Dagur - 25.03.1986, Page 4
4 - DAGUR - 25. mars 1986
á Ijósvakanum.
IsjonvarpM
ÞRIÐJUDAGUR
25. marfi
19.00 Aftanstund.
Endursýndur þáttur frá 17.
mars.
19.25 Fjársjódsleitin.
Nýr flokkur - annar þáttur.
(The Story of the Treasure
Seekers).
Breskur myndaflokkur í
sex þáttum, gerður eftir
sígildri bama- og ungl-
ingabók eftir Edith Nesbit.
Sagan gerist fyrir aldamót-
in síðustu. Sex systkini
reyna með ýmsu móti að
afla peninga til að hjálpa
föður sínum sem er í fjár-
krögguin.
Þýðandi: Jóhanna
Jóhannsdóttir.
19.50 Fréttaágrip á tákn-
máli.
20.00 Fréttir og vedur.
20.30 Auglýsingar og dag-
skrá.
20.35 Sjónvarpid.
(Television).
11. Hláturinn lengir lífið.
Breskui heimildamynda-
flokkur í þrettán þáttum
um sögu sjónvarpsins,
áhrif þess og umsvif um
víða veröld og einstaka
efnisflokka.
í þættinum er rakin saga
gamanþátta og gaman-
myndaflokka í sjónvarpi,
allt frá Lucy Ball til Löðurs.
Þýðandi: Kristmann Eiðs-
son.
Þulur: Guðmundur Ingi
Kristjánsson.
21.30 í vargaklóm.
(Bird of Prey II).
Annar þáttur.
Breskur sakamálamynda-
flokkur í fjómm þáttum.
Aðalhlutverk: Richard
Griffiths.
Tölvufræðingurinn Henry
Jay á enn í vök að verjast
vegna baráttu sinnar við
alþjóðlegan glæpahring
sem hann fékk veður af í
tölvugögnum sínum.
Þýðandi: Bogi Arnar Finn-
bogason.
22.25 Kastljós.
Þáttur um erlend málefni.
Umsjónarmaður:
Ögmundur Jónasson.
23.00 Fréttir í dagskrárlok.
ÞRIÐJUDAGUR
25. mars
11.10 Úr söguskjódunni -
Barnið í augum mannúd-
arstefnunnar: Uppeldi
fyrr á öldum.
Umsjón: Sigrún Guð-
mundsdóttir. Lesari: Þor-
gils Jónasson.
11.40 Morguntónleikar.
Þjóðleg tónlist frá ýmsum
löndum.
12.00 Dagskrá • Tilkynning-
ar.
12.20 Fréttir.
12.45 Veðurfregnir • Til-
kynningar • Tónleikar.
13.30 í dagsins önn -
Heilsuvernd.
Umsjón: Jónína Bene-
diktsdóttir.
14.00 Miðdegissagan: „Á
ferð um ísrael vorið
1985“.
Bryndís Víglundsdóttir
segir frá (7).
14.30 Miðdegistónleikar.
15.15 Barid aö dyrum.
Inga Rósa Þórðardóttir sér
um þátt frá Austurlandi.
15.45 Tilkynningar • Tón-
leikar.
16.00 Fréttir • Dagskrá.
16.15 Veðurfregnir.
16.20 Hlustaðu með mér.
- Edvard Fredriksen. (Frá
Akureyri).
17.00 Barnaútvarpið.
Stjórnandi: Kristín Helga-
dóttir.
17.40 Úr atvinnulífinu -
Iðnaður.
Umsjón: Sverrir Alberts-
son og Vilborg Harðardótt-
ir.
18.00 Neytendamál.
Umsjón: Sturla Sigurjóns-
son.
18.15 Tónleikar • Tilkynn-
ingar.
18.45 Vedurfregnir
Dagskrá kvöldsins.
19.00 Fréttir.
19.40 Tilkynningar.
19.45 Daglegt mál.
Sigurður G. Tómasson flyt-
ur þáttinn.
19.50 Fjölmiðlarabb.
Þórður Ingvi Guðmunds-
son talar.
20.00 Vissirðu það? - Þáttur
í léttum dúr fyrir börn á
öllum aldri.
Stjórnandi: Guðbjörg Þór-
isdóttir.
Lesari: Ámi Blandon.
(Fyrst útvarpað 1980).
20.30 Að tafli.
Umsjón: Jón Þ. Þór.
20.55 íslensk tónlist.
21.30 Útvarpssagan: „í fjall-
skugganum" eftir Guð-
mund Daníelsson.
Höfundur les (13).
22.00 Fréttir Dagskrá
morgundagsins Orð
kvöldsins.
22.15 Veðurfregnir.
22.20 Ave María - Boðun
Maríu.
Dagskrá, tekin saman af
Nínu Björk Árnadóttur.
Lesari með henni: Gunnar
Eyjólfsson leikari.
(Áður flutt á boðunardegi
Maríu, 25. mars, fyrir fjór-
um ámm).
22.45 „Grunur", smásaga
eftir Matthías Magnús-
son.
Höfundur les.
23.00 Kvöldstund í dúr og
moll
með Knúti R. Magnússyni.
24.00 Fréttir • Dagskrárlok.
MIÐVIKUDAGUR
26. mars
7.00 Veðurfregnir • Fróttir ■
Bæn.
7.15 Morgunvaktin.
7.20 Morguntrimm.
7.30 Fréttir • Tilkynningar.
8.00 Fréttir • Tilkynningar.
8.15 Veðurfregnir.
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barn-
anna: „Beta, heimsmeist-
arinn" eftir Vigfús
Björnsson.
Ragnheiður Steindórsdótt-
ir lýkur lestrinum (8).
9.20 Morguntrimm • Til-
kynningar • Tónleikar,
þulur velur og kynnir.
9.45 Þingfréttir.
10.00 Fréttir.
10.05 Daglegt mál.
Endurtekinn þáttur frá
kvöldinu áður sem Sigurð-
ur G. Tómasson flytur.
10.10 Veðurfregnir.
10.25 Lesið úr forystugrein-
um dagblaðanna.
10.40 Hin gömlu kynni.
Valborg Bentsdóttir sér
um þáttinn.
frás 21
ÞRIÐJUDAGUR
25. mars
10.00 Kátir krakkar.
Dagskrá fyrir yngstu
hlustendurna í umsjá Guð-
laugar Mariu Bjarnadóttur
og Margrétar Ólafsdóttur.
10.30 Morgunþáttur.
Stjórnandi: Páll Þorsteins-
son.
12.00 Hlé.
14.00 Blöndun á staðnum.
Stjórnandi: Sigurður Þór
Salvarsson.
16.00 Sögur af sviðinu.
Þorsteinn G. Gunnarsson
17.00 Hringiðan.
Þáttur í umsjá Ingibjargar
Ingadóttur.
18.00 Dagskrárlok
3ja mín. fréttir kl. 11, 15, 16
og 17.
>'■:
i'7no.iQ*jn níwisútvarpið á
/æðisútvarp.
RI
KJSLTIVARPID
A AKlJRfcYRI
Að vinna í happdrætti
Hún þarf ekki að kvíða framtíðinni, hún Evelyn Marie
Adams. Þann 24. október í fyrra, rétt á meðan íslenskar kon-
ur héldu daginn hátíðlegan, var henni tilkynnt að hún hefði
unnið 3,9 milljónir dollara. Síðan gerist það 10 febrúar að hin
stálheppna 32 ára gamala Evelyn vinnur 1,5 milljón dollara.
„Guð minn góður, ég trúi þessu ekki,“ hrópaði ég í símann
þegar mér var tilkynnt um vinninginn. Hendur mínar skulfu
svo mikið að númerið á miðanum mínum dansaði fyrir augum
mér. Mig hlýtur að vera að dreyma.
Evelyn blikkaði augunum nokkrum sinnum, hvessti augun á
númerið: 12-15-25-31-33-42. „Ég vann, ég vann, ég vann
aftur!“ hrópaði hún og ekki að ástæðulausu að hún léti í sér
heyra. Henni hafði verið sagt að líkurnar á að hún ynni aftur
væru 17 triiljón á móti 1!
„Virkilega ánægjuleg tilfinning að þurfa ekki að berjast
áfram í lífinu eins og ég hef þurft að gera síðastliðin 10 ár.“
Evelyn skildi við mann sinn árið 1976 og flutti þá með dótt-
ur sína til mömmu og pabba. Peningalaus, atvinnulaus, í
stuttu máli allslaus. Fékk vinnu í búð og vann sig upp eins og
gengur í henni Ameríku og varð framkvæmdastjóri. En rukk-
ararnir voru alltaf á eftir henni.
„Þó ég væri peningalaus, spilaði ég alltaf í happdrætti. Ég
elska að spila í happdrætti.“
Kærastinn hennar Evelyn var staddur hjá henni er hún vann
í fyrsta skipti. „Þegar í ljós kom að ég hafði unnið, hoppaði ég
um allt húsið og hrópaði: Ég er rík!“ Evelyn keypti sér nýjan
bíl, annars gekk lífið sinn vanagang hjá henni og kærastanum
Ed. „Ég fékk 69 tilboð um giftingar, en ég elska Ed og við ætl-
um að gifta okkur í apríl. Fólk sem kemur í búðina til mín er
hissa á að sjá mig vinna. En ég ætla ekki að breyta mínu lífi þó
ég hafi unnið þessa peninga. Mér finnst gaman að vinna.“
I stuttu máli, í febrúar vann Evelyn aftur og varð jafn hissa
og í fyrra sinnið. Hún heldur áfram að lifa einföldu lífi, ætlar
í skóla og læra viðskiptafræði svo hún viti hvernig peningunum
best verði varið. Svo ætlar hún að byggja svokallað drauma
hús handa sér og kærastanum.
„Ég ætla ekki að spila í happdrættinu framar. Ég vil gefa
öðrum tækifæri á að vinna.“
# Af stuttum
Stínum og
fleira fólki
Að undanförnu hafa átt
sér stað afskaplega
„menningarlegar" um-
ræður um svonefndan
„Pan-sýníngarflokk“, sem
troðið hefur upp á öldur-
húsum og i einkasam-
kvæmum f Reykjavík.
Menn greinir á um hvað
flokkurinn sýnir; undir-
fatnað segir ein, klám
segir annar. Þessi flokkur
var settur á laggirnar til að
auglýsa ýmiss konar
varning, sem sagður er
vel til þess fallinn, að
hressa upp á ástarlífið.
Þar á meðal eru uppblásn-
ar dúkkur; Stutta-Stína og
Langi-Jón, eða hvað þær
nú heita, auk aflangra
víbratora með gi'rskipt-
ingu! Þetta er varningur
sem landinn kaupir helst
ekki í verslun hérlendis,
en er tilbúinn til að panta
sér eins og eina Stuttu-
Stfnu í póstkröfu. Hefur
þetta skapað mikið álag
hjá póstmönnum, enda
hefur þessi starfsemi
fengið einstaka auglýs-
ingu með allri þeirri
umræðu, sem sýningar-
flokkurinn hefur hrundið
af stað. Samkvæmt stað-
festum heimildum blaðs-
ins fer að meðaltali önnur
hver sending frá umrædd-
um „gleðibanka“ til póst-
hússins á Akureyri. Þang-
að koma menn síðan með
lambhúshettur til að leysa
út kröfur sínar!
Vegna mikilla viðskipta
vlð Akureyringa þótti
ófært annað en senda
sýningarflokkinn marg-
umtalaða til Akureyrar,
enda þurfti að kenna
bæjarbúum að nota allan
þann varning, sem þeir
höfðu keypt. Og menn
hópuðust f Sjallann til að
sjá herlegheitin. Um tfma
leit út fyrir að ekkert yrði
úr öllu saman, því veður-
guðinn tók lltið tillit til
þessara augljósu þarfa
bæjarbúa. Fyrir vikið urðu
miklar tafir á flugi. En öll
él styttir upp um sfðir og
Pan-flokkurinn komst í
Sjallann, þar sem hans
var beðið með mikílli eftir-
væntingu. Og þegar sýn-
ingin hófst var spenna í
loftinu, það mátti heyra
saumnál detta. En mikið
var spennufallið. Þessi
umtalaði flokkur að sunn-
an reyndist samanstanda
af misjafnlega drukknum
ungmennum, sem fram-
kvæmdu misjafnlega mik-
ið „dill“, sem heimamenn
hefðu svo sem getað séð
um sjálfir, enda er slíkt
„dill“ aldagamall siður
hér, Ifklega kominn frá
danskinum! í það minnsta
voru tveir íturvaxnir
norðanmenn á þessari
skoðun, þvf þeir vippuðu
sér upp á sviðið og ber-
háttuðu sig fyrlr Sjalia-
gesti. Með því gáfu þeir
„frat“ í sýningarflokkinn
að sunnan, um leið og
þeir björguðu kvöldinu
fyrir gestina.