Dagur - 14.06.1978, Page 5

Dagur - 14.06.1978, Page 5
Útgefandi: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS Skrifstofur Tryggvabraut 12, Akureyri Ritstjórnarsimar: 24166 og 23207 Sími auglýsinga og afgreiðslu: 24167 Ritstjóri (ábm.): ERLINGUR DAVlÐSSON Blaðamaður: ÁSKELL ÞÓRISSON Augl, og afgr.: JÖHANN KARL SIGURÐSSON Prentun: Prentverk Odds Björnssonar hf. Landhelgismálið Viðreisnarstjórnin sat á land- helgismálinu í tólf ár og hafðist ekki að. í grein Stefáns Valgeirs- sonar, alþingismanns, í síðasta tölublaði sagði hann m.a.: „Á þeim tólf árum, sem viðreisnar- stjórnin sat að völdum, gerðist ekkert í landhelgismálinu, nema hvað gerðir voru nauðungar- samningar við breta. En eftir að ríkisstjórn Ólafs Jóhannessonar var mynduð 1971 var strax hafist handa um að undirbúa nýjan áfanga í útfærslu landhelginnar í 50 mílur og gerðar ráðstafanír til að ógilda nauðungarsamninginn. Hvernig er staðan nú í þessu máli, aðeins sjö árum eftir að þessi barátta var hafin? Halda menn, að slík niðurstaða hefði náðst, ef þjóðin hefði ekki á þessum árum haft forystu, sem hafði bæði áræði og fyrirhyggju til að tefla þetta tafl til sigurs? Getur það verið tilviljun, að viðreisnar- fiokkarnir gerðu ekkert jákvætt í þessu máli í tóif ára stjórnartíð sinni? En um leið og ríkisstjórn Ólafs Jóhannessonar var mynd- uð, komst hreyfing á málið og síðar komu aðrir forystumenn Framsóknarflokksins fram í sviðsljósið og þannig var málið ieitt til sigurs. Er þjóðin búin að gleyma hvað Alþýðubandalagið sagði um Osloarsamningana? Það kallaði þá uppgjafasamninga og svika- samninga. En hvað hefur reynslan sýnt. Þessir samningar leiddu tii þess að lausn fannst og sigur var unninn. Formaður Alþýðuflokks- ins, Benedikt Gröndal, sagði í sjónvarpsviðtali, eftir að undir- skrift Osloarsamninganna hafði farið fram, að við íslendingar hefðum aidrei náð svo hagstæð- um samningum ef Framsóknar- flokkurinn hefði ekki átt aðild að ríkisstjórn. Og eru menn búnir að gleyma því, hvað formaður Alþýðubanda- lagsins lagði til að gert yrði, þegar umræður fóru fram um útfærsluna í 200 mílur? Hann lagði til, að ís- iendingar gerðu ekkert í því máli fyrr en Hafréttarráðstefna Sam- einuðu þjóðanna hefði lokið störfum. Þessari ráðstefnu er enn ekki lokið og enginn veit hvenær henni lýkur. Hvernig stæðum við, ef farið hefði verið að ráðum Lúð- víks Jósefssonar? Það má segja, að saga land- helgismálsins sé hreint ævintýri, þar sem okkar dvergsríki bauð stórveldum Evrópu byrginn og með framsýni og þrautseigju tóks okkur að vinna fuilnaðarsigur. í þessu mikilvæga máii hefur eng- inn stjórnmálaflokkur komið eins mikið við sögu og Framsóknar- flokkurinn. Ý' Maja Baldvins MINNING Frú Maja Baldvins er látin. Merk og fjölhæf kona. Mig langar að minnast hennar með nokkrum orðum. Fullu nafni hét hún Maríanna Baldvinsdóttir. Hún var Akureyringur þó hún hafi síðustu árin verið búsett í Reykjavík. Maja var dóttir Bald- vins Jónssonar verslunarmanns á Akureyri og síðar verslunarstjóra á Sauðárkróki og konu hans frú Svövu Jónsdóttur, hinnar þekktu leikkonu okkar Akureyringa um fjölda ára. Fædd 16. nóvember 1907 í Aðalstræti 52 hér inn í Fjörunni, í húsi afa síns, Jóns Chr. Stephanssonar, timbur- meistara og dannebrogsmanns. En þar bjuggu þau öll félagsbúi, Jón og kona hans, frú Kristjana Magnúsdóttir, móðir frú Svövu, en hún var síðari kona Jóns, ungu hjónin og móðir Baldvins, frú Guðrún. Elsta bam Svövu og Baldvins var Otto Jón, fæddur 1904, látinn fyrir nokkrum árum. Maja var næstelst, síðan Brynhildur og Jonna, þá Haukur og Hjördís yngst. Heimilið í gamla húsinu í Fjörunni var mjög fallegt, þrjár stofur, allar með fallegum hús- gögnum og trjá- og blómagarð- urinn einstakur. Jón Stephansson var nefnilega einn helsti trjá- ræktarmaður bæjarins. Það var hann sem gerði garðinn sunnan við kirkjuna og ræktaði þar trjá- og runnaplöntur. Var það undir- búningsstarf fyrir Gróðrarstöð Ræktunarfélags Norðurlands of- an við Krókeyri. Þessi ræktunar- stöð sunnan við kirkjuna var í ungdæmi mínu kölluð-aldingarð- urinn, seinna Ryelsgarður og nú Minjasafnagarður, en vitanlega mjög breyttur frá því sem var. í þessu umhverfi ólst Maja upp að nokkru leyti. En svo fluttu þau til Sauðárkróks, þar sem Baldvin tók við forstöðu Sameinuðu ís- lensku verslananna á Sauðár- króki. Heimsótti ég þau þá og var mjög ánægjulegt að hitta þau. En stofurnar voru þétt setnar Flóru- gestum og allir fengu kaffiveit- ingar og svo mun hafa verið oftar. Aftur fluttu þau til Akureyrar 1921. Þá stofnsetti Baldvin sína eigin verslun í Strandgötu 17, sem hann rak meðan kraftar leyfðu. Þá um haustið fór Maja í Gagnfræðaskólann og lauk það- an fullnaðarprófi eftir tvö ár með góðri einkunn. Maja hafði mik- inn áhuga á starfi skáta og var í kvenskátafélaginu Valkyrjunni og vann þar af áhuga. Árið 1927 fór Maja til Kaup- mannahafnar til náms og starfa. Þar varð hún fyrir alvarlegum heilsubresti, sem ég held að hún hafi aldrei komist yfir. Kom hún aftur heim nokkru eftir 1930. En 1934 giftist hún Sigurði L. Páls- syni enskukennara í MA. Eign- uðust þau eina dóttur, Maíu. Gekk hún menntaveginn og er hún sálfræðingur. Maía er fædd 18. febrúar 1935. Er hún búsett í Reykjavík. Börnin hennar þrjú voru ’yndi ömmu sinnar. Eftir lát Sigurðar L. Pálssonar fluttist frú Maja suður og keypti góða íbúð á Bergsstaðastræti 56. neðri hæð, þar sem henni leið vel með mjög góðu sambýlisfólki og sama vitnisburð fékk frú Maja hjá fólkinu á efri hæðinni. Frú Maja Baldvins var mikill mála- maður. Hún þýddi bækur. Hún var mjög listfeng eins og móðir hennar og fékkst nokkuð við list- málun, en var einnig mikil hann- yrðakona, eins og frú Svava. Þær voru báðar stofnfélagar Zonta- klúbbs Akureyrar (sem hlaut stofnskrá sína 2. júní 1949) Báðar voru þær kosnar í fyrstu stjórnina, frú Svava varaformaður (sem færist upp í formannssætið ári síðar) og frú Maja var fyrsti ritari Z.A. Zontaklúbbur Akureyrar þakkar þeim mæðgum báðum mikið og gott samstarf. Persónu- lega þakka ég þeim samstarfið og vináttuna, sem ég met mikils og bið þeim blessunar á æðri leiðum. Frú Maíu og fjölskyldu hennar, systkinum frú Maju Baldvins og þeirra fólki, sendi ég mínar ein- lægustu samúðarkveðjur. RagnheiðurO. Björnsson. Ætlf þeir hafí orðiö varír? Skjálfandafljót Samkvæmt upplýsingum Hlöð- vers Þ. Hlöðverssonar, verður fljótið opnað þann 20. júní. Þegar blaðið ræddi við Hlöðver á mánudaginn var dálítil leysing, en til þessa hefur ekki komið neinn stór vöxtur í fljótið. Samtals veiddust 288 laxar í Skjálfanda- fljóti sl. sumar og var meðal- þyngdin 8,1 pund. Laxá á Ásum Laxá á Ásum var opnuð þann 1. júní og fram að hádegi sl. mánu- dag höfðu komið á land rúmlega 50 laxar. Veiðin var hvað best til að byrja með, síðan dofnaði að- eins veiðin en aðfararnótt mánu- dagsins virtist lax hafa gengið í ána. „Meðalþyngdin er rétt um tíu pund og ég held að sá stærsti sé um 18 pund og var það Akur- eyringur sem fékk laxinn,“ sagði Kristján Sigfússon, Húnstöðum. Laxá í Aðaldal Veiði er hafin á laxasvæðinu í Laxá í Aðaldal og fyrsta daginn fengust 24 laxar, en þegar haft var samband við Helgu Halldórs- dóttur á mánudagsmorgun voru 37 laxar komnir á land. „Fyrsti laxinn veiddist fjórtán mínútur yfir sjö sl. laugardag og fékkst hann í Sjávarholu", sagði Helga. „Það var Birgir Stein- grímsson (eldri) frá Húsavík sem fékk laxinn sem var ellefu pund. Svo fékk Birgir yngri annan lax rétt á eftir og hann var tuttugu pund. Það er sá þyngsti sem hefur fengist til þessa og Birgir fékk hann á Flösinni“. Á sunnudag var fremur lítil veiði, enda var hvasst og illt fyrir veiðimenn að athafna sig. Vegna góða veðursins og hitanna er áin lituð Tilgangurinn var að halda uppi fullri atvinnu - segir Heimir Hannesson um hin umdeiidu efnahagslög Hefur komið til álita að hætta landkynningu erlendis, vegna ótta við skemmdir á viðkvæmri náttúru íslands? „Það er eindregin skoðun mín, að ekki beri að draga úr svokallaðri landkynningu heldur þvert á móti að auka hana, en um leið fari fram ákveðin stefnumörkun að hverju hún eigi að beinast og til hverra hún eigi að ná. Við meigum ekki gleyma því, að landkynning beinist ekki fyrst og fremst að því markmiði að auka innan eðlilegra marka heimsókn- ir erlendra ferðamanna heldur hefur hún bæði menningargildi fyrir Island og ekki síður við- skiptalegt gildi fyrir útflutnings- vörur okkar. Allt er þetta samofið og þarf að vinnast í samhengi. Alhliða ferðaþjónusta er mjög vaxandi atvinnugrein á íslandi og miðað við verðmæti fjórði stærsti atvinnuvegur þjóðarinnar. Á síð- asta ári voru hreinar gjaldeyris- tekjur atvinnugreinarinnar nokk- uð á sjöunda milljarð og er nú mjög mjótt á mununum hvor er stærri atvinnugrein miðað við gjaldeyristekjur, ferðamanna- þjónustan eða iðnaðurinn, ef álið er undan skilið.“ I markaðs- og landkynningar- stefnu okkar verðum við hins- vegar ætíð að hafa í huga sérstöðu okkar, lítillar eyþjóðar í stóru landi með viðkvæma og fagra náttúru. Meginstefnan í ferða- málum hlýtur alltaf að vera sú, að landið og náttúra þess sé fyrst og fremst fyrir Islendinga sjálfa, enda gefur löggjafinn um það skýr fyrirmæli í nýjum lögum um ferðamál, að starf okkar hjá Ferðamálaráði á ekki síður að beinast að stjórn, skipulagningu og samræmingu innlendra ferða- mála - þ.e. ferðalögum okkar sjálfra um eigið land, m.a. á þann hátt að gera okkur kleift að njóta samvista við óspillta náttúru þess og fegurð. Þar hefur verið lögð mikil áherzla á náið samstarf við félög áhugamanna svo sem ferðafélög, náttúruverndaraðila og sambærilega aðila. Við verðum að sjálfsögðu alltaf að vera á varðbergi og gæta ýtrustu varúðar í skiptum okkar við náttúru landsins ekki sízt þar sem umferð fer vaxandi. Þar held ég þó að ýmsar fyrirbyggjandi aðgerðir séu líklegastar til árang- urs frekar en lokun og verulegar takmarkanir. T.d. leiðbeiningar, skýrar merkingar um hvað leyfi- legtt er og hvað beri að varast, skipulagning gönguslóða, gæzla og eftirlit og stóraukin upp- lýsinga- og kynningarstarfsemi í umgengis- og umhverfismálum. Nýkynnt heildarlöggjöf um um- hverfismál yrði mjög til bóta, en Ferðamálaráð mun í vaxandi mæli snúa sér að umhverfismál- um og mun hvetja alla ferðamenn jafnt innlenda sem erlenda til að sýna góð umgengni jafnt í byggð sem óbyggð. Voru efnahagslögin frá því í vetur „klaufaleg mistök“ og má skoða bráðabirgðalögin sem kosningabrellu? Ég held, að ekki sé hægt að segja með nokkurri sanngirni, að efna- hagslögin frá því í vetur hafi verið nein mistök né heldur bráða- birgðalögin kosningabrella. Til- gangur ríkisstjórnarinnar var tví- mælalaust sá að halda uppi fullri atvinnu, sem hefur tekizt, svo og að grípa til ráðstafana, sem áður hafa þekkzt, í því skyni að draga úr verðbólgu. Það skapar hins- vegar aldrei neinar sérstakar vin- sældir fyrir ríkisstjórn- hver sem hún er að grípa til óvinsællla að- gerða, og þá byrði verða stjórn- málamenn að vera menn til að bera. Því miður hafa ýmsir for- ystumenn verkalýðshreyfingar- innar prédikað margrædda lág- launastefnu meira í orði en á borði. Tilgangur bráðabirgðalag- anna var þar að höggva á hnútinn með nokkurri eftirgjöf eins og menn vita. Það væri hinsvegar ekki sanngimi að viðurkenna ekki, að auðvitað komu bráða- birgðalögin sem viss afleiðing af aðgerðum og mótmælum verka- lýðshreyfingarinnar og vissulega liggur vel við höggi að gagnrýna þá ákvörðun ríkisstjómarinnar að semja um ákveðin laun við eigin starfsmenn í vetur, en taka þá samninga til baka að hluta nokkrum mánuðum síðar. Þær upplýsingar um greidd laun víða í þjóðfélaginu sem birtar eru opin- berlega af talsmönnum verka- lýðshreyfingarinnar gefa oft hinsvegar ekki rétta mynd af rauntekjum fólks. Almennt talið er afkoma fólks víðast mjög bærileg, en áhyggjuefni er, að allt of víða fást þessar tekjur því að- eins að allskyns yfirvinna og aukavinna sé fyrir hendi. Þar verður að vera breyting á í þjóð- félagi okkar. En stefna ríkis- stjórnarinnar eins og reyndar flestra ríkisstjórna á undanförn- um árum, þó að misjafnlega hafi til tekizt, um fulla atvinnu, Ég ætla í fáum orðum að vekja athygli á brýnu velferðar- og kjaramáli vinnandi fólks í landinu. Þessu máli er alltof lítill gaumur gefinn. Hér er um að ræða nauðsyn þess að stytta hinn óhæfilega langa vinnutíma, sem hér viðgengst. Ég þess. Og alltaf hef ég tilhneigingu til þess að taka upp vöm fyrir gamla sveitasamfélagið, hvort heldur sem snertir ásökun um vinnuhörku eða eitthvað annað. Ég efast nefnilega um, þegar á allt er litið, að mannkynið hafi fundið Maður en ekki vél. Á uppgangstímum iðnaðarauð- valdsins í Englandi og Bandaríkj- unum og víðar um lönd fyrir 100-150 árum varð erfiðisvinnufólk að þola hin verstu kjör, m.a. vinnustrit myrkranna á milli. En Óhóflegt vinnuálag. Samt er það svo að vinnu á fjöl- mörgum vinnustöðum um allt land er þannig fyrir komið, að fólk er við störf lengri vinnudag mánuð eftir mánuð og ár eftir ár en jafnvel íhaldsmenn í Ameríku töldu sér Vinnutímastytting - vanrækt baráttumál verklýðssamtakanna vil sérstaklega benda á, að margir áratugir eru síðan sannað var með vísindalegum athugunum víða um heim, að langur vinnutími er skað- legur fyrir velferð verkafólks og meinsemd í rekstri fyrirtækja. Sannað hefur verið að svona vinnufyrirkomulag eykur ekki af- köst starfsmanna né framleiðslu í heild, auk þess sem það er líkam- lega óheilbrigt og andlega lamandi. Átta stunda vinnudagur er meira en nógu langur fyrir fólk í verk- smiðjum og frystihúsum. A ð draga verkfœrin. Lengi hefur verið í minnum haft á Norðurlandi það sem Jón gamli á Böggvisstöðum átti að hafa sagt fyrir 100 árum eða rrieira, að ekki væri vinnufólk hans þreytt þegar það kæmi heim af engjum, ef það gæti borið verkfærin á öxlunum, en drægi þau ekki. Slík var vinnu- harka Jóns og skilningsleysi á nauðsyn hóflegs vinnuálags og eðlilegrar hvíldar. Að sjálfsögðu muna menn þessi ummæli karlsins af því að viðhorf hans þóttu ann- arleg, þau heyrðu undantekningum til. Eigi að síður minna þau á þann þátt í verkmenningarsögu mann- kynsins, þegar erfiðisvinnumenn voru þrælkaðir til óbóta eins og hver önnur dráttardýr, hross eða uxar. Hér verður ekki rakin saga þrælahalds og leiguliðaánauðar, enda hvorki staður né stund til upp skynsamlegra samfélagsform. Iðnvæðingin hóf feril sinn með því að ala af sér ómennskt andstyggð- arþjóðfélag, eins og allir vita, sem Ingvar Gíslason ritar hér um óhóflegan vinnutíma og van- rækslu verkalýðsfél- aganna í því máli eitthvað hafa gluggað í sögubækur, og varla kynntust íslendingar vinnuþrælkun fyrr en með togara- útgerðinni í byrjun þessarar aldar. Það þurfti löggjöf, vökulögin, til þess að létta henni af. Að sjálfsögðu dró ekki úr framleiðsluafköstum togaraflotans við það að togarasjó- menn fengu að njóta lágmarks- hvíldar. manndómur þessa fólks var þó ekki minni en það og hugsunin ekki sljórri en svo, að amerískir verka- menn sungu við vinnu sína vísu- kom, sem efnislega hljóðar þannig í miður góðri þýðingu: Hvaða verk, sem vinna ber, það verður mér í haginn og stuðlar best að stærri hlut að stytta vinnudaginn. Enda fór það svo, að strax á 19. öld var hafist handa um styttingu vinnutíma í verksmiðjum, fyrst hægum skrefum, en síðar með meiri hraða. Nú eru áratugir síðan viðurkennt var að það er hvorki dyggðugt, heilbrigt né hagkvæmt að útþrælka sjálfum sér og öðrum í erfiðisvinnu, síst í verksmiðjum. Einnig vita menn það af reynslu og margendurteknum athugunum, að mikill munur er á áhrifum langs vinnutíma eftir því hver vinnu- ataðurinn er og hvort menn vinna á eigin ábyrgð, ráða sjálfir vinnu- hraða og öðru verklagi eða eru annarra þjónar. Enda er maðurinn maður en ekki vél. Þetta vita ís- lenskir verkalýðsleiðtogar og fram- kvæmdastjórar eins vel og starfs- bræður þeirra í öðrum löndum. Og fjarri fer því að ég væni nokkurn af þessum mönnum um það að þeir vinni vitandi vits gegn viður- kenndum staðreyndum um holl- ustu og heilbrigði og hagkvæmni í framleiðslu. skylt að banna með lögum fyrir mörgum áratugum. Margt hafa Is- lendingar viljað taka upp eftir Ameríkönum, en ekki það að skipuleggja vinnutíma fólks af skynsemi. Það sannar m.a. óhóflegt vinnuálag verkafólks í frystihúsum og öðrum verksmiðjum hér á landi. Ekki veit ég hver á sök á þessu, líklega eru margir samsekir, en hitt veit ég að þarna er umbóta þörf. Hér er áreiðanlega um vanrækt baráttumál verkalýðssamtakanna að ræða, og gegnir furðu að þau skuli ekki hafa sett þetta mál á oddinn. Eins er það varla afsakan- legt að framkvæmdastjórar fyrir- tækja skuli ekki beita sér í þessu máli meira en raun ber vitni. Um vinnutímastyttingu og nýtt verkfyrirkomulag þarf reyndar að takast samvinna milli fyrirtækja og forsvarsmanna verkafólks. Að málinu þarf að vinna í sameiningu. Svo er fyrir að þakka, að á Islandi er ekki sú fjarlægð milli verka- manna og stjómenda að þeir geti ekki talast við. Þvert á móti er oftast um að ræða gagnkvæm kynni, til- trú og góða sambúð. Þó mun víða nauðsynlegt að auka og bæta sam- skipti starfsmanna og stjórnenda með nýju stjórnunar- og sam- skiptafyrirkomulagi, þ.e.a.s. auknu atvinnulýðræði í einni eða annarri mynd. En atvinnulýðræði kemst ekki á nema verkalýðshreyfingin sé því hlymt Þór og Þróttur gera iafntefli Þór fór til Neskaupstaðar á föstudagskvöldið og lék þar við Þrótt í annarri deildinni í knatt- spyrnu. Veður var þungbúið þegar leikið var og gekk á með slyddu. Slíkt veðurfar bolir ekki malar- völlur þeirra Austfirðinga, og var hann nánast mjög slæmur, háll og forarleðja á honum. Þórsarar fengu óskabyrjun í leiknum, þegar Þróttarar þjörmuðu óþyrmilega að sókn- armanni hjá Þór, og var um- svifalaust dæmt víti. Fyrirliði Þórs, Sigurður Lárusson tók vítaspymuna og skoraði örugg- lega. Það voru hins vegar ekki Þórsarar sem frískuðust við markið heldur Þróttarar og sóttu þeir nú án afláts, og að lokum komu þeir boltanum í markið. Það var heldur ílla að því marki staðið hjá austan- mönnum, en Eiríkur markmað- ur Þórs ætlaði að henda sér á frekar auðveldan bolta frá Þrótturum en hann hreinlega spólaði í drullunni og boltinn fór því í markið. Þannig var því íslandsmótið þriðja deild Lelkir hófust f þriöju delld, norðuriandsrlðli, um helg- Ina. Marglr lelklmlr voru skemmtiieglr, og var mikið af mörkum skorað. Úrsllt elnstakra lelkja urðu þau að Lelfur, Ölafsflrði og Dalvfk- Ingar gerðu marklaust Jafn- teftl. Siglflrðlngar unnu Hofsós með I jórum mðrkum gegn engu. Dagsbrún vann Magna frð Grenlvfk með fjórum mðrkum gegn elnu, og Arroðlnn vann Reynl frá Arskógsströnd með sex mðrkum gegn engu. Lelklr f þessum riðtum halda áfram n.k. sunnudag en þá leika saman Hofsós og Tinda- stóll, Dalvfklngar og Slgl- flrðlngar, Árroðlnn og Magnl, og HSÞ og Reynlr. Kylfingar hugsa sér til hreyfings Golfmenn hafa nú hafið æf- ingar og keppnir af fullum krafti. Um síðustu helgi voru tvö mót hjá Golfklúbbi Akur- eyrar. Á laugardag var keppt um Sjóvábikarinn og var það 18 holu forgjafarkeppni. Sig- urvegarar voru af ungu kyn- slóðinni, en no 1. var Þráinn Lárusson með 78 högg en hann hefur 17 í forgjöf. Á sunnudag var síðan haldin unglingakeppni og þar sigraði bráðefnilegur kylfingur — Héðinn Gunnarsson 11 ára — en hann er bróðir Jóns Þórs.1 Lék Héðinn á 70 höggum, eöa sama fjölda og næsti maður. Björn Kristinsson, en Héðinn vann Björn í bráðabana. Mik- ill hópur unglinga æfir nú golf, og hafa þeir æft vel í a',1- an vetur undir stjórn Árna Jónssonar. Fljótlega er vaént- anlegur til golfklúbbsins erlendur þjálfari Nolan að nafni. Mörg stórmót verða haldin á Golfvellinum á Akureyri í sumar svo sem landskeppni við Luxemborg, Icelandic open o.fl. íslandsmót yngri flokka Yngstu knattspyrnumennirn- ir voru heldur betur á skot- skónum yfir heigina. Þriðji, fjórði og fimmti flokkur Þórs fór til Húsavíkur og lék þar við Völsunga. Leikið var á ágæt- um grasvelli Húsvíkinga og að sögn Freys Bjarnasonar voru áhorfendur margir og leikirnir mjög skemmtilegir og spennandi. Völsungar unnu sigur í fjórða og fimmta flokki skoruðu í báðum leikj- um þrjú mörk gegn tveimur hjá Þór. ( þriðja flokkí varð jafntefli fjögur mörk gegn fjórum í Sigurður Lárusson var í fyrra kjörinn Knattspyrnumaður Ak- ureyrar, en hann skoraði markið fyrir Þór í leiknum við Þrótt. staðan í hálfleik eitt mark gegn einu. Þórsarar sóttu mikið í síð- ari hálfleik en án árangurs, og í netið vildi boltinn ekki, nema einu sinni en þá voru þeir dæmdir rangstæðir. Leiknum lauk því með jafntefli eitt mark gegn einu, og verða það að telj- ast nokkuð sanngjörn úrslit eftir gangi leiksins. Þórsarar hafa nú hlotið fjögur stig eftir fimm leiki, en ennþá er ekki öll von úti fyrir þá að komast á toppinn í deildinni æsispennandi leik. Allir voru leikirnir liður í íslandsmót- inu. Á KA vellinum lélu KA og Siglfirðingar og verður nánai sagt frá þeim ieikjum í næsts blaði. Sendið blað- inu úrslitin Það eru eindregin tilmæli frá umsjónarmanni íþróttasíðunnar, að forráðamenn íþróttafélaga í kjördæminu og á Norðurlandi sendi síðunni úrslit í hinum ýmsu íþróttamótum sem haldin verða í sumar. Þá eru einnig myndir frá mótum eða íþróttastarfinu vel þegnar. Það reynist því miður oft erfitt að ná til forráðamanna fél- aganna, til þess að fá úrslit í ein- stökum mótum, svo ^ermfhald- inn mörg mót sem hvergi eru auglýst, þannig að ef viðkomandi vildu vera svo góðir að senda blaðinu línu, þá verða úrslitin birt á íþróttasíðunni. „Leiknum frestað“ Þeir byrjuðu ekki vel’ heimaleikirnir hjá KA í fyrstu deildinni. Auglýst- ur hafði verið leikur KA og Vík'ings á grasvellinum sl. laugardag og höfðu vallarstarfsmenn lagt nótt við dag við að gera völlinn góðan, og m.a. sett á hann ný mörk, og skýli fyrir varamenn. Þá höfðu KA menn fengið Blásara- hljómsveit Tónlistarskól- ans til að leika létt lög áð- ur en leikurinn hæfist. Völlurinn, örugglega sá besti á landinu í dag, beið því leikmanna. Þrátt fyrir að Fluglélag íslands flygi margar ferðir til Akureyr- ar á laugardaginn, og Ómar Ragnarsson kæmi á Frúnni sinni treystu flug- menn Vængja sér ekki til að fljúga, en með því flugfélagi ætluðu Víking- ar að koma. Þeir þurftu því ekki annað en hringja til KSÍ og fengu strax frestun á leiknum, þar er ófært væri til Akureyrar, þrátt fyrir að önnur flug- félög héldu uppi áætl- unnarflug um völlinn. KA menn reyndu án árangurs að fá leikinn síðar um daginn eða um kvöldið en það tókst ekki, og verður hann því leikinn síðar í sumar. KA verður því að leika sinn fimmta leik á útivelli n.k. miðvikudag. 4.DAGUR DAGUR.5

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.