Dagur - 04.03.1980, Side 5

Dagur - 04.03.1980, Side 5
Útgefandi: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS Skrifstofur Tryggvabraut 12, Akureyri Ritstjórnarsímar: 24166 og 23207 Simi auglýsinga og áfgreiðslu: 24167 Ritstjóri (ábm.): HERMANN SVEINBJÖRNSSON Blaðamaður: ASKELL ÞÓRISSON Augl. og afgr : JÓHANN KARL SIGURÐSSON Prentun: Prentverk Odds Björnssonar hf Skyldusparnaður eða óréttlát skattheimta Fimm þingmenn Framsóknarflokks- ins, þeir Guðmundur G. Þórarins- son, Páll Pétursson, Stefán Valgeirs- son, Alexander Stefánsson og Ólafur Þórðarson, hafa lagt fram á Alþingi tillögu um að ríkisstjórnin geri nú þegar nauðsynlegar ráðstafanir til þess, að ávöxtun skylduspamaðar ungs fólks verði ekki lakari en ávöxt- un ríkistryggðra skuldabréfa. Það er ekki ófyrirsynju, að þessi tillaga fimmmenninganna kemur fram. Eins og bent er á í greinar- gerð með tillögunni, verður }>essi lögjjvingaði sparnaður ungs fólks ekki skilinn öðruvísi en sem sérstök skattlagning þessa hóps í þjóðfélag- inu. Þeir segja að útreikningsreglum um ávöxtun skyldusparnaðar ungs fólks verði að breyta, því skyldu- sparnaður af þessu tagi sé því aðeins réttfætanlegur, að féð sé ávaxtað með bestu fáanlegu kjörum. Magnús Ólafsson á Sveinsstöðum benti á þetta óréttlæti í erindi „Um daginn og veginn“ í útvarpinu fyrir stuttu. Sé dæmi tekið um ávöxtun tveggja milljóna króna í fimm ár, miðað við 50% vísitölu hækkun, þá er þessi upphæð orðin 8 milljónir króna á skyldusparnaðarreikningi að loknum 5 árum, rúmlega 12 mill- jónum króna á vaxtaauikareikningi, eins og þeir reikningar em í dag, og að rúmum 15 milljónum króna eft- ir skyldusparnaði hátekjumanna samkvæmt skattalögum. Með kaup- um ríkistryggðra skuldabréfa yrði ávöxtunin ennþá meiri. í frumvarpi til laga um Húsnæð- ismálastofnun ríkisins, sem nú ligg- ur fyrir Alþingi, em ákvæði um skyldusparnað ungs fólks, þar sem segir, að verðtrygging skuli vera sam- kvæmt lánskjaravísitölu Seðlabank- ans. Hins vegar er þar ekki kveðið á um hvernig reikna skuli og er þá litlu betur komið en í eldri lögum, þar sem kveðið er á um verðtrygg- ingu samkvæmt kaupvísitölu. Órétt- lætið liggur fyrst og fremst í því hvernig og frá hvaða tíma verðtrygg- ingin er reiknuð. Það er útreiknings- aðferðin, sem mestu skiptir um ávöxt unina, og það er hún sem hefur orð- ið til þess, að ávöxtun skylduspam- aðar ungs fólks hefur orðið mun lak- ari en hægt hefur verið að fá með öðrum sparnaðaraðferðum. Er vonandi að þingsályktunartil- lagan verði til }>ess, að þessi órétt- mæti og að líkindum ólöglegi skattur á ungt fólk verði afnuminn hið fyrsta. Karlaliðið vann glæsilegan sigur. Norðurmynd. □ □□□□□□□□□□□□□ □ □ □ □ □ □ □ □ □ □ □ □ □ □ frá Vetraríþröttahátíðinni Unglingaliðið vann jafnaldra sína úr Reykjavík. Norðurmynd. Og hér koma Fljótamenn. Mynd: hs. Að lokinni setningarathöfn sl. föstudag var kveikt í bálkesti. „ÞEGAR öllu er á botninn hvolft held ég að segja megi að aðstandendur vetraríþróttahá- tíðarinnar séu ánægðir. Það var hægt að keppa í öllu sem fyrir- hugað var í upphafi, þrátt fyrir slæmt útlit fyrsta daginn“, sagði Hermann Sigtryggsson. „Þetta tókst með eindæma dugn aði starfsmanna mótsins, sem voru á annað hundrað“. Vetraríþróttahátíðinni lauk sl. sunnudagskvöld með verðlauna- afhendingu í íþróttaskemmunni. Síðasta atriðið var flugeldasýningr sem heppnaðist með ágætum. Alls tóku um 3'15 manns þátt í hinum ýmsu keppnisgreinum. Það senr bar hæst og er tíma- mótaviðburður í siigu skíðáíþrótt- arinnar er alþjóðamótið á skíð- um. Mótið fór vel fram og dómar- inn, sem er norskur, var ánægður með það. Af úrslitum má nefna að Sigurður Jónsson sigraði í svigr. I svigi kvenna sigraði Asdís Alfreðsdóttir og í stórsvigi karla sigraði Sigbjörn Ohnstad lrá Nor- egi. íslandsmeistaramótið á skaut- um fór þannig að Skautafélag Akureyrar vann Skautafélag Reykjavíkur. Þetta var fyrsta ís- landsmeistaramótið í íshokký hér á landi. Hermann sagði að upphaf há- tíðarinnar hefði einkennst af vondu veðri og fyrsta daginn varð að fresta ýmsu, en það náðist upp annan daginn. Og á sunnudag gekk allt slysalaust. Hermann Sigtryggsson flytur ávarp sitt í upphafi hátíðar- innar. Mynd: hs. Nanna Leifsdóttir á fullri ferð. Mynd: Ketill. Þau pössuðu sögusýninguna í Alþýðuhúsinu. Norðurmynd, LOFORÐ OG EFNDIR Hugleiðing um dagvistunarmál Hópur áhugafólks umdagvistunar- mál hefur undanfarið komið saman til að ræða hvernig kjörnir fulltrúar okkar í bæjarstjórn efna kosninga- loforð sín varðandi dagvistunar- mál Á síðastliðnu ári var nokkurri fjárupphæð ráðstafað til þessa málaflokks og átti hún að nægja til að ljúka dagvistunarstofnun þeirri sem tekin hefur verið í notkun í Lundarhverfi. Einnig átti að hefja byggingu á nýju dagheimili í Glerárhverfí sem samkvæmt áætl- un átti að taka í notkun á þessu árí. Með þetta í huga á fundi með félagsmálaráði í lok nóvember 1979 lögðu forstöðumenn dagvistunar- stofnana fram tillögu þess efnis að gildandi reglum fyrir börn giftra foreldra yrði breytt þannig að hámarks afnotatími yrði lengdur úr tveimur árum í þrjú. Var þetta lagt fram með ýtarlegri skýrskotun til þess að álagið á þeim stofnunum sem þegar eru fyrir hendi myndi minnka, þegar dagheimili í Glerár- hverfi yrði tekið í notkun haustið 1980. Og félagsmálaráð samþykkti tillöguna. Foreldrum síðan kynnt málalok. Undrunin leyndi sér ekki hjá nefndum hóp, forstöðumönnum og foreldrum, þegar í ljós kom í nýrri fjárhagsáætlun að dagvistunar- stofnunar í Glerárhverfi væri fyrst að vænta vorið 1981. Drýgsta ástæðan er sú að upphæðin sem veitt var á s.l. ári fór í e-ð annað en framkvæmdir við dagheimili norð- an Glerár. Þar hefur ekkert verið aðhafst ennþá. Nú í ár hefur fengist 100 millj. króna fjárveiting til þessa brýna verkefnis. Helgi Guðmundsson (al.þ.b.) bar upp við fyrri umræðu íjárhagsáætlunar 12.02 1980 að fjárveiting yrði aukin svo hraða mætti framkvæmdum og er það von hópsins að þessi tillaga fái hljómgrunn. Og þó svo færi, er það þar með tryggt að reist verði dagheimili í Glerárhverfi fyrir þessa peninga? Getum við íbúar á Akureyri verið vissir um að bæjarstjórn standi við loforð sín og áætlanir? Eða er það ekki markmið þess lýðræðis sem hér tíðkast að kjörnir fulltrúar sjái um að koma einmitt því í fram- kvæmd sem mestu hefur ráðið um kjör þeirra til embættis, :ekki hvað síst þegar í fjárh. áætl. er gert ráð fyrir fé til að standa við gerðar áætlanir. Það er varla ætlast til að bæjarbúar hafi skipulegt eftirlit með því hvort bæjarfulltrúar geri það sem þeir þiggja laun fyrir? Soffía G. (alþ.b.) eina konan í bæjarsfjórn og formaður félags- málaráðs, sagði við fyrri umræðu fjárh.áætlunar 12.02. ’80 að auð- veldlega væri hægt að ljúka dag- heimilinu í Glerárhverfi á tilsettum tíma ef aðrir bæjarfulltrúar hefðu áhuga á því. Hún áleit að áhuga- leysið stafaði af því að þeir eru karlmenn sem skortir innsæi í mál kvenna. Því miður virðist hún hafa rétt fyrir sér. En til allrar hamingju hafa ýmsir karlmenn lokið upp augunum og séð að þetta er einnig þeirra vandamál. Ástæðan kann að vera sú að yngri karlmenn andstætt þeim eldri, taka virkan þátt í uppeldi barna sinna og eru því vakandi fyrir því að veita þeim eins farsælt uppeldi og framast er kostur. Nema að þeir skilji að þjóðarskútan myndi laglega sigla upp á sker ef allar konur yrðu neyddar aftur inn í eldhús. Hvernig ætti fiskvinnslan að bjargast án þátttöku kvenfólks, eða grunn- skólar bæjarins? hversu margir karlmenn yrðu til að taka stöðu kvenfólks á vinnumarkaðinum og þiggja sömu laun og sömu réttindi og þær gera? Mér er til efs að þeir yrðu margir. Vissulega eru þær konur margar ekki siður en karlmenn, sem finnst réttast að mæður séu heima með börn sín, a.m.k. meðan þau eru mjög ung. Hér er ekki ætlunin að ræða þau viðhorf ýtarlega, en raunveruleikinn bara krefst þess að fjöldinn allur af ungum sem eldri konum verður að vinna úti ef fjölskyldan á að halda þeirri stöðu í þjóðfélaginu sem henni finnst sæm- andi. Þá á ég við kaup á eigin íbúð, sem oft er stökkpallur í stærra húsnæði svo öll fjölskyldan rúmist þokkalega einmitt þegar börnin eru lítil. Þá þarf bíl til ferða til að fá frá vinnustað og afhenda og sækja börnin hvar sem þeim annars hefur verið komið í pössun. Þegar þar við bætist að ungar, barnmargar fjölskyldur þurfa að afla sér alls þessa dýra neysluvarn- ings og eiga ekkert til að selja eða láta upp í, neyðast konurnar í langflestum tilfellum út í atvinnu- lífið hvort sem þeim finnst það eigi að vera svo eður ei. Því sæmir ekki annað en að við fáum barna okkar gætt á dagheimilum með vel menntuðu starfsfólki. Sé horft fram á við er það sparnaður fyrir samfélagið að hlúa vel að börnum sínum. Niðurstöður rannsókna erlendis frá sýna að þau börn sem eru vanrækt í æsku, verða iðulega undir í þjóðfélaginu þegar þau hafa náð fullorðins aldri. Slíkt kostar samfélagið drýgri skilding en þann sem fer í rekstur dagvist- unarstofnana. Ég er sannfærð um að það eru margir jafnt karlar sem konur, sem vilja að öll börn sem þess þurfa fái pláss á dagheimili. Ef einhver vill bætast í okkar hóp eða bara forvitnast um hann, þá get ég vísað til einhvers af undirrituðum. Anette Bauder Jensen Vetrarhátíðin: Úrslit í svigi og stórsvigi á fyrsta alþjóðamótinu ALÞJÓÐAMÓT í svigi sem haldið er á Islandi fór fram í Hlíðarf jalli sl. laugardag í karla- og kvennaflokki. Braut- arlagningu annaðist Arni Óð- insson og yfirdómari frá Al- þjóða skíðasambandinu var Haakon Rygh frá Noregi. Helstu úrslit í sviginu urðu sent hér segir: Örn sigursæll í skautahlaupi KEPPT var í skautahlaupi sl. laugardag á skautasvæðinu við Leirutjiirn. Aðstæður voru ntun skárri en á föstudeginum en þá var keppt við mjög erlið ar aðstæður. Á laugardag var keppt í 500 og 1500 m skautahlaupi og sigraði Örn Indriðason í þeim báðum í karlaflokki. Annar varð Gunnar Snorrason og þriðji Sigurgeir Haraldsson. í piltaflokki sigraði Ágúst Asgrímsson í 500 m hlaupi, Jó- hann Ævarsson varð annar og Bergþór Ásgrímsson þriðji. I 1500 m hlaupinu sigraði Ágúst einnig, og bróðir hans Berg- þór varð annar, en Jöhann Ælvarsson varð þriðji. Hér koma svo úrslitin: 500 m hlaup karla: sek. 1. Örn Indriðason SA 50,9 2. Gunnar Snorras. UBK 56,4 3. Sigurgeir Haraldss. SA 57,2 4. Ásgrímur Ágústsson SA 57,3 5. Sigurður Baldurss. SA 57,5 6. Skúli Lórenzson SA 60,2 500 m hlaup pilta: sek. 1. Ágúst Ásgrímsson SA 58,4 2. Jóhann Æ.varsson SA 61,8 3. Bergjiór Ásgrímss. SA 65,7 * 1500 m hlaup karla: mín. 1. Örn Indriðason SA 3.00,1 2. Gunnar Sn.son UBK 3.03,3 3. Sigurg. Haraidss. SA 3.12,9 4. Ásgrímur Ágústss. SA 3.21,5 5. Sig. Baldursson SA 3.26,6 1500 m hlaup pilta: mín. 1. Ágúst Ásgrímss. SA 3.12,1 2. Bergþór Ásgrímss. SA 3.15,9 3. Jóhann Ævarss. SA 3.34,4 Karlaflokkur: sek. Úrslit í svigi drengja 13—14 ára: sek. 1. Sigurður Jónsson I 2. Arni Þór Árnason R 106,71 106,91 1. Erling Ingvason A 2. Arni G. Árnasón H 86,91 87,81 3. Sigbj. Ohnstad Nor. 108,82 3. Jón Björnsson A 87,83 Kvennaflokkur: sek. Úrslit í stórsvigi stúlkna l. Ásdís Alfreðsd. R 89,12 13—15 ára: sek. 2. Nanna Leifsd. A 90,25 1. Hrefna Magnúsd. A 138,3 3. Ásta Ásmundsd. A 93,11 2. Lena Hallgrímsd. A 142,4 3. Kristín Símonard. D 146,4 Úrslit í svigi drengja 15—16 ára: 1. Ólafur Harðarson A sek. 96,37 Úrslit í stórsvigi drengja 15—16 ára: sek. 1. Guðm. Jóhannsson í 140,0 2. Bjarni Bjarnason A 3. Helgi Eðvarðsson A 98,95 99,81 2. Samúel Bjarnason A 3. Olgeir Sigurðsson H 144.2 144.3 KA-Þór: Hart var barist KA á möguleika I 1. deild, en Þór er í fallhættu Sl. föstudagskvöld léku í íþróttaskemmunni KA og Þór í I. deild. Leikurinn var þýðingarmikill fyrir bæði liðin. KA berst um sæti í I. deild en Þórsarar eru í botn- baráttunni í deildinni. Strax á fyrstu mínútu leiksins var auðséð að bæði liðin ætluðu sér sigur. KA leiddi allan leikinn og var yfirleitt 2—3 mörk yfir nema á síðustu mín. leiksins en þá tókst Þórsurum að jafna leikinn. Fyrri hálfleikur var skemmti legur fyrir áhorfendur sem voru tjölmargir. í hálfleik var staðan 13-10 fyrir KA. í seinni hálfleik var hart barist og voru KA-menn alltaf sterkari aðilinn og viirn þeirra betri. Gauti átti stórleik í markinu og varði hann 16 skot í leiknum þar af 3 víti. Þórs- arar gátu jafnað þegar 1 sek- únda var eftir þegar þeir fengu víti en Gauti gerði sér lítið fyrir og varði hjá Benedikt. Leiknum lauk með sigri KA sem skoraði 21 mark, en Þórs- arar skoruðu 20. Bestir hjá KA voru [reir Al- freð og Þorleilur ásamt Gauta. Hjá Þórsurum voru bestir þeir Pálmi og Sigtryggur. Tryggvi og Ragnar markverðir áttu slæman dag í niarkinu. Markahæstur hjá KA var Al- freð með 9 mörk, öll gull- falleg, og Þorleifur með 4. Her mann og Jóhann skoruðu 3 hvor. Hjá Þór voru markahæstir Sigtryggur með 6 og Benedikt með 5, Sigurður með 3 og Pálmi og Árni Stefánssón með 2 hvor. Dómarar voru að. sunnan og dæmdu þeir ágætlega. Eftir þennan leik eru Þórs- arar í mikilli fallhættu en KA á stóran möguleika á I. deild. Þór-Tindastóll: Slakur leikur Á laugardaginn léku í 1. deild í körfubolta Tindastóll-Þór. Þetta var heimaleikur Sauð- kræklinga. Leikurinn var þýðingarlaus fyrir bæði liðin þar sem Tindastóll var þegar fallinn niður í II. deild fyrir þennan leik. Þórsarar voru búnir að missa af sætinu í úrvalsdeildinni eftir tvo tap- leiki fyrir sunnan. Leikurinn var slakur af beggja hálfu og í hálfleik var staðan 35-37. Sigur Þórsara var aldrei í hættu í seinni hálfleik. Lokastigatölur urðu 70-93 Þórs ururn í hag. Stigahæstir hjá Þór var Gary Schawarts með 26 stig, Alfreð með 16 stig og Eiríkur og Valdimar Júl. með 14 stig hvor. Hjá Tindastóli var stiga- hæstur Kári Maríusson með 22 stig. I kvöld koma Sauðkrækling- ar aftur og leika við Þórsara, en |iað er heimaleikur Þórsara. Akureyri sigraði Reykjavík I íshokký ÍSLANDSMÓT II. DEILD Um næstu helgi kemur Aft- urelding norður og leikur við Þór á föstudagskvöld kl. 20.30 og KA á laugardag. Bæði norðanliðin verða að vinna sinn leik vegna stöð- unnar í deildinni. Akureyringar eru hvattir til að f jölmenna i Skemmuna og hvetja sína menn. A LAUGARDAG kepptu ís- hokkýlið Akureyrai ->g Reykja- víkur á Vetraríþróttahátíðinni og sigraði lið Akureyrar með 5 mörkum gegn 4. Veður var mjög gott, logn og frost og að- stæður allar hinar ágætustu. Nokkrum var vísað af velli í leiknum, t.d. var mönnum úr liði Akureyringa vísað af velli í 10 mín. en hjá Reykjavík í 12 mín. Eyrirliði Akureyrar var Skúli Lgústsson, en Sveinn Krist- dórsson var fyrirliði liðs Reykjayikur. Þeir sent skoruðu mörkin voru: Fyrir Akureyri: Sigurður Baldursson I, Hermann Björns son 1, Baldvin Grétarsson 1 og Skúli Agússon 2. Eyrir Reykja- vík: Sveinn Kristdórsson 2, Atli Helgason 1 og Rúnar Steinsen 1. . Dómarar voru Hallgrímur Indriðason og Agúst Karlsson, 4.DAGUR DAGUR.5

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.