Dagur - 25.03.1986, Blaðsíða 11
25. mars 1986 - DAGUR - 11
Tímarítið Þroska-
hjálp komið út
Tímaritið Þroskahjálp 1. tölu-
blað 1986 er komið út. Útgefandi
er Landssamtökin Þroskahjálp.
í ritinu er að finna ýmsar grein-
ar, upplýsingar og fróðleik um
málefni fatlaðra. Sem dæmi um
efni má nefna: Leiðarann sem
ber heitið Sönn saga frá árínu
1986 og er um brunann á Kópa-
vogshælinu í janúar síðastliðn-
um. viðtöl eru m.a. við þrjá
bræður og foreldra þeirra, um líf-
ið og tilveruna. Þá er rabbað við
foreldra fatlaðra barna um nauð-
syn á hjálp við heimilin s.s. stuðn-
ingfjölskyldum, skammtíma-
heimilum og fleiru í samantekt
sem nefnist Erum við á réttri
leið? Það er einnig sagt frá tveim-
ur skammtímaheimilum og rætt
við fólk sem hefur notfært sér
það sem þannig heimili bjóða
upp á. Þá er ritað um Fram-
kvæmdasjóð fatlaðra í grein sem
nefnist Þingmenn brugðust og
skrifað er um leiðir til fjáröflunar
í grein sem heitir Getraunir -
Þroskahjálp ekki með. Fjallað er
um fatlaða barnið í almenna
skólanum í grein sem nefnd er
Foreldrar of lítilþægir og greint
er frá norrænu málþingi með yfir-
skriftinni Skóli fyrir alla.
Tímaritið Þroskahjálp er til
sölu í bókabúðum og á skrifstofu
Þroskahjálpar Nóatúni 17.
Áskriftarsíminn er 91-29901.
mm
Til páskanna
Full borð af kjöti og kjötréttum.
Til dæmis svínalærisneiðar á aðeins kr. 280.- kg ★
Kjúklingar kr. 189.- kg og fleira og fleira
á mjög hagstæðu verði.
Ennfremur bjóðum við nýja þjónustu
í ávaxta- og grænmetisborði.
Valið er ykkar beint úr borðinu.
Páskaeggin renna út.
Veljið meðan úrvalið er.
Verslið ódýrt- Velkomin í Hrísalund
Gleðilega páska
mmmm E
I l«L
_
„Það kostar ekkert
að leita tilboða“
- segir Bernharð Steingrímsson hjá Auglýsingastofunni Delfi
Auglýsingastofan Delfi er flutt
úr húsi Búnaðarbankans á
Akureyri út í Verslunarmið-
stöðina við Sunnuhlíð og hefur
um leið fært út kvíarnar, er
komin með aðstöðu fyrir
skiltagerð. Bernharð Stein-
grímsson hefur rekið auglýs-
ingastofuna Delfí frá upphafí.
Hann var spurður að því hve-
nær hann hefði byrjað að
starfa við auglýsingagerð.
„Ég var í Myndlista- og hand-
íðaskóla íslands árin 1968 til
1972. Að loknu námi vann ég hjá
auglýsingastofunni Argus og
auglýsingastofu Sambandsins í
nokkur ár þar til ég byrjaði að
starfa sjálfstætt og stofnaði Delfi.
Eftir 5 ár var ég orðinn dálítið
þreyttur á þessum rekstri. Það
var orðið erfitt að fá nokkuð
borgað fyrir sína vinnu í Reykja-
vík á tímabili og ég ákvað að
breyta til. Ég lærði svolítið inn á
tölvuvinnslu og kom hingað
norður og fór að vinna í Búnað-
arbankanum.
Fljótlega eftir að ég kom norð-
ur fóru menn að biðja mig að
taka eitt og eitt verkefni í sam-
bandi við auglýsingagerð og ég
var í þessu í hjáverkum þangað
til þetta var orðið það mikið að
ég ákvað að hætta í bankanum og
opnaði Delfi.
Sjónarmið forráðamanna fyrir-
tækja hafa breyst dálítið á þess-
um síðustu árum. Fyrirtæki gera
meira af því nú orðið að láta
hanna fyrir sig bréfsefni, auglýs-
ingar, vörumerki o.fl. í þeim dúr.
Mér finnst samt að ýmsir skipu-
leggi ekki auglýsingar sínar nógu
vel og þá er hætt við að árangur
verði ekki í samræmi við tilkostn-
að. Forráðamenn fyrirtækja ættu
að leggja það niður fyrir sér í
upphafi árs t.d. hvað þeir ætla að
verja miklu fé í auglýsingar og
láta svo auglýsingastofu bjóða í
verkið og leggja fram áætlun. Svo
sér auglýsingastofan um alla
framkvæmd, útbýr auglýsingar,
sendir þær í blöð o.s.frv.
Ég hef líka tekið eftir því að
stjórnendur fyrirtækja hér fyrir
norðan leita gjarnan suður eftir
þjónustu hjá auglýsingastofum
og kosta þá sennilega meiru til en
þeir þyrftu að gera. Þær auglýs-
ingastofur sem hér eru geta hæg-
lega sinnt þeim markaði sem hér
er dg það kostar ekkert að leita
eftir tilboðum. Hér er hægt að fá
jafn góða vinnu og fyrir sunnan
en verðið er að líkindum lægra
hér en þar.“ -yk.
Bernharð Steingrímsson er búinn að hreiðra um sig í nýju húsnæði við Sunnuhlíð.
Mynd: KGA
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri
Óskar eftir að ráða
sjúkraþjáifara
til starfa.
Möguleiki fyrir íbúðarhúsnæöi og dagvistunar-
plássi.
Upplýsingar veitir María Kristjánsdóttir yfirsjúkra-
þjálfari í síma 26031 eftir kl. 19.00.
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri.
Bjöm Sigurðsson, Baldursbrekku 7. Símar 41534 & 41666. Sérleyfisferðir. Hópferð r. Sætaferðir. Vöruflutningar
Húsavík - Akureyri - Húsavík
26. mars til 2. apríl. Frá Húsavík Frá Akureyri
Miðvikudag 26. mars kl. 9.00 kl. 17.00
Laugardag 29. mars kl. 13.30 kl. 16.00
Mánudag 31. mars kl. 18.00 kl.21.00
Þriðjudag 1. apríl kl. 18.00 kl.21.00
Miðvikudag 2. apríl kl. 9.00 kl. 16.00
Mývatn - Laugar - Akureyri.
Frá Reynihlíð Frá Laugunr. Frá Akureyri
Miðvikud. 26. mars kl. 8.00 kl. 9.00 kl. 17.00
Þriðjud. 1. april kl. 17.00 Síðan venjuleg vetraráætlun. kl. 18.00 Sérleyfishafar.