Dagur - 10.08.1977, Síða 1
TRÚLOFUNAR-
HRINGAR
AFGREIDDIR
SAMDÆGURS
GULLSMIÐIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI
DAGUR
LX. ARG. AKUREYRI, MIÐVIKUDAGUR 10. AGÚST 1977 34. TÖLUBLAÐ
\m. t
1 paW'i
Fannst látinn í
Héöinsfirði
Föstudaginn 5. ágúst fannst
Aðalsteinn Guðmundsson,
vistmaður á Dvalarheimil-
inu Hlíð, Akureyri, örend-
ur í Héðinsfirði. Fór hann,
sem áður var getið í frétt-
um, fótgangandi frá Dal-
vík til Ólafsfjarðar, gamla
gönguleið og var 20 klukku
stundir á leiðinni, enda
þoka og maðurinn rúmlega
áttræður að aldri.
Aðalsteinn ætlaði frá
Ólafsfirði til Siglufjarðar,
eða Fljóta, og þegar hann
kom ekki fram, var leit
hafin frá Siglufirði, Ólafs-
firði og Fljótum. Fljóta-
menn fundu Aðalstein ör-
endan í Héðinsfirði, en þar
er nú engin byggð.
Aðalsteinn Guðmunds-
son var atorkubóndi á
Flögu í Hörgárdal í áratugi.
(Samkvæmt upplýsing-
um lögreglunnar á Akur- I
Dýr hitaveita
á Akureyri?
Eftir að birt var í blöðum
gjaldskrá Hitaveitu Akur-
eyrar, hefur mönnum orð-
tíðrætt um, að hún væri
dýr og nokkru dýrari en < {;
sumar aðrar hitaveitur á
landinu. Fyrir hvern mín-
útulitra einbýlishúss þarf
að greiða 3.300 krónur,
miðað við hemil en ekki
mæli. Þá verða heimæða-
gjöldin á Akureyri reikn-
uð á öll hús á viðkomandi
lóð, tengt hitaveitu eða -
ekki, 165 þúsund krónur
að viðbættum 180 krónum í
fyrir hvern rúmmetra hús-
næðisins. Kvartanir yfir
háu verði Hitaveitu Akur-
eyrar heyrast oft meira og
minna rökstuddar með
samanburði.
Sovétmenn
sprengja dag
eftir dag í ánni
Veiðimenn í Fnjóská hafa flHj
tjáð sig lítt hrifna af því, að .
sprengingar fara fram í . .-
ánni og er þó ekki um gerð
fiskvegar að ræða. Það eru
sovéskir vísindamenn, sem
halda til á Litlutjörnum og
meðal annarra rannsókna
sprengja í Fnjóská, stund-
um morgun eftir morgun.
Þetta gera þeir norðan við
nýju Fjóskárbrúna, en um
tilgang þeirra er blaðinu
ekki kunnugt. Það er mjög 1
óeðlilegt að leyfa spreng-
ingar í laxveiðiám þegar ';
laxfiskar eru að ganga
upp eftir ánni og göngu-
seiði eru á leið til sjávar.
Hús nötra í fleiri kílómetra
fjarlægð við sprengingar
þessar. Hér sýnist freklega
gengið á rétt veiðimanna. |;K
í ■ I
m
kemur næst út miðvikudaginn
17. ágúst. Greinarhöfundar eru
beðnir að skila vélrituðum hand-
ritum ef kostur er.
Norræn menningarvika á
Norðurlandi 13.-20. ágúst
Tannlæknar og tannsmiðir
taka til starfa á Húsavík
Nú hallar sumri og styttist sá
tími, er skólar bæjarins og allir
skólar landsins hefjast á ný og
þúsundir barna og ungs fólks
setjast á skólabekk.
Hér á Akureyri hefur að
venju verið auglýst eftir mörg-
um kennurum við grunnskól-
ana, sem eru á fimm stöðum.
Fjöldi kennara hefur þegar
verið ráðinn, en þó vantar enn
fólk í nokkrar kennarastöður,
þrátt fyrir það, að nokkrir rétt-
indalausir kennarar hafi verið
ráðnir. En ráðning réttinda-
lausra kennara bendir ótvírætt
á kennaraskort í landinu.
Þessi mynd er af nýjasta
skólahúsinu í bænum, sem enn
er í byggingu, en þar verður ný
álma tekin í notkun í haust.
Lundarskóli er yngsta skólabygging bæjarins og enn í smiðum.
(Ljósm. E. D.
Norræn menningarvika hefst hér á Akureyri á laugar-
daginn og verður sett í íþróttaskemmunni klukkan 2
síðdegis og lýkur laugardaginn 20. ágúst. Norræni menn-
ingarmálasjóðurinn hefur lagt fram nokkurt fjármagn til að
halda þessa menningarviku, en framkvæmdin er í höndum
Norrænu félaganna á hverjum stað. Framkvæmdastjóri þess-
arar Norrænu menningarviku er Ólafur Rafn Jónsson.
SKemmia nuiuiensKum menn-
ingarvikugestum, kynnt með
skemmtilegum hætti. En vik-
unni lýkur í íþróttaskemmunni
á laugdaginn með jasshátíð.
Búið er að prenta mikið upp-
lag dagskrár fyrir alla þá kaup-
staði, er þátt taka í þessum
óvenjulegu hátíðahöldum og
verður hún borin í hvert hús á
viðkompndi stöðum. Er því ekki
ástæða til að rekja það nánar.
Húsavík 8. ágúst. Húsavíkurbær
og önnur þau sveitarfélög, sem
sfpnda að heilsugæslustöðinni
á Húsavík, hafa í sumar látið
gera stofu fyrir tannlæknaþjón-
ustu á efri hæð Efnalaugar KÞ
við Garðarsbraut. Heilsugæslu-
stöðin hefur fengið til starfa tvo
unga tannlækna, þá Sigurjón
Benediktsson og Stefán Haralds
son. Þeir eru að hefja störf og
mun fyrsta reglulega móttakan
hjá þeim verða á morgun, 9.
ágúst. Tveir ungir tannsmiðir,
Orn Ármann Jónsson og Anna
Gerður Richter, munu innan
skamms taka til starfa á sama
stað. Mikill fengur er fyrir fólk
á Húsavík og í stórum hluta
Norðausturlands, að fá þessa
þjónustu.
Framkvæmdastjóri og formað-
ur Norrænafélagsins á Akur-
eyri, Ólafur Rafn Jónsson og
Bárður Halldórsson gerðu grein
fyrir hátíðahöldunum með
blaðamönnum í gær. Kaupstað-
irnir á Norðurlandi, nema Sauð-
árkrókur, taka þátt í Norrænu
menningarvikunni, hver með
sínum hætti og misjafnlega mik-
ið, en á Akureyri stendur hátíð-
in alla vikuna.
(Erlent listafólk mun jheim-
sækja Akureyri og fleiri hina
norðlensku kaupstaði og inn-
lendir listamenn leggja fram
sinn skerf. Þá verður á laugar-
daginn opnuð málverkasýning í
Iðnskólanum og þar sýna, auk
margra íslenskra málara, sjö
finnskir málarar, og að kvöldi
sama dags sýnir Alþýðuleikhús-
ið Skollaleik í Samkomuhúsinu
á Akureyri.
í ráði er að menntamálaráð-
herra verði viðstaddur setning-
arathöfnina og þá verður allt
listafólkið, sem síðar á að
Enginn tannnlæknir hefur
verið á Húsavík síðan Magnús
tannlæknir Torfason flutti héð-
an til Keflavíkur í fyrrahaust.
Frá því er þorskveiðibanni
létti 2. ágúst s.l. hefur enginn
bátur getað farið til veiða vegna
norðanáttar og brælu nema tog
arinn Júlíus Hafstein, sem kom
inn í nótt með 90 tonn eftir 5
daga útivist.
Kaupfélag Þingeyinga er að
láta gera byggingarvöruverslun
í vöruskemmu sinni við Vall-
holtsveg, Húsavík. Gert er ráð
fyrir, að hægt verði að opna
nýju verslunina á komandi
hausti. Þ. J.
Jarðborinn Dofri hefur nú verið settur upp á Grísará í Hrafnagils-
hreppi og væntanlega byrjaður að bora. (Ljósm. Eðv. Sigurgeirss.)
Spreng-
ingar í
Leirhnjúk
Fyrir einni viku varð maður
einn vitni að gufusprengingu
viff Leirhnjúk, en hann var
staddur skammt frá. Jarð-
hræringar urðu ekki og gos-
ið féll niður eftir örlitla
stund. Fleiri slíkar hafa orð-
ið, bæði á föstudag og laug-
ardag. Hvort þetta er fyrir-
boði stærri tíðinda er ekki
Ijóst, en þó cr liaft eftir jarð-
fræðingi, að hvað sem cr geti
gerst á þessu eldvirka svæði.
DAGUR
Enn vantar nokkra kennara