Dagur - 09.03.1977, Síða 6
SAMKOMUR
Föstumessa er á miðviku-
dagskvöld kl. 8.30 í Akur-
eyrarkirkju. Passíusálmar
sungnir 10. sálmur v. 1—4,
11. sálmur v. 13—17 og 12.
sálmur v. 21—29. — P. S.
Messað í Akureyrarkirkju
kl. 2 e. h. á sunnudaginn.
Upphaf 10. kirkjuviku.
Predikun flytur séra Jón
Aðalsteinn Baldvinsson
prestur, Staðarfelli, Kinn.
Sálmar nr. 288, 24, 25, 26,
32. Dagskrá kirkjuvikunn-
ar frá sunnudegi til sunnu
dags verður afhent við inn
ganginn. Fjölmennum til
kirkjuvikunnar. Verum
með frá byrjun. — P. S.
Laugalandsprestakall. Kaup-
angur sunnudaginn 13.
mars kl.^14.
Til Minjasafnskirkjunnar á
Akureyri. Gjöf frá Val-
borgu Jónsdóttur kr. 2.000.
— Með bestu þökkum. —
Safnvörður.
Nýlega opinberuðu trúlofun
sína ungfrú Anna S. Þor-
valdsdóttir og Stefán Berg,
Lundi, Svíþjóð.
Ffladelfía, Lundargötu 12. —
Almennur biblíulestur
hvern fimmtudag kl. 8.30.
Sunnudagaskóli hvern
sunnudag kl. 11 f. h. Al-
menn samkoma hvern
sunnudag kl. 8.30. Fagnað-
arerindið flutt { söng og
tali. Allir hjartanlega vel-
komnir. — Fíladelfía.
Kristniboðshúsið Zíon: —
Sunnud. 13. mars. Sunnu-
dagaskóli kl. 11. Samkoma
kl. 8.30. Ræðum. Björgvin
Jörgenson. Skúli Svavars-
son sýnir myndir frá
Konsó. Tekið á móti gjöf-
um til kristniboðsins. Allir
velkomnir.
Samkoma votta Jehóva að
Þingvallastræti 14, 2. hæð,
sunnudaginn 13. marz kl.
16.00. Fyrirlestur með
skuggamyndum: Haf trú á
Jehóva — lífið er í veði!
Allir velkomnir.
Minjasafnið á Akureyri er
opið á sunnudögum og
föstudögum kl. 2—5 e. h.
Á safninu liggja frammi
ljósmyndir af óþekktu
fólki og eru skoðendur
beðnir að gefa upplýsingar
þar um.
□ RUN 5977396 = 3
I.O.O.F. Rb. 2 = 126398V2 =
spk 9.15
Hjúkrunarfræðingar. Fund-
ur verður haldinn í Systra
seli 14. mars kl. 8.30 e. h.
Mætið vel og stundvíslega.
— Stjórnin.
Kiwanisklúbburinn Kaldbak
ur. Almennur fund-
ur að Hótel KEA
fimmtudaginn 10.
mars kl. 7.15.
I.O.G.T. stúkan Isafold-Fjall
konan nr. 1. — Fundur
fimmtudaginn 10. þ. m. kl.
8.30 e. h. Fundarefni:
Vígsla nýliða. Eftir fund:
Félagsvist. Kaffi. Mætið
stundvíslega. — Æ.t.
Lionsklúbbur Akureyrar. —
#Fundur fimmtudag
10. mars kl. 12.15 í
Sjálfstæðishúsinu.
Umdæmisstjóri er
væntanlegur. Árshátíð 19.
mars á Hótel KEA.
Ferðafélag Akureyrar. Geng-
ið á Sólarfjöll sunnudag
13. mars. Brottför frá skrif
stofu félagsins kl. 10 f. h.
Þátttaka tilkynnist í síma
23692 laugardag kl. 19—21.
Einmennings- og firmakeppni B.A. lokið
fjármagnskostnaðurinn í byrj-
un?
Þá er spurt um tæknileg
atriði, innanhúss, tæringar-
hættu af heita vatninu, hver
verði framkvæmdastjóri hita-
veitunnar, hver sé áætlaður
stofnkostnaður fyrir allan bæ-
inn, sá sem í hlut bæjarsjóðs
kemur að greiða, hvemig sú
fjármögnun eigi sér stað, og
þannig mætti lengi telja.
Um suma þessa þætti hefur
verið fjallað áður, en að sjálf-
sögðu er ýmsu ósvarað á þessu
stigi. Blaðið mun leita svara
við ýmsum fram komnum
spurningum, hjá þeim aðilum,
sem best mega um vita. Hvorki
bæjarstjóri né hitaveitunefnd
hefur séð ástæðu til þess að
halda blaðamannafund um
þetta stærsta framkvæmdamál
bæjarins, en í stórum dráttum
hefur bæði bæjarrstjóri og for-
maður hitaveitunefndar veitt
upplýsingar. Hins vegar er
mörgum spurningum fólks
ósvarað og er rétt að taka þær
á dagskrá síðar. □
Tónleikar í M. A.
Föstudaginn 11. mars verða haldnir tónleikar í
Menntaskólanum á Akureyri.
Flytjendur eru:
Manuela Wíesler, flauta,
Kristján Þ. Stephensen, óbó,
Sigurður I. Snorrason, klarinett,
Stefán Þ. Stephensen, horn,
Hafsteinn Guðmundsson, fagott.
SPURT UM HITAVEITUNA
í samtölum við fólk kemur fram
mikill áhugi á hitaveitu bæjar-
ins. Menn velta ýmsum spum-
ingum fyrir sér, óska svars við
öðrum og setja upp ýmis konar
dæmi fyrir sjálfa sig og aðra.
Þessar spurningar eru meðal
annars á dagskrá:
Hve mikið '100 gráðu heitt
vatn þarf Akureyrarbær og
sveitir, sem hitaveitan nær til?
Hvað er heita vatnið mikið
nú þegar?
Er líklegt, að það megi auka
um þriðjung með dælingu?
Eru nokkrar líkur á, að fyrstu
húsin verði tengd nýrri rita-
veitu fyrir næsta vetur?
Hvað verður stofnkostnaður
mikill fyrir meðal stórt íbúðar-
hús, að taka við hitaveitunni,
og hve mikið kostar svo heita
vatnið á ári?
Geta menn ráðið því, hvort
þeir taka hitaveituna eða ekki?
Verður fólki auðveldaður
Firmakeppni Bridgefélags Ak-
ureyrar er nýlega lokið, en hún
ásamt einmenningskeppninni
hefur staðið yfir um mánaðar-
tíma. Að þessu sinni sigraði
Sparisjóður Glæsibæjarhrepps,
en fyrir hann spilaði Alfreð
Pálsson. Spiluð voru alls 30 spil
fyrir hvert fyrirtæki og var
meðalárangur 90 stig. Röð efstu
fyrirtækja er þessi og nafn spil-
arans innan sviga:
1. Sparisjóður Glæsibæjar-
hrepps 124 stig,
(Alfreð Pálsson).
2. Gufupressa Akureyrar 123
stig (Ármann Helgason).
3. Vör hf., skipasmíðastöð
121 (Soffía Guðm.dóttir).
4. Læknamiðstöðin 117 stig
(Guðmundur Svavarsson).
5. Útgerðarfélag KEA 116 stig
(Gunnl. Guðmundsson).
6. Rannsóknarstofa Norður-
lands 113 stig
(Sveinn Sigurgeirsson).
7. Gleraugnasalan iGeisli 109
stig (Jóhann Helgason).
8. Stefnir, bifreiðastöð 109 stig
(Þormóður Einarsson).
9. Vikan 107 stig.
(Soffía Guðmundsdóttir).
10. Jóhannes Kristjánsson, bif-
reiðaverkstæði 106 stig
(Sveinbjöm Sigurðsson).
11. Augsýn, húsgagnaverslun
106 stig
(Þórarinn Jónsson).
12. Norðurverk 105 stig
(Jóhann Gauti).
Orðsending frá Iðju
Iðja félag verksmiðjufólks á Akureyri auglýsir hér
með eftir listum varðandi kjör stjórnar og trún-
aðarráðs fyrir árið 1977.
Ber samkvæmt því að skila listum skipuðum fimm
aðalmönnum og fjórum til vara í stjórn og vara-
stjórn. Sex mönnum í trúnaðarráð og fjórum til
vara. Allt miðað við fullgilda félaga.
Hverjum lista fylgi skrifleg meðmæli 100 félags-
manna.
Listum ber að skia á skrifstofu félagsins Brekku-
götu 34 eigi síðar en kl. 11 f. h. mánudaginn 14.
mars nk.
Listi stjórnar og trúnaðarráðs liggur frammi á
skrifstofunni. — SÍMI 23621.
STJÓRN IÐJJU
13. Búnaðarbankinn 105 stig
(Jóhann Helgason).
14. DAS, happdrættisumboð
104 stig
(Soffía Guðmundsdóttir).
15. Hafnarbúðin 104 stig
(Þormóður Einarsson).
16. Sjúkrahúsið 103 stig
(Haraldur Oddsson).
17. Örkin hans Nóa 103 stig
(Ólafur Ágústsson).
18. Heildverslun Valgarðs Stef-
ánssonar 102 stig
(Guðmundur Þorsteinsson).
19. Cesar, tískuverslun 101 stig.
(Pétur Guðjónsson).
Bridgefélag Akureyrar þakk-
ar öllum er þátt tóku í firma-
keppni velvild og stuðning.
Einmenningskeppni félagsins
var spiluð jafnhliða firma-
keppni og réði samanlagður ár-
angur í þremur fyrstu umferð-
unum. — Einmenningsmeistari
Bridgefélags Akureyrar 1977
varð Soffía Guðmundsdóttir, en
hún var eina konan sem spilaði
í keppni þessari. Meðalárangur
var 270 stig.
Röð efstu manna var þessi:
1. Soffía Guðmundsdóttir 314
stig.
2. Alfreð Pálsson 313 stig.
3. —4. Ármann Helgason 308
stig.
3.—4. Jóhann Gauti 308 stig.
5. Þormóður Einarsson 307 st.
6. Gunnlaugur Guðmundsson
306 stig.
7. Guðmundur Svavarsson 301
stig.
8. Ólafur Ágústsson 300 stig.
9. Stefán Ragnarsson 287 stig.
10. Sveinn Sigurgeirsson 286 st.
11. Hörður Steinbergsson 285 st.
12. Arnald Reykdal 282 stig.
Keppnisstjóri var Albert Sig-
urðsson.
Á efnisskrá eru verk eftir:
Anton Reicha, Jean Francaix og Jón Ásgeirsson.
Tónleikarnir verða haldnir á Sal og hefjast kl.
17,00.
Öllunrt er heimill aðgangur
Verð aðgöngumiða er kr. 300 og verða þeir seld-
ir við innganginn.
|- Öllum þeim er heiðruðu migmeð gjöfum, blómum,
® skeytum og heillaóskum á 70 ára afmceli minu 3.
¥ mars sl., sendi ég hjartans þakkir.
Lifið heil.
SKARPHÉÐINN ÁSGEIRSSON.
Móðir mín, tengdamóðir og amma,
GUÐRÚN JÓHANNESDÓTTIR,
Miklubraut 66, Reykjavik,
sem lést f Vffilsstaðaspítala 3. mars sl„ verður jarðsett frá Ak-
ureyrarkirkju föstudaginn 11. mars kl. 13,30.
Blóm afþökkuð, en þeim sem vilja minnast hennar er bent á
Elliheimili Akureyrar.
Ingibjörg K. Jónsdóttir, Kjartan Steingrímsson,
Guðrún Lára Kjartansdóttir, Kjartan Kjartansson.
Útför
SIGÞÓRS VALDIMARSSONAR,
Kambsmýri 14, Akureyri,
fer fram frá Akureyrarkirkju fimmtudaginn 10. mars kl. 13,30.
AuSur Antonsdóttir og börn,
Þorbjörg Jónsdóttir og bræSur hins látna.
6•DAGUR