Dagur - 14.06.1978, Blaðsíða 2

Dagur - 14.06.1978, Blaðsíða 2
BLLNEW- bigger, more exciting than “AIRPORT 1975" 5 Smáauglýsingarsssr jb Bifreióir Sala Atvinna Til sölu Ford Taunus árg. '63 t|l niðurrifs, nýr mótor. Uppl. í síma 23282. Til sölu Rússajeppi árg. 1956. Vél þarfnast viðgerðar. Uppl. í síma 22642 Vörubíll til sölu. Volvo F 88 árg. 1969 til sölu nú þegar. Uppl í síma 62155 eftir kl. 7. Húsnæði Einstæða móður með tvö börn vantar íbúð á leigu frá og með 1. júlí n.k. Allt kemur til greina. Uppl. í síma 22334 Nýleg 4ra herb. íbúð í blokk til sölu. Gott útsýni. Uppl. veittar í síma 22088 eftir kl. 19. Til sölu 2ja herb. íbúð við Tjarn- arlund. Uppl. í síma 21518 TapaA Karlmannsúr. Mido Multifort, svört skífa, lítill sekúnduvísir. Tapaðist í bænum 9. júní. Finnandi vinsamlega skili því á afgreiðslu DAGS, gegn fundar- launum. Verðmæt dós með hættulegum töflum tapaðist fyrir nokkrum dögum Finnandi láti lögregluna vita. Til sölu kerruvagn og varnakarfa. Uppl. í síma 21814 Stórt hjólhýsi til sölu. Tilvalið sem sumarbústað- ur.Framleitt eftir sænskum kröf- um. Vatnsmiðstöð með termóstati og dælu. Kæliskápur, flúr- Ijós.Vetra, einangrað, tvöfalt gler. Dregið aðeins 300 km. Uppl. i síma 21416 eða 22973 eftir kl. 7 á kvöldin. Til sölu 3ja mánaða lítið notað, hljómflutningstæki með plötu- spilara, cassettutæki og útvarpi. Selt ódýrt með afborgunum. Uppl. í síma 24940 Til sölu Blaupunkt sjónvarpstæki 20" í góðu lagi. Uppl. í síma 62251 Til sölu ýmsir hlutir íTaunus 17M 1964. Uppl. í síma 22799 Til sölu Honda SS 50 Z árg. 1975. Uppl. í síma 22300 (39) fyrir há- degi. Til sölu sófasett og borð. Uppl. í síma 22561. Til sölu eins árs gamall ísskápur, mjög lítið notaður.Verð kr. 100 þúsund Uppl. í síma 21185 Helgi Magnússon Nýlegt karlmannshjól til sölu. Verð kr. 45. þúsund. Uppl. í síma 21839. Vil ráða konu eða karlmann við safnvörslu á Minjasafninu á Ak- ureyri. Enskukunnátta æskileg. Safnvörður. Óska eftir 10 - 12 ára stúlku eða dreng í sveit í sumar. Bjarkí Nesi Saurbæjarhrepp. Tilboð leggist inn á afgreiðslu Dags. Merkt sveit. Þiónusta Smurt brauð og snittur fyrir veisl- ur og samkvæmi. Uppl. í síma 22799 Húsnæði 2-3 herb. íbúð óskast til leigu. Fyrirframgreiðsla ef óskað er. Reglusemi heitið. Uppl. ísíma 63106 Halló - Halló Unga stúlku vantar herb. til leigu með eldunaraðstöðu sem næst miðbænum. Uppl. í síma 22362 Bílasýningin á Akureyri 17. júní 1978 Á sýningunni er verður haldin við Oddeyrarskólann, verða m.a.: Bílaumboð með bíla sína. Saga vörubílsins 1928 - 1978. Kvartmílutæki viðsvegar að. Mótorhjól. Gamlir bílar. Margar tegundir bílvéla, gamlar og nýjar. Komið og sjáið glæsilega sýningu. Bílaklúbbur Akureyrar 2.DAGUR A UNIVERSAL PICTURE ■ TECHNICOLOR,"JPANAVISION<" gg Borgarbíó sýnir Flugstööin 77 Hvers eðlis er umhyggja Alþýðubandalagsins fyrir bændum? Það er hálf broslegt að heyra hvað Alþýðubandalagsmenn þykjast bera mikla umhyggju fyrir bændum á þeim frambQðsfund- um, sem haldnir hafa verið að undanförnu víða um landið. Þar tala þeir um réttlæti, launajöfnuð og bræðralag. Hins vegar er mjög erfitt að átta sig á því hvers konar réttlæti það er, sem þeir tiieinka sér og þykjast berjast fyrir. Þeir segja meðal annars að þeir vilji launajöfnuð, hins vegar syngja þeir í kór með Alþýðuflokknum - kjarasamn- ingana í gildi - og það þýðir enn meiri launamun en nú er. Við bændur segja þeir, að það sé ekkert mál að tryggja þeim fullt verð fyrir alla þeirra framleiðslu og undirstrika það sérstaklega sem rétt er, að það sé ámælisvert og ekki hægt að líða lengur, að bændur nái ekki þeim launum á búum sínum, sem verðlags- grundvöllurinn segir til um að þeir eigi að hafa. En samkvæmt lögum á að verðleggja búvöru þannig að bændur beri úr býtum svipuð laun og aðrar stéttir hafa á hverjum tíma þótt raunin hafi alltaf verið önnur. Þetta er nú hljóðið í frambjóðendum AI- þýðubandalagsins. En síðastlið- inn vetur lagði formaður þeirra það til í verðbólgunefnd, að út- flutningstrygging á útflutta land- búnaðarvöru yrði lækkuð um einn milljarð og það fjármagn notað til að auka niðurgreiðslur á vöruverði, sem auðvitað þýddi það, ef fram hefði náð að ganga, að bændur hefðu enn síður náð launum sínum, enda voru þessar tillögur framsettar einnig af Al- þýðuflokknum og þar var annar bændavinur að verki, Gylfi Þ. Gíslason ásamt Lúðvík Jósefs- f tveim stuttum ferðum út fyrir bæjarmörkin, blasti það við augum, að slys hörðu orðið með þein hætti, að bifreiðum hafði verið ekið á sauðfé, bæði lömb og fullorðið fé og það drepist. Enginn ökumað- ur gerír slíkt viljandi, en mis- brestur er á gætilegum akstrí þar sem t.d. lambfé er við vegi og stöku sinnum ber það við, að siys virðast óumfýan- leg. En hér er á það minnt, að aka varlega þar sem húsdýrin eru annars vegar, og ef slys ber að höndum ber að til- kynna það þegar í stað og það gera allir sæmilegir menn. syni. En ekki nóg með þetta, þeir kumpánar lögðu einnig til í verð- bólgunefnd að lagður yrði veltu- skattur á aðstöðugjaldstofn, sem gefa átti ríkissjóði 4300 milljónir. Þessi gjaldtaka.ef af henni hefði orðið, hefði þýtt það, að verð- lagsgrundvallarbúið hefði orðið að greiða í þennan nýja skatt um 104 þúsund krónur á ári, eftir þeim upplýsingum sem fyrir Kggja- Það er því engin furða þó ýmsir bændur verði glottleytir undir öllum þeim fagurgala á þessum framboðsfundum og að þeir hugsi með sér! -Illt er þeirra ranglæti, en verra er þeirra rétt- læti- eða þeir hafi yfir einhverja gamla öfugmælavísu. Vorum að taka upp eldhúsgardínuefni nýjar gerðir. Frothí, Velúr, ein- litt og röndótt. Fínriflað flauel margir lit- ir. Terlin Krep sjö litir Einlitt bómullarefni væntanlegt í vikunni Versl. Skemman. Krómaðar felgjur á Blaz- er og Chevrolet. Breið dekk með hvítum stöfum. Réttinga verkfæri fyrir boddý viðgerðir — margar gerðir í settum og stök verkfæri. Net á framljós. Hjólkoppar í settum 13,14,15,16. Kertaleiðslur í settum í alla bíla. Útvörp-segulbönd-loft- net, hátalarar margar gerðir, hreinsispólur. Topplyklasett margar gerðir. Grunnur, spantu fyllir P.38 ísopan með grisju. Sprautulökk í brúsum. Loftflautur 12 og 24v flautur 6,12,24v. Esso nestin.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.