Dagur - 05.05.1976, Side 8

Dagur - 05.05.1976, Side 8
Dagur Akureyri, miðvikudaginn 5. maí 1976 FERMINGAR GJAFIR I /ffj' ýL.GULLSMIÐIR I MIKLU J? \ SIGTRYGGUR ÚRVALI 1 & PÉTUR f AKUREÝRI Jón Kristinsson cg Sigurveig Jónsdóttir í hlutverJcum sininn. (Ljósm.: Ljósmyndastoía Páls) Það er engu líkara en að Leik- íélag Akureyrar hafi eflst svo að hæfni og áræði á liðnum vetri, að vandasöm leikhúsverk séu .þyí hvorki ofvaxin í æfingu eðá flutningi. Mun leikhúslíf á Akuréyri aldrei hafa staðið með niéiri blóma en í vetur. . Leikárinu lýkur með sýning- um á hinu víðkunna leikriti Jules Vern, Umhverfis iörðina á 80 dögum, í þýðingu Eyvindar Erlendssonar lei'khússtjóra og undir leikstjórn hans og var það bæði djarft val og erfitt við- fangsefni. Sýningar standa nú yfir og hafa þær hlotið góða dóma leikhúsgesta. Sjónleikur- inn Umhverfis jörðina á 80 dög- um hefur ekki áður verið svið- settur hér á landi. Fram koma 34 persónur í leiknum og leik- urinn fer fram á 39 stöðum, en það sýnir hve leikstjórnin er vandasöm og búnaður mikill, sviðskipti hröð og innkomur. í helstu hlutverkum eru Gest- ur E. Jónasson, Aðalsteinn Berg dal, Þórir Steingrímsson og Saga Jónsdóttir. □ Hinn 30. apríl fór fram við Odd- eyrarskóla á Akureyri keppni í Norðurlandsriðli í reiðhjóla- þrautum skólabarna, sem Um- ferðarráð og menntamálaráðu- neytið gengst fyrir. Umsjónar- menn voru Guðmundur Þor- FRÁ LÖGREGLUNNI Á AKUREYRI Tveir menn voru teknir um og fyrir helgina, grunaðir um ölv- un við akstur. Velti annar bíl' sínum og reyndist undir áhrif- um áfengis. Innbrot var framið á laugar- dagsnóttina í Skipagötu 4 og stolið á milli 20 og 30 þúsund krónum í peningum. Var verkn aður þessi strax kærður til lög- reg'lunnar, sem hafði upp á söku dólgnum síðar sömu nótt og reyndist hann vera piltur um tvítugt. Þá var um helgina brotin stór rúða í Bólcval, og eru slík rúðu- Ijrot of algeng í miðbænum. Lögreglan lét þess getið, að hér hefðu eflaust verið margir sjónarvottar, en þó enginn til frásagnar. Yfirleitt var rólegt í bænum í síðustu viku. □ SÍÐASTI FUNÐURINN Síðasti bændaklúbbsfundurinn var haldinn á Ilótel KEA á mánudaginn. Frummælandi á fundinum var Árni G. Péturs- son ráðunautur og ræddi hann um fóðrun sauðfjár. Fundur þessi var ekki fjölmennur, enda bændur önnum kafnir við vor- verkin, en umræður urðu tals- vert miklar. □ steinsson kennari og Sigurður Ágústsson fulltrúi. Hófst keppn in klukkan 3 síðdegis. Sigurvegari varð Sveinbjörn Dúason, Barnaskóla Akureyrar, sem keppti fyrir Stjörnuapótek (fyrirtækjakeppni um leið). Annar varg Jóhannes Árnason, Lundarskóla, sem keppti fyrir Bautann, þriðji Hansína Haf- steinsdóttir, Oddeyrarskóla, sem keppti fyrir Baug og Nanna Leifsdóttir, Barnaskóla Akur- eyrar var í fjórða sæti og keppti fyrir Borgarbíó. Þau fyrirtæki, sem þátt tóku í þesSu, eru auk fyrrnefndra, Sport- og hljóð- fyrrnefndra, Sportvöruverslun Brynjólfs Sveinssonar, Iðnaðar- deild SÍS, Linda, KEA Amaró og Pedro. Sigurvegarinn fær að launum Vínarferð 18. maí til alþjóðlegr- ar keppni í hjólreiðaíþróttum. Þrír aðrir íslenskir piltar munu einnig fara þangað sömu erinda, einn úr Kópavogi og tveir úr Eeykjavík. □ Ég tel nauðsynlegt, að leiðrétta grein Einars Hallgrímssonar sem birtist í Degi þann 9. apríl síðastliðinn. Einar kemur þar fram með tillögur í 7 liðum og mun ég gera athugasemd við hvem lið fyrir sig, Einar hefur vísv'itandi gert stefnu garðyrkjudeildar bæjarins að sínum tillögum og er það furðulegt, að reyna að upphefja sig með þeim hæt'ti. 1. liður, almcnn ræktunarmál. Að sjálfsögðu er lögð ábersla á hirðingu skrúðgarða bæjarins og annarra svæða svo sem fjár- ráð leyfa. .Áhersla hefur einnig og verið lögð á skipulag nýrra svæða í bæhum. Nýfrámkvæmd- ir verða ekki á næstu árum vegna væntanlegrar hitaveitu, en efnt verður til skipulagssam- keppni um tjarnarsvæðið í Ihn- bænum. 2. liður. Flutningur á uppeldi sumar- blóma úr Lystigarðinum er löngu álcveðinn, en Gróðrarstöð in varð ekki eign Akureyrar- bæjar fyrr en á sl. ári. Grasa- deild Lystigarðsins hefur verið efld og er undir yfirumsjón Náttúrugripasafns Akureyrar. Vonandi verður síðar meir sam- runi með þessum stofnunum og Náttúruiræðistofnun íslands. 3. liður. Ég vil vitna til áætlunar sem var gerð f.vrir tæpum 2 árum og birtist í Degi. „Gamla Gróðr- arstöðin verði hreinsuð og lag- færð og stefna ber að því, að þar fari fram uppeldi sumar- blóma og annarra plaritna fyrir Akureyrarbæ. Jafnframt fari fram endurbætur á húsum stöðvarinnar.!‘ Að sjálfsögðú verður Gróðrar stöoinni og sögu hennar sýndur sá sómi er hún á skilið. 4. liður fjallar um Vinnuskól- ann. Þær tillögur sem þar koma fram hafa verið reyndar og verða réyndar í sumar. SMÁTT & STORT DYRAVERNDARINN Ástæða er til þess að niinna á gamla og góða Dýraverndarann, tímaritið, sem svo mörg börn og unglingar hlökkuðu til að fá í hendur fyrir hálfri öld. Dýra- verndarinn kemur enn út og er nýkomið fyrsta og annað tölu- blað þessa árs, og hefst þar með 62. árgangur. Og enn flytur þetta rit frásagnir af dýrum, gott lesefni fyrir unga og aldna. Ritnefnd og umsjón með útgáfu annast Jórunn Sörensdóttir og Gauti Hannesson. AF EFNI MÁ NEFNA: Af efni þessa fyrsta og annars tölublaðs má nefna grein um nýstofnað Kattarvinafélag ís- lands, frásagnir af störfum Dýra verndunarfélags fslands, frá- sagnir af hesti og hundi eftir eyfirðingana Randver Jóhannes son og Benedikt Ingimarsson, og hugleiðingu um hesta eftir Ásgeir Guðmundsson kennara. Jóhannes S. Sigurðsson skrifar greinina Litla Gul, birtar eru frásagnir úr blöðum og þýddar greinar og sitt hvað fleira er í ritinu. ERU SELDAR HÉR SKEMMDAR KJÖTVÖRUR? Nýlega var í fjölmiðlum sagt frá skemmdum og jafnvel hættu- legum kjötvörum í verslunum á höfuðborgarsvæðinu og hlýt- ur það að vekja almenning til meiri umhugsunar um innkaup sín. Vitað er, að hér á Akureyri er talsvert úrval kjötvara að sunnan og héðan og rannsókn á þeim hefur leitt í Ijós umhugs- unarverðar niðurstöður og ekki sem æskilegastar fyrir neytend- ur, en blaðið kom þó að lokuð- um dyrum hjá þeim, sem best mega vita, er það liugðist fá af þessu nánari fregnir. Ef mál þetta er eins alvarlegt og óstað- festar fregnir herma, á það ekki að liggja í láginni. Almenningur á fullan rétt á opinberum upp- lýsingum um niðurstöður mat- vælarannsókna, hvort sem þess- ar vörur eru framleiddar hér eða keyptar að sunnan. 5. liður fjallar um Skólagarða Akureyrar. Skipting garðanna var ákveð- in í fyrra og talið nauðsynlegt, að hafa annan garðinn í Glerár- hverfi. ■ í sumar verður landið unnið, svo að hægt verði að byrja þar vorið 1977. Hannesi Kristmundssyni, garðyrkjuverk stjóra ber að þakka fyrir þessa þörfu framkvæmd, en ekki Einari Hallgrímssyni. 6. liður fjallar um garðlönd og fleira. Garðlöndin hafa verið stækk- uð á hverju ári og í fyrra um 1.5 ha. Kartöflugeymsla bæjar- ins er góð, enda hefur verið lagt í umtalrverðan kostnað við lag- færingar á geyrnslunni á sl. ár- um. Að byggja nýja geymsln er ný hugmvnd sem er óraunhæf, þar sem hólf éru laus í þeirri gömlu. Einnig er vaíamál, hvort Akureyrarbær eigi að hafa þessa þjónustu á sínum hönd- um í iramtíðinni. FASTEIGNAMIÐLUN Nýlega lögðu alþingismennirnir Ingi Tryggvason og Steingrímur Hermannsson fram þingsálykt- unartillögu um, að ríkisstjórnin láti kanna hagkvæmni á stofn- un fasteignamiðlunar ríkisins. Það, sem m. a. kemur fram í greinargerð, er að á árinu 1975 fóru fram 2608 afsöl fasteigna í Reykjavík og er talið líklegt, að verðmætið hafi verið 13—15 milljarðar króna. Nú er það tal- in venja fasteignasala að taka 2% í þóknun fyrir að selja fast- eign og ættu þá að renna í þeirra vasa 260—300 milljónir króna. LÖGFRÆÐIN GARNIR TAKA SITT Hvort sem atliugun leiðir í Ijós, að rétt þyki að stofnsetja fast- eignamiðlun ríkisins, m. a. til að draga úr þeim verðbólgu- hvata, sem liin háu sölulaun fasteigna eru, virðist liggja Ijóst fyrir, að fasteinasalar afli sér hárra tekna með viðráðanlegri fyrirhöfn á höfuðborgarsvæð- inu. En það þarf ekki svo langt að leita þessara sömu 2% þókn- unar af sölu fasteigna. Hér á Akureyri eru margir fasteigna- salar. Hjá þeim virðist ótrúleg- ur fjöldi fasteigna á söluskrá og víst fara hér fram kaup og söl- ur, einkum íbúða, og fastejgna- salar eru sagðir hátekjumenn. En undarlegt má þáð virðast, að það þurfi að kosta 200 þús- und króna greiðslu til lögfræð- ings að selja eitt einbýlishús eða sæmilega íbúðarliæð í húsi. SJÁLFBOÐAVINNA Á LEIKVELLI Á laugardaginn unnu íbúar rað- húsanna Grundargerði 2 og 4 og Daísgerði 1 og 3 við barna- leikvöll í því hverfi, í sjálfboða- vinnu. Bærinn hafði áður skipu lagt völlinn og undirbyggt hann. Nú voru sett niður leiktæki og foreldrar lögðu auk þess til eitt og annað til viðbótar og sýndu mikinn áhuga í þessu efni. — Umsjónarmaður leikvalla bæjar ins er Einar Hallgrnnsson. 7. liður fjallar um almenna hirðingu. Garðyrkjudeild Akureyrar- bæjar hefur yfir að ráða tækj- um af nýjustu gerð og hefur bréfaskipti við heimsþekkt fyrir tæki á því sviði. Tækjakaupum hefur verið dreift á nokkur ár vegna kostnaðar. Nú er í athug- un kaup á vél sem getur slegið ósléttar brekkur og fl. Einar slær því fram, að ef til vill sé hægt að nýta rusl og gras með hagnaði. Það er hans hugmynd og tillaga um rækt- unarmál bæjarins. Einar Hallgrímsson hefur unnið þarft verk á sviði leik- vallamála, og óska ég honum alls hins besta á því sviði í fram tíðinni. Þar sem að ég er á förum úr bænum, vil ég nota tækifærið og þakka bæjarbúum ánægju- leg samskipti á liðnum árum. Oddgeir Þ. Árnason, garðyrkjustjóri.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.