Dagur - 26.04.1978, Side 5

Dagur - 26.04.1978, Side 5
Útgrfandi: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS Skrifstofur Tryggvabraut 12, Akureyri Ritstjómarsímar: 11166 og 23207 Simi auglýsinga og afgreiSslu: 11167 Ritstjóri (ábm.): ERLINGUR DAVÖISSON Blaðamaður: ÁSKELL ÞÓRISSON Augl. og afgr.: JÓHANN KARL SIGURÐSSON Prentun: Prentverk Odds Bjömssonar hf. Skógræktin Skógar á íslandi eru 125 þúsund hektarar. Á síðasta aldarfjóðungi hefur verið unnið markvisst að skógrækt í landinu og miðað í rétta átt, þótt áhugamönnum þyki hægt ganga. Nú er sá tími ársins, sem heigast af gróðrinum og því er við hæfi, að minna aðeins á þau markmið skógræktar, sem nýr skógræktarstjóri gerði einkum að umtalsefni á skógræktarsýningu á Akureyri á laugardaginn. f fyrsta lagi er skógurinn öðrum gróðri vernd og hann verndar jarðveg öllu öðru fremur. I' öðru lagi er nú vissa fyrir því, að á ýmsum stöðum er unnt að rækta skóg með samilegum árangri í framleiðslu viðar, svo sem á Hallormsstað, í Eyjafirði og Borgarfirði. I' þriðja lagi eru skógarlönd eft- irsótt og mikilsverð útivistar- svæði. Skjól og fegurð skóganna gefur fólki mikið af því sem það þráir í vindasömu og svölu landi og eru útivístarsvæði eitt af mark- miðum skógræktarinnar. Þar er sérstakur vettvangur skógræktar- félaga í þéttbýli, og um það vitnar Kjarnaskógur við Akureyri mjög glögglega. f fjórða lagi er beitiskógur með- al markmiða skógræktarmanna. Þetta er ekki ný hugmynd, þótt henni hafi lítt verið á lofti haldið. Botngróður í íslenskum birkiskógi hefur tvisvar til þrisvar sinnum meira beitargildi en gróður á ber- - svæði. Þar fyrir utan er svo skjólið fyrir skepnurnar. Við eigum mikið af birkikjarri innan tveggja metra hæðarinnar og þetta kjarr virðist ekkí ná öllu meiri vexti þótt það sé friðað. Þessa kjarrskóga er rétt að nýta skynsamlega sem beitilönd. í fimmta lagi eru skjólbelti mjög á dagskrá. Þar sem þau þegar eru fyrir hendi, sækir búfé mjög í skjól þeirra og hver hæðarmetri skjól- beltis gefur einnig gróðri skjól og meiri vaxtarmöguleika á tíu metra spildu. Skjólbeltin eru mikil fegr- un á landinu og veitir gróðri og búfé skjól, sem hvort tveggja er mikil nauðsyn. Nú liggur það fyrir, að skjólbelti verði styrkt eins og aðrar jarðræktarframkvæmdir, þótt ekki sé það komið til fram- kvæmda. f nöktu landi og næðingssömu er kjarr og skógur eftirsóknarverð lífsgæði. Skógræktarmenn vinna að framtíðarheill. Moldin og möguleikarnir bíða þeirra. 'f Snorri Sigfússon f.v. skólastjóri I minning Snorri Sigfússon f.v. skólastjóri og námsstjóri var einn þeirra skörunga og mannkostamanna, er þjóðin mun lengi minnast. Hann var frábær kennari, allra aldursflokka, og fyllti hugi nem- enda sinna og samferðafólks eld- móði til átaka. Sumir þeirra hafa sagt mér að hann hafi átt drjúgan þátt í að móta skapgerð þeirra og lífsviðhorf. Hann var góður drengur og sannur Islendingur. Snorri Sigfússon var fæddur á Brekku í Svarfaðardal, sonur Sigfúsar Jónssonar, bónda þar, og konu hans önnu Sigríðar Björns- dóttur. Framhaldsnám hóf Snorri á Akureyri og lauk gagnfræða- prófi 1905. Tveimur árum síðar lá Íeiðin til Noregs í kennaraskólann á Storð og þaðan á íþróttanám- skeið í Bergen. Síðar sótti hann fjölmörg námskeið í Englandi og Danmörku til þess að afla sér aukinnar menntunar á sviði upp- eldi- og kennslumála. Hann tók við skólastjórn Barnaskólans á Flateyri árið 1912, en hafði þá áður starfað um tíma sem kennari í sveitum við Eyjafjörð. Fljótt eftir að Snorri tók við skólastjórn á Flateyri voru hon- um falin fjölmörg verkefni í þágu hreppsins. Hann varð oddviti Flateyringa, formaður sóknar- nefndar, söngstjóri á Flateyri og í Holtskirkju og stofnandi og for- maður lestrarfélagsins. Hann varð burðarás og leiðtogi staðar- ins. Frá veru sinni á Flateyri átti hann margar og mjög kærar minningar, hins vegar áttu átt- hagamir mjög sterk ítök í honum og urðu til þess að árið 1929 fluttist hann frá Flateyri og gerð- ist kennari við Barnaskóla Akur- eyrar. Þar var hann kennari að- eins eitt ár, því að árið eftir var hann ráðinn skólastjóri skólans. Strax á fyrstu skólastjórnarár- um sínum við Bamaskóla Akur- eyrar vakti hann athygli fyrir trausta stjórn og mikla þekkingu á skólamálum. Þess vegna var hann árið 1934 gerður að for- manni í stjómskipaðri nefnd, sem hafði það hlutverk að endurskoða lög um bamafræðsluna. Traust manna á Snorra óx hröðum skrefum og varð til þess að árið 1941 varð hann námsstjóri á Norðurlandi, en gengdi jafnframt skólastjórastarfi við skólann allt til 1947, en þá sneri hann sér ein- göngu að námsstjórn. Námsstjóri var hann til 1954, en lét þá af störfum fyrir aldurs sakir. Sem nemandi í fámennum sveitaskóla minnist ég þeirrar miklu eftirvæntingar og ánægju, sem fylgdi því að fá Snorra Sig- fússon í heimsókn. Venjulega hlustaði hann þá fyrst á okkur bömin og kynnti sér námsárang- urinn, síðan hóf hann kennslu, og það mynduðust strax svo mikil hugartengsl milli hans og áheyr- endanna, að sú tilfinning vaknaði með manni, að jafnvel kennslu- borðin, stólarnir og veggimir væru einnig að hlusta. Óveður og að sjálfsögðu ófærð voru daglegt brauð þess sem sífellt var á ferðalagi um hávetur, en Snorri lét sig það litlu skipta. Væri ekki bílfært, sem raunar var algengast, fékk hann einhvem til þess að flytja sig milli skólahverfa á hest- um eða sleða. Eitt sinn kom hann til okkar í stórhríðar veðri, steig léttilega upp úr skinnahrúgu á sleðanum og skálmaði í bæinn. Þá var snjókófið svo mikið að skyggnið var næstum ekkert. Snorri Sigfússon lét ekki þann dag, frekar en flesta aðra, vetur konung varna sér að gegna skyldustörfum. Hann flutti mörgum farskólanum nýjan kraft, háleitar hugsjónir og kenn- aranum þá vitneskju að starf hans hefði tekist vel. Akureyringum vann hann samt mest. Hann stjórnaði skólanum í hartnær tvo áratugi af mikilii festu og leið þar hvorki afbrot né óstundvísi. Hann stóð á tröppun- um og predikaði þeirri æsku, er nú er vel vaxin úr grasi, og minn- ist þeirrar orku og ódrepandi áhuga, sem í honum bjó. Hann var hrókur alls fagnaðar á kenn- arastofunni, en stóð fastur fyrir þar sem sem á þurfti að halda. Iðinn við að flytja starfsliði sínu þekkingu, sem í sumum tilfellum var innflutt og sniðin að íslensk- um siðum og venjum, en einnig var hann sífellt að koma fram með nýungar í skólamálum og hafði gott samband við heimilin um að standa að jákvæðu uppeldi barna sinna. Hann lagði mikla rækt við bindindismálin og var um skeið æðstitemplar, þing- templar, umdæmistemplar IOGT og síðast heiðursfélagi. Átti sæti í barnavemdamefnd og var í stjórn Menningarsjóðs KEA í hartnær tvo áratugi. Jafnframt vann Snorri að skriftum. Hann var meðútgefandi að tímaritinu Heimili og skóli, sem fjallar um uppeldis- og kennslumál, og rit- aði í það margar merkar reinar. Auk þess ritaði hann nokkrar bækur, fjölmargar greinar í dag- blöð og flutti mjög minnisstæð útvarpserindi. Hann bjó einnig út lesefni fyrir yngstu kynslóðina, sem hann unni hvað mest. Það voru Mínútublöðin. Auk alls þessa þýddi hann bók og greinar um uppeldis- og skólamál. Snorri lét sig þó ekki einvörð- ungu varða velferð íslenskra barna. I lok síðari heimsstyrjald- arinnar, þegar fréttir fóru að ber- ast af hörmungarástandi frænd- þjóðanna, hóf hann með aðstoð kennaranna, skólabamanna og foreldranna, að safna fatnaði og fjármunum handa norskum börnum. Þau orð voru höfð eftir Noregskonungi, að í styrjaldarlok gefði fátt snortið sig dýpra en samúð og hjálp íslensku barn- anna. Sem þakklætisvott var Snorri samdur Frelsiskrossi Hák- onar V11 Noregskonungs. Þegar Snorri var sjötugur lét hann af embætti námsstjóra. Um það leyti var hann gerður að heiðursfélaga í Kennarafélagi Eyjafjarðar, þar sem hann hafði starfað sem formaður á þriðja áratug. Einnig var hann gerður heiðursfélagi í S.Í.B. og hlaut um svipað leyti hina íslensku Fálka- orðu. Næstum allra hlutskipti er það, að þegar venjulegri starfsævi er náð og aðrir hafa tekið við stjórnartaumum þá falla menn í gleymsku. Svo var ekki- um Snorra. Á áttræðisaldri hóf þessi hugrakki maður baráttuna við sjálfan verðbólgudrauginn. I ræðu og riti varaði hann við vax- andi rýrnun krónunnar og hvatti menn til spamaðar og virðingar fyrir fengnu fé. Hann flutti æsk- unni 'hvað mest boðskap sinn, kom af stað sparifjársöfnun skólabarna og var framkvæmda- stjóri hennar í fimm ár. Verð- bólgudrauginn tókst honum ekki að kveða niður, en orð hans og athafnir á þessu sviði sýndu þá framsýni í þjóðmálum, sem einn- ig höfðu einkennt störf hans í uppeldis- og skólamálum. Að loknu starfi við sparifjár- söfnunina hóf hann merkið enn á loft til þjónustu fyrir Rauða krossinn. I það sinn hóf hann fjársöfnun fyrir fullkomnum sjúkrabílum. Þeirra bíla nýtur þjóðin nú. Snorri Sigfússon var tvíkvænt- ur. Fyrri kona hans var Guðrún Jóhannesdóttir, ættuð frá Þor- geirsfirði í Suður-Þingeyjarsýslu. Þau hjón eignuðust sjö böm, sem Ö]1 eru á lífi nema lítil stúlka sem dó ársgömul svo og Haukur. Hann var blaðamaður og síðan ritstjóri Dags á Akureyri og síðast ritstjóri Tímans. Guðrúnu konu sína missti Snorri 1947. Hann kvæntist í annað sinn 1952, Bjarnveigu Bjarnadóttur, sem veitir forstöðu Ásgrímssafni. Fyrir nokkrum árum ritaði Snorri æviminningar sínar. Þær komu út í þremur bindum undir heitinu Ferðin frá Brekku. I lokaorðum bókarinnar segir Snorri: „Það mun hafa verið heit- usl ósk okkar, sem ungir heilsuð- um þessari öld, að okkur mœlli auðnast sú vegsemd að geta með starfi okkar sluil sem fastasl að því, að íslensk þjóð næði fullu sjálfsforrœði og tœkisl að halda því“. Nokkru síðar bætir ;hann við: „Það er einlœgust ósk mín, að hér megi um ár og aldir dafna dáðrikt þjóðlíf vaxandi kristinnar þjóðar, sem rœkir skyldur sinur við þjóðlegar erfðir og kann fálum sínum forráð. Með þá hœn í huga vildi ég að lokum mega Ijúka ferð- innifrá Brekku. “ Ferðin frá Brekku er á enda. Snorri Sigfússon hefur kvatt. Ég sendi eftirlifandi konu hans og œttingjum innilegar samúðar- kveðjur. Öllþjóðin mun í huga sér kveðja þennan stórmerka skóla- mann, víðsýna leiðloga og góða dreng með virðingu og þökk. Indriði Úlfsson. * * * I. Langri og starfsamri ævi er lokið. Það hjarta er hætt að slá sem sló heitt til hinstu stundar fyrir vel- ferð íslenskrar þjóðar og þó eink- um þeirrar æsku sem erfir landið. Lifandi áhugi Snorra Sigfússonar fyrir hugsjónum sínum hélst til síðustu stundar. Snorri Sigfússon, skólastjóri og síðar námsstjóri, andaðist í Reykjavík þann 13. apríl s.l. á 94 aldursári. Snorri Sigfússon var fæddur að Brekku í Svarfaðardal 31. ágúst 1884. En ólst að mestu leyti upp á Grund. Foreldrar hans voru Sig- fús Jónsson og Anna Sigríður Bjömsdóttir. Um ættir þeirra er hægt að lesa í minningabók Snorra, „Ferðin frá Brekku" 1. Nafn Snorra var draumanafn móður hans. Hann missti föður sinn 10 ára að aldri og móður sína rúmum 3 árum síðar. Á unglingsárum sínum fór hann að Tjörn til prestsins þar séra Kristjáns Eldjárns Þórarins- sonar og átti þar heimili upp frá því uns hann stofnaði heimili sjálfur. Hann leit alltaf á prests- hjónin sem fósturforeldra sína og böm þeirra sem fóstursystkin sín og var einkar kært með honum og Þórarni Eldjárn. Var það mikil- vægt fyrir hann að alast upp á slíku menningarheimili. Um tvítugsaldur gekk Snorri í Gagnfræðaskólann á Akureyri. Hann hafði góða söngrödd og fór með söngkómum „Heklu“ til Noregs 1905, en síðar fór hann til náms í Noregi á lýðháskólann í Voss og kennaraskólann á Storð. Þegar Snorri kom heim frá Nor- egi hóf hann þegar kennslustörf í byggðum Eyjafjarðar en var ráðsmaður á stórbýlum á sumrin. Þá beitti hann sér einnig- fyrir stofnun Ungmennafélags Svarf- dæla. En hugsjónir ungmenna- félaganna mat hann mikils alla ævi. Á þessum árum kvæntist Snorri Guðrúnu Jóhannesdóttur úr Þorgeirsfirði, hinni ágætustu konu. En árið 1912 yfirgaf Snorri Eyjafjörð og gerðist skólastjóri á Fiateyri við Önundarfjörð og átti þar heima til 1930. Þarna eignað- ist Snorri fast heimili og þar fæddust flest börn þeirra. Þarna fékk Snorri tækifæri til að stjórna skóla eftir eigin geðþótta. Hann tengdist fólkinu á Vestfjörðum þar fljótt nánum böndum og innti þar af höndum mörg trúnaðar- störf. Á sumrum var hann mats- maður við saltsíld og naut mikils trausts í því starfi. En frá sumar- störfum Snorra verður lítið sagt hér. En alltaf var hann nátengdur nemendum sínum og vinum á Flateyri. II. Árið 1930 flutti Snorri frá Flateyri norður í átthagana og tók við skólastjórn Barnaskóla Akur- eyrar. Þar með hófst nýr kafli í ævi og starfi Snorra. Hann var þar skólastjóri í 17 ár til ársins 1947, en jafnframt námsstjóri sum árín. Á Akureyri beið Snorra fjöl- þætt starf og þar naut hann sín vel. Um leið og hann tók við skólanum fluttist hann í nýtt hús- næði uppi á Brekkunni. Margar nýjungar innleiddi hann í skóla sínum sem síðar voru teknar upp í öðrum skólum. Snorri var mikill mannþekkjari og snjall að velja sér samstarfs- menn. Svo undirbjó hann hverja nýjung i skólanum með því að ræða fyrst um þær á kennara- fundum. Og þegar hann hafði mælt fyrir einhverju máli vorum við kennararnir óðfúsir að fram- kvæma það, þótt það kostaði okkur aukið erfiði. Síðar gekkst Snorri fyrir stofnun Kennarafél- ags Eyjafjarðar og var formaður þess meðan hann bjó hér. Ef nefna á eitthvað af þeim nýjungum sem Snorri kom á í skóla sínum vil ég fyrst nefna bókasöfn skólans. Hann jók þau að mun og kom upp sérstöku les- bókasafni þar sem hvert barn fékk sína bók við lestraræfingar. Þ£lfa var mikil framför. Þá má nefna matreiðslukennsluna sem var alger nýjung. Lýsis- og mjólkurgjöf í skólanum átti sinn mikla þátt í því að bæta heilsu barnanna. Þá voru líka tekin upp ljósböð í skólanum í sama til- gangi. Af þessum nýjungum má einnig nefna ársskemmtanir skólans og ferðalög um landið síðasta vorið sem börnin voru í skólanum. Þetta voru allt nýmæli þá. En Snorri átti einnig hugsjónir sem hann leitaðist við að gefa bömunum. Hann vildi að þau fengju uppeldi í þjóðlegum og kristilegum anda. Sjálfur var hann einlægur trúmaður og hefur sagt eftirfarandi um kristindóms- fræðsluna: „Ég var sannfærður um það, að ég gæti ekki komið með betra til barnanna til þess að innræta þeim en kenningar Jesú Krists eins og þær birtast í fjall- ræðunni, dæmisögunum og víð- ar.“ Kenndi hann jafnan kristin- fræði í 6. bekk skólans og kynntist þannig öllum börnunum. Þá tók hann upp að hafa morgunbænir á göngum skólans á hverjum mánudagsmorgni, þar sem ein- hver kennarinn flutti bæn og faðir vor og sungið var á undan og eftir. Þannig hugðist hann að glæða innsta neistann í sálu bamanna. Margt mætti fleira segja um skólastarf Snorra þó að hér verði látið staðar numið vegna rúm- leysis. En þegar ég kom ungur kennari að skólanum til Snorra fannst mér að þar væri margt hægt að læra og dáðist að hve kennaramir væru samhentir í skólastarfinu. Um starf Snorra sem náms- stjóra er mér ekki eins kunnugt og skólastjórn hans. En í hina dreifðu skóla flutti hann margs konar nýjungar til kennaranna. Og tæplega munu nokkur börn í hinum minni farskólum hafa þurft að sitja á baklausum bekkjum eftir heimsókn Snorra í skólann. Hann gegndi námstjórastarfi til sjötugs, árið 1954. Er mér ljóst að Snorri vann merkilegt starf við námsstjórnina þó að því verði lítil skil gerð hér. T Snorri Sigfússon var engum öðrum likur að dugnaði, fjöri og áhuga. Maður af hans gerð gat ekki annað en tekið til hendi í félagsmálum í umhverfi sínu. Hér verður sleppt félagsmálastörfum hans á Flateyri en drepið á störf hans að uppeldismálum og bind- indismálum á Akureyri. Áður er getið um Kennarafélag Eyjafjarðar. En það var að til- hlutan þeirra Snorra og Hannesar J. Magnússonar að félagið gaf út tímaritið,, Heimili og skóli“ um áratugi. Hannes var ritstjórinn en Snorri ritaði þar mikið um upp- ddismál. III. Snorri var einlægur og áhuga- samur bindindismaður. Hann tók mikinn þátt í störfum Góðtempl- arareglunnar á Akureyri, og var þar bæði Þingtemplar og Um- dæmistemplar um árabil. Þó er mér minnisstæðast er hann gekkst fyrir stofnunar ungmennastúk- unnar Akurlilju árið 1933, til þess að stuðla að því að unglingamir úr bamaskólanum yrðu bindind- issamir áfram eftir að þeir hættu störfum í bamastúkunum. Snorri var heiðursfélagi st. Isafoldar- Fjallkonunnar nr. 1 og Umdæmisstúkunnar nr. 5. Snorri ritaði minningar sínar í þrem bindum sem hann nefndi „Ferðin frá Brekku.“ Þá ritaði hann einnig sögu barnaskólans á Akureyri og er hún i handriti. Á síðari árum hafði hann bréfaskipti við ýmsa vini sína hér til að fá fréttir héðan úr bænum. f bréfum hans til mín gneistaði enn af áhuga hans fyrir hugsjónamál- um sínum síðasta bréfið fékk ég frá honum 24. febrúar s.l. sem ég svaraði þegar í stað. Vil ég þá að lokum minnast lítið eitt á heimili Snorra og fjöl- skyldu. Heimili hans hér á Akur- eyri var glaðvært menningar- heimili. Þess er áður getið að fyrri kona hans var Guðrún Jóhann- esdóttir en hana missti hann í ársbyrjun 1947. Fór þá að losna um Snorra hér og hætti hann skólastjórn það ár. Þau Guðrún og Snorri eignuð- ust 7 böm. Þau sem upp komust voru: öm f. 13. janúar 1912, kennari. Haukur f. 1. júlí 1916, d. 10. maí 1956, ritstjóri bæði hér á Akureyri og í Rvík. Jóhannes Reykjaí.ii f. 12 nóv. 1917, yfir- flugm. Rvík. Anna Sigrún f. 16. sept. 1920, húsm. Rvík. Gunn- hildur Ástrún f. 19. ágúst 1922, uppeldisff. Kalifomíu. Snorri f. 2. maí 1930, flugstjóri, Rvík. Auk þess var Hildur sem dó ársgömul. Síðari kona Snorra er Bjarn- veig Bjamadóttir málaram. í Reykjavík (f. 18. sept. 1905). Þau giftusig 19.jan. 1952 Bjarnveiger mikil mannkostakona, gáfuð og listelsk og hefur umsjón með Ás- grímssafni. Hún gefur reynst Snorra frábærlega vel og annast hann þegar aldur færðist yfir og heilsunni tók að hingna. En fáir munu hafa trúað því er þau giftu sig að þau ættu eftir að búa 26 ár í hjónabandi. Margir minnast nú þessa merka skólamanns og þjóðholla Islendings. Hann er kært kvaddur af fólkinu í byggðum Eyjafjarðar fyrir dáðrakkan lifsferil. Ég sendi konu hans og börnum innilega samúðarkveðju. Eiríkur Sigurðsson. Frá leik KA og Þórs fyrr í vetur. Mynd: Ö.Á. Bikarkeppni KRA Fyrsti stórleikur vorsins f knattspyrnu var leikinn á Sanavellinum á sumardaginn fyrsta. Þá áttust við Þórsarar og KA menn og var lelkurinn liður í bikarkeppni KRA, en sú keppni er ný af nálinni og kemur í staðinn fyrir Alberts- mótið svokallaða. Þátttakend- ur í þessu móti eru auk áður- nefnda liða, Völsungar frá Gúsavík. Góðar aðstæður voru til knattspyrnuleikja á sumar- daginn fyrsta, glaða sólskin og hæg norðan gola. Völlurinn hafði verið lagaður og var hann í sæmilegu ásigkomulagi. Fyrri hálfleik lelkins lauk án þess að nokkuð mark væri skorað, en þrátt fyrir það áttu bæði liðln nokkrar góðar sóknarlotur. Jafnt hjá KA og Þór Framlínumönnum fyrstudeild- arliðs KA gekk erfiðlega að komast fram hjá Sigurði Lárus- syni í vöm Þórs, en ófáar sóknar- lotur stöðvuðust hjá honum. Þórsarar léku undan golunni í fyrri hálfleik, en hún hélst nokk- uð jöfn allan leikinn. Um miðjan síðari hálfleik átti Eyjólfur Ágústsson gott skot að marki Þórs, en það fór yfir markmann- inn og lenti í þverslá. Skömmu síðar voru Þórsarar full aðgangs- harðir við Jóhann Jakobsson inni í vítarteig sínum, og ágætur dóm- ari leiksins, Rafn Hjaltalín dæmdi umsvifalaust vítaspymu. Sigurbjöm Gunnarsson skoraði örugglega úr vítinu. Nokkurt líf færðist í leikmenn KA við markið og sóttu þeir stíft næstu mínútur en gekk erfiðlega að komast í gegn um öftustu vöm Þórs. Þórsarar áttu síðan gott upp- hlaup og Jón Lárusson skaut af nokkuð löngu færi, og boltinn hafnaði í horninu óverjandi fyrir Þorberg markmann KA. Þetta urðu úrslit leiksins eitt mark gegn einu og eru það sann- gjörn úrslit. Leikur þessi var að mörgu leiti góður og lofar góðu um knattspyrnuna í sumar. Eins og áður segir var Rafn Hjaltalín dómari leiksins og línuverðir Einar Helgason og Kjartan Tóm- asson og skiluðu þeir sínum hlut- verkum vel. Oskar skoraði þrisvar þegar KA vann Völsunga Annar leikur sömu keppnl fór fram á laugardaglnn en þá léku KA og Völsungar frá Húsavík. Völsungum gekk erfiðlega framan af vetri að ráða þjálfara fyrir melstaraflokk félagsins, en hafa nú fenglð enskan, og heitir hann Harry Game. Hann er margreyndur þjálfari og hef- ur m.a. þjálfað I Belgíu og Hol- landi. Völsungar kusu að leika undan golu fyrri hálfleikinn, en þrátt fyrir það náðu þeir ekki að skapa sér umtalsverð mark- tækifæri. Fyrsta mark leiksins kom á 23 mín. en þá skoraði Eyjólfur Ágústsson eftir nokkra pressu KA manna. Aðeins fjórum mínútum síðar bætti Gunnar Blöndal öðru marki við, en hann náði að renna boltanum fram hjá markmanni Völsunga. Völsungar áttu næsta leik, en á 42 mín skoraði Kristján Olgeirsson gott mark að nokkru löngu færi. Þannig var staðan í hálfleik tvö mörk gegn einu. Strax á 3 mín. síðari hálfleiks fá KA menn dæmt innkast á miðjum vallarhelmingi Völsunga.- Aðal- steinn Þórarinsson hendir langt inn að markinu. og Óskar var á réttum stað og skallaði í markið. 10 mín síðar kom fyrir alveg sama atvik og Ólsar vippaði fram hjá markmanni Völsunga. KA menn voru nú búnir að fá nokkuð góð tök á leiknum og sóttu án afláts. Á 36 mín. sækir Gunnar Gunnarsson alveg upp að enda- mörkum Völsunga og spyrnir að markinu, yfir markmanninn og fallegur snúningsbolti lendir í homið fjær. Þetta var tvímæla- laust fallegasta mark leiksins. Rétt fyrir leikslok er dæmd horn- spyrna á Völsunga. Sverrir gefur góðan bolta fyrir markið og Ósk- ar skallar örugglega í netið, og gerði þar sitt þriðja mark í leikn- um og jafnframt sjötta mark KA i þessum leik. Þannig urðu úrslit leiksins sex mörk gégn einu fyrir KA. Þrátt fyrir að markamunur hafi verið mikill, segir það e.t.v. ekki alla söguna. Lið Völsunga er skipað mörgum góðum leikmönnum, en úthaldið virtist bresta hjá þeim undir lokin. Eflaust verða þeir erfiðir heim að sækja eins og vanalega þegar á sumarið líður, en smjörþefinn af því fá Þórsarar á laugardaginn. en þá leika þeir við Völsunga á Húsavík í þessu móti. Ágætur dómari var Sævar Frtmannsson og línuverðir Magnús Jónatans- son og Arnar Einarsson. íslandsmót Norðurlands- rlðlll KARLAR: S. fl. KA — Völsungur 13—4 5. n. KA — Þ6r 5—12 5. n. Þór Vötsungur 17—3 4. n. KA — Þór 8—7 4. n. KA — Völsungur 11—4 4. n. Þór — Völsungur 8—5 3. n. KA — Þór 13—5 3. n. KA — Völsungur 16—10 3. n. Þór — Völsungur 10—10 2. fl.KA — Þórtl—14 KVENNA: KVENNA: 3. n. KA — Þór Ekki vitað 3. n. KA — Völsungur 4—1 3. H. Þór — Völsungur 1S-4 2.n.KA —Þór6—tl 2.0. KA — Völsungur 7—8 2. n. Þór — Völsungur 4—8 4.DAGUR DAGUR.5

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.