Dagur - 01.05.1990, Page 3
Þriðjudagur 1. maí 1990 - DAGUR - 3
fréttir
í-
Staðsetning nýs álvers hér á landi:
Atlantal og iðnaðarráðuneytið óska upp-
lýsinga frá sveitarfélögum á svæðinu
Sveitarfélögum á Eyjafjarðar
svæðinu er nú að berast bréf
frá Jóni Sigurðssyni, iðnaðar-
ráðherra, þar sem fjallað er
um samninga um nýtt álver.
Meðfylgjandi þessu bréfi er
bréf frá Atlantal hópnum þar
sem í er að finna ýmsar spurn-
ingar um Eyjafjarðarsvæðið en
þessir aðilar eru nú að viða að
sér ýmsum upplýsingum um þá
staði sem til greina þykja koma
fyrir nýtt álver á íslandi. Fram
kemur m.a. í bréfi ráðherra að
gert er ráð fyrir að Atlantal-
álverið greiði 100 milljónir
króna í veltuskatt sem áætlað
er að skipta áþekkt og um
landsútsvar væri að ræða,
þ.e.a.s. að 1/4 renni til við-
komandi sveitarfélaga en 3A
verði varið til byggðamála.
Sigurður P. Sigmundsson,
framkvæmdastjóri Iðnþróunar-
félags Eyjafjarðar, vitnaði til
innihalds þessa bréfs á upplýs-
ingafundi um álver við Eyjafjörð
sem nokkrir aðilar efndu til í
Hlíðarbæ í fyrrakvöld.
Þarf 70 ha. lands
í heimildarlögum fyrir nýtt álver
verði kveðið á um 0,75% fast-
eignagjald sem gæti numið 75
milljónum króna á ári. Pessi upp-
hæð rynni til viðkomandi sveitar-
félaga. Um lóðar- og skipulags-
mál segir í bréfinu að við það hafi
verið miðað að ríkið og hlutað-
eigandi sveitarfélög keyptu land
það sem álverið yrði byggt á en
leigðu álverinu afnot þess til
langs tíma. Samkvæmt forsend-
um Atlantal-aðilanna þurfi nýtt
álver um 70 ha. lands með mögu-
leika til stækkunar í 100 ha.
í þessu bréfi kemur einnig
fram að nýtt álver sem framleiðir
200 þúsund tonn af áli árlega þarf
um 6 milljónir tonna af vatni. á ári
til kælingar. Því þurfi að liggja
fyrir hvort nægilegt vatn er til-
tækt með viðráðanlegum til-
kostnaði en hugsanlega mun
álverið sjálft sjá um vatnsöflun.
Um umhverfismál segir að lögð
sé áhersla á af hálfu iðnaðarráðu-
neytisins að tryggja fullnægjandi
kröfur um mengunarvarnir. „Atl-
antal-aðilarnir hafa lagt mikla
áherslu á að samningur um meg-
inskilmála varðandi útblástur frá
álverinu og aðrar mengunarvarn-
ir verið undirritaður samhliða
undirritun aðalsamnings um nýtt
álver... Hafi sveitarfélögin sér-
staka skoðun á þessu máli er
æskilegt að koma þeim á fram-
færi sem fyrst,“ segir iðnaðarráð-
herra.
Vothreinsibúnaðar
verður að krefjast
Á fundinum í Hlíðarbæ ræddi
Hörður Kristinsson, grasafræð-
ingur um áhrif flúors á gróður.
Hann sagði áhrif flúormengunar
á gróðursamfélög þau að þolnar
tegundir nái yfirhöndinni yfir
næmum tegundum. Um athugan-
Ólafur Ragnar Grímsson á fundi í Alþýðuhúsinu á Akureyri:
Sanmingar um álver ekki í hendi
- hallar á fyrirmyndarríki hægri stefnunnar
í samanburði við ísland
Á þessari sfundu liggur ekkert
fyrir um að jákvæð niðurstaða
náist í samningum íslenskra
stjórnvalda og þriggja aðila í
Atlantal-hópnum um byggingu
álvers .g íslandi. Eftir er að
semja um mörg mikilvæg atriði
í þessu sambandi, s.s. orku-
verð, skattamál og umhverf-
ismál.
Þetta kom fram í máli Ólafs
Ragnars Grímssonar, fjármála-
ráðherra, á opnum fundi á Akur-
eyri sl. sunnudagskvöld, en þar
ræddi hann um stöðu efnahags-
tnála og það hálfa annað ár sem
hann hefur setið í stóli fjármála-
ráðherra.
Að afloknu ítarlegu inngangs-
erindi svaraði Ólafur Ragnar
spurningum fundarmanna og var
greinilegt að þeim lék mest for-
vitni að vita afstöðu ráðherrans
til byggingar álvers við Eyja-
fjörð. Hann lagði mikla áherslu á
að samningar um nýtt álver væru
ekki í hendi. Fjármálaráðherra
sagði að fyrir lægi að ef samning-
Fjársöfnun til
byggingar dýraspítala
á Akureyri:
Reiknmgsnúmerið
er 0-302-26-2119
Eins og Dagur greindi frá á föstu-
daginn, stendur nú yfir fjársöfn-
un til byggingar dýraspítala á
Akureyri. I frétt blaðsins kom
fram að aðstandendur söfnunar-
innar hafa stofnað reikning í
Búnaðarbanka íslands á Akur-
eyri og eru áhugamenn um mál-
efnið hvattir til að láta fé af hendi
rakna. Sérstök athygli er vakin á
því að í reikningsnúmerinu, sem
gefið var upp fyrir helgi, misrit-
aðist einn stafur og er beðist vel-
virðingar á þeim mistökum. Rétt
reikningsnúmer söfnunarinnar er
0-302-26-2119.
Gíróseðlar vegna söfnunarinn-
ar liggja frammi í pósthúsum,
bönkum og sparisjóðum á svæð-
inu.
ar tækjust gæti bygging álvers
verið þjóðhagslega hagkvæm
framkvæmd og þenslu myndi
ekki gæta í sama mæli ef það yrði
byggt utan höfuðborgarsvæðis-
ins. Hann vildi ekki kveða upp úr
um líklega staðsetningu álvers
hér á landi, en sagði rétt að
nýlega hafi Keilisnes á Reykja-
nesi komið inn í umræðuna. í
þessu sambandi nefndi Ólafur
Ragnar að vegna breyttrar
heimsmyndar væri í sínum huga
ekki spurning að herinn á Mið-
nesheiði færi af landi brott, held-
ur hvenær. Þá væri eðlilegt að
menn færu að huga að uppbygg-
ingu atvinnutækifæra á Suður-
nesjum í staðinn. Hins vegar
sagðist ráðherra hafa verið hrif-
inn af þeirri mynd í byggðalegu
tilliti að byggja næstu stórvirkjun
á Austurlandi, næstu stóriðju á
Norðurlandi og næstu jarðgong á
Vestfjörðum.
Fjármálaráðherra sagði að
margt benti til að nú væri að nást
langþráður stöðugleiki í efna-
hagslífinu. Hann sagði að það
væri ekki því að þakka að ráð-
herrar í núverandi ríkisstjórn
væru galdramenn, heldur hitt að
breytt hefði verið um áherslu í
stjórn efnahags- og ríkisfjármál-
anna. Hann sagði að gjarnan væri
litið til höfuðvígis hægri stefn-
unnar, Bretlands, sem fyrir-
myndaríkis í efnahagsstjórnun,
en samkvæmt spá fyrir vfirstand-
andi ár hallaði á Thatcher í
samanburði við ísland. Þannig
væri spáð meiri verðbólgu þar á
bæ en á Islandi, óhagstæðari við-
skiptajöfnuði, meiri atvinnuleysi,
hærri kjörvöxtum óverðtryggðra
lána og hærri sköttum í hlutfalli
við verga landsframleiðslu. Ólaf-
ur Ragnar lagði mikla áherslu á
að auka vægi tekjuskattsins og að
sama skapi að draga úr neyslu-
sköttum. Hann sagði vel koma til
greina að hækka tekjuskattinn
um 2-3% og þeir peningar gengju
allir beint til hækkunar persónu-
afsláttar, barnabóta og húsa-
leigubóta, einkum til einstæðra
foreldra. óþh
ir á gróðri í námunda við álverið
í Straumsvík sagði hann sýnileg-
an verulegan mun á gróðri innan
tveggja kílómetra marka og utan.
Á fundinum höfðu einnig
framsögu þau Gunnhildur Braga-
dóttir, sem ræddi um félagsleg
áhrif af byggingu álvers og Tóm-
as Gunnarsson lögfræðingur sem
ræddi um þjóðhagsleg áhrif. Sig-
urborg Daðadóttir dýralæknir
ræddi í erindi sínu þau áhrif sem
flúormengun hefur á búfé. Hún
taldi raunhæft að gera ráð fyrir
að 1 kg. af flúor á hvert framleitt
áltonn sleppi út í andrúmsloftið.
Um hreinsibúnaðinn sagði hún
að ef álver yrði sett niður í Eyja-
firði þá megi fólk sætta sig við
annað en þar verði fullkominn
vothreinsibúnaður.
Nánar verður greint frá ein-
stökum erindum á fundinum í
blaðinu á fimmtudag. JÓH
ATTÞU
HLUTABRÉF SEM
Við staðgreiðum hlutabréf í
eftirtöldum félögum,
samdægurs:
---------------•----------*—
Eimskipafélagi íslands,
Olíufélaginu,
Skagstrendingi,
Sjóvá-Almennum.
VERÐBREFAMARKAÐUR
FJÁRFESTINGARFÉIAGSINS HE
Ráðhústorgi 3, Akureyri.
Upplýsingar veitirÁstaBragadóttir, S: 11100
EININGAHÚS
Húsbyggjendur - verktakar.
Framleiðum í steyptum einingum
íbúðarhús, gripahús og iðnaðarhús.
Hringið og leitið upplýsinga í síma 96-21255.
Sendum myndabæklinga og verðlista.
MOL&SANDUR HF.
v/SÚLUVEG - PÓSTHÓLF 618 - 602 AKUREYRI - SÍMI (96)21255
Þú byggir ódýrara
með okkar aðferð.