Dagur - 28.08.1979, Blaðsíða 6

Dagur - 28.08.1979, Blaðsíða 6
flKSUR Akureyrarkirkja. Messað n.k. sunnudag ki. 11 f.h. Sálmar 453, 342, 190, 357, 532. B.S. Hálsprestakall. Guðsþjónusta á Hálsi n.k. sunnudag 2. sept. kl. 10,30 árd. Sóknarprestur. ILRUALUO UO ÚIILÍI Ferðafélag Akureyrar. 1.-2. sept. Ásbyrgi - Hljóðaklettar - Hólmatungur. Fararstjóri Álfheiður Guðmundsdóttir. Happdrætti S.V.F.Í. Vinningar komu á eftirtalin númer. 19351, 26893 ósóttur. 2881.. 26899 ósóttur, 36993. Hjálpðræðisherinn. Sunnudag- inn 2. sept. kl. 13,30. Sunnu- dagskóli. K. 20,30, Bergmál frá Noregsferð æskulýðs- hópsins. Vitnisburðir og mikill söngur. Þriðjudaginn 4. sept. kl. 20,30. Hjálpar- flokkurinn. Verið velkomin. Þann 25. ágúst voru gefin sam- an í hjónaband ungfrú Ásdís Jóhannsdóttir húsmóðir og Örn Arason sjómaður. Heimili þeirra verður að Hamarsstíg 3, Akureyri. Þann 25. ágúst voru gefin sam- an í hjónaband í Akureyrar- kirkju Helga Kristrún Þórð- ardóttir sjúkraliði og Karl Jónsson húsasmiður. Heim- ili þeirra verður að Oddeyr- argötu 6, Akureyri. Á laugardag 25. ágúst voru gefin saman í hjónaband í Minja- safnskirkjunni brúðhjónin ungfrú Harpa Brynjarsdóttir Lögbergsgötu 7 og Magnús Þorvaldsson menntaskóla- nemi Háalundi 8. Heimili þeirra verður að Hofteigi 44, Reykjavík. Gítarkennsla (kerfi) fyrir börn og fullorðna. Þið sem hafið ánægju af að syngja en vantar undirleikinn, nú er tækifærið. Tveggja mánaða námskeið hefst 3. september n.k. Upplýsingar og innritun alla virka daga í Tónabúð- inni og í síma 25724. AKUREYRARÐÆR ||| Frá Vinnuskóla Akureyrar Orlofið verður borgað út fimmtudaginn 30. ágúst kl. 10-12 f.h. í Gróðrarstöðinni við Krókeyri. Inni/egar þakkir tilykkar allra sem minntust mín með gjöfum, blómum og skeytum á 70 ára afmœli 22. ágúst sl. Guð blessiykkur öll. KARL AÐALSTEINSSON, Glerárbakka, Akureyri. Innilegar þakkir til ykkar allra, sem glödduð mig með heimsóknum, góðum gjöfum, blómum og heillaskeytum á áttrœðisafmæli mínu hinn 12. ágúst sl. Guð blessiykkur öll. HÓLMFRÍÐUR STEFÁNSDÓTTIR. Alúðar þakkir til allra þeirra sem auðsýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför ÁRNA BJÖRNS ARNASONAR, læknls, Grenlvfk. Kristín Þórdís Loftsdóttir, Árni Björn Árnason, Þórey Aðalsteinsdóttir, Guðrún Helga Árnadóttir, Valdimar Úlafsson, Loftur Jón Árnason, Þóra Ásgeirsdóttir og barnabörn. Leggjum öll eitthvað --“ —■ _____ Akureyringar safna 30 mOrKUVVl til flóttafólkslns ALMENN FJÁRSÖFNUN er hafin í 13 þjóðlöndum Vest- ur-Evrópu til handa víetnömsku flóttafólki, að beiðni Poul Hartling, framkvæmdastjóra Flóttamanna- hjálpar Sameinuðu þjóðanna. Söfnunin hófst hér á landi með ávarpi Ólafs Jóhannessonar, for- sætisráðherra í útvarpi og sjónvarpi síðasta sunnudag, og henni lýkur 9. september. Það eru Hjálparstofnun kirkjunnar og Rauði kross Islands, sem að söfnun þessari standa, og skipulag hennar hér á Akureyri verður með þeim hætti, að tekið verðurá móti framlögum í bönkum og sparisjóðum, hjá bæjarblöðun- um og einnig veita sóknarprestar þeim viðtöku. Þá er og rétt að benda á, að greiða má framlög beint inn á gíróreikning söfnunarinnar, en hann er númer 46000. Söfnun þessi stendur ekki í sam- bandi við þá flóttamenn, sem ætl- unin er að hingað til lands komi, heldur vegna þess fjölda sem býr í flóttamannabúðum í Suðaust- ur-Asíu við afar þröng kjör, og ekki eru líkur á að eignist heimili í ná- inni framtíð. Það munu nú vera um 1100 laxar komnir á land Það eru komnir tæpir 1100 laxar á land og þessa dagana veiðist vel, t.d. veiddust 42 laxar í gær á 5 stangir. Stærsti fiskurinn sem veiðst hefur í sumar var 23 pund. Veiðin í ánni er mjög svipuð og hún var í fyrra, þó er búið að veiða 30 fiskum færri en var á sama tíma í fyrra, sagði Ingi- björg Þorkelsdóttir í veiðihús- inu Flóðvangi á föstudag. Fyrri hluta sumars veiddist óvenju lítið í Vatnsdalsá en veiðin náði sér á strik eftir því sem leið á sumarið. En laxinn hefur aftur smækkað. Veiði í Vatnsdalsá lýkur 15. september. íþróttafélag fatlaðra: Stofnar minninga- sjóð Iþróttafélag fatlaðra á Akureyri hefur stofnað minningasjóð um Tryggva Guðmundsson sem lést 29. janúar s.l. Hann var fæddur 4. febrúar 1963. Hann hafði verið áhugasamur um íþróttir fatlaðra og æft með félaginu frá stofnun þess 1974. Sjóðurinn hefur það mark- mið að styrkja fatlað íþróttafólk til keppni og náms í íþrótt sinni. Stofnfé sjóðsins er framlag Júlíönu Tryggvadóttir og Guð- mundar 1. Gestssonar svo og frá kennurum og nemendum Oddeyr- arskóla að upphæð 170.000.- kr. Minningarspjöld fást í bókabúð- inni Bókval, á Bjargi hjá Jakobi Tryggvasyni svo og hjá formanni félagsins Júlíönu Tryggvadóttir Eiðsvallagötu 13 sími 21186. Aðrar gjafir sem borist hafa. Til minningar um Tryggva Guðmundsson frá Guðrúnu og Magnúsi 5.000.- Ingibjörgu Sveinsdóttir 2.000.- Sigurði S. Gestssyni og fjölsk. 5.000.-, Jóni Syðri Neslöndum 10.000.-. Til minningar um Helga Pálsson frá J.I. og K.R. 1.5000.-. Til minningar um Jórunni Sigurbjörnsdóttur 1.000,- J.G. Bestu þakkir. Stjórnin. ein milljón manna, en hundruðir otrulega miktð gagn, ekki síst ef þúsunda hafa látið lífið á hafi. margir leggja hönd á plóginn. Verð- Neyð þessa fólks er mikil og um minnug þeirrar ríku samúðar þörfin á hjálp afar brýn, Rauði og miklu hjálpar, sem Islendingar krossinn og Hjálparstofnun kirkj- nutu víða um heim fyrir aðeins sex unnar vilja vekja á því athygli, að árum. (Frá Akureyrardeitd Rauða jafnvel minnstu framlög geta gert krossins og sóknarprestum). Höfum til sölu tveggja herbergja íbúð við Keilusíðu. íbúðin selst tilbúin undir tréverk. Þinur h.f., Fjölnisgötu 1, sími 22160 6.DAGUR

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.