Dagur - 09.03.1977, Page 4
Skrifstofur Hafnarstræti 90, Akureyri
Símar: Ritstjóm 11166, Augl. og afgreiðsla 11167
Ritstj. og ábyrgðarm.: ERLINGUR DAVÍÐSSON
Augl. og afgr.: JÓHANN KARL SIGURÐSSON
Prentun: Prcntverk Odds Bjömssonar hf.
Björgunar-
störf
Hvort sem áfengissjúklingar á Is-
landi eru þrjú, sex eða tíu þúsund
talsins, en það fer eftir skilgreiningu
orðsins, eru þeir fleiri en haldnir eru
öðrum sjúkdómum. Við sjúkdóm
þennan tapast fleiri dagversk en af
öllum verkföllum og vinnustöðvun-
um saman lögðum. Af völdum áfeng-
isneyslu verður stór hluti umferðar-
slysa og flest illvirki og glæpi má til
hennar rekja. Þá er þess að geta, að
margfalt fleiri einstaklingar en hin-
ir sjúku, líða af völdum áfengis-
neyslunnar.
Sagt er, að fleiri drukkni í áfengi
en í sjó. Fámenni landsins, ættar-
bönd og kunningsskapur kemur vel
í ljós, ef ferðamaður kemur ekki til
byggða á tilsettum tíma. Ennfremur
þegar vitað er um menn í sjávar-
háska. í þessum tilvikum sameinast
þjóðin til bjargar og er þá aldrei
spurt um kostnað af leit skipa og
flugvéla, né heldur björgunarsveita
á landi. Mannslíf eru ekki metin til
fjár hér á landi, því að þau þykja
ómetanleg, og er sú almenna afstaða
til mikils sóma fyrir þjóðina. En
hugsum okkur nú sjómann, sem er
einn að hrekjast á gúmbáti á úfnum
sjó, og hugsum okkur ferðamann á
fjöllum eða heiðum, sem ekki hefur
náð til byggða. Báðir þessir menn
þurfa á hjálp að halda og hún er
sannarlega veitt ef nokkur kostur
er, og eklti spurt um flkostnað né
fyrirhöfn og standa þá allir saman.
En hvað gerir þjóðfélagið og sam-
borgaramir fyrir þá menn, sem ým-
ist eru að verða úti vegna áfengis-
neyslu eða eru að drukkna af sömu
sökum? Þessi dæmi er hollt að bera
saman. Við þann samanburð vakna
meðal annars þær spurningar, hvort
allt sé nú gert sem hægt er til að
fyrirbyggja áfengissýkina með þjóð-
inni, eða hvort allt er yfirleitt gert
sem unnt er til að lækna þá sem
sjúkir eru orðnir og þurfa aðstoðar?
Líf og lífshamingja þúsvmda
manna er í hættu vegna drykkju-
skapar bæði kvenna og karla, og
jafnvel bama. Er allt þetta fólk
minna virði fyrir samfélagið en t. d.
maðurinn í ^úmbótnum eða ferða-
maðurinn? Drykkjuskapurinn er
ekkert óumbreytanlegt náttúmlög-
mál, og þjóðfélagið má ekki sætta
sig við það, að nokkur þjóðfélags-
þegn verði bráð hans. Og vemm um
leið minnug skólaæskunnar, sem
bæði er freistað með áfengi og eitur-
lyfjum, minnug þess einnig, að
hvert mannslíf er dýrmætt og óbæt-
anlegt. Það ætti að vera sameiginlegt
áhugamál alþjóðar að standa á öllum
sviðum jafn vel á verði í alhliða
bj örgunarstarfi, þegar líf og velferð
þegnanna er í bænum. □
Frá 58. þjóðræknisþinginu
Félagsráðsfundur K.E.A.
á föstudag fóru fram umræður
um starfsemi Þjóðræknisdeild-
anna. Skiptu menn sér í um-
ræðuhópa og ræddu m. a.
hvernig auka mætti tengslin
milli hinna íslenzku byggðar-
laga með því að auka útbreiðslu
Lögbergs-Heimskringlu. Þá var
rætt um áframhaldandi útgáfu
íslenzku kennslubókanna, ferð-
ir æskufólks milli Kanada og
íslands, aukin almenn ferðalög
milli landanna, stofnun upplýs-
ingaskrifstofa á íslandi og í
Kanada, sem veita myndu upp-
lýsingar um menningarmál,
sögu og fleira, aukna íslenzku-
kennslu í íslenzku byggðarlög-
unum í Kanada, og síðan var
rætt um aðrar hugmyndir, sem
menn höfðu áhuga á. Mun
stjórn Þjóðræknisfélagsins
vinna úr þeim hugmyndum, er
tram komu, og hafa skoðani’-
manna að leiðarljósi í framtíð-
inni, þegar stefna verður mörk-
uð varðandi frekari starfsemi
félagsins.
'Á laugardaginn var haldið
áfram að flytja skýrslur félaga,
og að lokum var kosin ný stjórn
Þjóðræknisfélagsins. Stefán J.
Stefánsson var endurkjörinn
forseti félagsins, Grettir L. Jó-
hannsson var endurkjörinn
gjaldkeri og Hólmfríður Dani-
elsson var endurkjörinn ritari.
Marjorie Árnason var endur-
kjörinn félagsskrárritari, Sigrid
Johnson var kjörin fjármálarit-
ari, J. Hannes Thomason var
endurkjörinn formaður fjáröfl-
unarnefndar, Jack Björnsson
var endurkjörinn skjalavörður,
Iris Torfason var kjörin formað-
ur menntamálanefndar, Joe Sig-
urðsson var kjörinn varaforseti
og Richard Beck var kjörinn
fulltrúi Þjóðræknisfélagsins á
Vesturströndinni. Davíð Bjöms-
son og J. V. Beck voru endur-
kjömir endurskoðendur.
Eins og fram hefur komið
áður í fréttum Lögbergs-Heims-
kringlu, komu tveir gestir frá
íslandi á Þjóðræknisþingið. Voru
það Árni Bjamarson, forseti
þjóðræknisdeildarinnar á Akur-
eyri og Bragi Friðriksson frá
deildinni í Reykjavík. Fluttu
þeir báðir kveðjur og skýrslur
frá íslandi.
Á hófinu á Fort Garry var til-
kynnt, að kjörnir hefðu verið
tveir heiðursfélagar Þjóðræknis
félagsins að þessu sinni og voru
þeim afhentir fagrir veggskildir
með áletruðum nöfnum þeirra,
sem tákn um þetta. Heiðursfé-
lagarnir eru Hans G. Andersen
ambassador og Ámi Bjarnar-
son bókaútgefandi. Þökkuðu
þeir fyrir þessa viðurkenningu.
f hófinu á Fort Garry voru
nokkuð á annað hundrað gestir
og fór það hið bezta fram.
Aðalheiður Kristjánsdóttir
frá Hlöðum - Minning
Laugardaginn 19. febrúar sl.
fylgdu Grenvíkingar aldursfor-
seta staðarins, til grafar, heið-
urskonunni Aðalheiði Kristjáns
dóttur á Hlöðum, er lést í hárri
elli (91 árs) 9. febrúar sl. eftir
aðeins vikudvöl á sjúkrahúsinu
á Akureyri.
Maður hennar var Oddgeir
Jóhannsson útgerðarmaður í
Grenivík, látinn 1971.
Þegar Aðalheiður átti níræðis
afmæli fór hún hress og glöð til
Reykjavíkur í heimsókn till af-
komenda, sem þar eru búsettir.
Af 11 börnum þeirra hjóna eru
5 þar, tvær dætur giftar á Akur-
eyri, ein á Raufarhöfn, en þrjú
hafa ætíð búið á Grenivík, þar
á meðal Kristján Vernharð, sem
alltaf hefir átt heimili að Hlöð-
um, og er nú einsamall í hinu
stóra húsi, þar sem allt var áður
iðandi af lífi, athafnasemi, söng
og kátínu.
Milli Hlaða og æskuheimilis
míns, Miðgarða er aðeins stutt-
ur spölur og systurnar Aðal-
heiður og móðir mín Friðrika
samrýmdar, svo eðlilega urðu
samskiptin mikil og góð.
Á jafn fjölmennu heimili og
Hlöðum var mörgu að sinna,
störfin svo að segja óþrjótandi,
ekki síst á sumrin, en allt lék í
höndum Aðalheiðar, bæði úti
og inni. Þá var hún manna fljót-
ust til að rétta hjálparhönd,
þegar þess þurfti með.
Þeim Oddgeiri búnaðist vel
og farsællega, enda var hann
mjög fiskinn á báta sína, sem
báru nafnið Hákon hver fram
af öðrum.
Mér er minnisstætt þegar við
hjónin vorum í síðasta sinn í
stórafmæli hjá þeim. Böm og
tengdabörn voru komin úr öll-
um áttum, auk annarra skyld-
menna. Þá var mikið sungið og
vantaði þó dóttursoninn, Magn-
ús Jónsson óperusöngvara, er
var erlendis. En sungið var fjór-
raddað allt kvöldið, milli þess
sem þegnar voru veitingar,
spjallað og hlegið og skemmti-
leg atvik rifjuð upp. Fleiri
minningar rek ég ekki að sinni,
þó af mörgu sé að taka.
Við systkinin frá Miðgörðum
og venslafólk okkar kveðjum
Aðalheiði með þakklátum huga
og blessunaróskum.
Hermann Stefánsson.
58. Þjóðræknisþinginu í Vestur-
heimi lauk með hófi á Fort
Garry í Winnipeg á laugardags-
kvöldið 29. janúar. Hófinu
stjórnaði séra Philip M. Péturs-
son fráfarandi varaforseti Þjóð-
ræknisfélagsins, en meðal gesta
í hófinu voru ambassadorshjón
íslendinga í Washington, Ást-
ríður og Hans G. Andersen. —
Ambassadorinn flutti ræðu í
hófinu og las kveðjur frá for-
seta fslands og forsætisráð-
herra og utanríkisráðherra.
Þjóðræknisþingið hófst í
fyrsta sal Lútersku kirkjunnar
í Winnipeg kl. 10 á föstudags-
morguninn 28. janúar. Voru þá
mættir margir fulltrúar og gest-
ir, en alls sóttu milli 50 og 60
manns þingið þann tíma sem
það stóð.
Fyrst flutti forseti Þjóðrækn-
iafélagsins, Stefán Stefánsson,
skýrlu sína og síðan voru fluttar
skýrslur gjaldkera og hinna
ýmsu deilda í Kanada, Banda-
ríkjunum og á íslandi. Síðdegis
Nokkrir fundarmenn á Félagsráðsfundi KEA.
(Ljósm. E. D.)
Aðalheiður Kristjánsdóttir og Oddgeir Jóhannsson á Hlöðum.
(Framhald af 1. síðu)
Síðasta ár var mesta veltu- og
umsvifaár í sögu félagsins, svo
sem áður segir og fjárfestingar
námu meira en 400 milljónum
króna. Má segja, að Kaupfélag
Eyfirðinga hafi mjög vel haldið
sínum hlut, þrátt fyrir harðn-
andi samkeppni á ýmsum svið-
um, sagði kaupfé1 agsstj órinn.
Um fjárhagsmál þjóðarinnar
minnti ræðumaður á, .að at-
vinna hefði verið góð hér á
landi að undanförnu, en fullri
atvinnu væri meðal annars
haldið uppi með vaxandi erlend
um lántökum. Þessi staða í
efnahagsmálum íslendinga
vekti áhyggjur hjá flestum og
ýmsar spurningar vöknuðu,
ekki síst hjá samvinnumönn-
um, þegar rætti væri um fram-
t’ðarhorfur kaupfélagsins. Sú
væri bót í máli hér, að eyfirskir
samvinnumenn stæðu vel sam-
an og með sameinuðum vilja
yrði mörgu þokað áleiðis til
hefla fyrir almenning.
Sala verslunardeilda félagsins
hefur aukist um 40%. Sala verk-
smiðju- og þjónustudeilda um
rúm 50%, en launakostnaður
hefur aukist um 35,6%.
Innlögð mjólk á árinu nam
22.130 millj. lítra. f sláturhús-
um félagsins var lógað 55.443
kindum. Meðalvigt dilka var
14,27 kg án nýrnamörs. Gæru-
innleggið var 58.645 stykki og
ullarinnleggið varð 52.944 kg og
var bæði ullin meiri og gærurn-
ar fleiri en árið áður.
Kjötiðnaðarstöðin tók á móti
til vinnslu og sölumeðferðar
342 þús. kg af kjöti, og á sinn
þátt í því, að kjöt og kjötvörur
eyfirskra bænda seljast betur
og fyrr en víða annars staðar.
Af jarðeplum komu 5.735
tunnur til sölumeðferðar, í stað
7.120 árið áður.
Freðfiskur, unninn í hrað-
frvstihúsunum á Dalvík og í
Hrísey var 1.954.063 kg, eða
aðeins minna en árið 1975. Fiski-
miöl, unnið á sömu stöðum, var
609 300 kg.
Saltfiskur, framleiddur í Hrís-
ev, Hjalteyri, Árskógsströnd,
Grímsey og Ðalvík. var 1.359.600
kg, eða aðeins meiri en árið áð-
ur. Frá Dalvik, Hrísey, Gríms-
ey óg Áskógsströnd bárust 947
tunnur af hrognum, og lýsi frá
Dalvík, Hrísev og Árskógs-
strönd var 59.626 kg.
Fjárfestingar urðu, sem fvrr
segir, á fimmta hundrað millj-
ónir á liðnu ári. Þar ber tvo
þætti hæst: nýju miólkurstöð-
ina og verslunina við Hrísalund
og voru þær fjárfestingar upp
á 257 milljónir króna, en 58
milljónum var varið til fiárfest-
inga við útibú KEA á Dalvík,
Hrísey, Grímsey og á Hauga-
nesi, mest á Dalvík eða nær 44
milljónir. Allar þær tölur, sem
Fjárhagsáætlun Húsavíkur
hér hafa verið nefndar, eru
bráðabirgðatölur, sem kynnu
að breytast eitthvað við endan-
legt uppgjör.
Tankvæðingunni lauk fyrr á
félagssvæði KEA en upphaf-
lega var áætlað og tekið hefur
verið upp sameiginlegt, jafnt
flutningsgjald mjólkur.
Fram kom á fundinum, að
vinnslu- og sölukostnaður á
landbúnaðarvörum á verðlags-
árinu 1975—1976 varð rúmlega
20%, en bændur fengu í sinn
hlut tæp 80%, og er þetta fram-
leiðendum hagstæðara en í ná-
lægum löndum. Til samanburð-
ar er vinnslu- og sölukostnaður
fisksins nærri 50% og er þó lítið
gagnrýnt. En landbúnaðarvör-
urnar eru eign bændanna þang-
að til þær eru fullunnar og
seldar og er kostnaður við þess-
ar vörur því vinnslu- og sölu-
kostnaður en ekki milliliða-
kostnaður.
Félagsráðsmenn nutu hádeg-
isverðar á Hótel KEA að ræðu
framkvæmdastjórans lokinni. —
Eftir það hófust fundarstörf að
nýju með því að Gunnlaugur
P. Kristinsson flutti erindi um
fræðslu- og félagsmál. Síðan
hófust almennar umræður og
fyrirspurnir, sem stóðu lengi
dags. □
Bæjarstjóm Húsavíkur sam-
þykkti á fundi sínum 10. febrú-
ar sl., fjárhagsáætlun Húsavík-
urbæjar fyrir árið 1977.
Helztu tekjuliðir á rekstrar-
reikningi bæjarsjóðs eru:
Þús. kr.
Útsvör................. 140.088
Fasteignagjöld .......... 39.870
Framl. úr Jöfnunarsjóði 28.580
Aðstöðugjöld ............ 24.032
Hlutdeild í tekjuskatti
Johns Manville h.f. ... 15.000
Ifclztu gjaldaliðir á rekstrar-
reiMíingi bæjarsjóðs eru:
Þús. kr.
Yirstjórn kaupstaðarins 31.450
Almennar tryggingar
og félagshjálp........ 31.370
Fræðslumál ........... 25.505
Vaxtakostnaður ....... 18.050
Hreinlætismál ........ 13.605
Æskulýðs- og íþróttamál 12.905
Helztu gjaldaliðir á eigna-
hreyfingarreikningi eru:
Þús. kr.
Götur, gangstéttir og
holræsi .............. 57.350
Byggingarframkvæmdir 71.000
Framlag til Dvalar-
heimilis aldraða...... 18.000
íþróttamannvirki ...... 5.800
f Rakel Þórarinsdóttir - Minning
Fædd 9. febrúar 1910 - Dáin 10. febrúar 1977
Ætíð setur að oss hvað sárastan
trega, þegar þeir hverfa á braut,
sem allt til síðustu ævidaga
hafa tekið virkan þátt í störf-
um líðandi stundar, verið stoð
og stytta fjölmargra afkomenda
og haft orku aflögu til þess að
miðla þeim, sem í raunir hafa
ratað og aðstoðar leitað.
Rakel Þórarinsdóttir, sem nú
hefur kvatt, var Þingeyingur að
ætt. Hún fæddist f Kollavík í
Þistilfirði og ólst þar upp. For-
eldrar hennar voru hjónin Þór-
arinn Guðnason og Kristlaug
Guðjónsdóttir, sem þar bjuggu.
Þau hjón eignuðust stóran hóp
bama. Þrjá drengi misstu þau
í bernsku, en einn sonur, Hall-
dór, náði 26 ára aldri. Dætumar
urðu fimm, auk Rakelar, og eru
fjórar þeirra enn á lífi.
Eins og fyrr segir ólst Rakel
upp í Kollavík. Það er afskekt-
ur sveitabær að austanverðu á
Melrakkasléttu. Hún ræddi oft
um bemskuheimili sitt og átti
þaðan miög kærar og litríkar
minningar, bæði hvað snprti
foreldra hennar, sem annáluð
vom fyrir gjafmildi og gæsku,
en einnig sagði hún oft frá
Kohavíkinm, hversu falleg hún
hefði verið, þegar úthafsaldan
brotnaði bar við ströndina eða
þegar landáttin kvrrði öldurnar
og víkin varð spegilslétt.
Fimmtán ára gömul missti
Rakel föður sinn og fluttist
skömmu síðar til Friðnviar
svstnr sínnar. að Hóli við Rauf-
arhöfn. Á be’m árum var næsta
fágætt að fátækir unglingar
ættu þess kost að fara í fram-
haldsskóla, en Rakel var
snemma stefnuföst, og þrátt
fyrir þröngan efnahag hóf hún
nám í Héraðsskólanum að Laug
um. Á Laugum kynntist hún
Tryggva Þorsteinssyni, sem síð-
ar varð skólastjóri Bamaskólt
Akureyrar og mikill skátaleið-
togi. Þau giftust 12. júnf 1934.
Eftir að Tryggvi lauk kennara-
námi bjuggu þau hjónin fyrst á
Neskaupstað, þar sem hann
stundaði kennslustörf, en síðan
á ísafirði og að lokum settust
þau að hér á Akureyri.
Maður hennar, Tryggvi Þor-
steinsson, var einstaklega dug-
mikill og fjölhæfur maður, sem
gerði skóla- og unpeldismál að
ævistarfi sínu. Hann var frá
morgni til kvölds að kenna og
leiðbeina æsku þessa bæjar. Af
því leiddi að hann hafði færri
stundir en margur annar til
aflögu fyrir heimilið. Það kom
því í ríkum mæli í hlut Rakelar
að annast það og hún gerði það
af mikilli prýði, því Rakel var
mikil húsmóðir. Æði oft kom ég
á heimili þeirra hjóna og mér
eru þessar heimsóknir mjög
minnisstæðar. Það snart mann
strax og heilsað var, sú velvild
og hlýja, sem var þeim hjónum
báðum eðlislæg og reglusemin
og rausnarskapurinn á heimil-
inu var 'nær einstakur enda var
þar mjög gestkvæmt. Munu
þess dæmi að þau hafi boðið
kennurum skólans, sem áttu í
húsnæðiserfiðleikum, að setjast
að hjá sér þar til úr rættist.
Þau hjónin eignuðust þrjú
börn: Viðar og Þórrdísi, sem
búsett eru hér í bænum og
Bryndísi, sem búsett er á Sel-
fossi.
Fyrir allmörgum árum átti
Rakel við mikil veikindi að
stríða. Þau veikindi höfðu áhrif
á heilsu hennar allt til síðustu
stundar. En hún var hörð af sér
og náði að mestu heilsu að nýju.
Þrátt fyrir veikindi sín átti hún
ætíð gnægð af gleði, mikla lífs-
orku og bjartsýni til þess að
miðla öðrum, og hvar sem
hennar var þörf var hún ætíð
viðbúin að rétta fram hendi til
hjálpar. Ég mun ætíð minnast
þessarar miklu húsmóður, góðu
konu og glaðværa, bjartsýna
félaga með hlýhug og þökk.
Aðstandendunum flyt ég inni-
legar samúðarkveðjur.
Indriði Úifsson.
Þór og KA skildu jöfn 22-22 í m.fl. karla
Á föstudagskvöldið síðasta léku
KA og Þór í meistaraflokki í
Akureyrarmótinu i handknatt-
leik. Báðir aðilar mættu með
sitt sterkasta lið, að fyrirliða
KA, Þorleifi Ananíassyni, und-
anskildum, en hann var sjúkur.
Hreiðar Jónsson hefur nú tekið
við þjálfun Þórs og stjórnaði
hann nú liði sínu af mikilli
festu. Dómarar leiksins voru
þeir Aðalsteinn Sigurgeirsson
og Halldór Rafnsson, og dæmdu
þeir leikina miög vel.
Hörður Hilmarsson skoraði
fyrsta mark leiksins, en síðan
gerðu Þórsarar þrjú mörk í röð.
Þá nær KA sæmilegum leik-
kafla og gerir næstu þrjú. Síð-
an skiptust liðin á að skora, og
lengi vel munaði aldrei nema
einu marki, nema þegar flautað
var til hálfsleiks var staðan 12
gegn 10 fyrir Þór, og höfðu þeir
þá gert síðustu þrjú mörkin. í
seinni hálfleik juku Þórsarar
forskatið til að byrja með, en
þegar um 10 mín. voru eftir af
seinni hálfleiknum, tóku KA
menn loksins við sér og skora
sex mörk í röð án þess að Þórs-
urum takist að skora og var þá
staðan orðin 18 gegn 16 fyrir
KA. Þá ná Þórsarar að jafna,
en KA menn gera næstu tvö og
eru þá aftur komnir með tveggja
marka forskot. Þorbjörn gerir
KA Ak.-meistarar
í þriðja flokki
Á undan leik KA og Þórs í
meistaraflokki léku sömu lið í
þriðja flokki og sigraði KA ör-
ugglega með 13 mörkum gegn
sex.
Um helgina voru leikmenn 1.
deildarliðs Vals í handknattleik
í heimsókn á Akureyri. Léku
þeir við bæði heimaliðin, KA á
laugardag kl. 12, og Þór á sunnu
dag kl. 14.30. Hér var aðeins um
vináttuheimsókn að ræða, og
leikirnir sem þeir léku við
heimaliðin, voru góð æfing fyr-
ir þau, áður en síðustu leikirnir
í annari deild verða leiknir. í
lið Vals vantaði landsliðsmenn
liðsins, þá Þorbjörn Guðmunds-
son, Jón Karlsson og Bjarna
Guðmundsson. Valsarar unnu
báða leikina öiugglega, unnu
KA með 10 marka mun og Þór
með 8 marka mun. Drýgstur að
Um síðustu helgi var haldið
í Hlíðarfjalli punktamót ungl-
inga í alpagreinum. Keppendur
voru um 100 taisins, frá Akur-
eyri, Dalvík, Ólafsfirði, Siglu-
firði, ísafirði og Reykjavík. —
Skíðafæri og veður var eins og
best verður á kosið, enda fjöl-
menntu Akureyringar á skíði
um helgina. Skíðaráð Akureyr-
ar" sá um mótið og fór það vel
fram ið vanda. Urslit urðu
þessi:
Stórsvig stúlkna 13—15 ára:
1. Sigríður Einarsdóttir í. 142,93.
2. Guðrún Leifsdóttir A. 144,60.
3. Ásdís Alfreðsdóttir R. 145,15.
Stórsvig drengja 13—14 ára:
1. Bjarni Olgeirsson H. 123,51.
næsta mark, en Jóhann skorar
síðan fyrir KA. Þá svarar Þor-
björn aftur fyrir Þór og skömmu
síðar bætir Sigtryggur öðru
við og jafnar fyrir Þór: 21 mark
gegn 21. Sigurður skorar síðan
fyrir KA og aðeins um ein mín-
úta eftir af leiktímanum, en
aftur jafnar Sigtryggur. KA
mönnum mistekst síðan næsta
sóknarlota og Þórsarar ná bolt-
anum, og Sigtryggur kemst í
færi og skorar, en rétt áður en
hann sleppir boltanum gellur
flauta tímavarðar, tíminn er út-
runninn og markið dæmt ógilt.
Þórsarar undu þessu að vonum
illa, en KA menn fögnuðu ákaft
jafnteflinu.
Einn leikmanna Þórs ætlaði
að láta hendur skipta um úrslit
leiksins eftir að leiktima lauk,
en félagar hans róuðu hann. —
Mikill hiti var í áhorfendum
eftir leikinn og voru margir þess
fullvissir að leiknum ■ hafi ekki
verið lokið þegar Sigtryggur
skoraði, en eins og allir vita,
tjáir ekki að deila við dómar-
ann. Tímavörðurinn, Þormóður
Einarsson, sagði, að hann hefði
flautað leikinn af þegar leik-
tíma lauk, en markið hefði ver-
ið skorað þar á eftir.
Þar eð úrslit fengust ekki í
leiknum, verður að leika hann
aftur, og verður þá eflaust um
spennandi leik að ræða ef að
líkum lætur. Flest mörk Þórs
skoraði Þorbjörn að vanda, en
þrátt fyrir að hann var tekinn
úr umferð allan síðari hálfleik-
inn, en ef hann slapp laus, var
ekki að sökum að spyrja og bolt-
inn lá í netinu. Sigtryggur skor-
aði 6 og Árni Gunnarsson 4,
Einar 2 og Guðmundur Sk. 1
skora fyrir Val var Jón Pétur
Jónsson, en hann er bróðir Ól-
afs Jónssonar landsliðsmanns.
Gísli Blöndal leikur nú aftur
með liði Vals eftir nokkurt hlé,
en hann hefur átt við þrálát
meiðsl að stríða, og virkar
heldur þyngri en hann var þeg-
ar hann lék hér á Akureyri með
KA. Þorbjörn Jensson var tek-
inn úr umferð þegar þeir léku
gegn Þór, en hann skoraði samt
mikið af mörkum þegar honum
tókst að losna úr gæslunni. Þor-
björn hyggst stunda nám f
Reykjavík næsta vetur a. m. k.
og mun hann ætla að leika með
Val.
2. yaldemar Birgisson í. 127,01.
3. Ólafur Harðarson A 129,05.
Stórsvig drengja 15—16 ára:
1. Finnbogi Baldurss. A 121,64.
2. Kristján Olgeirsson H. 123,76.
3. Árni Þ. Árnason R. 125,23.
Svig, stúlkur, 13—15 ára:
1. Sigríður Einarsd. f. 115,28.
2. Ásdís Alfreðsdóttir R. 115,81.
3. Guðrún Leifsdóttir A. 117,10.
Svig drengja 13—14 ára:
1. Ólafur Harðarson A. 105,90.
2. Jón P. Vignisson í. 110,09.
3. Stefán Stefánsson A. 113,92.
Svig drengja 15—16 ára:
1. Kristján Olgeirsson H. 101,41.
2. Árni Þ. Árnason R. 102,24.
3. Finnb. Baldvinsson A. 106,20.
Flest mörk KA skoruðu Hörður
4, Albert gerði einnig 4 og öll
úr víti. Sigurður Guðmundur
og Ármann gerðu 3 hvor, Her-
mann og Jóhann 2 og Páll Kr. 1.
Ekki verður svo við þennan leik
skilið að minnst sé á nokkra
unglinga sem voru uppi yfir
ytra markinu. Þeir virðast gera
það sér til nægju að taka fyrir
einn og einn leikmann KA og
reyna eftir megni að niða hann
niður með eilífum köllum og
hrópum sem verða mjög hvim-
leið fyrir aðra áhorfendur, og
unglingunum og félagi þeirra
til skammar. Sömu unglingar
hafa iðkað þennan leik nokkr-
um sinnum í vetur þegar þessi
lið leika, og væri óskandi að
þeir láti af þessu.
Þórsstúlkur sigra
Víking 16-6
Á laugardag léku kvennalið
Þórs og Víkings í fyrstu deild
kvenna í handknattleik. Leik-
urinn var aldrei spennandi, því
Þórsstúlkurnar gjörsigruðu val-
kyrjur Víkinga, en þær skor-
uðu 16 mörk gegn 6 Víkings-
stúlknanna.
Ársþing ÍBA
hefst 9. marz
Ársþing ÍBA hefst á miðviku-
daginn 9. mars og er það fyrri
þingdagur. Þingið verður hald-
ið í Golfskálanum að Jaðri og
hefst kl. 20.15 og eru fulltrúar
minntir á að mæta tímanlega.
KA-KR
á sunnudag
Á sunnudaginn leika KA og KR
í íslandsmótinu annarri deild í
Reykjavík. Leikur þessi hefur
mikla þýðingu fyrir bæði liðin
óg furðulegt að hann skuli sett-
ur á svo snemma, en leik KR og
Ármanns var frestað hvað eftir
annað í vetur af óskiljanlegum
ástæðum. Einnig má geta þess
að KR hefur leikið aðeins 9 leiki
meðan KA hefur leikið 11 leiki,
en nær væri að liðin hefðu leik-
ið jafn marga leiki þegar þau
mætast.
Staðan
í 2. deild
Staðan í 2. deild í handknatt-
leik karla er nú þessi:
Fylkir—ÍBK 30—13.
Ármann—IBK 46—14.
Stjarnan—Leiknir 20—19.
1. Árm. 10 8 2 0 246—167 18
2. KA 11 8 2 1 255—197 18
3. KR 9 6 1 2 209—173 13
4. Þór 11 5 2 4 225—206 12
5. Stjarn. 12 4 2 6 229—240 10
6. Fylkir 10 4 1 5 188—172 9
7. Leikn. 11 2 2 7 201—239 6
8. ÍBK 13 0 0 13 217—387 0
Valsmenn í heimsókn hér
Punktamót unglinga var
haldið í Hlíðarfjalli
4•DAGUR
DAGUR•5