Dagur - 07.06.1985, Qupperneq 12
12 — DAGUR - 7. júní 1985
,Ég þarftvöfcdda vinnu
Éaðná enditm saman“
Vilborg Guðmunds-
dóttir vinnur hjá
súkkulaðiverksmiðj-
unni Lindu á Akur-
eyri, hennar verka-
lýðsfélag er Iðja, félag
verksmiðjufólks. Vil-
borg hefur unnið hjá
Lindu í fjögur ár,en
hafði unnið í Krist-
jánsbakaríi í sex ár.
Hún hefur því unnið
úti í tíu ár, en var
áður heimavinnandi
húsmóðir. Þegar Vil-
borg hófstörfí Lindu
fékk hún vinnu sína í
bakaríinu metna til
starfsaldurs þannig að
hún hóf ekki störf á
byrjunarlaunum. Nú
hefur Vilborg náð
hœsta taxta sem náð
verður hjá Iðju, utan
þess að til kemur leng-
ing á orlofi eftir tíu og
fimmtán ára starf.
Mánaðarlaun Vil-
borgar eftir tíu ára
starf eru 14.950
krónur.
Vinnutíminn er frá klukkan
sjö á morgnana og til rúmlega
þrjú á daginn. Matarhlé er hálf-
tími og fimmtán mínútur í
morgunkaffi. Pásur eru í fimm
til tíu mínútur klukkan ellefu og
tvö.
„Ég vinn uppi á loftinu og er
mest við að baka ískex og
pakka ýmsu sælgæti frá verk-
smiðjunni. Petta geta verið
margvísteg störf en byggjast
mikið til á færibandavinnu. Sh'k
vinna er andlega slítandi. Að
standa lengi við færiband er
bæði erfitt og þreytandi og til að
byrja með varð ég sjóveik af
því, ef svo má segja. Ef við
erum settar á færibandið klukk-
an sjö á morgnana þá komumst
við ekkert frá til klukkan níu,
nema fá einhverja aðra til að
leysa okkur af. Mér finnst þetta
allt of langur tími í einu að
standa við færiband."
- Ég veit ég þarf ekki að
spyrja, Vilborg, en geri það
samt, hvernig gengur að lifa af
þessum launum?
„Mér finnst það ekkert líkt
hversu miklu erfiðara mér þykir
að lifa af þessum launum núna,
heldur en fyrir tíu árum, en þá
vann ég sams konar vinnu. Við
erum þrjú í heimili, en vorum
fjögur til fimm eftir ástæðum
það er mikið erfiðara að kaupa
alla hluti í dag. Ég er fyrirvinna
heimilis og það er ekki mögu-
leiki á að sjá því farborða með
þessari vinnu einni, svo að ég
skúra einnig í Menntaskólan-
um. Þar skúra ég um þrjú hundr- ■
uð fermetra og launin eru tæp-
ar tíu þúsund krónur."
- Vinnudagurinn er þá
langur?
„Já, hann er það. Ég er að
heiman frá því fyrir sjö á
morgnana og kem heim klukk-
an fimm til sjö á kvöldin.“
- Helstu kostir vinnu þinnar,
Vilborg?
„Það er náttúrlega gott að
hafa fasta vinnu, maður hefur
þó þetta. Ég er ekki í þessari
vinnu vegna þess að mér þyki
hún svo skemmtileg. Það er nú
einu sinni þannig að á þessum
aldri hieypur maður ekki í
hvaða störf sem er. Ég hef alla
tíð verið húsmóðir og aldrei
lært neitt. Helstu kostirnir eru
kannski þeir að hér er alltaf vel
tekið í það ef við þurfum að
skreppa frá. Hér er góður andi
og okkur er gerður dagamunur,
til dæmis á bolludaginn og fyrir
jólin.
Mér finnst fólkið ekki nógu
ákveðið í að fá leiðréttingu á
sínum launum. Flestar konurn-
ar hér eru giftar og eru ekki
aðalfyrirvinnur heimilanna. Það
er allt annað að þurfa að útvega
allar tekjur heimilisins einn og
það á þessum launum. Það er
ævintýri líkast að geta ekki
framfleytt þriggja manna fjöl-
skyldu með þessum tekjum.“
- Hvað um launamismun
milli karla og kvenna?
„Ég veit ekki hvað karl-
mennirnir hér hafa í laun, en
það vita allir um þann launamis-
mun sem viðgengst á milli karla
og kvenna.
Fyrirtækið á að leggja okkur til
sloppa, en það gerir það ekki,
við fáum einungis svuntu. Karl-
mennirnir fá hins vegar öll sín
hlífðarföt, auk þess sem þrifið
er af þeim, en við þurfum sjálf-
ar að þrífa okkar föt. Kristín
Hjálmarsdóttir formaður Iðju
er búin að koma hingað og tala
um þetta, en það hefur ekkert
gerst.“
- Hefur þú tekið þátt í starf-
semi verkalýðsfélags þíns?
„Nei, það hef ég aldrei gert,
aldrei reynt það.“
- Hefurðu trú á að það geti
gert eitthvað til að bæta ykkar
kjör?
„Já, ég hef trú á mínu verka-
lýðsfélagi, ég hef alltaf fengið
greið svör þegar ég hef leitað til
þess. En verkalýðsforystan
mætti standa sig mikið betur við
að fá laun lægst launaða fólksins
hækkuð."
- Ef við víkjum þá að lokum
að skúringunum í MA?
„Það er ágætt starf, það er
borgað eftir uppmælingu og er
vel borgað. Við ráðum okkur
mikið til sjálfar og mér finnst
það stundum léttir að fara í
skúringarnar þó þær séu erfið-
ar, mér finnst stundum í þeim
ákveðin hvíld.
Það er hins vegar mjög leitt að
atvinnuleysissjóður er misnot-
aður að mínu mati, hvað okk-
ur skúringakonurnar varðar.
Mér finnst að ekki eigi að við-
gangast að skúringakonur taki
úr atvinnuleysissjóði yfir sumar-
mánuðina, því að þær konur
sem vinna aðra vinnu fá ekki úr
þessum sjóði, þó svo þær borgi
í hann til jafns við hinar.“
Bera urðum skin og skúr,
skilningsþurrð og trega.
Pó hefur snurðum okkar úr
undist furðulega.
Ólafur Briem timburmeistari á
Grund í Eyjafirði var skáld gott
eins og sumir afkomendur hans.
Ekki veit ég hvort hann hefur átt
eftir að byggja fleiri kirkjur, þegar
hann orti þessa vísu:
Hefi ég af hendi leyst
hitt og annað smíði.
Guðs hef ég átta glugghross reist.
Góðir prestar ríði.
Silkispjara sólin rara
sín með ber augu.
Hún ætti bara að fara að fara
að fá sér gleraugu.
Enn skýtur upp vísu sem ég heyrði
strákur og mun hún komin til ára
sinna og ekki er hún neinn engla-
söngur.
Nauðaljóta nefið dró
niftin byrði Grana.
Ógift stðan út af dó,
enginn vildi hana.
Sigfús Steindórsson, Sauðárkróki
kvað svo fyrr á árum um bændurna
og kreppuna:
Bændur í bankana fara,
biðja um lán til að hjara.
Á þá stjórarnir stara
stingandi augum og svara:
Flaskan mín er gæðagull,
glatt mig hefur oft í sinni.
Við skulum bæði vakna full
vina mín, í eilífðinni.
Brynjólfur Sigtryggsson kvað er
hann frétti af afrekum nýrra vís-
inda:
Þið eigið að spara og spara,
spenna ólina bara
og þræla það sem þið getið
þó það sé einskis metið.
Nú er flestu búin bót,
bráðum engir deyja.
Vesöl kerling voða Ijót
verður yngismeyja.
Þá kemur vísa sem eignuð var
Helga Stefánssyni á Kljáströnd.
Lýsir hún augnaráði konu nokkurr-
ar. Lærði ég vísuna í æsku.
Úteyg, túteyg er að sjá,
oteyg, voteyg líka.
Flenneyg, glenneyg faldagná,
flaseyg, glaseyg píka.
Til að bæta lítillega fyrir ofanritað
orðbragð, birti ég nýorta vísu:
Þegar gengur manni mót
margt sem framgang tefur
hýrlegt bros frá blíðrí snót
byr í seglin gefur.
Þá koma tvær brennivínsvísur.
Óvíst er um höfunda þeirra, eins og
svo margra vísna sem lengi hafa
verið á flakki.
Fulla af táli faðma ég þig
flaskan hála og svarta.
Þú sem bálið brennir mig,
bæði sál og hjarta.
Jón Þorfinnsson kvað þessa vísu,
sýnilega þá unaðsstund var að
ljúka.
Nótt að beði sfgur senn,
sofnar gleði á vörum.
Máski við kveðum eina enn
áður en héðan förum.