Dagur - 26.04.1978, Blaðsíða 1

Dagur - 26.04.1978, Blaðsíða 1
TRULOFUNAR- HRINGAR AFGREIDDIR SAMDÆGURS GULLSMIÐIR , SIGTRYGGUR & PÉTUR AKUREYRI DAGUR LX. ÁRG. Akureyri, miðvikudaginn 26. apríl 1978 24. tölublað m \\m\ pappú Veisluhöld Landsvirkjun efndi nýlega til kynningarferðar og veislu- halda við Sigöldu. Hún var að kynna forráðamönnum ríkis- og Reykjavíkurborgar fram- kvæmdir og hélt þeim veislu. Starfsmenn Sigöldu mót- mæltu veisluhöldunum, sem áætlað var að kostuðu tvær miiljónir króna. Á þetta er minnst vegna þess hve sá ósiður er algengur hjá fyrir- tækjum og stofnunum að halda óhóflegar veislur á kostnað almennings. Þar eru sum bæjarfélög sek einkum í sambandi við áfengisveit- ingar. Óhjákvæmileg risna og kostnaður við nauðsynlega kynningu eru sjálfsagðir hlut- ir, en vínveitingar í óhófi til mikillar minnkunnar. 20 kíló af hassi Fíkniefnadeild lögreglunnar í Reykjavík hefur upplýst um innflutning á 20 kílógrömm- um af hassi og lítilsháttar af amfetamíndufti. Efnum þess- um var smyglað í nýjum sjón- varpstækjum frá Hollandi og Danmörku. Aðeins hefur ver- ið lagt hald á 2kg. Fíkniefna- deildin segir, að meginhluti fíkniefnanna hafi verið seldur á Reykjavíkursvæðinu og á Keflavíkurvelli. Um 100 manns hafa verið yfirheyrðir vegna máls þessa og 19 gæsluvarðhaldsúrskurðir hafa verið kveðnir upp yfir 15 aðil- um málsins, allt upp í 60 daga. Mun máli þessu að ljúka, en æríð áhyggjuefni er það, hve fikniefnaneyslan er orðin mikil og ber nauðsyn til að standa vel á verðinum, gegn innflutningi, dreifingu og neyslu, því upplýst er, að af hinu mikla magni af hassi sem hér um ræðir, fór nokkur hluti víða um land. Karlakór Akureyrar Karlakór Akureyrar mun á þessu vori efna til samsöngva fyrir styrktarmeðlimi sína og aðra er hlýða vilja á söng kórsins. Verða samsöngvarnir í Samkomuhúsinu dagana 1., 2., 3. og 4. maí n.k-. kl. 20.30 nema uppstigningardag kl. 14.00. Söngskráin er að vanda nokkuð fjölbreytt. Söngstjóri er Guðmundur Jóhannsson, en undirleikari Ingimar Eydal. Tvísöng syngja þeir Grétar Benedikts- son og Halldór Þórisson. í hléi mun Már Magnússon syngja nokkur lög við undirleik Dýr- leifar Bjarnadóttur. 1 byrjun júní mun kórinn halda til Reykjavíkur og taka þátt í 50 ára afmælis- og sönghátíð Landssambands ís- lenzkra karlakóra, en þar mun kórinn syngja bæði einn og með öðrum karlakórum. Þess má geta, að í vor tekur kórinn i notkun nýjan ein- kennisklæðnað er leysir af hólmi kjólfötin sem notuð hafa verið frá upphafi. Aðgöngumiðar fást í Bóka- búðinni Huld. 0 Vorfundur innanlandsflugsins: I fyrsta sinn utan Reykjavíkur Laust fyrir sl. helgi var á Akureyri haldinn hinn svokallaði vor- fundur innanlandsflugsins, en þann fund sitja m.a. umdæmis- stjórar Flugleiða, yfirstjórn inn- anlandsflugsins, stöðvarstjóri Reykjavíkurflugvallar og fulltrú- ar flugmanna. Fundlr af þessu tagi eru haldnir tvlsvar á árl og er ætiunin að í framtíðinnl verði annar fundurinn haldinn utan Reykjavíkur, en til þessa hafa hlutaðeigandi aðilar ætíð þing- að í höfuðborginni. Einar Helgason, framkvæmda- stjóri innanlandsflugssins, sagði, að samkvæmt sumaráætlun félagsins yrði ferðatíðnin milli Akureyrar og Reykjavíkur aukin verulega frá fyrra ári. Nú er gert ráð fyrir 37 ferðum á viku í stað 34 á sl. ári. Ferðum á milli Reykjavíkur og Alls tóku 16 fulltrúar þátt f fundinum, sem stóð f einn dag. Mynd: á.þ. Tilboð í hráefnisgeyma Krossanesverksmiðj- unnar opnuð í vikunni Isafjarðar og Egilstaða verður einnig fjölgað, en að öðru leyti verður áætlun félagsins óbreytt frá fyrra ári. Um 84 þúsund farþegar fóru á milli Akureyrar og Reykjavíkur árið 1977, en alls fóru um 236 þús- und farþegar með vélum félagsins. Ef öll flugfélög landsmanna eru tekin inn í dæmið, má gera ráð fyrir að alls hafi um 270 þúsund manns farið milli staða í flugvélum og mun það vera heimsmet, að far- þegar séu fleiri en íbúar viðkom- andi lands. Norðmenn munu vera í öðru sæti með um 59% íbúa lands- ins. í samtali við fulltrúa á fundinum kom fram að unnt er að fækka þeim dögum verulega sem ekki er flogið til Akureyrar, ef yfirstjóm flugmála fjárfesti, fyrir tiltölulega lága upphæð í tækjabúnaði á Ak- ureyrarflugvelli. Eins og málum er háttað geta flugvélar aðeins notað sér aðflugsgeisla sem beint er í norður og suður ef eitthvað er að veðri, t.d. þoka eða él á flugbraut- inni hafa flugvélar félagsins litla (Framhald á bls. 6). Alls er áætlað að verja um 170 milljónum króna til end- urbóta á Krossanesverk- smiðjunni í ár. Þessa dagana er verið að rífa gömiu þrærn- ar og í vikunni verða opnuð tilboð í hráefnlsgeyma sem eiga að taka um 500 tonn af hráefni, en gömlu þrærnar tóku um 200 tonn. Hins vegar mun afkastageta verksmlðj- unnar ekki aukast að neinu marki í ár, það verður ekki fyrr en búið er að taka í notk- un soðkjarnatæki, að af- kastagetan verður um 600 tonn á sólarhring eða helm- ingi meiri en hún er í dag. Stefnt <*. að því að Krossa- nesverksmiðjan geti tekið á móti loðnu í júlí, en þá má hefja veiðarnar. Það nýmæli verður tekið upp að sjór verður ekki notaður við löndun og má í því sambandi minna á, að slíkt er bannað í Noregi, þar sem nýt- ingin þykir með því besta sem þekkist. Með því móti er t.d. hægt að koma meira magni af loðnu í þræmar og má gera því skóna að nýtingarhlutfallið verði með því hæsta sem þekkist hér á landi hjá Krossanesverk- smiðjunni þ.e. eftir að soð- kjarnatækin eru komin upp, en það verður ekki fyrr en á næsta ári. „Við erum núna að rífa gömlu þrærnar og síðan á að setja upp nýjan og fullkominn löndunarútbúnað", sagði Pétur Antonsson verksmiðjustjóri. „Einnig erum við að koma fyrir nýjum skilvindum og sjóðara og fyrir skömmu voru settir upp nýir sniglar. Tíminn sem við höfum fram að loðnuvertíðinni er stuttur, en eflaust tekst að ljúka framkvæmdum á þessum vikuni sem eftir eru. Afkasta- geta eykst lítið í þessum áfanga, en í þeim næsta snýst dæmið alveg við. Nú er í rauninni verið að undirbúa það að setja upp soðkjamatækin, en þau kaup- um við frá Vestmannaeyjum. Víst eru þau gömul og þrátt fyrir það gera þau nákvæmlega það sama og ef um ný tæki væri að ræða. Eini munurinn er sá, að við þessi tæki er heldur meiri vinna. Tækin kosta uppkomin um 20 milljónir en ný tæki um 100 milljónum meira“. Pétur sagði að mengunar- vamir væru komnar á um- ræðustig og að það væri vilji hlutaðeigandi aðila að koma í veg fyrir peningalykt. Eftir til- komu soðkjarnatækjanna minnkar bæði lykt og reykur, en það er ekki nóg, og sagði Pétur, að eflaust yrði unnið af kappi við að finna lausn á málinu. Slippstöðin hf. gerir samning viðHilmi hf. á Fáskrúðsfirði Fyrir nokkrum dögum voru samningar gerðir við Söltunar- stöðina Hilmi h/f á Fáskrúðsfirði um smíði á skipi sem getur bæði stundað nótaveiðar og botn- vörpuveiðar. Eftir er að fá stað- festingu frá Fiskveiðasjóði, en hún er væntanleg á næstu dögum. Smíði skipsins, sem á að geta borið 1250 tonn af loðnu, hefst ekki fyrr en um mitt sumar. Væntanlega verður skipið afhent í lok næsta árs. Vegna hinna miklu anna i Slippstöðinni var ekki unnt að verða við þeim óskum, að taka Raufarhafnartogarann Rauða- núp hér til viðgerðar og bráða- birgðaviðgerð stöðvuð af járn- iðnaðarmönnum, til þess að inn- lendum aðilum gefist kostur á að gera raunhæf tilboð í þetta verk- efni. Um 100 nemendur MA í starfskynningu víða um land Vikuna 16.—22. apríl efndi Menntaskólinn á Akureyri til starfskynningar meðal nemenda (efsta bekk skólans, sem eru um eitt hundrað talslns. Er þetta í fyrsta skipti, sem slfk starfsvika er haldin í MA. Nemendurnir fóru um Norðurland og austur á land og rúmur þriðjungur fór til Suður- og Suðvesturlands. Nemendur óskuðu sjálfir eftir störfum eða starfsgrelnum, sem þeir vildu kynna sér þessa viku og komust flestir í þau störf, er þeir óskuðu. Undirtektir for- stöðumanna stofnana og fyrir- tækja tóku, án undantekninga, Tryggvi Gíslason. vel þeirrl málaleitan, að taka nemendur tll náms og starfs, sagði Tryggvi Gíslason, skóla- meistari, er blaðið leitaði frétta af þessu máli. Þetta er liður í námskynningu og starfi skólans og hugmyndin er auðvitað sú, að tengja nemendur enn frekar starfi aðvinnuveganna í landinu. Milli tuttugu og þrjátíu nemendur fóru til starfa í sjúkra- húsum, sumir fóru á sjó, aðrir til landbúnaðarstarfa, rannsóknar- starfa í matvælaiðnaði sunnan- lands og norðan. til Orkustofnunar. í Rannsóknarstofnun Byggingar- iðnaðarins og Raunvísingastofnun Háskólans. Þá unnu 12 nemendur hjá fjölmiðlum blöðum og ríkisút- varpi, þar af einn hjá Degi, um 20 nemendur fóru til ýmiskonar kennslustarfa bæði í Reykjavík og á Akureyri, og í skólum hér norð- anlands, þá fóru nokkrir í iðnað, bankastörf, löggæslu og fanga- vörslu. Einn vinnur hjá landhelgis- gæslunni, annar á Alþingi og svo mætti lengur telja. Nemendur sýndú starfskynning- unni mikinn áhuga og munu allir koma fróðari en þeir fóru á hinum fjölmörgu sviðum atvinnulífsins. Þessi þáttur skólastarfs er til mik- illar fyrirmyndar.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.