Dagur - 25.01.1978, Page 5

Dagur - 25.01.1978, Page 5
Útgcfandi: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS Skrifstofur Hafnarstrarti 90, Akurcyri Simar: Kitstjórn 111G6, Augl. og afgrciðsla 11167 Ritstj. og ábyrgðarrn.: ERLINGUR DAVÍÐSSON Augl. og afgr.: JÓHANN KARL SIGURÐSSON Prcntun: Prentvcrk Odds Bjöm&sonar hf. Traustur burðarás í skeleggri grein Ingvars Gíslasonar alþingismanns í síðasta tölublaði Dags segir m. a. svo: „Eftir aðeins 4 ár geta samvinnu- menn haldið upp á 100 ára afmæli fyrsta kaupfélagsins, Kaupfélags Suð- ur-Þingeyinga. Það er því sannarlega komin reynsla á samvinnustarf hér á landi, því að segja má, að fimm kyn- slóðir íslendinga, a. m. k. í Suður- Þingeyjarsýslu og Eyjafirði, hafi tek- ið virkan þátt í samvinnustarfi, og hefur það aukist og eflst í höndum hverrar nýrrar kynslóðar. Verður ekki séð að neitt lát sé á sókn sigurs og dáða, ellimörk verða ekiki greind á athöfnum hennar. Má svo heita, að allir landshlutar og flestar byggðir eigi gengi sitt að verulegu leyti undir samvinnufélögum og fyrirtækjum þeirra í einni eða annari mynd. Sam- vinnuhreyfingin er svo samgróin ís- lensku þjóðfélagi, að hrömun henn- ar eða vanþróun myndi óhjákvæmi- lega hafa í för með sér efnahags- og félagslega röskun, sem fyrst og fremst kæmi niður á landsbyggðinni og vinnandi alþýðufólki til sjávar og sveita. Það verður aldrei lögð nægileg áhersla á, að samvinnuhreyfingin er ALÞÝÐLEG FÉLAGSMÁLA- HREYFING, reist á lýðræðisgrund- velli, þ. e. a. s. almennri þátttöku fé- lagsmanna í fundarstörfum og stefnu- mörkun. Kaupfélögin em lýðræðis- lega uppbyggð og m. a. vegna deilda- skiptingar, sem á sér stað innan kaup- félaga, er auðvelt fyrir hvem félags- mann að láta að sér kveða, ef hann notfærir sér rétt sinn samkvæmt fé- lagslögum. Hitt er annað mál, að oft skortir á þátttöku félagsmanna í störfum kaupfélaganna. Þó mun það svo, að víða úti um sveitir landsins er góð þátttaka í deildarfundum og lifandi áhugi á málefnum félaganna. Og aðalfundir flestra kaupfélaga í landinu em vel sóttar samkomur, sem tryggja lýðræðislega starfsemi kaupfélaganna, bæði að því er varð- ar umræður og kosningar í trúnaðar- stöður Kaupfélögin halda þannig uppi LIFANDI LÝÐRÆÐISSTARF SEMI, sem er snar þáttur í félags- og menningarlífi nútímans. Og þó ber á nokkum skugga. Því verður ekki móti mælt að félagsdeyfð segir víða til sín í landinu, m. a. innan kaupfélaga, og svo mun einnig vera í verkalýðshreyfingunni. Þessi deyfð lýsir sér ekki einungis í lélegri fund- arsókn, heldur allt eins í sljóleika al- mennings fyrir þeirri staðreynd, að samvinnuhreyfingin er einn aðal- burðarásinn í þjóðfélagsbyggingunni. Mennj átta sig ekki á því, að ef þessi burðarás brestur, myndi þjóðfélagið sligast, — hvorki meira né minna.“ Um landbúnaðarmálin Á undanförnum árum hafa orð- ið miklar umræður um land- búnaðarmál eins og öllum er kunnugt. Eftir áramótin náði Dagur tali af Inga Tryggvasyni alþingismanni, sem er í stjóm Stéttarsambands bænda og á auk þess sæti í Framleiðsluráði landbúnaðarins og sexmanna- nefnd, og lagði fyrir hann nokkr ar spumingar. — Telur þú gagnrýni á verð- lagningu búvara á rökum reista? Að sumu leyti og að sumu leyti ekki. Kjöt og mjólk eru mikil- vægar neysluvörur og almenn- ingur lætur sig verðlagningu þeirra miklu varða. Flestir skilja, að þessar vörur hljóta að hækka með hækkandi verð- lagi, og þeir sem semja um kaup og kjör, geta nánast reiknað út áhrif kaupbreytinga á verð land- búnaðarvara. Það kemur því nokkuð spanskt fyrir sjónir þegar forystumenn launþega. samtaka þykjast furðu lostnir yfir verðhækkunum á landbún- aðarvörum í kjölfar kauphækk- ana. Þá finnast menn, sem telja okkur hollast að lifa á afgangs- framleiðslu annarra þjóða og vilja leggja niður landbúnað á íslandi í snarhasti. Landbún- aður hefur verið og er einn helsti undirstöðuátvinnuvegur þjóðarinnar og ég efast um, að við búum lengi í þessu landi án landbúnaðar. — Bændur hafa gagnrýnt mjög störf sexmannanefndar- innar og vilja breytingu á verð- ákvörðun búvara? Það hefur sýnt sig að núver- andi fyrirkomulag tryggir bændum ekki sambærilegar tekjur við aðrar vinnustéttir og þess vegna er eðlilegt að menn leiti nýrra leiða. Hugsanlegt er, að núverandi fyrirkomulag gæti tryggt bændum sambærilegar tekjur við viðmiðunarstéttimar, ef verðlag væri stöðugt, en á verðþennslutímum er það úti- lokað. Verðhækkanir landbún- aðarvara koma í kjölfar kaup- hækkana og hækkunar á rekstr- arvörum og alltaf nokkuð á eftir. Bóndinn verður sjálfur að taka á sig hallann á hverju verð- lagningartímabili, en samkvæmt lögum breytist Verð til bóndans ekki oftar en á þriggja mánaða fresti. Þá má ekki gleymast, að bændur fá yfirleitt ekki nema 75% af verði framleiðslu sinnar á framleiðsluárinu. Ef hægt væri að greiða bóndanum fullt verð við afhendingu vörunnar, mundi það bæta mjög kjör bænda. — Kjör bændanna? Samkvæmt skýrslum Hagstofu íslands hafa bændur um langt skeið verið tekjulægsta vinnu- stéttin í landinu. Allir vita, að til eru bændur, sem hafa góðar tekjur, en þá hljóta líka hinir að vera margir, sem hafa mjög lágar tekjur. Nú standa þeir verst að vígi, sem nýlega hafa lagt í miklar og dýrar framkvæmdir, vextir eru háir og lán til skamms tíma. Fulltrúar framleiðenda í sex- mannanefnd hafa lengi haldið því fram, að fjármagnskostnað- urinn væri sá liður verðlags- grundvallarins, sem fjærst væri raunveruleikanum. I verðlags- grundvellinum er miðað við meðaltalstölur og hvergi mun meiri munur á útgjöldum ein- stakra bænda en í sambandi við fjármagnskostnað. Þeir sem verst eru staddir að þessu leyti, hljóta að eiga í mjög miklum erfiðleikum og margir þeirra þarfnast aðstoðar á einhvern hátt. — I hvaða formi ætti sú að- stoð að vera? Mér er kunnugt um, að land- búnaðarráðherra er að láta kanna möguleika á lausaskulda- lánum fyrir þá verst settu. Orð- ugleikar eru á útvegun fjár- Ingi Tryggvason. magns til slíkra lána og enn örðugra að fá ódýrt fjármagn. Þess vegna er enn óvíst, hvemig þessum málum reiðir af. Stéttar- samband bænda hefur safnað upplýsingum um fjölda þeirra bænda, sem telja sig þurfa á slíkri fyrirgreiðslu að halda og þeir eru margir. — Telur þú að bændur eigi að semja við ríkisvaldið um kjör "Sín? Sjálfur er ég ekki viss um, að samningar við ríkisvaldið breyti miklu frá því sem nú er. Því fylgdu sennilega bæði kostir og gallar, miðað við núverandi fyrirkomulag. En eins og ég sagði áðan er reynslan af nú- verandi verðlagningaraðferðum ekki góð og því eðlilegt að menn leiti að nýju. Samningar við rík- isvaldið gætu líka orðið á víð- ari grundvelli en samningar í sexmannanefnd. Samþykktir aðalfunda Stéttarsambands bænda og fjölmargra bænda- funda sýna, að bændur hafa nú trú á að heppilegt væri að semja við ríkisvaldið. Reynslan yrði svo að sýna, hvort breytt væri til batnaðar, ef af yrði. — Fleiri leiðir til að bæta kjör bænda? Örugglega er margt hægt að gera til að bæta kjör bænda og verður fátt af því talið hér. Ef til vill er mikilvægast að efla skilning almennings á því hver höfuðnauðsyn það er þjóðinni allri, að hér þrífist öflugur land- búnaður. Og öflugur verður landbúnaðurinn ekki nema bændur hljóti sanngjöm laun verka sinna. Athyglisvert er, að það eru ekki stærstu búin, sem gefa mestan arð. Miðlungsbúin virðast drýgst til tekjuöflunar, auk þess sem þau kalla ekki á eins óhóflegt vinnuframlag og stóru búin. Bændum í landinu á ekki að fækka að neinu ráði og má ekki nema nýjar atvinnu- greinar tryggi búsetu fólksins í sveitunum. Hins vegar er samn- ingsaðstaða bænda um kaup og kjör mjög veik, ef flytja þarf út mikið magn af landbúnaðarvör- um við núverandi aðstæður. — Hvað um útflutning búvar- anna? Viðskiptalönd okkar vernda eigin landbúnaðarframleiðslu með tollum eða á annan hátt. Gott dæmi um slíkt er Noregur. Þangað flytjum við verulegt magn af dilkakjöti og fáum verulega hærra verð en Nýsjá- lendingar. En Norðmenn greiða okkur sama verð og norskir bændur fá, að frádregnum nið- urgreiðslum. Með hækkandi verðlagi hafa niðurgreiðslur aukist í Noregi, og nú er svo komið, að við fáum tæplega helming þess verðs, sem við þurfum á norska markaðinum, þótt norskir bændur fái mun hærra verð fyrir sitt kjöt, en við hér heima. Útflutningur mjólkur er mjög erfiður án út- flutningsbóta, enda miklar birgð ir mjólkurvara, t. d. smjörs, í nágrannalöndunum. — Hvað um nýja markaði? Stéttarsamband bænda ákvað á aðalfundi sínum sl. sumar að verja 5 millj. króna úr eigin sjóði til sérstakrar markaðsleit- ar, gegn framlögum annars staðar frá. Alþingi veitti jafn háa upphæð í þessu augnamiði. Markaðsleit er dýr og tímafrek og erfitt að spá um árangurinn, en ekki vantar lambakjötið okk ar gæðin, og vafalaust eru ein- hverjir möguleikar að finna eða skapa markaði, sem greiddu hærra verð en fæst á mörkuð- um okkar nú. — Fóðurbætisgjaldið? Ef svo fer fram sem nú horfir, mun útiflutningsbótarétturinn ekki nægja til að verðbæta að fullu þær landbúnaðarvörur, sem þarf að flytja út á þessu verðlagsári. Ef við flytjum út meira en það, sem verðbætt verður, þarf Framleiðsluráð að hafa möguleika á að jafna verð- ið milli útflutningsaðila og þeirra, sem selja mest eða allt á heimamarkaði. Framleiðsluráð hefur nú heimild til að taka verðjöfnunargjald til útjöfnun- ar milli vinnslustöðva. Ymsir telja heppilegt að geta valið um fleiri leiðir til töku verðjöfnun- argjalds, og er þá enkum talað um fóðurbætisgjald. Ég hygg, að það væri skynsamlegt að gefa Framleiðsluráði og Stéttar- sambandi bænda heimild til að leggja á fóðurbætisgjald til verðjöfnunar. Aðstæður yrðu svo að ráða því, hvor aðferðin yrði viðhöfð, eða e. t. v. báðar. En þetta eru aðeins aðferðir til að jafna niður fyrirsjáanlegum eða orðnum skaða af óverðbætt- um útflutningi. Það, sem fyrst og fremst þarf að gera, er að koma í veg fyrir, að slíkur skaði verði. Til þess er svokallað kvótakerfi vel hugsanlegt, en hugmyndir manna um fram- kvæmd þess eru nokkuð á reiki og áreiðanlega verður það vandmeðfarið. — Nýju útflutningsbætum- ar? Landbúnaðarráðherra hefur beitt sér fyrir því að ónotaður útflutningsbótaréttur frá árun- um 1975 og 1976 hefur verið not- aður til að ljúka greiðslu út- flutningsbóta til loka verðlags- ársins 1976—1977. Er hér um merkilegt nýmæli að ræða og mjög veruleg fjárhagsleg úrbót vegna liðins árs, frá því sem annars hefði verið. Sú upphæð sem kom til greiðslu nú eftir áramótin nemur rúmum 520 milljónum króna. Hefur Hag- stofa íslands haft veg og vanda af þessum útreikningum og rík- isstjómin samþykkt þá. Eg fer ekki dult með, að ég tel þessa úrlausn mjög þýðingarmikla fyrir landbúnaðinn, þótt vanda- mál framtíðarinnar leysist ekki með þessum ráðstöfunum. — Nokkuð fleira í lokin? Margt mætti nefna, en mál er að linni. Ég hef ekki rætt um vanda ullar. og gærufram- leiðslu, ekkert talað um undan- rennu eða morgunhugvekjur Dagblaðsritstjórans, ekkert um órökstuddan áróður gegn neyslu þeirra matvæla_ sem haldið hefur lífinu í þjóðinni í ellefu aldir. Ég hef heldur ekki rætt um, að framkvæmdir voru miklar í landbúnaði á síðasta ári og lánaskil góð frá Stofn- lánadeild landbúnaðarins. Ég hef ekki rætt um margumtalað- an milliliðakostnað og þá stað- reynd, að hann er fyrst og fremst laun þess ágæta fólks, sem breytir mjólk í mat og ull í fat. En þótt margt sé ósagt og vandamálin virðast hrannast upp, og varpa skugga inn í framtíðina, má ekki gleymast, að enn sem fyrr er bóndi bú- stólpi og bú landstólpi. Mín trú er sú, að þessi sannindi verði mönnum ljósari er fram líða stundir en nú er. Og þá verði þeir, sem nú boða afnám ís- lensks landbúnaðar settir þar á bekk á söguspjöldum, sem þeir vildu síst sitja. Enn ur Svör: Miðvikudaginn 4. janúar 1978, skrifar Sigtryggur Símonarson langa grein í dag, um viðhald vega í umdæmi Guðmundar Benediktssonar o. fl. Rétt þykir að taka það fram, að undanfarin ár hafa fjárveit- ingar til vegaviðhalds verið u. þ. b. helmingi minni en áætluð viðhaldsþörf gerir ráð fyrir. Ef bóndi gefur búpeningi hálfa gjöf í mörg ár er ekki vandi fyrir leikmann að sjá, að búpeningurinn horast. 1 greininni stendur: „Hvorki meira né minna en að ennþá séu eftir nokkrir aurar af því fé er veitt var til vega í umdæmi þínu, á þvi ári sem nú er liðið . . . . þó að pískrað sé um að þessi upphæð skipti kannski meira en tug milljóna.“ Því miður liggur ekki fyrir endanlegt uppgjör fyrir árið 1977, en eftir því sem ég kemst næst mun ekki verða eftir neitt fé í viðhaldssjóði G. B. Ég athugaði einnig uppgjör viðhaldssjóðsins fyrir árin 1974, 1975 og 1976 og stendur það á endum að umframeyðslan 1974 er jafn mikil og innistæðumar 1975 og 1976, en sjaldnast er hægt að lenda á núllinu með • uppgjörið, þar sem dagurinn í mölburði getur kostað hátt á aðra milljón. Misjafnt ástand vega eftir sýslum mætti t. d. rekja til ald- urs veganna, en í Eyjafjarðar- 4 • DAGUR I T“ Völundur Heiðreksson F. 16. apríl 1940 - D. 13. janúar 19781 Ég lofa, lausnarinn, þig, þrem systkinum og bjó við um sem leystir úr útlegð mig; hyggju og ástúð foreldra sinna hvíld næ ég náðar spakri, nú í miskunnar akri. H. P. Okkur langar til að tskrifa nokkur kveðjuorð um frænda okkar, Völund, sem lést að heimili sínu, Eyrarvegi 23, Akureyri, hinn 13. þessa mán- aðar, eftir langvarandi veik- indi. Mörg atvik koma í hug- ann ,og kannski fyrst það, að er við vorum ungar stelpur heima í Rauðaskriðu, barst þangað sú fregn að Kristín og Heiðrekur, þá búsett í Reykja- vík, hefðu eignast son. Um haustið var foreldrum okkar boðið í skímarveislu, sem halda átti á heimili ömmu og afa drengsins á Sandi, og ekki var gleðin lítil þegar sá, er boðin bar, bætti við að Kristín hefði sagt að þau mættu taka það af börnum með, er þau vildu. Ógleymanleg er öll sú ferð. Guðmundur Friðjónsson tók á móti okkur í bæjardyr- unum bauð okkur velkomin og bað okkur inn að ganga. „Ef þið komist þá fyrir skólpföt- um og hreingemingavafstri,“ sagði hann. (En við, stór hóp- ur af frændfólki, vorum eitt- hvað fyrr á ferð en ráðgert var, til að njóta útsýnis í 'björtu). Litli drengurinn í hvítu skímarfötunum var skírður Völundur eftir föður- bróður sínum. Litlu síðar fluttu Kristín og Heiðrekur heimili sitt til Akureyrar og þar ólst Völundur upp, ásamt Við kynntumst bemskuheimili Völundar, vomm þar tíðir gest ir og eigum margar góðar minningar þaðan. Völundur var vinfastur og góður dreng ur. Snemma á unglingsárum varð vart við sjúkdóminn, sem dró hann að lokum til dauða. Ekki kom í ljós fyrr en á full- orðinsárum hve alvarleg þau veikindi voru, en þau hafa að öllum líkindum háð honum allt hans líf. Fyrir tæpum tveim árum gekkst hann undir stóra læknisaðgerð, er tekinn var af honum annar handlegg- urinn. Það var aðdáunarvert hve hress og duglegur hann var á sjúkrahúsinu, en auðvit- að átti hann sínar erfiðu stund ir. Sjúkdómurinn tók sig upp aftur síðast liðið sumar og var brátt séð að baráttan var von- laus. Völundur dvaldi á Reykjalundi nokkrar vikur í haust, en fór heim til Akureyr ar um miðjan desember. Við áttum með honum ánægjulega kvöldstund daginn áður en hann fór norður, hann var glað ur og rólegur og gerði ráð fyrir að koma aftur suður um tíma seinna í vetur. En svona stutt var þá eftir, og það er þakkarvert að þetta síðasta þjáningarstríð var ekki lengra. Kæru Kristín og Heiðrekur, hugurinn dvelur fyrir norðan hjá ykkur í dag. Við og fjöl- skyldur okkar sendum ykkur og öðrum aðstandendum hug- heilar samúðarkveðjur. Kæja og Fríða. vegamálin sýslu er mikið af gömlum veg- um, sem lengur hafa mátt þola' viðhaldssvelti en nýrri vegir. Miðvikudaginn 22. júní 1977 skrifar S. B., einnig um viðhald vega undir fyrirsögninni „Vilja forráðamenn vegagerðarinnar svara“ og lokaorðunum „Okkur vantar hér einn Ólaf Ketilsson til þess að segja þessum selum til syndanna". Hann spyr: „Á ekki Vega- gerðin malarhörpu og mulnings- vél all góða samstæðu? Eða er hún bara í láni vestur í sýslum og kemur kannske aldrei í Eyjafjörð?" Hér á Norðurlandi er staðsett harpa og malari (all mikil og góð samstæða) í eign Vegagerð- arinnar. Þessi tæki vinna til skiptis í Norðurlandskjördæmi vestra og eystra. í ár var malar- samstæðan við vinnslu í Eyja- fjarðarsýslu og S.-Þingeyjar- sýslu frá 29. apríl til 22. október. Malað var á fimm stöðum eða við Laugaland á Þelamörk, Vík- urhólum, upp á Vaðlaheiði, við Amarstapa í Ljósavatnshreppi og á Laxamýrarleiti í Reykja- hreppi. Unnið magn reyndist 576503 og heildarkostnaður tæpar 56 m. kr., eða tæpar þús- und krónur á rúmmetra. Ég hef áður sagt ritstjóra Dags það, að Vegagerðarskrifstofan á Akureyri muni eins fljótt og hægt er gefa honum eða öðrum, sem skrifa vilja um vegagerð upplýsingar. Ég ítreka þetta því mjög sjald- an hefur verið leitað til okkar eftir upplýsingum, enda mergj- aðar sögur eftir Jón Jónsson meira spennandi, þó skylt sé að hafa það er sannara reynist. Guðmundur Svafarsson, umdæmisverkfræðingur. Heslamenn Akureyri og Eyjafirði Árshátíð Léttis verður í Hlíðarbæ laugardaginn 4. febrúar. Hefst með borðhaldi kl. 8. Hljómsveit Örvars Kristjánssonar. Miðapantanir í síma 19628 og 21554 til 2. febrúar. Fjölmennið og takið með ykkur gesti. SKEMMTINEFNDIN. 77 keppendur á skíðum Um helgina var haldið í Hlíðar- fjalli Hjallabrautarmótið svo- kallaða, en það er skíðamót þeirra yngri, og er á vegum foreldraráðs. Keppendur á mótinu voru 77, en þeir æfa allir undir handleiðslu hins kunna skíðakappa og þjálfara kureyringa, Magnúsar Guð- mundssonar. Keppt var í stór- svigi, og var skíðafæri sæmi- legt. Úrslit urðu þessi: Drengir 7 ára og yngri: 1. Þorbergur Ámason 106.7 2. Sverrir Ragnarsson 108.1 3. Mörður Ingólfsson 125.2 Stúlkur 7 ára og yngri: 1. Þorg. Magnúsdóttir 114.9 2. María Magnúsdóttir 117.2 8 ára stúlkur: 1. Kristín Hilmarsdóttir 105.0 8 ára drengir: 1. Jón M. Ragnarsson 106.9 2. Gísli Magnússon 109.2 3. Ásgeir Harðarson 112.2 9 ára stúlkur: 1. Erla Bjömsdóttir 69.3 2. Arna ívarsdóttir 72.4 3. Hanna Dóra Markúsd. 72.9 9 ára drengir: 1. Hilmir Valsson 62.1 2. Aðalsteinn Árnason 66.0 3. Gunnar H. Reynisson 66.7 10 ára stúlkur: 1. Guðrún Jóna Magnúsd. 67.5 2. Anna H Kristjánsd. 73.9 3. Guðrún Sigtryggsdóttir 84.9 10 ára drengir: 1. Smári Kristinsson 62.2 2. Ólafur Hilmarsson 62.5 3. Guðm. Sigurbjömsson 63.1 11—12 ára stúlkur: 1. Signe Viðarsdóttir 55.8 2. Harpa Gunnarsdóttir 59.5 3. Andrea Bjömsdóttir 60.2 11—12 ára drengir: 1. Erling Ivarsson 50.8 2. Gunnar Svanbergsson 52.0 3. Ingólfur H. Gíslason 53.3 Fjórir tapleikir Bæði Þór og KA léku í ann- arri deild karla í Reykjavík um helgina. Bæði liðin áttu erfiða leiki. Þór átti að leika við Stjömuna og Þrótt, og KA við Þrótt og Fylki. Öll þessi lið áttu það sameiginlegt að vera í toppbaráttu í deildinni, en það hefur keppnin sjaldan ver- ið jafn hörð og einmitt nú á þessu keppnistímabili. Á föstu- dagskvöldið léku Þórsarar við Stjömuna úr Garðabæ. Þórs- arar byrjuðu vel og höfðu yfir- höndina í leiknum allt fram á síðustu mínútur hans, og höfðu m. a. allt að fimm marka fomstu á tímabili. Leikmenn Stjörnunnar gáfust hins vegar ekki upp og skomðu fjögur síðustu mörk leiksins, sem dugðu til tveggja marga sig- urs, 19 mörk gegn 17. Sigur Stjörnunnar var ekki sann- gjam í þessum leik miðað við gang leiksins, en eins og fyrr segir vom Þórsaxar óheppnir í lokamínútunum og máttu þola tap. Jón og Erlingur Kristjánssynir. KA heiðrar unglingana Á sunnudaginn bauð stjóm knattspyrnudeildar KA öllum yngri knattspymumönnum til hófs í Dynheimum. Örlygur ívarsson formaður deildarinn- ar bauð gesti velkomna og minntist helstu sigra sumars- ins. Þá var spilað bingó og voru fótbolti og KA-búningar í verðlaun. Þá voru heiðraðir þeir sem taldir eru hafa skar- að fram úr í íþróttinni hver í sínum flokki. Þá er tekið til- lit til getu, æfingasóknar o. fl. Þeir vom: Úr 6. fl. Jón Krist- jánsson. 5. flokki Fjölnir Guð- mundsson. 4. fl. Ellert Guð- steinsson. 3. fl. Erlingur Krist. jánsson, en hann var í fyrra í 4. flokki og var þá einnig val- inn úr þeim flokki. Þeir Er- lingur og Jón Kristjánssynir eru bræður. Úr kvennaflokki var valin Auður Skúladóttir. Öll fengu þau til varðveislu farandbikara. Þá fékk einnig Gunnar Gíslason viðurkenn- ingu en hann lék í fyrra í unglingalandsliði íslands. Að lokum fengu allir pylsur og gosdrykki. Á sama tíma léKu í Laugar- dalshöllinni tvö áðumefnd topplið annarar deildar Þrótt- ur og KA, og vom áhorfend- ur á þeim leik ca 40 og flest frá Akureyri. Ekki var einu sinni heldur aðgangur að leikn um, og verður það að teljast furðulegt að félag, eins öflugt og Þróttur, Reykjavík, skuli ekki eiga sér einhvem áhorf- endahóp þegar það leikur einn af úrslitaleikjum deildarinnar. KA byrjaði leikinn af fullum krafti og þegar hann var þriggja mínútna gamall var staðan þrjú gegn engu fyrir KA, og munaði þar fyrst og fremst um stórglæsileg mörk Alfreðs Gíslasonar, en hann er nú að verða ein mesta skytta okkar Akureyringa. Á 12. mín. jöfnuðu Þróttar- ar 5—5, og síðan fór að síga á ógæfuhliðna hjá KA, og í hálf- leik var staðan 13 gegn 10 fyrir ur srdugðuu- shrdlu cmfæypp Þrótt. í síðari hálfleik byrjuðu KA-menn af fullum krafti, og um miðjan síðari hálfleik var aftur orðið jafnt 14—14. — Nokkm síðar stóð 17—17, en Þróttarar vom öflugri á enda- sprettinum og sigmðu ömgg- lega með 21 marki gegn 19. — Þorleifur skoraði flest mörk KA, 6, og var jafnframt besti maður liðsins ásamt Alfreð. Á laugardag voru Akureyrar- liðin aftur í eldlínunni, og fyrst léku KA og Fylkir. Sá leikur var eins og leikur katt- arins að músinni, en Fylkis- menn sigmðu ömgglega með átta marka mun. Þá léku Þórs- arar við Þróttara, sem nú hefndu ófaranna á Akureyri, en þá sigraði Þór, en Þróttur sigraði nú með tíu marka mun. Eftir þessi töp hjá Akureyrar- liðunum má teljast nokkuð ör. ugtt að þau blandi sér ekki í toppbaráttu deildarinnar á þessu keppnistímabili, en það höfðu handknattleiksunnend- ur á Akureyri svo sannarlega vonað, og eiga það vel skilið að fara aftúr að sjá 1. deildar. leiki í skemmunni. Stórhríðarmótið Um síðustu helgi var haldið í Hlíðarfjalli Stórhríðarmótið svokallaða, en það er árlegt skíðamót og öllum opið. Kepp- endur voru frá Akureyri, Húsavík og Dalvík. Keppt var í svigi og bestan brautartíma fékk Karl Frímannsson 45.50. Úrslit urðu þessi. Karlaflokkur: 1. Karl Frímannsson Ak 91.47 2. Tómas Leifsson Ak. 92.01 3. Bjarni Sigurðss. Húsv. 93.24 Kvennaflokkur: 1. Margrét Baldv.d. Ak. 101.75 2. Guðrún Leifsd. Ak. 108.00 15—16 ára flokkur: 1. Ólafur Grétarsson Ak. 94.53 Um næstu helgi verður punktamót í Reykjavík og verða þar meðal keppenda all- ir bestu skíðamenn og konur landsins. DAGUR 5

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.