Dagur - 03.09.1981, Síða 5

Dagur - 03.09.1981, Síða 5
Útgefandi: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS Skrifstofur: Hafnarstræti 90, Akureyri Ritstjórnarsímar: 24166 og 21180 Sími auglýsinga og afgreiðslu: 24167 Ritstjóri (ábm.): HERMANN SVEINBJÖRNSSON Blaðamenn: Askell Þórisson, Gylfi Kristjánsson Augl. og afgr.: JÓHANN KARL SIGURÐSSON Prentun: Prentverk Odds Björnssonar hf. Uggvænlegt ástand hjá Iðnaðar- deild SÍS Síöastliðinn þriðjudag var haidinn fundur í verksmiðjum SfS á Gler- áreyrum. Fundarboðendur voru Iðnaðardeild SÍS, Iðja, félag verk- smiðjufólks, og starfsmannafélag verksmiðjanna. Það kom fram í máli fundarmanna að hætta er á að fjölmörgum starfsmönnum Iðnaðardeildarinnar verði sagt upp og að deildum verði lokað innan skamms ef rekstarhorfur batna ekki. Hér er um mikið alvörumál að ræða, sem yfirvöld mega ekki skella skollaeyrum við. Atvinna tuga ef ekki hundruða er í bráðri hættu ef ekkert verður að gert. Hugsanlegar fjöldauppsagnir ná ekki aðeins til starfsfólks Iðnaðar- deildar SÍS á Akureyri, heldur gæti samdráttur þar valdið stöðv- un hjá sauma- og prjónastofum víða um land. Iðnaðardeild SÍS hefur á hendi 43% alls útflutnings ullar- og skinnavara hér á landi. Fyrirtækið byggir á langri reynslu og mikið hefur verið að hafst í markaðs- málum. Framleiðsluvara fyrirtæk- isins er viðurkennd fyrir gæði, en það er með öllu ómögulegt fyrir fyrirtækið að keppa á erlendum mörkuðum þegar verð framleiðsl- unnar hækkar stöðugt og það er Ijóst að ekki er endalaust hægt að reka fyrirtæki með miklu tapi. í ársbyrjum var gerð rekstraráætl- un, sem sýndi að reksturinn yrði taplaus, en við endurskoðun í lok apríl leit út fyrir að halli yrði á rekstrinum, sem næmi um 4 milljónum. Við aðra endurskoðun í s.l. mánuði kom fram dekkri mynd. Þá varð Ijóst að tapið yrði röskar 16 milljónir króna. Stöðugt er unnið að því að bæta framleiðsluna og auka framleiðn- ina, en þær ráðstafanir sem Iðn- aðardeildin gert duga hvergi til að koma fótunum undir reksturinn. „Rekstrargrundvöllurinn er al- gjörlega brostinn“, sagði Hjörtur Eiríksson á fundinum. Skýringuna er einkum að finna í þeirri gengis- þróun, sem hefur átt sér stað og verðbólgunni, sem geysar hér á landi. „Við höfum lagt fram ýmsar tillögur til úrbóta en ég veit ekki hvort yfirvöld hafa áhuga á þeim. Þær hafa að minnsta kosti til þessa fengið lítinn byr“, sagði Hjörtur. Það skiptir svo sannarlega miklu máli hvort verksmiðjurnar á Gleráreyrum starfa og nú eiga stjórnvöld næsta leik. Hálfkák af þeirra hálfu dugar ekki og nú verða verkin að tala. - áþ. merki allt saman“ - segir Hatíkur Arnason forstjóri Haga á eldhúsinnréttingum og skápum „f byrjun stunduðum við almenna byggingastarfsemi, byggðum fjöldamörg hús hér á Akureyri og reyndum að veita alhiiða byggingaþjónustu. Við vorum með smiði og múrara og vorum í sambandi við aðra iðnaðarmenn. Við gátum út- vegað húsbyggendum alla þá vinnu sem þeir þurftu og höfð- um hönd í bagga með hvernig verkið var unnið“. Þetta sagði Haukur Árnason forstjóri Haga hf. á Akureyri er Dagur heimsótti fyrirtækið í síðustu viku. Haga hf. þekkja flestir sem stærsta fyrirtæki hér- lendis á sviði eldhúsinnréttinga og skápaframleiðslu. Fyrirtækið var stofnað 1961, það er hlutafélag eins og áður hefur komið fram og eru fimm aðaleigendur. Við báð- um Hauk að rekja í stuttu máli þá þróun er fyrirtækið fór að hasla sér völl í smíði innréttinga. „Þróunin varð smátt og smátt sú að við fórum að fara meira og meira út í framleiðslu á eldhús- innréttingum og fataskápum. Þetta byrjaði í litlum mæli fyrir um 8 árum en síðan hefur þetta vaxið og nú eru 3 ár síðan við hættum allri byggingastarfssemi og fórum eingöngu út í þessa framleiðslu". „30 manns á launaskrá“ „Starfsmenn fyrirtækisins voru á milli 60 og 70 þegar mest ,var, en þá vorum við bæði í byggingar- starfseminni úti og með smíði innanhúss, en í dag eru um 30 manns á launaskrá hjá okkur. Um helmingur þessa fólks vinnur við framleiðslustörf, aðrir eru á skrif- stofu, við stjórnun og í verslunum okkar. Við erum með verslun í Reykjavík sem hefur starfað nokkuð lengi. Upphaflega var það þannig að við vorum með aðila þar sem seldi fyrir okkur í umboðssölu, en síðan þróaðist þetta þannig að við tókum þetta að okkur sjálfir. Verslunin í Reykjavík hefur alltaf verið að stækka, sýningaraðstaða er orðin mun betri og við erum færari um að veita betri þjónustu en áður“. Verslunin á Akureyri er yngri, við vorum með sýningaraðstöðu í verksmiðjunni sjálfri framan afen fyrir um fjórum árum opnuðum við verslun i Glerárgötu“. Það er að mörgu að hyggja.'Hér sést Haukur athuga skjöi . Ljósmyndirgk. h.f. um útlitið i framleiðslunni Haukur Ántason forstjórí ISTgist með einum starfsmanna smna vinna við kanffimingavél. „Illa settur iðnaður“ - Hvernig er þessi iðnaður settur í dag? „Illa. Það eru margar ástæður fyrir því og langt mál að útskýra þær allar. Það ér sennilega nærtækast að nefna innflutning- inn sem er nær eingöngu frá Norðurlöndunum. Verð frá þeim aðilum hefur ekki hækkað frá áramótum á sama tíma og við þurfum að búa við verulegar kostnaðarhækkanir m.a. vegna vinnulaunahækkana og fleiri þátta. Málið er það líka að í þess- um löndum er verulegur sam- dráttur í byggingarstarfsemi þannig að verksmiðjur á Norður- löndunum eru mjög illa settar með að selja sína framleiðslu. Þeir berjast því mjög hart fyrir því að fá meiri sölu og þá einnig hérlendis". „Okkar eilífðarverðbólga gerir það líka að verkum að það þarf alltaf að útvega meira og meira fjármagn, þótt verið sé að fjár- magna sama lagerinn, sama magn. Þessi fjármagnsaukning, um 40% á ári er ákaflega erfið. Þegar það bætist svo við að samdráttur er á markaðnum hér heima eins og er í dag þá þyrfti lánafyrirgreiðsla að aukast“. Húsgagnafyrirtæki ísam- keppni. „Það er annað sem mætti nefna. Innflutningur á innrétting- um er sennilega innan við 15% sem út af fyrir sig er ekki mikið, og hægt að samþykkja. Það eykur úrvalið og skapar samkeppni, og auðvitað á viðskiptavinurinn kröfu til þess að fá sem besta vöru fyrir sem minnsta peninga. Hins- vegar hefur hlutdeild innflutnings í húsgagnaiðnaðinum orðið gífur- lega mikill, og húsgagnafyrirtæk- in hafa farið meira út á þá braut að framleiða innréttingar. Það er því ekkert síður samkeppni frá hús- gagnafyrirtækjum sem kemur við þá sem hafa starfað við þetta. Þau hafa farið inn á okkar verksvið og í mörgum tilfellum fara þau lágt í verði einungis til þess að halda sér gangandi, hversu lengi sem þeim tekst það“. - Hafið þið verið samkeppnis- færir varðandi verð gagnvart innflutningnum? „Já, við höfum verið það. Þá H þarf að vísu að meta saman gæðin og verðið. Verðlagningin er svo dreifð frá því sem er ódýrast og til | þess sem er dýrast. Með sann- gjörnum samanburði erum við vel samkeppnisfærir". - Hagi hf. mun vera stærsti aðilinn í innréttingaframleiðslu hérlendis, með um 17% fram- leiðslunnar. Við spurðum Hauk hvernig útlitið væri og hann hafði svarið á reiðum höndum: „Það er | ekkert útlit, þetta er eitt stórt spurningarmerki allt saman“. élagslegt átak í húsnæðismálum Næsta kynieg umræða um húsnæð- ismál hefur faríð fram í dagblöðum undanfarnar vikur. Mogginn hefur gert sér far um að kenna ráðs- mcnnsku Alþýðubandalagsins, um óbærílegt húsnæðisleysi í höfuð- stað lýðveldisins. Viðtal við Sigur- jón Pétursson, forseta borgar- stjómar í Reykjavík, verður svo til þess, að sama blað telur umræðuna um húsnæðismál, beinlínis á háska- legu stigi. Nú ætli alla ballarnir sér ekkert minna cn að ráðskast með fjölskyldur, scm búa í allt of stóm húsnæði, gott ef ekki skipulcggja flutning húsnæðisleysingja inn á gafl, hjá einstaklingum í sex herbergja íbúðum. Síst af öllu er ástæða til að hafa húsnæðisvanda fólks í flimtingum, en þegar Morgunblaðið hefur upp raust sína í heilagrí vandlætingu, yfir ósæmilegu ástandi í húsnæðis- málum, þá hljómar það eins og dýrt kveðin öfugmælavísa. Verka- lýðshreyfingin hefur margsinnis, undanfarín hálfan annan áratug, samið við ríkisstjórnir um félags- legar íbúðabyggingar. Sjálfstæðis- flokkurínn hcfur all oft átt aðild að þeim ríkisstjómum, en það verður að segjast eins og er, að saga samninga um húsnæðismál er því miður þymum stráð saga svikinna loforða, ekki síst vegna takmark- aðs áhuga þeirra sem ráða mál- flutningi Morgunblaðsins. Fyrir löngu er viðurkcnnt að stór hópur fólks, hefur alls ckki átt ncina mögulcika á að cignast íbúð- ir, með þeim kjömm sem boðist hafa á almcnnum markaði. Þessi hópur hefur æ*ði oft mátt sæta margvíslegum afarkjörum á ieigu- markaðnum. Þó að ástandið kunni að hafa verið eitthvað skaplegra hér á Akureyri, þá vita allir sem vilja vita, að fjölmargir íbúar bæj- arins, hafa búið og búa enn, við fullkomiega ósæmilcga húsnæð- isaðstöðu. í annan stað er mikil- vægt, að gefa ungu fólki, sem er að hcfja búskap, kost á að slcppa við þann kross, sem felst í því að þurfa að greiða því nær ævilangan hús- næðiskostnað sinn, á tiu árum, eins og flcstir hafa mátt þola undan- farnaáratugi. Með því átaki sem nú er verið að gera um land allt, á grundvclli nýrra laga um félagslegar íbúða- byggingar, er því verið að ráða bót á vanda þeirra, sem vcrst hafa ver- ið settir í húsnæðismálum, annars vegar með byggingu og sölu verka- mannabústaða og hins vegar með því að reisa leiguíbúðir á vegum sveitarfélaganna. Jafnframt hcfur, mcð hækkun tekjumarka, rétthöfum til kaupa á íbúðum í verkamannabústöðum fjölgað stórlega. Þá eru viðhorfin til slíkra íbúða einnig að breytast. Restir kannast við þá kenningu að ibúð í verkamannabústöðum sé nauðung sem ekki sé ástæða til að ætla öðrum en þeim sem með ein- hverjum hætti eru utan veltu í lífs- kjarabaráttunni. Fjarstæður af þvf tagi heyra nú vonandi fortíðinni til, cinfaldlcga vegna þess, að fleiri og fleiri gera sér grein fyrir, að félags- lcgt átak í húsnæðismálum, cr beinlínis skynsamleg leið til að tryggja fólki viðunandi íbúðar- húsnæði, án þess að það þurfi að fela í sér fjárhagslcgar drápsklifjar. Á Akureyri er nú verið að byggja fjönitíu íbúðir í verka- mannabústöðum og nítján íbúðir samkvæmt eldri lögum um ieigu og söluíbúðir sveitarfélaga. Þessar framkvæmdir bæta úr brýnni þörf, en mér segir svo hugur um að cftirspurnin eftir íbúðunum verði miklu meiri, en hægt verður að sinna í bili. íbúðimar verða til- búnar til notkunar á næsta ári og er enginn vafi á að þá verða cinnig að vera í byggingu nokkrir tugir íbúða scm gcta orðið til ráðstöfunar á árinu 1983. Samkvæmt lögunum um félags- legar íbúðabyggingar er gert ráð fyrír að um þriöjungur alls íbúðar- húsnæðis í landinu verði byggt sem félagslcgar íbúðir, vcrkamannabú- staðir eða leiguíbúðir sveitarfélag- anna. Því fer með öðrum orðum víðs fjarri að markmiðið með nú- vcrandi stefnu í húsnæðismálum sé að koma öllum íbúðarbyggingum undir félagslcga stjóm, eins og andstæðingar þess fyrirkomulags vilja gjarnan vera láta. Hins vegar cr Ijóst, að nú um sinn er lögð höf- uð áhersla á þann þátt, ekki síst vegna þess að á því sviði er þörfin afarbrýn. Það er í sjálfu sér skiljanlcgt að sá mismunur í lánakjörum frá Uúsnæöisstofnun ríkisins, sem fram kemur í því, að kaupcndur í verkamannabústöðum ciga kost á 90% láni til 42 ára, cn aðrir hús- byggjendur ekki ncma brot af því, sé að mati margra óeðlilcga mikill. Þetta verður þó að skoða í ljósi þess, að hinn almenni lántakandi getur fengið lán þó að hann eigi íbúð fyrir, og einnig óháð tckjum sínum, gagnstætt þeim sem tekur lán til kaupa í verkamannabústað. Núgildandi stcfna er ckki cndan- leg lausn á húsnæðismálum lands- manna. I framtíðinni þarf fólk að eiga völ fjölbreyttra kosta í hús- næðismálum, ekki bara þcirra sem nú eru þekktir hér á landi. í því sambandi koma ýmis form eigna- réttar og leiguréttar til álita. Þegar slíkir fjölbreyttir kostir standa öll- um til boða cr hugsanlegt að tala um að endanlegu markmiði hafi verið náð. Ilrlgi GaSmBdssoa. Þorleifur Ananíasson Kristján Arngrímsson KA slökkti vonir Breiðabliks Vonir Breiðabliksmanna um fslandsmeistaratign urðu að engu í blíðunni á Akureyrar- velli í gærkvöldi. 870 áhorf- endur sáu leikmenn KA yfir- spila gestina og sigra með þrem mörkum gegn engu eftir markalausan fyrri hálfleik. Þetta var síðasti heimaleikur KA á leiktímabilinu og sýndu þeir allar sínar bestu hliðar í leiknum og sigur þeirra var síst of stór. Þrátt fyrir nokkra yfirburði í fyrri hálfleiknum tókst leik- mönnum KA ekki að skora mark. Ekki munaði þó miklu þegar varnarmaður Breiða- bliks sendi knöttinn í eigin þverslá eftir skot frá Elmari. Heimamenn náðu góðum tök- um á miðjunni og gáfu hinum léttleikandi Breiðabliksmönn- um engan frið, og tókst þeim aldrei að ógna marki KA í fyrri hálfleik. KA-menn tóku strax upp þráðinn að nýju eftir leikhlé og sóttu stíft. Á 10. mín. á Donni hörkuskot frá vítateig sem markvörður Breiðabliks ver naumlega í horn. Elmar fram- kvæmir hornspyrnuna, varn- armenn Blikanna skalla út í teginn þar sem Gunnar Gísla- son tekur við boltanum og sendir hann með lumsku skoti í gegn um vörn Breiðabliks og í mark. Annað markið kom á 23. mín. og enn er það Elmar sem tekur hornspyrnu, mark- vörður Breiðabliks missir bolt- ann frá sér, aðþrengdur af Erlingi, og nú er það Ásbjörn Björnsson sem er fyrstur í boltann og nær að pota honum í netið. Á 29. mín. skorar Ásbjörn sitt annað mark og þriðja mark KA, þegar hann komst einn í gegn um vörn Breiðabliks eftir mjög góðan undirbúning Hinriks, sem þarna lék laglega á sína gömlu félaga. Það sem eftir var leiksins voru yfirburðir KA algerir og voru þeir nær því að bæta við mörkum, en Breiða- blik að skora. Hinrik komst í dauðafæri, auk þess sem Ás- björn og Gunnar Blöndal fengu góð marktækifæri, en fleiri urðu mörkin þó ekki. Lið Breiðabliks sýndi oft létta og fallega knattspyrnu út á vellinum, en allan brodd vantaði í sóknarleik þeirra og komust þeir lítt áleiðis gegn sterkri vörn KA í leiknum, þar sem Erlingur var eins og klettur fyrir og Aðalsteinn hirti allt sem á markið kom af öryggi. Mestu munaði þó um að miðvallarleikmenn KA, Ásbjörn, Gunnar Gíslason og Donni áttu allir mjög góðan leik og réðu öllu um gang mála á miðjunni. Þeir nutu einnig góðrar aðstoðar Gunnars Blöndal sem barðist eins og ljón allan tímann og átti mjög góðan leik, en liðið sem heild var gott og hvergi veikur hlekkur. Eyjólfur Ágústsson varð að yfirgefa völlinn í fyrri hálfleik vegna meiðsla og kom Steinþór Þórarinsson inn í hans stað. Dómari var Þóroddur Hjaltalín og slapp hann þokkalega frá leiknum. Þórsarar sendu FH niður í 2. deild Þórsarar gerðu góða ferð til Hafnarfjarðar í gærkvöldi. Þeir léku þar gegn FH og sigruðu með þrem mörkum gegn engu, en í leikhléi hafði ekkert mark verið skorað. Þessi úrslit þýða fall FH í II- deild og miklar líkur eru nú til þess að það verði KR sem fylgi þeim niður. Þór hefur nú tveim stigum meira en KR, en á aðeins eftir að leika einn leik, gegn Val hér heima. KR-ingar eiga hins vegar eftir tvo leiki. Það virðist einnig Ijóst að Þór þurfti að hafa stig yfir KR til að sleppa við fall, því eins og staðan er í dag, er markatala KR hagstæðari en hjá Þór og munar þar fimm mörkum, en ef liðin verða jöfn að stigum ræður markatala úrslitum. Við náðum tali af Guð- mundi Sigurbjörnssyni farar- stjóra Þórsara við komuna til Akureyrar í gærkvöldi og spurðum hann um gang leiks- ins. Guðmundur sagði að FH- ingar hefðu byrjað leikinn með miklum látum og haldið uppi stanslausri sókn fyrstu 20. mín. leiksins og hefði þá oft skollið hurð nærri hælum við mark Þórs. Aðeins glæsileg markvarsla Eiríks markvarðar og klaufaskapur FH-inga kom í veg fyrir að skoruð væru mörk. Eftir þessa stórsókn jafnaðist leikurinn og þegar flautað var til leikhlés var staðan enn 0-0. Síðari hálfleik- inn byrjuðu Þórsarar af mikl- um krafti og eftir 15. mín. leik náði Nói Björnsson forystunni fyrir Þór með góðu skalla- marki. „Við vorum nú búnir að ná tökum á leiknum, og ég held að FH-ingarnir hafi sprengt sig í fyrri hálfleikn- um“, sagði Guðmundur. „Guðjón Guðmundsson bætti öðru marki við fimm mín. síðar og gerði síðan út um leikinn þegar eftir voru 10 mín til leiksloka skoraði hann þriðja mark Þórs.“ Þórsarar voru að vonum mjög ánægðir með þennan mikilvæga sigur, sem var fylli- lega sanngjarn og setur mikla pressu á leikmenn KR. Guð- mundur sagði að allir leik- menn liðsins hefðu barist mjög vel en þó gat hann Sigur- björns Viðarssonar sem hefði ásamt Eiríki markverði átt stórleik. Vel gert Þórsarar. 4 - DAGUR - 3. september 1981 s' Vi.v' ^mmmmmmmmmmm^mmmmmmf 3. september1981 -DAGUR-5

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.