Dagur - 09.09.1985, Qupperneq 7
6 - DAGUR - 9. september 1985
9. september 1985 - DAGUR - 7
Einherji
vann
Selfoss
„Þetta var mjög sannfærandi sigur,“
sagði Ólafur Ármannsson um leik Ein-
herja og Selfoss sem fram fór á Vopna-
firði í gær. Einherji sigraði með tveimur
mörkum gegn einu. Það voru þeir Krist-
ján Davíðsson og Steindór Sveinsson
sem skoruðu mörk Einherja.
Þetta er fyrri leikur af tveimur um
fyrsta sæti í 3. deild. Síðari leikurinn fer
fram nk. laugardag á Selfossi.
„Þetta var aldrei spurning í dag því
við áttum slatta af dauðafærum og vorum
miklu betri í þessum leik,“ sagði Ólafur
og gat þess að þeir ætluðu sér jafnframt
að vinna síðari leikinn.
IR vann
örugglega
Úrslitaleikurinn í 4. deild fór fram á Ak-
ureyrarvelli sl. laugardag. Þar áttust við
Reynir Árskógsströnd og ÍR úr Reykja-
vík. ÍR sigraði í leiknum með 3 mörkum
gegn 1. Það eru því ÍR-ingar sem eru sig-
urvegarar í 4. deild. En bæði þessi félög
hafa unnið sér rétt til að leika í 3. deild á
næsta ári.
„Auðvitað
er maður
svekktur"
„Auðvitað er maður svekktur eftir svona
leik,“ sagði Nói Björnsson fyrirliði Þórs
eftir Ieikinn gegn Þrótti. „Okkur vantaði
meiri baráttu og leikgleðin var ekki til
staðar. Boltinn gekk ekki nógu vel og
völlurinn var hreinasta hörmung."
„Völlurinn var ömurlegur og bauð ekki
upp á annað en miðjuþóf og tæklingar,“
sagði Jóhannes Atlason þjálfari Þórs eftir
leikinn. „Ég kenni vellinum þó ekki alfar-
ið um, leikurinn var lélegur og það virðist
vera allt annar taktur í liðinu á útivelli en
heimavelli. Nú er bara að biðla til gömlu
félaganna í Fram. Ef þeir vinna Skaga-
menn á laugardag og yrðu í 2. sæti, við
ynnum FH þá yrðum við í 3. sæti í deild-
inni og það þýðir sæti í Evrópukeppni.“
AE/Reykjavík
TITILLINN
TIL AKUREYRAR!
Það var auðséð frá fyrstu mín-
útu í leik Þróttar og Þórs á
laugardaginn að bæði liðin ætl-
uðu að selja sig dýrt, baráttan
var í fyrirrúmi.
Þróttarar voru fyrri til að átta
sig og áttu strax í upphafi leiksins
góða sókn. Atli Helgason komst
í dauðafæri við mark Þórs en
skaut framhjá. Þar fór besta
marktækifæri leiksins forgörðum.
Síðan gerðist ekkert eftir-
minnilegt það sem eftir lifði fyrri
hálfleiks. Þórsarar náðu sér hins
vegar strax á strik í upphafi síðari
Möguleiki
á UEFA sæti
Spennan varðandi það hvaða
lið hlýtur íslandsmeistaratitil-
inn í knattspyrnu er nú í al-
gleymingi og úrslitin ráðast
ekki fyrr en um næstu helgi er
lokaumferð mótsins fer fram.
Valsmenn standa óneitanlega
best að vígi, þeir hafa eitt stig í
forskot á Fram og eiga að leika á
heimavelli gegn KR á fimmtu-
dag. Vinni Valur þann leik er tit-
illinn þeirra.
Önnur lið sem eiga möguleika
á titlinum eru Fram og Akranes,
en þessi lið mætast einmitt í
Laugardal á laugardaginn og þar
verður án efa hart barist.
að
Þórsarar gætu náð Val
stigum með sigri gegn FH um
næstu helgi. Ef það gerist og Val-
ur tapar gegn KR og Fram og
Akranes gera jafntefli þá verða
Valur, Þór og Fram öll með 35
stig, en markatafla Vals og Fram
er svo miklu hagstæðari en Þórs
að liðið yrði að vinna sigur með
allt að 10 mörkum til að hljóta
titilinn.
En Þórsarar eiga þokkalegan
möguleika á að komast í Evrópu-
keppni á næsta ári. Til að það
gerist verður eitthvert annað lið
að sigra í mótinu en Fram sem
þá færi í Evrópukeppni bikarhafa
og 3. sætið í mótinu gæfi þá Þór
UEFA-sæti. Til að þetta gerist
þarf Valur að vinna KR, Fram að
vinná Akranes eða sá leikur verði
jafntefli, og Þór að sjálfsögðu að
vinna FH á laugardag. Ekki svo
mjög ótrúlegt að Þór gæti náð
þessu sem yrði þá veruleg sárabót
eftir að hafa misst af titlinum
sjálfum.
hálfleiks og á 3. mínútu þurfti
Loftur Ólafsson að bjarga á
marklínu Þróttar eftir að Kristján
Kristjánsson hafði vippað boltan-
um skemmtilega yfir Guðmund
Erlingsson markvörð Þróttar.
Skömmu síðar áttu Þórsarar
góða sókn sem endaði með því
að Kristján skaut yfir markið eft-
ir góðan undirbúning Halldórs
Áskelssonar og Siguróla Krist-
jánssonar. Eftir þetta gerðist lít-
ið þar til á síðustu mínútu er Júl-
íus Tryggvason var á ferðinni
með hjólhestaspyrnu eftir auka-
spyrnu Jónasar. Þar með lauk
þessum mikilvæga leik.
Ekki er hægt að segja að falleg
knattspyrna hafi verið á boðstól-
um á laugardag. Baráttan og
skapvonskan tóku völdin á kostn-
að leikgleðinnar. Völlurinn sem
Yfirburðir
Völsunga
Furöufuglar
á Jaðarsvelli
Fjórir furðufuglar eru væntan-
legir til Akureyrar hinn 19.
september. Eru það tveir
Bandaríkjamenn, Kínverji og
Tékki og eru þessir menn allir
atvinnumenn í golfi.
Þeir ætla sér að leika 18 holur
á Jaðarsvelli, því komið hefur í
ljós að sá völlur er nyrsti 18 holu
golfvöllur í heiminum. Síðan
liggur leið fjórmenninganna til
N.-Sjálands en þar í landi er
syðsti golfvöllur í heiminum. í
ferðinni ætla þeir einnig að leika
á vestasta og austasta golfvelli
heims, einnig þeim hæsta og
þeim lægsta.
Vafalaust er hér um góða kylf-
inga að ræða og er næsta víst að
þeir verða frægir menn fyrir þetta
tiltæki sitt. Með þeim í för verða
ljósmyndarar og blaðamenn frá
frægum golftímaritum svo ísland
og Jaðarsvöllur á Akureyri munu •
komast í merk íþróttablöð.
„Þetta var mjög skemmtilegur
leikur,“ sagði Sigurður Hall-
dórsson þjálfarí og leikmaður
Völsungs á Húsavík eftir góð-
an sigur gegn Njarðvíkingum í
Njarðvík. Völsungur skoraði 4
mörk en Njarðvík 1.
Leikurinn var fjörugur á að
horfa og oft var um góða knatt-
spyrnu að ræða, sérstaklega
voru það Völsungsmenn sem
voru í góðum ham.
Hins vegar voru það Njarðvík-
ingar sem skoruðu fyrsta markið,
gegn gangi leiksins. Það kom
vegna misskilnings í vörn
Völsungs. Þeir voru samt ekki
lengi að taka völdin að nýju og
skoruðu fjögur mörk áður en
leikurinn var úti. Það voru Jónas,
Ómar, Helgi og Kristján sem
skoruðu fyrir Völsung. Sigurður
sagði að á öllum sínum knatt-
spyrnuferli hafi hann ekki séð
jafn glæsilega uppbyggt mark og
annað mark Völsungs. Völsungar
áttu snilldarsamleik sem endaði
með góðu marki Ómars.
Það sem kom fram í þessum
leik var að Völsungar spiluðu
góða knattspyrnu, og vildi Sig-
urður þakka því að það væri ekki
um neina spennu að ræða, hvorki
á toppi né botni. Þess vegna gat
mannskapurinn snúið sér að því
sem honum þykir skemmtilegt,
að spila knattspyrnu. Völsungar
áttu leikinn eins og sagt er og var
sigurinn síst of stór. Tíu mörk
hefðu ekki verið fjarri lagi eftir
þeim færum sem gáfust. Kristján
Olgeirsson var rekinn af leikvelli
þegar 15 mín. voru til leiksloka
fyrir óþarft brot, og verður hann
því ekki með í síðasta leik Völs-
ungs sem er gegn Breiðabliki.
„Þann leik ætlum við að vinna,
því við ætlum okkur 27 stig út úr
mótinu,“ sagði Sigurður Hall-
dórsson.
Slæmt hjá KA
Tvö stór-
mót hjá GA
Kvennalið KA fékk hrikalega
meðferð hjá tveimur efstu lið-
unum í 1. deildinni í knatt-
spyrnu, Breiðabliki og Akra-
nesi.
KA-stelpurnar fóru suður um
helgina og léku þá tvo leiki. Var
sá fyrri gegn Breiðabliki og er
skemmst frá því að segja að
Blikastúlkumar unnu þar 13:0
sigur.
Daginn eftir fóru KA-stelpurn-
ar til Akraness og þar urðu úrslit-
in 10:0 fyrir heimamenn sem um
leið tryggðu sér íslandsmeistara-
titilinn en þessir ósigrar KA þýða
að liðið er endanlega fallið í 2.
deild.
Tvö stórmót verða hjá Golf-
klúbbi Akureyrar um næstu
helgi, hvort tveggja opin mót.
Annað þessa móta er „Minn-
ingarmót“ og er það fyrir karla
og unglinga en hins vegar er um
að ræða „Myndlistarmót“ og er
það ætlað konum.
Bæði þessi mót eru 36 holu
mót og verður leikið með og án
forgjafar. Minningarmótið kem-
ur nú í stað Ingimundarmótanna
sem haldin hafa verið undanfarin
ár, og eru til heiðurs látnum fé-
leikið var á (Valbjarnarvöllur -
Fögruvellir eða hvað þeir vilja
kalla hann þar syðra) er svo
smávaxinn (!) að nánast er úti-
lokað að spila þar knattspyrnu.
Það er óforsvaranlegt fyrir
íþróttaforustuna í Reykjavík að
bjóða upp á þennan völl á meðan
aðalleikvangurinn í „Dalnum“
skartar sínu fegursta og er betur
á sig kominn en nokkru sinni
fyrr.
Bestir í döpru liði Þórsara voru
Siguróli Kristjánsson og Halldór
Áskelsson sem börðust allan
tímann. Sveinn Sveinsson dæmdi
leikinn vel, og gaf hann 5 leik-
mönnum áminningu, Nóa
Björnssyni, Óskari Gunnarssyni,
Einari Árasyni hjá Þór og tveim-
ur Þrótturum í „Ópalbúningun-
um“. Nikulási og Arnari.
A.E./Reykjavík.
STAÐAN
Staðan í 1. deild íslandsmóts-
ins í knattspyrnu eftir leiki helg-
arinnar:
Akranes - Víkingur 1:0
FH-Fram 1:5
Þróttur - Þór 0:0
ÍBK-Valur 1:2
KR - Víðir 0:0
Valur
Fram
Akranes
Þór
KR
ÍBK
FH
Víðir
Þróttur
Víkingur
17 10 5
17 10 4
17 10 3
17 10 2
17 8 5
17
17
17
17
17
8 2
5 2
3 4
3 4
2 1
2 27:
3 35:
4 34:
5 27:
4 31:
7 28:
10 20:
10 17:
10 16:
14 14:
12 35
23 34
18 33
20 32
24 29
21 26
32 17
35 13
29 13
34 7
STAÐAN
Staðan í 2. deild íslandsmótsins í
knattspyrnu eftir leiki helgarinn-
ar:
KA - ÍBV
ÍBÍ - KS
Leiftur - Skallagrímur
Breiðablik - Fylkir
UMFN - Völsungur
ÍBV
Breiðablik
KA
KS
Völsungur
UMFS
ÍBÍ
UMFN
Fylkir
Leiftur
17 10 6
17 10 4
17 10 3
17 7 4
17
17
17
17
17
17
7 3
64
3 8
44
3 3
3 3
Tryggvi Gunnarsson hefur gert uppreisn gegn vöm Vestmanneyinga, en kemst lítið áleiðis.
Mikið fall KA
Mynd: - KGA.
en
enn er möguleiki
0:2
0:0
3:4
1:0
1:4
1 40:13 36
3 30:15 34
4 34:16 33
6 24:23 25
7 28:24 24
7 25:37 22
6 15:25 17
9 14:23 16
11 12:24 12
11 17:37 12
Það er nokkuð víst að leik-
menn KA og Breiðabliks
verða spenntir er þeir ganga til
leiks í lokaumferð 2. deildar-
innar um næstu helgi. Staða
efstu liða deildarinnar er þann-
ig að ÍBV er komið í 1. deild
svo til örugglega og KA eða
Breiðablik fylgja liðinu
þangað.
KA-menn fóru illa að ráði sínu
gegn ÍBV á Akureyri á föstu-
dagskvöldið. Liðið lék sinn slak-
asta leik á heimavelli í sumar og
Eyjamenn sem mættu til leiks
eins og grenjandi ljón voru betri
aðilinn og unnu 2:0 sigur.
Þar fóru ákaflega mikilvæg stig
forgörðum hjá KA og þegar liðið
mætir KS á Siglufirði á laugardag
verður mikil pressa á KA-
mönnum. Á sama tíma leika svo
Völsungur og Breiðablik á Húsa-
víkurvelli og staðan er þannig að
Breiðablik er með 34 stig en KA
33. Það getur því ýmislegt gerst í
lokaumferðinni.
Strax í upphafi leiks ÍBV og
KA var ljóst hvert stefndi. Eyja-
mennirnir öskrandi og æpandi á
fleygiferð á eftir hverjum bolta
og strax á 2. mínútu skall hurð
nærri hælum við mark KA, Hlyn-
ur Stefánsson með skot sem varn-
armanni tókst að komast fyrir og
boltinn fór í horn.
Eyjamenn vildu fá vítaspyrnu
á 17. mínútu er Þorvaldur og
Tómas Pálsson börðust um bolt-
ann í vítateig KA. Eyjamenn
fengu síðan hornspyrnur í röð á
30. mínútu en KA-mönnum tókst
alltaf að verjast, alveg fram á 6.
mínútu síðari hálfleiks. Þá var
Hlynur Stefánsson með boltann
lengst úti á velli. Hann skaut á
markið og inn fór boltinn eftir að
hafa hoppað á grasinu fyrir fram-
an Þorvald markvörð.
Þetta mark kom að sjálfsögðu
eins og köld vatnsgusa framan í
áhorfendur og ekki var gusan
minni á 81. mín. þegar ÍBV skor-
aði annað mark sitt og gerði út
um leikinn. Ómar Jóhannsson
komst þá einn inn fyrir vörn KA
og skoraði af öryggi.
KA-liðið var ákaflega slakt að
þessu sinni, baráttu vantaði og
þá fer ekki vel. Varla er hægt að
tala um að neinn leikmaður liðs-
ins hafi átt góðan leik að þessu
sinni.
Fall KA var mikið, en liðið á
þó enn möguleika á að komast í
1. deild. Tækifærið til þess gefst
á Siglufirði en víst er að Siglfirð-
ingar taka ekki með neinum
vettlingatökum á móti KA-
mönnum. Þeir lýstu ánægju sinni
með það strax í vor að fá KA-
menn í heimsókn í lokaumferð
mótsins og það er alveg öruggt að
á Siglufirði verður ekkert gefið.
lögum klúbbsins. í myndlistar-
mót kvennanna gefa hins vegar
listamenn verðlaun.
Keppnin hefst kl. 10 á laugar-
dag og síðan kl. 9 á sunnudags-
morgun. Reiknað er með mikilli
þátttöku og menn því beðnir um
að skrá sig tímanlega.
Mótum sumarsins fer nú að
fækka enda haustið að skella á
hvað úr hverju og má segja að
þessi mót um næstu helgi séu síð-
ustu „stóru“ mótin hjá GA á
þessu ári.
Maikaregn í Olafsfirði
Skallagrímur sigraði Leiftur
með fjórum mörkum gegn
þremur í Ólafsfirði á laugar-
dag. Með þessum ósigri er
Leiftur endanlega fallinn í 3.
deild eftir eins árs veru I ann-
arrí.
Leiftursmenn byrjuðu leikinn
vel á laugardag og náðu að skapa
sér nokkur færi fyrsta hálftím-
ann, m.a. áttu þeir gott skot í
stöng. Þegar rúmur hálftími var
liðinn af fyrri hálfleik urðu alger
þáttaskil og Borgnesingar tóku
leikinn í sína umsjá. Þeir fóru
hamförum næstu 10 mínútur og
skoruðu á þeim tíma hvorki
meira né minna en þrjú mörk.
Staðan í hálfleik 0-3 og útlitið
heldur dökkt. Ólafsfirðingar
hófu síðari hálfleikinn af miklum
krafti og sóttu stíft að Skalla-
grímsmarkinu. Það var þó ekki
fyrr en á 30. mínútu að sóknin
bar árangur. Þá skoraði Haf-
steinn Jakobsson gott mark fyrir
Leiftur og stuttu seinna bætti
Jóhann Örlygsson öðru marki
við. En Borgnesingar voru
snöggir að svara fyrir sig og stað-
an orðin 2-4. Þegar tvær mínútur
voru til leiksloka minnkaði Helgi
Akureyringur Jóhannsson mun-
inn með glæsilegu marki og það
sem eftir lifði leiktímans sótti
Leiftur stíft en allt kom fyrir
ekki.
Þetta var leikur tveggja bar-
áttuliða og það var fyrst og
fremst hinn slæmi 10 mín. kafli
í fyrri hálfleik sem gerði út um
vonir Leifturs að þessu sinni.
Með þessum ósigri er Leiftur fall-
inn í 3. deild eins og áður sagði og
Fylkir kemur til með að fylgja
þeim niður. Þessi tvö félög komu
upp úr 3. deild í fyrra og má því
segja að þau hafi staldrað stutt
við.