Dagur - 01.12.1987, Side 7
1. desember 1987 - DAGUR - 7
í hluta þcssara húsakynna verður starfscmi Álafoss hf.
s
Helstu stjomendur Alatoss M.
Jón Sigurðarson, forstjóri, 35
árá! Stundaði nám við Háskóla
íslands og síðar við Danmarks
Ingeniör Akademie þaðan sem
hann lauk prófi í efnaverkfræði
1976. Starfaði sem framkvæmda-
stjóri Plasteinangrunar h.f. 1976-
81. Framkvæmdastjóri Skinna-
iðnaðar Sambandsins varð hann
1981 og gegndi því fram til ársins
1985 er hann tók við starfi for-
stjóra Iðnaðardeildar Sambands-
ins.
Aðalsteinn Helgason, aðstoðar-
forstjóri, 38 ára. Lauk viðskipta-
fræðiprófi frá Háskóla íslands
1976. Hóf þá störf hjá Húsavík-
urbæ en tók síðan við skrifstofu-
stjórn hjá Málningu h.f. Starfaði
um tíma hjá Hagvangi en réðst
sem aðstoðarframkvæmdastjóri
til Ullariðnaðardeildarinnar árið
1985.
Ingi Björnsson, framkvæmda-
stjóri fjármála, 31 árs. Stundaði
nám í þjóðhagfræði við Gauta-
borgarháskóla og lauk þaðan MS
prófi 1984. Starfaði sem rekstrar-
ráðgjafi Iðnþróunarfélags Eyja-
fjarðar 1984-86 og sem fram-
kvæmdastjóri sama fyrirtækis frá
1986.
Árni Árnason, forstöðumaður
banddeildar, 34 ára. Rekstrar-
hagfræðingur að mennt. Var
framkvæmdastjóri Hafskip/Dan-
mark A/S, fjármálastjóri Haf-
skips h.f. og nú síðast markaðs-
stjóri Sölustofnunar lagmetis.
Jón Heiðar Guðmundsson, for-
stöðumaður vefnaðardeildar, 29
ára. Viðskiptafræðingur frá H.í.
1982 og stundaði nám í markaðs-
fræðum í Kaupmannahöfn 1982-
’84. Var markaðsstjóri innflutn-
ingsdeildar Hamars h.f. 1984-86,
en hefur síðan verið markaðsfull-
trúi Iðnaðardeildar Sambands-
ins.
Ármann Sverrisson, forstöðu-
maður fatadeildar, 31 árs. Lauk
viðskiptafræðiprófi frá Háskóla
íslands árið 1981. Starfaði við
kennslu og bókhald samhliða
námi og réðst til Iðnaðardeildar
Sambandsins árið 1981, þar sem
hann varð markaðsstjóri ullar-
iðnaðardeildar árið 1985.
Guðjón Kristinsson, verksmiðju-
stjóri banddeildar, 35 ára. Lauk
námi í textilverkfræði árið 1980
frá Fachhochschule Niederrhein í
Mönchengladbach. Hefur síðan
starfað hjá Álafossi við verk-
smiðjustjórnun, framleiðslu- og
sölumál.
Þórir Jóhannesson, verksmiðju-
stjóri vefnaðardeildar, 31 árs.
Stundaði nám í textilfræðum við
tækniháskólann í Bradford, Bret-
landi og lauk þaðan námi 1980.
Hóf fyrst störf hjá Álafossi 1977
og kom til baka að loknu námi.
Hefur starfað við tæknilega ráð-
gjöf og sem framkvæmdastjóri
vefnaðardeildar.
Jón Haraldsson, verksmiðju-
stjóri fatadeildar, 34 ára. Hefur
unnið hjá Álafossi um árabil, nú
síðast sem yfirmaður prjóna-
stofu.
Einar Eyland, verksmiðjustjóri
fatadeildar, 26 ára. Ullarfræðing-
ur frá Huddersfield háskólanum í
Bretlandi 1982. Starfaði sem yfir-
verkstjóri loðbandsdeildar þar til
í nóvember á síðasta ári, er hann
tók við framleiðslustjórnun ullar-
iðnaðardeildar Sambandsins.
Kristinn Arnþórsson, forstöðu-
maður Ullarþvottastöðvar í
Hveragerði, 48 ára. Ullar-
fræðingur að mennt og lauk námi
frá Huddersfield háskólanum
1965. Hefur síðan starfað hjá
Iðnaðardeild Sambandsins við
ýmis störf, nú síðast við ullar-
verslun innanlands ásamt erlend-
um ullarinnkaupum, auk þess
sem hann hefur haft yfirumsjón
með ullarþvottastöðinni í Hvera-
gerði.
Steinar Jónasson, verslunar-
stjóri Álafossbúðarinnar, 53 ára.
Matreiðslumaður að mennt. Hóf
störf hjá Álafossi fyrir 7 árum og
hefur unnið við sölumál innan-
lands, auk viðskipta við austan-
tjaldslöndin og nú síðasta eina og
hálfa árið var hann verslunar-
stjóri Álafossbúðarinnar við
Vesturgötu.
Alyktun
- kjördæmisþings Alþýðuflokksins í
Norðurlandskjördæmi vestra
1. Alþýðuflokksmenn á
Norðurlandi vestra fagna því
trausti, sem kjósendur hafa sýnt
flokknum og frambjóðendum
hans í tvennum undangengnum
kosningum. í bæjar- og sveitar-
stjórnarkosningum á síðasta ári
vann Alþýðuflokkurinn 3 nýja
bæjarfulltrúa og í alþingiskosn-
ingununt á þessu ári vann flokk-
urinn þingmann í þessu kjör-
dæmi.
2. Ný ríkisstjórn hefur verið
mynduð með þátttöku Alþýðu-
flokksins. Annars konar þriggja
flokka ríkisstjórn var ekki hægt
að mynda, þar eð bæði Alþýðu-
bandalag og Kvennalisti höfðu
ekki pólitískt þrek og Sjálfstæðis-
flokkur og Borgaraflokkur gátu
ekki unnið saman.
Arfurinn frá síðustu ríkisstjórn
var m.a. vaxandi viðskiptahalli
og verðbólga og stórkostlegur
halli á ríkissjóði. Alþýðuflokkur-
inn, sem tók þessa erfiðu mála-
flokka að sér í nýrri ríkisstjórn,
hefur nú enn ríkari ábyrgð en oft
áður, að standa vörð um þá sem
minnst mega sín og að efla jöfn-
uð og jafnrétti í þjóðfélaginu.
3. Nú loks hillir undír það, að
tekið verði á ríkisfjármálunum af
djörfung ogdug. Kjördæmisþing-
ið fagnar því. að undir forystu
Alþýðuflokksins muni íslend-
ingar brátt búa við einfaldara og
réttlátara skattakerfi. Afnám
undanþága frá söluskatti eru
mikilvægur liður í því að koma í
veg fyrir skattsvik og að lækka
söluskattinn.
4. Annar arfur frá fyrri ríkis-
stjórn var óréttlátt húsnæðislána-
kerfi, þar sem hinir efnameiri
fengu lán, en þeim efnaminni var
neitað um aðstoð. Enn og aftur
er það hlutverk Alþýðuflokksins
að koma á félagslegu réttlæti.
Alþýðuflokksmenn á Norður-
landi vestra taka undir hvatningar-
orð fjölda félagasamtaka til fé-
lagsmálaráðherra og lýsa yfir ein-
dregnum stuðningi við framkom-
ið frumvarp um húsnæðislán,
sem ásamt væntanlegu frumvarpi
um kaupleiguíbúðir mun koma
húsnæðislánakerfinu á traustan
og réttlátan grundvöll.
5. Kjördæmisþingið átelur
samstarfsflokka Alþýðuflokksins
í ríkisstjórn harðlega fyrir að
standa gegn frelsi í viðskiptum og
í bankamálum. Hagsmunagæsla
þeirra fyrir sterka aðila stendur
nútímalegum vinnubrögðum, sem
auka myndu hagsæld þjóðarinn-
ar, fyrir þrifum.
Þingið fagnar frumkvæði dóms-
málaráðherra um þjóðarátak til
umferðaröryggis og vonar að það
megi verða til þess að fækka slys-
um og auka öryggi í umferðinni.
6. Alþýðuflokksmenn á Norð-
urlandi vestra leggja mikla
áherslu á að markmiðum ríkis-
stjórnarinnar í byggðamálum
verði náð, að fylgt verði byggða-
stefnu, sem byggist á uppbygg-
ingu atvinnulífs, átaki í sam-
göngumálum, eigin ákvörðunar-
töku og bættri fjármagnsþjónustu
heima í héraði.
Kjördæmisþingið skorar á
alþingismenn, að við endurskoð-
un á lögum um Jöfnunarsjóð
sveitarfélaga verði það tryggt að
jafna aðstöðu íbúa þessa lands og
sveitarfélaga, meira en nú er gert
með núgildandi lögum.
7. Þingið telur að gera verði
verulegt átak í hafnamálum kjör-
dæmisins. Hafnir á flestöllum
þéttbýlisstöðunum þurfa úrbóta
við. Þær eru hornsteinn atvinnu-
lífsins, sem hættulegt er að van-
rækja.
Vegamál í kjördæminu eru
ekki komin í það horf, að alls
staðar megi vel við una. Kjör-
dæmisþingið telur það forgangs-
verkefni, að tengja saman þétt-
býlisstaðina í kjördæminu með
því að helstu þjóðvegir verði
lagðir bundnu slitlagi og að sú
þróun haldi áfram í þéttbýlis-
stöðunum sjálfum.
8. Alþýðuflokksmenn telja
brýnt að koma á úrbótum í
kvótakerfi sjárvarútvegsins.
Taka þarf til endurskoðunar það
sjónarmið, að veiðiheimildir
verði aðeins bundnar við skip og
meira tillit tekið til byggðasjónar-
miða, sérstaklega með tilliti til
færslu kvóta milli aðila.
Þingið mótmælir framkomnum
hugmyndum um þröngar kvóta-
skorður fyrir trillukarla og bendir
á að trilluútgerð er mikilvæg
atvinnugrein í kjördæminu.
9. Kjördæmisþingið viður-
kennir nauðsyn þess, að unnið
verði að aðlögun landbúnaðarins
að markaðsaðstæðum. Samdrátt-
ur í landbúnaði og búháttabreyt-
ingar í sveitum hafa haft mikil
áhrif á vinnumarkaðinn. Efla
þarf því nýjar búgreinar. Endur-
skoða þarf starfsemi afurða-
stöðva og sölu- og verðntyndun-
arkerfi landbúnaðarins í því
skyni að örva vöruþróun og
lækka verð. Hlutur bóndans
verði sem mestur í endanlegu
verði.
10. Kjördæmisþing Alþlýðu-
flokksins á Norðurlandi vestra
hvetur alþýðuflokksmenn á
þingi og í ríkisstjórn að vinna
ötullega að því að draga úr verð-
bólgunni og standa vörð um
kaupmátt launþega og að bæta
kjör þeirra sem dregist hafa aftur
úr í launum. Það er megininntak
baráttu Alþýðuflokksins, hins
eina flokks lýðræðissinnaðra
jafnaðarmanna í yfir 70 ár.
Samþykkt um varaflugvöll
Kjördæmisþing Alþýðuflokksins
á Norðurlandi vestra haldið á
Sauðárkróki 14. nóvember 1987
skorar á flugmálayfirvöld og
Alþingi að taka ákvörðun um að
varaflugvöllur fyrir millilandaflug
verði gerður á Sauðárkróki.
Ert þú áskrifandi?
Dagur Akureyri, sími 96-24222
Dagur Húsavík, sími 96-41585
Dagur Reykjavík, sími 91-17450
Dagur Sauðárkróki, sími 95-5960
Dagur Blönduósi, sími 95-4070
Skflið getraunaseðlinum fyrfr
nóvember sem fyrst.
Athugið:
Getraunaseðillinn fyrir desembermánuð birtist þann 15.
Einungis skuldlausir áskrifendur
geta tekið þátt í getrauninni.