Dagur - 26.04.1978, Blaðsíða 6
Akureyrarkirkja Messað kl. 2
á sunnudag. Sálmar nr.
337, 164, 163, 338, 523.
P.S.
Möðruvallaklausturspresta-
kall Fermingarmessa verður
n.k. sunnudag í Bakka-
kirkju, Öxnadal kl. 2 e.h.
Þessi börn verða fermd:
Helgi Þór Helgason Bakka,
Sigurrós Anna Gísladóttir
Engimýri. Sóknarprestur.
Bólstaðarprestakall Bergs-
staðakirkja Svartárdal:
Ferming sunnudaginn 30
apríl kl. 2 e.h. Fermingar-
böm Ólav Ingvald Ólsen
Bergsstöðum, Sigríður
Soffía Þorleifsdóttir
Hvammi og Stefán Þórarinn
Ólafsson Steiná 2, H.j.
Lögmannshlíðarkirkja. Ferm-
ingarguðsþjónusta verður
n.k. sunnudag kl. 10.30 f.h.
Fermingarbörn: Aðalheiður
Halldóra Arnþórsdóttir
Kambagerði 3, Bergfríður
Jóhannsdóttir Aðalstræti 10,
Heiða Rósa Sigurðardóttir
Hrauni, Kristín Björnsdóttir
Björgum Hörgárdal, Val-
garður Sigurður Valtýsson
Hömrum I. Bílferð verður úr
Glerárhverfi kl. I0. Prest-
arnir.
Laugalandsprestakall. Mess-
að í Kaupangi Uppstigning-
ardag 4. maí kl. I4. Nýtt
orgel tekið í notkun. Sókn-
arprestur.
Laufásprestakall. Grenivík-
urkirkja. Fermingarguðs-
þjónusta n.k. sunnudag kl.
II árdegis. Fermingarböm:
Alma Oddgeirsdóttir Haga-
mel, Anna Jónsdóttir Akur-
hóli II, Amþór Þorsteinsson
Sólheimum, Böðvar Stef-
ánsson Hvammi, Frímann
Svavarsson Nausti, Gunnar
Gunnarsson Reynimel, Jó-
hannes Garðarsson Ægis-
síðu, Jón Heiðar Daðason,
Melagötu 9. Sóknarprestur.
— Vegaáætlunin
(Framhald af bls. 8).
milljónum. Framangreindir vegir
flokkast undir stofnbrautir.
Þjóðbrautir: Grenivíkurvegur:
21 milljón. Ólafsfjarðarvegur—
Atlastaðir: 22 milljónir. Ólafs-
fjarðarvegur-Hjalteyri: 3 milljónir.
Finnastaðir-Eyjafjarðarbraut: 18
milljónir. Norðurlandsvegur—
Munkaþverá: 12 milljónir. Þórs-
höfn og að flugvelli: 13 milljónir.
Laxárdalsvegur í Þistilfirði: 8
milljónir og Staðarbraut-Halldórs-
staðir: 3 milljónir.
I fyrsta
(Framhald af bls. 1).
möguleika á að fljúga yfir völlinn.
Að lokum sagði Einar að hugs-
anlegt væri að innan skamms yrði
flugvél höfð á Akureyri a.m.k. yfir
sumarmánuðina. Ef það yrði að
veruleika gætu farþegar farið frá
Akureyri til Reykjavikur snemma
morguns og síðasta vél frá Reykja-
vík færi ekki fyrr en seint um
kvöldið. En þetta er sjálfsagt
..framtíðarmússik" og mega menn
eflaust bíða í einh ver ár þar til þessi
draumur verður að veruleika.
6.DAGUR
Kristniboðshúsið Zíon.
Sunnudaginn 30. apríl
fundur í kristniboðsfélagi
kvenna kl. 16. Allar konur
velkomnar. Samkoma kl.
20.30. Ræðumaður Reynir
Hörgdal. Allir velkomnir.
Fíladelfía Lundargötu 12. Al-
menn samkoma hvern
sunnudag kl. 20.30. Bibl-
íulestur (íhugun) hvern
fimmtudag kl. 20.30.
Söngur og hljóðfæraleik-
ur. Allir hjartanlega vel-
komnir. Fíladelfía.
Akureyringar og nærsveitar-
fólk. Við þökkum af alhug
allan stuðning og góðar við-
tökur á fjáröflunardegi okk-
ar sumardaginn fyrsta. Sér-
stakar þakkir viljum við
færa til allra þeirra er lögðu
fram skemmtiatriði þann
dag endurgjaldslaust. Við
óskum ykkur góðs og gleði-
legs sumars og þökkum fyrir
veturinn. Hlífarkonur.
Blaðabingó KA G 50
St. Akurliljan nr. 275 minnist
10 ára afmælis síns föstu-
daginn 28. apríl kl. 20 að
félagsheimili templara
Varðborg. Allir stúkufélagar
og veiunnarar þeirra vel-
komnir. Framkvæmda-
nefndin.
Athugasemd: Vegna viðtals við
Boga Pétursson, forstöðu-
manns Ástjamar 20. apríl,
óskar hann að taka fram:
Sumarheimilið er enn rekið
á vegum Starfsins að Sjón-
arhæð. Og endurtekið er, að
þeir sem vilja styrkja vænt-
anlega framkvæmd í sam-
bandi við byggingu svef-
skála geta sent gjafir sínar í
póstgíróreikning Ástjam-
ar-nr 326003.
Frá Guðspekifélaginu næsti
funduT, framhaldsaðalfund-
ur verður haldinn fimmtu-
dagiinn 27 apríl kl. 21. For-
maður flytur erindi.
Huld 59784267IV/V Lokaf.
I.O.O.F.-2-1594288V2-9-111
Fundur í kvenfélaginu Hlíf
verður haldinn á Amaró-
húsinu fimmtudaginn 27
apríl kl. 20.30. Skýrslur
nefnda og fleiri mál á dag-
skrá. Mætið vel og takið með
ykkur nýja félaga. Stjómin
I.O.O.F. Rb 2
9.0.
12742681/t =
I.O.G.T. Umdæmisstúkan nr.
5 heldur vorþing sitt laugar-
daginn 13. maí n.k. og hefst
kl. 2 síðd. í félagsheimili
templara í Varðborg.
Venjuleg aðalfundarstörf og
rætt um störf reglunnar og
áfengisvarnir. U.templ.
St. Georgsgildið
fundur í Hvammi
mánudaginn l. maí kl.
20.30.
Frá
Sjálfsbjörg. Spilakvöld
verður í Alþýðuhúsinu
fimmtudaginn 27. apríl
kl. 8,30 e.h. Félagar
mætið vel og takið með
ykkur gesti. Nefndin.
Ferðafélag Akureyrar. Farið
til Hríseyjar laugardaginn
29. apríl. Gengið um eyjuna.
Farið frá Skipagötu 12 kl. 9.
Gengið á Súlur l. maí. Farið
frá Skipagötu 12 kl. 10.
Þátttaka í ferðirnar tilkynn-
ist í síma 23692 föstudag kl.
19-21. Sjá auglýtsingu um
kvöldvöku hér í blaðinu.
(9
: it
Kjörskrá í Glæsi-
bæjarhreppi
Kjörskrá til aiþingiskosninganna er fram eiga að
fara 25. júní 1978 liggur frammi að Dagverðareyri
frá 25. apríl til 23 maí n.k.
Kærur vegna kjörskrár skulu hafa borist undir-
rituðum eigi síðar en 3. júní n.k,
Oddviti Glæsibæjarhrepps
lt-
Eiginmaður minn
SVAVAR HELGASON,
Kaupangsstræti 25
lést að heimili sínu 24. apríl.
Helga Ingimarsdóttir.
Altenatorar og
spennistillar
Mótorola, Pelco Renny, Ford, Crysler og fl. gerðir
fyrir bíla og báta. Sendum um allt Norðurland.
Viðgerðir og varhlutir.
Norðurljós s.f.
Furuvöllum 13, 602 Akureyri.
r AKU REYRAR BÆR
Frá Hússtjórnarskóla
Akureyrar
Nú er rétti tíminn til að tryggja sér pláss á nám-
skeiðum næsta vetur.
Boðið er upp á mismunandi löng námskeið í mat-
reiðslu, jatasaumi, hnýtingum, vefnaði og postu-
línsmálun. Lengri námskeiðum lýkur með prófi.
Öll námskeiðin eru opin báóum kynjum.
Trygging þarf að fylgja umsóknum á lengri nám-
skeiðin. Eldri umsóknir þarf að endurnýja.
Allar uþplýsingar eru veittar í skrifstofu skólastjóra
milli kl. 13.30 og 16.00 og í símí 11199.
Skólastjóri.
Auglýsing um upp-
boð
Að kröfu innheimtumannsríkissjóðs, bæjarsjóðs
Akureyrar og ýmissa lögmanna og að undangeng-
num lögtökum og fjárnámum fer fram nauðungar-
uppboð á lausafé við lögreglustöðina á Akureyri,
föstudaginn 5. maí 1978 kl. 14.00.
Uppboðinu verður síðan framhaldið á ýmsum
stöðum eftir þörfum allt samkvæmt nánari ákvörð-
un uppboðsréttar.
Seldir verða eftirtaldir munir:
Bifreiðarnar A-302, 2076, 3489, 4261 5227,
5278, 5394, 5637, 5648, 5736, 6284, 6610, Þ-2464,
2779. Tveir víxlar samtals að fjárhæð kr. 650.000,
bandslípivél, skápapressa, hulsuborvél, borvél,
bandsög, Linhoff myndavél og stækkari, Meopta
stækkari, AGA-gastæki, hjóltjakkur, og AEG-slípi-
vel. Eignarhluti H.P. Byggis í sameignarfélaginu
Skála sf.
Greiðsla fari fram við hamarshögg.
Uppboðshaldarinn á Akureyri.
24. apríl 1978
Hjaríans þakkir íil allra, er sýndu mér hlýjan hug sinn með
heimsóknum, góðum gjöfum og heillaóskum á sjötugsaf-
mœlinu 8. apríl síðatliðinn.
KRISTRÚN GUÐMUNDSDÓTTIR
Hléskógum.
Mínar hjartans þakkir sendi ég öllum þeim sem með heim-
sókinum gjöfum og skeytum, glöddu mig í tilefni af sjötíu og
fimm ára afmœli mínu 14. apríl. s.l.
BJÖRN JÚLÍUSSON'
Öllum þeim stofnunum og því fjölmenni sem vottaði mér
vináttu sína og heiðruðu mig með blómum, heillaóskum,
símtölum, gjöfum og heimsóknum i tilefni af sjötugsafmœli
mínu 5. apríl s.l. flyt ég mína heitustu þökk.
Sérstakar þakkir fl\t ég kirkjukórnum í Suður-Þingeyjar-
sýslu, söngstjórum þeirra og stjórn kirkjukórasambandsins,
sem efndu til fjölmenns söngmóts, samsœtis og hljómleika
hinn 9. apríl mér til heiðurs.
Blelssun og hamingja fvlgi vkkur öllum,
PÁLL H. JÓNSSON FRÁ LAUGUM