Dagur - 25.03.1986, Síða 7
25. mars 1986 - DAGUR - 7
Margir góðir gestir voru við vígsluna.
stöðum. En alltaf vantar einhver
tæki þó að mest ríði á að fá slitlag
á völlinn.“
- Þurfið þið ekki að bæta við
starfsfólki núna?
„Það verður ekki gert til að
byrja með. En margt bendir til að
svo verði. Fastur starfsmaður
verður á skrifstofunni á Húsavík
og hann kemur ekki á flugvöllinn
eins og verið hefur, þannig að við
gætum þurft að fá mann til að
Þarna er hvíldarherbergi fyrir
fólk með ungbörn.
Ég er mjög ánægður með að
landi umhverfis nýja húsið hefur
ekki verið spillt þannig að
aðkoman er skemmtileg. Hraun-
ið nær uppundir stöðvarvegg og
trjágróður ekki langt frá!“
Ég þakka Birni fyrir spjallið og
óska honum og starfsfólkinu til
hamingju með nýju aðstöðuna.
IM.
Erlingur Sigfússon færði flugstöðinni gjöf frá Flugleiðum, sem Rúnar Sig-
mundsson tók á móti.
húsið og fólkið taki farangurinn
sjálft af vögnunum. Á meðan
ekki er búið að malbika framan
við húsið verður líklega drullu-
slóð inn á mitt gólf eftir vagnana,
þetta er galli sem maður sér
svona í byrjun.“
- Á ekki að setja færiband fyr-
ir farangurinn?
„Nei, þetta er hannað að
erlendri fyrirmynd og er gert til
að spara starfsfólk. Við setjum
dótið á vagn við vélina og svo
tekur fólkið það sjálft af vagnin-
um í húsinu. Þá þurfum við ekki
að vera að handlanga sömu
töskuna mörgum sinnum. Þetta
sparar mannskap, en hefur ókosti
í för með sér í sambandi við þrif.
En það hlýtur að verða malbikað
mjög fljótlega. Þegar flugvél fer
af stæði núna stendur strókurinn
aftur af henni og það hlýtur að
skemma gler og fleira í húsinu
þar til malbikað verður.“
- En völlurinn sjálfur, á að
setja slitlag á hann?
„Það eru áætlanir í gangi um
það en ekki tímasettar, bæði um
slitlag og að lengja hann smáveg-
is.“
- Búnaður á vellinum, er hann
góður?
„Aðflugstæki eru allgóð og hér
er hægt að lenda við slæm skil-
yrði, verri en á mörgum öðrum
Séra Sigurður Guðmundsson,
vígslubiskup.
vera á vellinum meðan verið er
að afgreiða flugvélarnar.“
- Éykst ekki ferðamanna-
straumurinn á svæðið með til-
komu nýrrar flugstöðvar?
„Það skapar möguleika á að
láta fara vel um menn. Til dæmis
er oft hægt að lenda á Húsavík
þegar ekki er hægt að lenda á
Akureyri, það getur orðið til þess
að vélar lendi hér og bíði, í stað-
inn fyrir að fljúga aftur til
Reykjavíkur - og reyna seinna.
Það gæti orðið skemmtilegt að njóta góðra veitinga á svölunum og jafnframt útsýnisins á fallegum sumarkvöldum.
Myndir: gej-
„Engin vandamál,
bara verkefni
sem þarf aö leysa“
-segja Friðjón og Zophonías Árnasynir sem fljótlega opna nýjan
veitingastað á Akureyri
„Mesti mótbyrinn hefur falist í
því að koma málum gegnum
hið svokaliaða kerfi. Að öðru
leyti höfum við fengið frábær-
ar móttökur hjá bæjarbúum og
þeim peningastofnunum sem
við skiptum við, svo ekki sé
minnst á samstarfið við eigend-
ur og íbúa hússins, sem er eins
og best verður á kosið,“ sagði
Friðjón Árnason veitingamað-
ur Alþýðuhússins á Akureyri,
sem fljótlega opnar nýjan veit-
ingastað ásamt bróður sínum
Zophoníasi. Einnig er Gunn-
laug Ottesen eiginkona Frið-
jóns með í rekstri staðarins.
En þeir bræður eru einu starfs-
menn Svartfugls s/f, en svo
heitir fyrirtækið sem sér um
veitingareksturinn. í húsinu er
um að ræða tvo sali sem Frið-
jón segir að heiti Alþýðuhúsið,
og Fiðlarinn. Alþýðuhúsið er
stór salur sem getur tekið um
300 manns í sæti og er auk þess
mögulegt að skipta salnum í
tvo minni sali. Svo er það Fiðl-
arinn sjálfur, sem er á efstu
hæð hússins. Þar ætla þeir
bræður að opna glæsilegan
veitingastað sem tekur um 50
manns í sæti. Auk þess eru
svalir við salinn sem nýttar
verða þegar veður er gott og
fólk vill sitja utandyra og njóta
útsýnisins sem er bæði mikið
og fallegt.
Svartfuglsmenn tóku veitinga-
reksturinn á leigu 1. september á
síðasta ári og hafa rekið starf-
semina síðan. Þeir sóttu um vín-
veitingaleyfi fyrir staðinn strax í
upphafi, en lengi stóð á að það
leyfi væri veitt. Það var svo nú í
síðustu viku að formlegt leyfi
barst þeirn. „Leyfið táknar að
auðvelt er að sinna því hlutverki
sem við settum okkur í upphafi,
en það er að opna fyrsta flokks
• veitingastað í mat og drykk,"
sagði Friðjón.
Frá því að þeir bræður tóku við
rekstrinum í Alþýðuhúsinu hefur
verið mikið að gera. Árshátíðir,
fundir, ráðstefnur, afmæli, ferm-
ingarveislur og nánast allt sem
tengist slíkum rekstri. Um opin-
bera dansleiki verður ekki að
ræða í húsinu. Bæði er það skil-
yrði í leigusamningnum og eins
vilja þeir bræður ekki fara út í
slíkt. „Við tökum að okkur allt í
sambandi við veislur, hvort sem
þær eru haldnar hér í húsinu, eða
úti í bæ. Ef einhver hringir og
pantar hjá okkur veislu eða
annað, þá sjáum við um allt sem
þarf til þess, við sjáum um tilskil-
in leyfi, útvegum blóm, hljóm-
sveit ef óskað er. Ef þetta er í
heimahúsi komum við með allt á
staðinn," segir Friðjón.
Þá er best að spyrja Zophon-
ías, eða Sissa eins og hann er
kallaður, livert sé markmiðið
með stofnun nýs veitingastaðar á
Akureyri.
Áður en Sissi hefur dregið and-
ann laumar Friðjón inn í: „Við
höfum eitt mottó, en það er,
aldrei nein vandamál, bara verk-
efni sem þarf að leysa." Þá kemst
Sissi að og segir: „Þjónusta við
viðskiptavininn er númer eitt, tvö
og þrjú. Einnig ætium að gera allt
til að halda góðum klassa yfir
staðnum. Fyrsta flokks hráefni til
að vinna úr er líka nauðsyn og
verðinu verður stillt í hóf.“
Þá er komið að Fiðlaranum (á
þakinu). Húsgögn voru ekki
komin í salinn, „en þau eru á
leiðinn," sagði Friöjón.
- Útlend?
„Nei íslensk. Við stefnum að
því að kaupa eins mikið íslenskt
og kostur er,“ segir Sissi og bætir
við. „Fiðlarinn verður í ljósum lit-
um í stað þessa dökka sem ein-
kennir svo marga veitingastaði á
landinu. Það verða Ijós húsgögn
með leðuráklæði. ljósir litir á
veggjum og ljós gólfteppi. Fiðlar-
inn á að vera nútímaveitingastað-
ur. Einnig er hugmyndin að hafa
lifandi tónlist fyrir gesti og er ver-
ið að skipuleggja það fvrir okkur.
Skreytingar í salnum verða hljóð-
færi af ýmsum tegundum. sem
hengd verða í loftið. meira að
segja píanó."
- Hvenær á að opna?
„Við stefnum að því að opna í
apríl, eða þegar allt er tilbúið.
ekki fyrr," segja þeir bræður.
u.Fyrst þurfum við að reyna mat-
seðilinn á nokkrum vinum okkar
áður en opnað verður, því allt á
að vera klárt þegar Fiðlarinn fer í
gang.“ gej-