Dagur - 23.09.1987, Side 8
12 - DAGUR - 23. september 1987
Einar Petersen frá Kleif:
Hollur er
heimafenginn baggi
Fyrir skömmu barst mér í hendur
ritgerðasafn þar sem vísinda-
menn á ýmsum sviðum hugleiða
hvaða sambönd eru á milli sveiflu
veðurfarsins og örlaga samfélaga.
Hún heitir á enskri tungu
„Climate and History" og er gef-
in út árið 1981 af Cambridge
University Press, Cambridge,
England. Mesta athygli mína
vakti grein eftir amerískan mann-
fræðing, Thomas M. Mcgovern
að nafni, um örlög hinna fornu
Grænlendinga þar sem hann
íhugar hvað olli því að þeir gengu
fyrir ætternisstapa undir þeim
kringumstæðum þar sem
eskimóar héldu velli og döfnuðu.
Nú er það svo að Forngræn-
lendingar og íslendingar voru
tvíburar í erfðafræðilegu tilliti og
tilheyra sama menningarheimi.
Skilyrði til lífsframfærslu hafa
verið mjög svipuð í Austur- og
Vesturbyggð á Grænlandi og víð-
ast hvar á Islandi, en um 1340 var
Vesturbvggðin komin í auðn og
um 1500 hafði Austurbyggðin
hlotið sömu örlög. Til eru margar
tilgátur um hvers vegna svo fór.
Líklegast er að margir samvirk-
andi þættir hafi valdið helför
bændasamfélagsins grænlenska.
Eðli bændanna og áhrifavald
hefur verið viðfangsefni margra
fræðimanna því áður en alþýða
manna gat almennt neytt kart-
aflna voru þeir sem oftast illa
haldnir af fæðuskorti og hörgul-
sjúkdómum og dóu langt fyrir
aldur fram ef eitthvað bar út af
með fæðuöflun. Fram að síðustu
aldamótum hékk nokkuð stór
hluti fslendinga á horriminni ef
fæðuöflun mistókst eitthvað og
þannig er ennþá staða verulegs
hluta mannkynsins. Pað er ekki
öld síðan safnað var saman á hin-
um Norðurlöndunum til að
kaupa lífsbjörg handa íslending-
um enda hefst þjóðarsaga íslend-
inga með frásögn af manni sem
þurfti að flýja Iand til þess að ná
í lífsbjörg handa sér og sínum.
Hann skorti greind til að skilja og
haga sér samkvæmt þeirri fornu
reynslu að þegar lífsbjörg skortir
verður allt annað verðlaust.
Staðreynd sem auðsjúklingar í
íslenskum nútíma virðist skorta
greind til að skilja þrátt fyrir að
sú meginstaðreynd hafi í tugþús-
undir ára blasað við augum
manna í öllum samfélögum hvar-
vetna á jörðu. Fæða er frumskil-
yrði alls mannlegs lífs á jörðu,
líka á íslandi. Áður fyrr vissu all-
ir sent ekki voru algerir fábjánar
að án þessa grundvallarlögmáls
væri ekki hægt að komast af og
að tilraunir til þess leiddu óhjá-
kvæmilega af sér eymdardauða,
meira eða minna langdreginn.
Lokaniðurstaða Mcgoverns, eftir
að hafa gaumgæft allt sem vitað
er um 500 ára lífsskeið Græn-
lendinga hinna fornu, virðist hafa
orðið sú að ördauði þeirra væri
rökrétt afleiðing af því að nær all-
ir verðmætaskapandi menn hefðu
orðið gjörnýttir leiguliðar, í
reynd í þrælastöðu, verandi á
valdi manna sem lögðu allan sinn
metnað í að verða sem þyngst
byrði á þeim. Einnig að valdasýki
og auðhyggja valdastéttar græn-
lenska þjóðarbrotsins hafi orðið
því að fjörtjóni.
Þegar saga mannkynsins er
krufin til mergjar kemur ævin-
I. hluti
lega í ljós að auðsýkin er andleg-
ur þjóðfélagssjúkdómur með
svipað eðli og áhrif alnæmis á lík-
ama manna. Þessi andlega pest
gekk af tvíburum íslendinga,
Grænlendingum, dauðum fyrir
um 500 árum og nú virðist það
vera mesta kappsmál mektar-
manna að eins fari fyrir íslend-
ingum nútímans. Viðhorfum
slíkra manna virðist stjórnað af
eðlisbundinni óvild og fjandskap
í garð þeirra sem halda samfélag-
inu uppi. Ef fram heldur sem
horfir kemur óhjákvæmilega að
því að þjóðinni verður statt eins
og fjárhópi á eyðiskeri með vax-
andi flóði. Ef menn með auðsýki-
eyðni ráða örlögum hennar og
mér finnst að hún verðskuldi
betri örlög.
Ég veit að erfitt mun reynast
að stemma stigu við dreifingu og
áhrifum auðsýkinnar því hún
byrjar með því að eyða mann-
gildi og vitsmunum manna. Hún
eykur auð- og valdagirnd þeirra
og hún beinist gegn þeim sem
þjóðfélagsstöðu sinnar vegna
eiga erfiðast með að koma vörn-
um við. Hún beinist gegn konum
sem ráða framtíð þjóðarinnar
með barneignum. gegn mönnum
sem nota andlega og líkamlega
orku sína í að draga björg að
þjóðarbúinu, varðveita og auka
þjóðarauð hennar. Fyrir ósýktan
mann er þetta allt saman lofsvert
og hann kallar á hvern nýtan
mann til liðsinnis við framtíð
þjóðarinnar og það strax, því nú
er unnið markvisst að því að slíta
og eyða rótum hennar í landinu.
Þetta er ekki á nokkurn hátt sér-
íslenskt fyrirbrigöi því þegar saga
mannkynsins er gaumgæfð kem-
ur ævinlega í ljós að þessi sókn
afætanna að hámarksgróða leiðir
ævinlega að hruni og tortímingu
að lokum. Þess vegna er það í
mesta máta óhugnanlegt að fylgj-
ast með sókn þjóðardauðans á
íslandi því það er eins og að
fylgjast með þróun banvæns sjúk-
dóms í unglingi á þröskuldi
blóma lífs síns.
Mér finnst að íslenska þjóðin
verðskuldi betri örlög en að
grotna niður í lifanda lífi en ég
veit líka að erfitt mun reynast að
stemma stigu við því og beita
vörnum. Sálarlegt alnæmi byrjar
með því að eyða manngildi og
vitsmunum manna og þess vegna
er nú þegar orðið svo að því betri
og nýtari þegn íslendingurinn er
samfélagi sínu því lægra er hann
settur í virðingarstigann. Afætan
sækir líka fast að honum að koma
honum í Iágstéttarstöðu og þræla
honum út, sent engu ræður um
eigin örlög. Hann er á valdi hag-
fræðilegra þjóðfélagssníkjudýra
sem stunda af eðlishvötum efna-
hagslegan og sálrænan hernað í
garð þeirra sem draga björg að
þjóðarbúinu og standa undir því
með verðmætissköpun. Þetta má
teljast hreinræktuð heimska í
þjónustu illgirninnar því það
kemur þeim óhjákvæmilega sjálf-
um í koll fyrr eða síðar.
Það er nú einu sinni svo að allt
lifandi þarf visst lágntark af lífs-
nauðsynjum til að halda lífi.
Áður vissi það hver heilvita
íslendingur en nú geta menn ver-
ið orðnir gamlir, hlaðnir fræði-
mannatitlum, haft öll tækifæri til
að öðlast visku en þó beitt öllum
ráðum til að koma þv.í til leiðar
að sem flestir hafi ekki nauð-
þurftir hérlendis einhvern tíma í
framtíðinni. Það ástand getur
komið mjög skjótlega og orðið
mjög grimmt ef áætlun þeirra að
slíta ræturnar milli þjóðar og
moldar nær fram að ganga og
gera hana að þurrabúðarþjóð-
flokki í verbúðum þjónandi
erlendum auðhringjum með því
að afla þeim hámarksgróða.
Fyrir mann eða þjóð, sem hægt
er að beita hungurótta er tómt
mál að tala um sjálfstæði og
frelsi. Risið er ekki hátt á manni
sem statt er fyrir eins og hungr-
uðum flækingshundi en þannig
var þjóðfélagsstaða mikils hluta
alþýðumanna í Evrópu og um
leið á íslandi áður fyrr. Það er
mikil furða að fylgjast með því
kappi sem nú er lagt á að koma
nýtum íslendingum í þá fornu
stöðu, leggja landið í auðn og
koma þjóðinni til að trúa því að
nágrannaþjóðirnar vilji með
glöðu geði framfleyta henni með
matargjöfum í framtíðinni.
Valdastétt þjóðarinnar vill koma
henni á vonarvöl og mun víða í
heimi verða litið á slíkt sem verið
sé að taka brauð frá munni
hungraðra barna. Það er beisk-
legt að horfa upp á að verulegur
hluti íslensku valdastéttarinnar
virðist vera svo algerlega gjör-
sneyddur góðvild og ábyrgðartil-
finningu gagnvart framtíð
íslensku þjóðarinnar að hann vill
leggja landið í auðn.
Varla fyrirfinnst sá íslenskur
bóndi sem er svo heimskur að
hann telji óhagkvæmt að heyja
handa búfé sínu þó að nágranni
hans vilji fóðra það cndurgjalds-
laust þegar það er komið að hor-
felli vegna heimsku og ómennsku
þess sem lætur hann ímynda sér
að hann muni geta lifað í alls-
nægtum um alla framtíð á vöxt-
um innstæðna í erlendum bönk-
um sem borgun fyrir aðstoð við
að láta þjóðina ganga sér til
húðar. Á endanum hlýtur hann
sömu örlög og bróðir hans á
Grænlandi sem dó vegna þess að
lífsrætur hans voru slitnar og fyrir
mér virðist svo að öllum illum
árum hafi verið beitt til að íslend-
ingar hljóti sömu örlög.
Bæjarstjórn Húsavíkur:
Deilt á málsmeðferð
fulltrúa í fynverandi
bæjarstjóm
- af fuBltrúum G-lista
Á fundi í Bæjarstjórn Húsa-
víkur í síðustu viku urðu mikl-
ar umræður vegna fyrirspurnar
frá Erni Jóhannessyni og Val-
gerði Gunnarsdóttur fulltrúa
G-lista um framkvæmdir sem
unnið er að á vegum Húsavík-
urbæjar í fjárhúsi Salómons
Erlendssonar. Spurt var hvaða
afgreiðsfu málið hefði hlotið í
bæjarráði og bæjarstjórn á sín-
um tíma og hverjar væru for-
sendur fyrir þeirri afgreiðslu er
málið hlaut.
I fyrravor samdi Bjarni Aðal-
geirsson þáverandi bæjarstjóri
við Salómon, með samþykki
efstu manna á öllum listum er þá
áttu fulltrúa í bæjarstjórn, um að
Húsavíkurbær annaðist hreinsun
á fjárhúsum hans eftir að skera
þurfti niður sauðféð vegna riðu-
vciki en það var í annað sinn sem
Salómon þurfti að skera fé sitt
vegna riðu. Samningur þessi var
aldrei formlega samþykktur í
bæjarráði eða bæjarstjórn. „Við
erum að fetta fingur út í að mál
geti farið svona í gegnum kerfið
og teljum það ámælisverð vinnu-
brögð,“ sagði Valgerður á bæjar-
stjórnarfundinum.
Bjarni Þór Einarsson bæjar-
stjóri sagði að kostnaður vegna
hreinsunar húsanna næmi nú
185.646 kr. en eftir væri að
endurbyggja garða, brynningar-
aðstöðu og hluta af grindum í
húsunum.
Gengisskráning
Gengisskráning nr. 178
22. september 1987
Kaup Sala
Bandarikjadollar USD 38,820 38,940
Sterlingspund GBP 63,923 64,121
Kanadadollar CAD 29,470 29,562
Dönsk króna DKK 5,5604 5,5776
Norsk króna NOK 5,8407 5,8587
Sænsk króna SEK 6,0832 6,1020
Finnsktmark FIM 8,8368 8,8641
Franskurfranki FRF 6,4107 6,4305
Belgískur franki BEC 1,0294 1,0325
Svissn. franki CHF 25,7803 25,8600
Holl. gyllini NLG 18,9824 19,0411
Vesturþýskt mark DEM 21,3643 21,4303
ítölsk líra ITL 0,02959 0,02968
Austurr. sch. ATS 3,0360 3,0454
Portug. escudo PTE 0,2714 0,2722
Spánskur peseti ESP 0,3194 0,3204
Japansktyen JPY 0,27000 0,27083
írsktpund IEP 57,428 57,606
SDRþann21.9. XDR 50,1144 50,2696
ECU-Evrópum. XEU 44,3713 44,5084
Belgískurfr. fin BEL 1,0241 1,0273
Kristján Ásgeirsson, G-lista
var sá eini af bæjarfulltrúunum,
er stóðu að samningnum í fyrra,
sem sat bæjarstjórnarfundinn á
fimmtudaginn. Sagði hann að á
þeim tíma hefðu menn ekki gert
sér grein fyrir hvaða kröfur dýra-
læknir gerði um hreinsunina og
hvað hún yrði kostnaðarsöm.
Leysa hefði átt mál þetta með
friðsemd og koma til móts við
Salómon á mannlegan hátt en
slíkt hefði oft verið gert hjá
Húsavíkurbæ. „Ef mál þetta
verður fellt í bæjarstjórn er ég
reiðubúinn að borga úr eigin vasa
þann hlut sem mér ber, en ég
svara ekki fyrir hina sem undir
þetta skrifuðu,“ sagði Kristján.
Hvorki Kristján eða aðrir bæj-
arfulltrúar munu þó þurfa að
borga hreinsun fjárhúsanna úr
eigin vasa því samþykkt var á
fundinum tillaga sem bæjarstjóri
bar fram þess efnis að samþykkja
yfirlýsinguna til Salómons eins og
hún lægi fyrir. Einnig var sam-
þykkt að vísa til bæjarráðs að
setja nánari reglur um búfjárhald
á Húsavík og marka skýra stefnu
í riðuveikivörnum í framtíðinni.
IM
I.O.O.F. 2 = 1699258'/2 = 9.0.
70 ára er í dag, miðvikudag, 23.
september, Baldvin Ásgeirsson
forstjóri, Hólabraut 18 Akurcyri.
Hann cr að heiman.