunaut
hans, frú Giselu, og börnunum
þrem, svo og-foreldrum hans og
bræðrum, sem-öíl eiga um sárt
að binda í sorg sinni og söknuði
vegna þessa mikla missis. Guð
blessi þau öll.
Valur Amþórsson,
forseti bæjarstjórnar.
- ■ f .
Sá, sem fæðist í þennan heim
veit það eitt með fullri vissu
um sína ævibraut að henni lýk-
ur fyrr eða síðar. Flestir búast
þó við að fá að lifa að minnsta
kosti meðalævi, að eiga ævivor,
sumar og haust og að mega síð-
an hverfa héðan í friði við guð
og menn með gott ævistarf að
baki. Flestir íslendingar telja
sig hafa nokkra vissu um það
sem þá tekur við, því lífsvið-
horf okkar er kristið og við vit-
um, að ekkert, sem guð hefur
skapað, getur orðið að engu, þó
formið breytist, síst lífið sjálft.
Víst söknum við samferðar-
manna, sem kveðja að fullnuðu
ævistarfi. Þó vitum við að sú
brottför er eðlileg og að end-
ingu óhjákværaanleg og að
endurfundir eru framundan.
Miklu erfiðara er að þurfa að
sjá á bak ástvinum og kærum
samferðarmönnum, sem kallað-
ir eru yfir landamærin miklu
löngu fyrir tímann. Þegar slíkt
gerist skyndilega og án aðdrag-
anda er það áfall, sem erfitt er
að jafna sig eftir. Slíkt áfall var
fregnin um hið skyndilega frá-
fall Péturs Bjarnasonar, sem
b'arst síðasta vetrardag. Þá var
hlýr vordagur eins og þeir ger-
ast bestir á Akureyri. En mörg
okkar fundu lítið til hlýju vors-
ins. Ský hafði dregið fyrir sólu
og fyrst og fremst fundum við
kaldan gustinn af ljánum mikla.
Pétur Bjarnason var 37 ára,
sonur sæmdarhjónanna Ólafar
Guðmundsdóttur og Bjarna
Jónssonar úrsmiðs. Þar koma
saman norðlenskar bændaættir
og vestfirskar sjómannaættir,
rammíslenskur jarðvegur, vel til
þess fallinn að gefa af sér það,
sem er traust og gott. Ekki er
þeim heldur fisjað saman, hjón-
unum, því hinn óvasnti harmur
er ekki sá fyrsti sem ber að
þeirra garði. Synina hafa þau
eignast sjö 'óg’ er Pétur sá
fimmti, sem þau sjá á bak yfir
móðuna miklu.
Pétur ólst upp með foreldrum
sínum og bræðrum. Hann gekk
í skóla á Akureýri og varð
stúdent 1959. Prófi í vélaverk-
fræði lauk hann í Darmstadt í
Þýskalandi 1966. Þar kynntist
hann geðþekkri og gáfaðri ungri
stúlku, Giselu Stephan,' og
gengu þau í hjónaband 1963.
Slíkur er máttur ástarinnar að
Gisela yfirgaf föðurgarg og
flutti með íslendingnum sínum
til landsins með kalda nafninu
og settist að hér norður undir
heimskautsbaug. Slíkt er ekki
heiglum hent, en tengdafólk
hennar tók henni opnum ör'm-
um. Hún einbeitti sér líka að
því að aðlagast sínu nýja sam-
félagi, sem henni hefur tekist
aðdáanlega. Hún lærði málið
fljótt og varð vel tií vina og
-hefur tekið vaxandi- þátt í
margskonar félagsstarfsemi og
er löngu orðin eins mikill ís-
lendingur og Akureyringur og
hver annar hér í Bæ. Og nú,
þegar hún hefur orðið fyrir hin-
um mesta harmi, hefur hún
fundið, að hún stendur ekki ein,
því þegar þess gerist þörf er
ísland land samúðar, ástúðar og
hjálpsemi.
Eftir heimkomuna hóf Pétur
störf sem trúnaðarmaður hafn-
arstjórnar Akureyrar við gei'ð
dráttarbrautarinnar. Þegar leið
að lokum þess verks var hann
skipaður hafnarstjóri.
Leiðir okkar Péturs lágu sam-
an skömmu áður en ég tók við
embætti bæjarstjóra. Við höfð-
um fljótt mikið saman að sælda
og stóð samstarf okkar óslitið
síðan. Mér varð strax hlýtt til
þessa brosmilda unga manns.
Ég fann fljótt að hann hafði
fullt vald yfir verkefnum sín-
um og við áttum mörg sameigin
leg áhugamál. Mér finnst nú
gott-til þess að hugsa að okkur
greindi aldrei á í þessu sam-
starfi. Eins og alþjóð veit hefur
vérið'við alvarleg vandamál að
glíma í hafnarmálum Akureyr-
ar-á þessum .árum og virtust
þau stundum óyfirstíganleg. En
brosið hans Péturs . og léttar
athugasemdir hjálpuðu við
láusn margra vandamála, því
oft-er bjartsýnin beittasta vopn-
ið þegar erfiðleikar steðja að.
í störfum sínum þurfti Pétur að
hafa samskipti við marga aðila,
allt upp til æðstu stjórnvalda
landsins, og iðulega við útlend-
inga. Oft voru fundir storma-
samir og samningar erfiðir. En
þrátt fyrir það eignaðist Pétur
vini hvar sem hann kom, í
hverri stofnun, því framkoma
hans var elskuleg og drenglyndi
hans og heiðarleiki í samskipt-
um við alla augljós. Þessir eigin
leikar voru honum og höfninni
mikils virði, því þeir, sem hafa
þá til að bera, njóta ævinlega
betri þjónustu og fyrirgreiðslu
en þeir, sem ganga fram með
fruntaskap og frekju.
Nú hafa flest tæknileg vanda-
mál Akureyrarhafnar verið
leyst. Komið hefur verið upp
samstilltum starfshóp, véla og
tækja aflað og framkvæmdir í
fullum gangi. Að öllu þessu hef
ur Pétur unnið með natni og
sérstakri útsjónarsemi. Munu
bæjarbúar lengi njóta ávaxta
þessa starfs hans en allt bendir
til að erfiðleikatímabil hafnar-
framkvæmda á Akureyri sé nú
að mestu lokið.
Gjörva hönd lagði Pétur
Bjarnason að fleiri störfum hér
í bæ. Má þar tilnefna þátt hans
í kaupum og uppsetningu skíða-
lyftunnar í Hlíðarfjalli og störf
hans fyrir íþróttafélagið Þór.
Hvar sem var komu hæfileikar
hans glöggt fram. Ég get ekki
stillt mig um að segja frá síð-
asta verkinu sem hann vann
fyrir bæinn. Þriðjudaginn fyrir
páska tóku þau hjónin fyrir
hönd bæjarins á móti þýskri
hljómsveit, sem sótt hafði bæ-
inn heim, í hádegisverði uppi í
Skíðahóteli. Þar flutti Pétur
ræðu á sinni ágætu þýsku.
Hann sagði tónlistarfólkinu frá
landi og bæ og fræddi það um
höfuðvandamál þjóðar okkar
nú, landhelgismálið. Ekki er að
efa að persónutöfrar hans hafa
notið sín og að gestir bæjarins
hafi horfið af hans fundi fróðari
en er þeir komu. Þar átti Akur-
eyri góða fulltrúa, þau Giselu
og Pétur.
Ekki þekkti ég einkalíf Pét-
urs náið, en ég fann vel að hann
var hamingjusamur maður.
Starfið var honum mikils virði,
en hann vanrækti ekki heimili
né fjölskyldu. í uppbyggingu
heimilis síns sýndi hann áömu
útsjónarsemi og hyggindi og í
starfi sínu. Nýlega höfðu þau
hjónin komið upp fallegu húsi
þar sem þau að miklu leyti með
eigin höndum voru að búa börn
unum sínum þremur fagurt
heimili. Einnig þarna voru nú
mestu erfiðleikarnir að baki og
léttara framundan.
Fyrir okkur, sem höfum
alvisku guðs og kærleika sem
grundvöll lífsskoðunar okkar,
er erfitt að skilja og hvað þá
viðurkenna þá ráðstöfun að
kalla Pétur Bjarnason á brott
einmitt nú, þegar hann var að
nálgast hásumar lífs síns, hafði
sýnt hvað í honum bjó en átti
samt svo margt ógert. Honum
var falið að ryðja brautina fyrir
aðra en fyrirmunað að njóta
ávaxtanna sjálfur hér í heimi.
En vegir guðs eru órannsakan-
legir. Hann hefur kallað hann
Pétur okkar til sín, en eftir sitj-
um við hin, ráðvillt og full af
söknuði. Efst er mér í huga
þaltklæti til Péturs fyrir lær-
dómsrík kynni og góðan félags-
skap og bæn um handleiðslu
guðs á þeirri leið, sem hann nú
gengur.
Samúðarkveðjur og bænir um
handleiðslu og styrk sendum
við hjónin Giselu og börnun-
um hennar, foreldrum Péturs,
bræðrum og öðrum ástvinum.
Okkar bestu þakkir, Pétur
minn, fyrir allt og allt.
Bjarni Einarsson.
Orlög valda því, að ég má ekki
skrifa nema nokkur orð. Þó get
ég ekki látið það ógert. Og ég
vil þá í dag minnast manns, sem
ég var samvistum við — aðeins
stuttan tíma.
Um það leyti, sem fólk bjó
sig almennt undir það að halda
sigurhátíð páskanna hátíðlega,
gerðumst við vistfélagar og her-
bergisnautar á stofu 7 á lyf-
læknadeild F.S.A. Hvorugur
hafði þó hugsað sér að eyða
páskunum þar. Undirritaður
hafði þegar auglýst fimm mess-
ur auk annarra verka, en hinn
ætlaði sér að stunda „fjallið“
með fjölskyldu sinni og fá
fallega brúnan Ut á fölan vanga.
En það er nú enn svo, að hið
fornkveðna stendur: „Kóngur
vill sigla en byr hlýtur að ráða.“
Þessi herbergisnautur minn var
Pétur Bjarnason verkfræðingur
og hafnarstjóri.
Það fór einkar vel á með
okkur Péti’i þennan stutta tíma,
sem við vorum saman. Pétur
var vel hress og glaður og kunni
frá mörgu að segja. Og við vor-
um búnir að gera ýmsar áætl-
anir, er við hresstumst báðir,
m. a. stunda manntafl og fl.
Pétur var alltaf glaður og von-
góður. Þannig gekk hann til
hvílu í seinna lagi að kvöldi 20.
apríl, glaður og reifur sem fyrr.
En örlög vor mannanna ráðast
oft með skjótum og óvæntum
hætti. Um nóttina vaknaði ég,
ekki þó við vondan draum,
heldur vondan veruleika. Mér
varð strax ljóst, að alvara mikil
var á ferðum. Því sem gerðist
verður ekki nánar lýst. Allt var
gert, sem í mannlegu valdi stóð
til bjargar, en fyrir hádegi var
öllu lokið. Var öllu lokið? segi
ég. — Það getur allt eins verið,
að þá hafi allt verið fullkomnað.
Á Golgata var sagt: Það er full-
komnað. En á páskum staðfesti
Kristur þetta: Ég lifi og þér
munuð lifa.
Eina minningu, sem ég sagði
Pétri, verð ég að skrifa hér upp.
Sú minning er af frænda hans
og nafna, Pétri Bjarnasyni skó-
smið. Við lágum saman hér á
stofu í Fjórðusgssjúkrahúsinu
fyrir nokkrum árum. Ég fann
sárt til þess að geta ekki talað
við þennan herbergisfélaga
minn, og ég hefi stundum hugs-
að um það síðan, að gera ætti
fingramál að skyldufagi í barna
skólum. Það mætti vel sleppa
einhverju öðru sem óþarfara er.
En þó við Pétur gætum ekki
talað saman, var það eitt mál,
sem báðir skildu, mál vinátt-
unnar og kærleikans. Og stund-
um strauk ég lófa mínum um
vanga hans og leit í augu hon-
um. Þá sá ég allt og skildi allt,
sem ég þui'fti að sjá og skilja.
Og nú get ég ekki lengur tal-
að við þig, Pétur. En í huga
mínum get ég strokið hendi
minni um vanga þinn, og séð
og skilið allt eins og hjá nafna
þínum forðum. Ritningin segir:
f upphafi vor orðið. Ég dreg
það ekki í efa, en stundum
finnst mér þar hefði átt að
standa: í upphafi var kærleik-
urinn og ekki aðeins það, held-
ur líka: Kæi'leikurinn er síð-
astur. Ég þakka þér einlæga
vináttu fárra daga, og bið góðan
Guð að blessa þig og ástvini
þína alla. Ég og fjölskylda mín
sendu frú Giselu, börnum
ykkar, öldruðum foreldrum,
bræðrum og vinum samúðar-
kveðju. Requieseat in pace.
Skrifað á F.S.A. 23. apríl.
Stefán Snævarr.
SAMVINNUFERÐIR
Samvinnuferðir eru nú að hefja
sólarferðir til suðui'landa. í lok
júnímánaðar hefjast ferðir til
Costa del Sol á Spáni og til
Algarve í Portúgal en til þess-
ara staða verður farið fram í
miðjan okt.
Félagsmenn kaupfélaganna
og samvinnustai'fsfólk mun fá
kr. 5.000 í afslátt.
Hrafnhildur Sigurðardóttir
frá Samvinnuferðum verður til
viðtals á Akureyri um þessar
ferðir sem hér segir: Á skrif-
stofu Iðnaðardeildar SÍS föstu-
daginn 7. maí kl. 11—17, sími
21900. Á Hótel KEA laugardag-
inn 8. maí kl. 9—-17, shni 22200.
(Fréttatilkynning)
rAtvinna
12—13 ára stúlka óskast
til að gæta 3ja ára
drengs í sumar.
Uppl. í síma 2-22-72.
Vantar að koma í fóstur
2ja ára stúlku frá kl.
7-4.
Uppl. í síma 1-99-46.
Óska eftir konu eða 12
—14 ára stúlku til að
gæta 7 mánaða bams
sem fyrst. Æskilegt í,
eða nálægt innbænum.
Á sama stað óskast til
kaups barnabílastóll.
Uppl. í síma 2-26-58
milli kl. 8 og 9 á
kvöldin.
Óska eftir áreiðanlegri
unglingsstúlku í vist
1. júní.
Sími 2-20-72.
Stúlka óskast í vist
í sumar að gæta bræðra
2ja og 4ra ára.
Uppl. í síma 2-26-15.
Óskum eftir barngóðri
konu til að gæta 16 mán-
aða gamallar telpu.
Uppl. í síma 1-13-07
eftir kl. 7 e. h.
Kona óskast til að sjá
um lítið heimili.
Herbergi getur fylgt.
Uppl. í síma 2-12-67
eftir kl. 6 e. h.
Tek ungböm í gæslu
frá kl. 1—6 e. h. virka
daga.
Sími 1-95-76.
Okkur vantar krakka
til að bera út blaðið.
Afgreiðsla Dags,
sími 1-11-67.
Til sölu Sound City
gítarmagnari 100 wött,
Uppl. í Furulundi 2 d
eftir kl. 7 á kvöldin.
Til sölu súgþurrkuð
TAÐA.
Braei Inejaldsson,
Birkihlíð.
Til sölu góð, létt jeppa-
kerra, gúmmíbátur og
reiðhjól.
U-ppl. í síma 2-18-54
eftir kl. 9 á kvöldin.
Til sölu HONDA SS 50
árgerð 1975.
Árni Sigurösson,
Höskuldsstöðum.
MÓTATIMBUR
Notað mótatimbur til
sölu.
Uppl. í síma 2-20-40
frá kl. 6—8 næstu kvöld.
Vel með farinn kerru-
vagn tií sölu.
Sími 2-10-28.
TRILLA til sölu!
Tveggja ára trilla er til
sölu strax. 3,2 tonn með
stýrisliúsi. Vél: Lister
diesel 30 hö. loftkæld.
Kraftblökk fylgir.
Kelvin Hughes dýptar-
mælir. 150 uppsett grá-
sleppunet ásamt tilheyr-
andi fylgja.
Verð 4—4,5 milljónir.
Uppl. gefur Einar
Kristjánsson í síma
93-1421, Akranesi.
Til sölu notað borð-
stofuborð og stólar.
Selst ódýrt.
Uppl. í síma 2-29-15
eftir kl. 7 e. h.
Til sölu sjálfvirk
Hoover þvottavél.
Uppl. í síma 2-18-91.
Til sölu barnavagn
og barnarúm.
Uppl. í síma 2-30-15.
Vill kaupa árg. ’73 eða
’74 af Fíat 127 eða 128.
Ford Escord kemur
einnig til greina.
Staðgreiðsla.
Uppl. í síma 2-24-70.
Tilboð óskast í VW
1600 árg. 1967 skemmd-
an eftir árekstur.
Uppl. í síma 2-22-98
eftir kl. 7 e. h.
Til sölu
Mazda 818 árg. ’74.
lítið ekinn,
mjög góður bíll.
Uppl. í síma 2-24-00 og
1-13-16.
; Ýmislaöt :
BÁTUR!
Óskum að taka á leigu,
helst strax, með kaup
síðar í huga, bát 5—7
tonn. Æskilegt að bátur-
inn sé yfirbyggður.
Uppl. í síma 1-96-74.
tFundið
Karlmannsúr fannst ná-
lægt Fálkafelli.
Eigandi hringi í síma
2-27-63.
Húsnæöi
Til sölu íbúðarliúsið
Ægissíða á Grenivík.
Uppl. í síma 3-31-17.
Ung barnlaus hjón óska
eftir lítilli íbúð til leigu
sem fyrst.
Uppl. í síma 2-12-32.
Tveggja eða þriggja her-
bergja íbúð óskast fyiir
starfsmann okkar.
Tvennt fullorðið í
lieimili.
Uppl. gefur starfs-
mannastjóri.
Slippstöðin hf.
Fjögurra til fimm her-
“bergja íbúð óskast til
leigu sem fyrst.
Uppl. í síma 2-25-43.
Verkfræðiskrifstofa
Sig. Thoroddsen.
Glerárgötu 36,
Akureyri.
Lítil íbúð ókast til leigu
í 3—4 mánuði.
Fyrirframgreiðsla ef
óskað er.
Uppl. í síma 2-23-35
eftir kl. 7 e. h.
Ung reglusöm kona
með tvö börn óskar eftir
lítilli íbúð til leigu.
Árs fyrirframgreiðsla
ef óskað er.
Uppl. í síma 2-19-17.
Óskum eftir íbúð
til leigu.
Uppl. í síma 2-27-35.
Mjög góð tveggja herb.
íbúð við Skarðshlíð
til sölu.
Uppl. í síma 1-10-32
eftir kl. 19.00.
Þriggja herbergja íbúð
óskast til leigu.
Sími 1-96-34 eftir kl. 20.
Þriggja herbergja íbúð
til sölu.
Nýlega standsett. Lítil
útborgun.
Uppl. í síma 2-18-80.
Albertsmótið svokallaða hélt
áfram um síðustu helgi. Þá
kepptu KA og Völsungur á
laugardag og Þór og Reynir á
sunnudag. N. k. föstudag heldur
mótið áfram og þá keppa KA og
Þór hér á Akureyri, og á sunnu
dag er síðasti leikur mótsins
milli Völsungs og Reynis og fer
hann fram á Húsavík. Ef tvö lið
verða jöfn að stigum eftir þess-
ar umferðir þai'f að leika auka-
leik um fyrsta sætið, og fær þá
það lið sem sigrar Albei'ts-
bikarinn til varðveislu fram á
næsta vor.
KA-menn á skotskónum.
KA og Völsungur léku á Þórs
vellinum á Akureyri laugardag
inn 1. maí í nokkurri norðan
golu. Nokkrar breytingar höfðu
verið gerðar á liðunum frá síð-
ustu helgi og virðist sem þjálf-
ararnir séu að reyna nýja menn
til að finna hinn rétta kjarna
liðanna.
Völsungar kusu að leika und-
an golunni í fyrri hálfleik og
fyi’stu mínúturnar skiptust lið-
in á að sækja, en á 7. mín.
komst Sigbjörn Gunnarsson
einn innfyrir vörn Völsunga.
Innan vítateigs var honum gróf
lega hrint og dæmdi dóarinn
Arnar Einarsson réttilega víta-
spyrnu. Jóhann Jakobsson tók
vítið og skoraði. Strax á 10. mín.
var Jóhann aftur í góðu færi og
Rúllukragabolir
Rúllukragabolir
Rúllukragabolir
PÓSTSENDUM!
Amaro
DÖMUDEILD.
Lögfræði og fast-
eignaskrifstofan
Ráðhústorgi 1,
sími 2-22-60.
TIL SÖLU:
Einbýlishús við Þing-
vallastræti.
Raðhús í Gerðahverfi.
4ra herbergja íbúð
við Ránargötu.
3—4ra herbergja risíbúð
við Ránargötu.
4ra herbergja íbúð
við Löngumýri.
4ra herbergja íbúð
við Höfðahlíð.
4ra herbergja íbúð
við Skarðshlíð.
3ja herbergja íbúð
við Skarðshlíð.
(Skipti á raðhúsi eða
einbýlishúsi æskileg).
2ja herbergja íbúð
við Tjarnarlund.
2ja herbergja íbúð
við Hamarsstíg.
4ra herbergja íbúð
við Hafnarstræti.
Steindór Gunnarsson
lögfræðingur.
senn lokið
skoraði þá örugglega. Var nú
staðan orðin 2—0 'og blés nú
mjög byi'lega fyrir KA-mönn-
um. í fyrri hálfleik fengu KA-
menn tvær hornspyrnur en
Völsungar enga.
í seinni hálfleik byrjuðu KA-
menn á að sækja og á 7. mín.
átti Ármann Sverrisson skot í
stöng, en mark kom á 12. mín.
og var þar að verki Sigbjörn
Gunnarsson. Ármann skoraði
síðan á 18. mín. eftir að hafa
einleikið í gegn um vörn Völs-
una. Á 35. mín. skoraði Ármann
aftur eftir góðan samleik við
Sigbjörn og Jóhann. Fleiri urðu
mörkin ekki í þessum leik sem
lauk með sigri KA, 5 gegn engu.
Lið Völsungs hefur á að skipa
mörgum góðum einstaklingum
og spilaði liðið oft mjög góða
knattspyrnu. Bestur virðist
vera fyrirliði þeirra, Guðmund-
ur Jónsson, og stjórnaði hann
liði sínu af mikilli festu.
Þórsarar komust á strik.
Þór og Reynir léku á Þórs-
vellinum sunnudaginn 2. maí.
Veður var kalt og hríðarfjúk og
norðaustan gola.
í fyrstu skiptust liðin á að
sækja og á 10. mín. áttu Reynis-
menn góða sókn sem lauk með
marki er Hákon Henrysson
gei'ði. Við þetta mai'k efldust
Þórsarar og sóttu nokkuð mikið
næstu mínútur. Á 19. mín. var
einum af sóknai'leikmönnum
Þórs brugðið innan vítateigs
Reynis-manna, og dæmdi dóm-
arinn, Bergur Höskuldsson, víta
spyrnu. Aðalsteinn Sigurgeirs-
son skoraði úr vítinu og jafnað-
ist þá staðan í leiknum. Á 29.
mín. skoruðu síðan Þórsarar sitt
annað mark og var þar að verki
nýliði í liðinu, Einar Björnsson.
í fyrri hálfleik fengu Þórsarar
tvær hornspyrnur en Reynis-
menn enga.
í seinni hálfleik sóttu Þórsar-
ar mikið og á 10. mín. skoraði
Sigurður Lárusson þriðja mai’k
Þórs og tryggði liði sínu um leið
eitt aukastig í mótinu. Á 43.
mín. varði Eiríkur markmaður
Reynis mjög gott skot frá Jóni
Lárussyni og síðustu mín. leiks-
ins sóttu Þórsarar ákaft, en
fleiri mörk voru ekki gerð í
þessum leik.
' Lið Þórs er nær óþekkjanlegt
frá síðasta leik liðsins við Völs-
ung á Húsavík og virðist nú sem
þjálfarinn sé að finna hinn rétta
kjarna þess.
Reynis-menn leika oft á tíð-
um góða knattspyrnu og _ er
barátta liðsins mjög mikil, en
einstaka leikmönnum hættir til
að hugsa meira um andstæðing-
inn en boltann, en með meiri
leikreynslu öðlast leikmenn
meiri knatttækni og verða út-
sjónarsamari í leik sínum.
Úrslit helgarinnar:
KA — Völsungur 5—0
Þór — Reynir 3—1 í
Viðureign Þói's og KA fer
fram á Þórsvellinum n. k. föstu
dag kl. 21.00.
Staðan í Albertsmótinu er nú
þannig:
L U J T Möi'k S
KA 2200 8—0 6
Þór 2 110 4—2 4
Völsungur 2 0 11 1—6 1
Reynir 2 0 0 2 1—6 0
Mai'khæstu leikmenn:
Jóhann Jakobsson, KA 4
Ármann Sverrisson, KA 2
r r
o. a.