Dagur - 15.10.1985, Page 5
15. október 1985 - DAGUR - 5
-orð í belg.
Það sakar ekki að hræra
ögn í svona málum
Mikið var ánægjulegt að lesa svar
Gísla Jónssonar við bréfi mínu í
Degi. Jæja, Gísli hefur sagt sitt
og ég mitt - eða svona hér um bil.
Ég vildi aðeins bæta við örfáum
orðum. Fyrst og fremst, Gísli
minn, eru gestirnir þínir okkur
aldrei til ama, allra síst erlendir
gestir sem vilja rabba um heima
og geima - þeir eru nefnilega
skemmtilegustu gestirnir. Eins og
ein af starfsstúlkunum þínum
getur sagt þér, hefur Hótel Varð-
borg lengi verið þekktur sam-
komustaður fyrir erlenda ferða-
menn sem vilja spjalla við okkur.
Flestum finnst gott að búa á
hótelinu okkar vegna þess að við
gefum okkur tíma til að sinna
fólki. ísland er sérstætt land og
spurningarnar eru margar sem
svara þarf.
Nei, það eru ekki gestirnir sem
við kvörtum yfir, það er farang-
urinn sem fylgir þeim. Lobbýið
okkar er ekki stórt og oft verður
þröngt í anddyrinu þegar hópar
eru að fara á morgnana. En
kannski iagast þetta þegar nýja
bíóið kemst undir þak og hótelið
fær rýmri gestamóttöku. Þá get-
um við auðveldlega hýst svo sem
eins og hálfa rútu í viðbót - og
brosað blítt! Þá verður líka hægt
að taka ennþá fleiri pakka sem
fólk kemur með að kvöldi til og
við höfum hlaupið með yfir á af-
greiðslu sérleyfisbíla morguninn
eftir - eða böggla sem koma með
rútunni og við höfum útbýtt eftir
lokun sérleyfisbíla. Öll þessi
þjónusta finnst mér í lagi, en þeg-
ar gestir kvarta aftur og aftur um
óþægindi fer maður að velta því
fyrir sér hvort ekki sé hægt að
breyta kerfinu einhvern veginn.
Það var ætlun mín að vekja at-
hygli á nokkru, sem fólk hefur
hingað til nöldrað um hvert í sínu
horni. Ef málin eru alltaf af-
greidd þannig, verða úrbæturnar
aðeins draumur eins og umferð-
armiðstöðin hans Gísla. En það
er gott að eiga drauma - með
góðum vilja er ef til vill hægt að
láta þá rætast síðar meir.
Eitt finnst mér Gísli hefði átt
að láta ósagt. Þar á ég við orð
hans um ónæði vegna umferðar í
grennd við Hótel Varðborg.
„Þetta er hvimleitt," segir Gísli,
„en þetta hefur lengi verið svona.
Þetta er vandamál sem er til stað-
ar í öllum stærri bæjum og
borgum." Kannski finnst Gísla
allt í lagi að 17-18 ára unglingar
fái að nota ökutæki sem leikföng,
en það finnst mér ekki. Hávaði
fylgir alltaf unglingum, eins og ég
man vel og fæ ekki heldur að
gleyma með tvo unglinga í fjöl-
skyldunni. En þegar hætta fylgir
þessum hávaða stendur mér ekki
á sama - um gestina okkar, gang-
andi vegfarendur eða þessa ungu
ökumenn. Eitt kvöld fyrir
skemmstu ók hvatvís bílstjóri á
miklum hraða yfir gangstéttina
beint framan við aðaldyr hótels-
ins og slapp reyndar naumlega
við grindverkið utan við Borgar-
bíó. Ef einhver hefði stigið út á
þessu augnabliki, hefði hann orð-
ið fyrir bílnum. Ekki veit ég hvað
öðrum finnst, en ég er á þeirri
skoðun að þetta sé ekki aðeins
þreytandi, heldur blátt áfram
hættulegt, eins og glöggt má sjá
af þessu dæmi sem ég nefndi.
Þegar Sinfóníuhljómsveit ís-
lands gisti hjá okkur, fékk Sig-
urður Björnsson lögregluna til að
loka götunni. Þetta voru 50 vinn-
andi menn sem voru að spila þrjá
daga í röð hér á Norðurlandi og
vissulega þurftu þeir svefnfrið.
En það er sama hvort um er að
ræða tónlistarmenn eða t.d.
starfsmenn Orkustofnunar. Það
er ansi hart að vinnandi fólk fái
ekki að sofa vegna þess að götur
bæjarins eru notaðar sem eins
konar leikvöllur. En kannski
verður það eins og svo oft áður.
Það þarf slys til að beina athygl-
inni að hlutunum, svo að eitthvað
sé gert.
Jæja, Gísli, líklega verður við
aldrei sammála um suma hluti,
en það sakar ekki að hræra ögn í
svona málum. Alltaf er gagnlegt
að fá fram fleiri sjónarmið.
Ég þakka svarið og samvinn-
una við nýjasta bæklinginn þinn.
Þar vorum við alla vega sammála.
Vonandi verður hann til þess að
laða marga ferðamenn til Akur-
eyrar á komandi sumri.
—lesendahorniá
Einhvers staðar þarf að setja
möridn á strætisvagnaferðir
Viljum ekki missa
af Rás 2
Vegna lesendabréfs í Degi um
ókeypis strætisvagnaakstur skóla-
fólks sagði Karl Jörundsson
skólafulltrúi, að það væru til lög
um hvernig akstri skólanema
skuli háttað. Ríkissjóður greiðir
hluta af aksturskostnaði nem-
enda. Reiknað er með að ef not-
aður er strætisvagn þá greiði
ríkissjóður 50% af kostnaði.
Miðað er við að fjarlægð frá
heimili til skóla skuli vera 1500
metrar.
„Það segir sig sjálft að einhvers
staðar verður að setja mörkin,
þannig að ef við færum að taka
nemendur austan Skógarlundar
sem ekki eiga rétt á þessu, þá er
spurning hvar á að stoppa. Endar
þá með að við keyrum alla nem-
endur í skólann," sagði Karl.
Bæjarfélagið hefur ekki tekið
að sér að taka meiri þátt í
aksturskostnaði nemenda og hef-
ur þá farið eftir grunnskólalögun-
um.
Sagði Karl að reynt væri í öll-
um tilfellum að ganga lengra til
móts við fólk þegar skipta þarf
upp götu.
Sagði Karl ennfremur að fólk
hefði sýnt þessu máli skilning.
Við höfum nokkrir starfsmenn
fyrirtækis á Húsavík verið að
ræða um svæðisútvarpið og vilj-
um koma skoðunum okkar um
það á framfæri. Okkur finnst
svæðisútvarpið lélegt, útsending-
artíminn of langur. Efnið er út-
þynnt og verður þess vegna
leiðinlegt.
Svæðisútvarpið var ágætt í vor
hálftími á morgnana og annar
síðdegis. Það væri alveg nóg að
það sendi út núna frá 18 til 18.30.
Margir hafa ekki lokið vinnu fyrr
en kl. 18, hafa ekki aðstöðu til að
hlusta á útvarp í vinnunni og taka
ætti tillit til þeirra. Við viljum
ekki rnissa af að geta hlustað á
Rás 2 milli kl. 17 og 18, því þar
eru skemmtilegir þættir á þeim
tfma.
Óánægðir hlustendur.
Húsvíkmgar -
Þingeyingar
Dagur hefur fastráðið starfsmann á Húsavík. Pað er Ingibjörg
Magnúsdóttir, sem auk blaðamannsstarfa mun sjá um dreif-
ingu og auglýsingamóttöku fyrir blaðið.
Við hvetjum lesendur blaðsins til að hafa samband við Ingi-
björgu varðandi ábendingar um fréttir og efnisval.
Einnig bendum við lesendum á, að Ingibjörg tekur á móti smá
auglýsingum og tilkynningum í dagbók, t.d. varðandi stór-
afmæli og dánarfregnir (mynd má fylgja) svo eitthvað sé
nefnt. Sú þjónusta er lesendum að kostnaðarlausu.
Ingibjörg hefur aðsetur í Garðarsbraut 5, II hæð, sími 41225.
Fastur skrifstofutími kl. 9-11, en er auk þess við á skrifstof-
unni á öðrum tímum.
Heima: Sólbrekka 5, sími 41529.
Akureyringar • Nærsveitir
Er húsið þitt
kalt?
Við einangrum og
lokum kuldann úti.
ROCKWOOL
Innblásin Rockwool einangrun erfjárfesting, sem
borgar sig upp á skömmum tíma. Hún er marg-
falt ódýrari aðferð.
Þú stórlækkar hitunarkostnað og færð hlýrra og
betra hús.
Þú eykur verðmæti fasteignarinnar.
Við einangrum fljótt og vel, þú þarft ekki að flytja
úr húsinu á meðan.
Við einangrum eitt hús á dag.
Þú færð steinull, sem er vatnsfráhrindandi og
mun eldþolnari en önnur einangrun.
Innblásin Rockwool steinull er besta hljóðein-
angrun sem þú færð í veggi, gólf og þök, því við
ráðum þéttleikanum.
Steinull blásið á loftplötur steinhúsa og í
timburhús.
Einföld og góð lausn.
Pantaðu skoðun í síma 91-22866.
Við veitum þjónustu um allt land.
HUSA
EINANGRUN
Klapparstig 27 Rvik s:91 22866