Dagur - 25.03.1986, Qupperneq 8
8 - DAGUR - 25. mars 1986
Itoaói
rituð nöfn þeirra er vinna Hængsbikarinn hverju sinni.
Elvar Thorarensen á fullri ferð í borðtcnniskeppninni.
Sigurrós Karlsdóttir varð í öðru sæti í boccia.
;
Reynir Pétur með bikarinn sinn sem hann fékk sem heiðursgestur
ásamt Guðmundi Sigurbjörnssyni formanni Hængs.
„Ég gleymi
þessu aldrei"
„Eg gleymi þessu aldrei það
er öruggt,“ sagði Reynir Pét-
ur Ingvarsson heiðursgestur á
Hængsmótinu í spjalli við
Dag.
„Petta er búið að vera voða-
lega gaman. Sennilega er það
skemmtilegast við þetta að ég
hef komið 6 sinnum áður til
Akureyrar en þetta var í fyrsta
skipti sem ég kem í flugvél
hingað. Og nú get ég sagt fólki
að ég hafi líka flogið til Akur-
eyrar. Ég hef nefnilega svo
svakalega gaman af því að
fljúga,“ sagði Reynir Pétur að
lokum og var hinn hressasti að
loknu mótinu.
Úrslit
í mótinu
Hængsmótið, opið íþróttamót
fyrir fatlaða var haldið í Höll-
inni á laugardaginn. Það voru
Lionsklubburinn Hængur og
ÍFA sem sáu um framkvæmd
mótsins. Alls mættu 90 kepp-
endur til leiks víðs vegar af
landinu og var keppt í boccía
bæði í einstaklings- og sveita-
keppni, borðtennis, bogflmi og
lyftingum. Mótið þótti takast
mjög vel og voru hinir fjöl-
mörgu þátttakendur ánægðir á
svipinn á meðan mótið fór
fram.
Lionsmenn buðú Reyni Pétri
Ingvarssyni göngugarpi norður,
var hann heiðursgestur mótsins
að þessu sinni og hrókur alls
fagnaðar.
Mótsstjóri var Magnús Ólafs-
son, yfirdómari var Þröstur
Guðjónsson og formaður móts-
nefndar var Guðmundur Stefáns-
son. Allir þessir menn skiluðu
störfum sínum mjög vel og eiga
þakkir skildar.
Úrslit í einstökum greinum á
mótinu urðu þessi:
Boccía einstaklingskeppni
hreyfihamlaðir:
1. Sigurður Björnsson ÍFR
2. Sigurrós Karlsdóttir ÍFA
3. Stefán Thorarensen ÍFA
4. Elvar Thorarensen ÍFA
5. Haukur Gunnarsson ÍFR
6. Halldór Guðbergsson ÍFR
Boccía sveitakeppni hreyfihamlaðir:
1. ÍFA A
2. ÍFR A
3. ÍFA C