Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.1994, Side 5
FÖSTUDAGUR 15. JÚLÍ 1994
Bjórhátíð
áCafé
Royale
Um helgina verður bjórhátíð á
kaffihúsínu Café Royale í miðbæ
Hafnarfjaröar. í kvöld verður
boðið upp á íjölbreytta dagskrá
þar sem Steinn Ármann Magnús-
son verður kynnir kvöldsins og
heldur Hafnfirðingum í góða
skapinu. Boðið verður upp á mat-
arkynningar, vínkynningar,
skemmtilega leiki, jóðlmeistari
Hafnarfjarðar verður uppgötvað-
ur ogkveðið verður Ijóð um bjór-
menningu Hafnfirðinga. Guð-
mundur Rúnar sér um að halda
öllum f stuði fram undir morgun.
Á laugardagskvöld verður dag-
skráin endurtekin en þó með
ýmsum skemmtUegum breyting-
um.
Göngu-
ferðá
Akureyri
Á sunnudag stendur Minjasafn-
ið á Akureyri fyrir gönguferð um
imibæinn undir leiðsögn. Lagt
verður af stað frá Laxdalshúsi kl.
13.30. Gengið verður um gömlu
kaupstaðarlóðina, eftir Fjörunni
og endað við Minjasafnið. Þátt-
takan er fólki að kostnaðarlausu.
Laxdalshús verður opið frá kl. 13
á sunnudag til kl. 17 en þar hang-
ir uppi Ijósmyndasýningin Akur-
eyri - svipmyndir úr sögu bæjar
sem sýnir þróun byggðar á Akur-
eyri. Einnig verður myndbandið
Gamla Akureyri sýnt.
Sumar-
ferð Átt-
hagafélags
Sandara
í tilefni af 40 ára afinæli Átt-
hagafélags Sandara í Reykjavík
efmr félagið til sumarferðar vest-
ur á Hellissand á Snæfellsnesi um
helgina. Boðið verður upp á fjöl-
breytta dagskrá og hefst hún á
fóstudagskvöld kl. 23 með varð-
eldi, söng og leikjum. Á laugar-
dagsmorgun verður fariö í báts-
ferð frá Rifi og skoöunarferð fyrír
jökul. Unglingadansleikur hefst
kl. 21 og mun hljómsveítin Venus
halda uppi fjöri. Kl. 23.30 er svo
dansleikur þar sem hljómsveit-
irnar Venus og Útrás leika fjTÍr
dansi.
Akur-
eyrarkvöld
a Hotel
dansleikurinn og skemmtunin á
Hótel Sögu sérstaklega tileinkuð
Akureyringum og Eyfirðingum,
bæði í Súlnasalnum og á Mímis-
bar. Valinkunnir tónlistarmenn,
s%m tengjast Akureyri, koma þar
að sjálfsögðu viö sögu, s.s. Helena
Eyjólfsdóttir og Finnur Eydal,
Þorvaldur Halldórsson og Gunn-
ar Tryggvason. Aðalhljómsveit
hússins er hins vegar Gleðigjaf-
arnir og dagskráin verður íjöl-
breytt að vanda; einsöngur, tví-
söngur og tríó, íslensk og útlend
iög sem yljað hafa landanum i
hálfa öld. Söngvarar Gleöigjaf-
anna eru André Bachmann,
Bjami Arason og Ellý Vilhjálms.
Fjölskyldu- og íþrótta
hátíð á Laugarvatni
-21. landsmótUngmennafélags íslands
„í fyrsta lagi er þetta íþróttakeppni
þar sem margir af okkar fremstu
íþróttamönnum keppa og starf ung-
mennafélaganna er kynnt. Einnig
verður viðamikil fiölskyldudagskrá
því það verður ýmislegt fleira en
íþróttir á dagskrá þótt þær séu vissu-
lega góðar. Síðast en ekki síst er lögð
sérstök áhersla á umhverfismál því
hugað verður að landgræðslu, skóg-
rækt o.fl. á mótinu,“ sagði Ólafur
Örn Haraldsson, framkvæmdastjóri
landsmóts UMFÍ, í samtali við DV.
Landsmót Ungmennafélags íslands
hófst í gær kl. 15 en því lýkur á
sunnudag. Þetta ér 21. landsmótið
sem UMFÍ stendur fyrir og í annað
skipti sem það er haldið á Laugar-
vatni, þar sem öll aðstaða er til fyrir-
myndar. íþróttamannvirki eru ný
eða nýuppgerð og dagskráin er fiöl-
breytileg. Hestaleiga verður á staðn-
um.og hestakerra, leiktæki og alls
kyns uppákomur fyrir unga sem
aldna. Þeir sem vilja fylgjast með HM
í knattspyrnu þurfa ekki að örvænta
því sjónvarpstæki verða í húsum og
tjöldum á svæðinu og risaskjár verð-
ur í íþróttahúsi. Ailir ættu því að
finna eitthvað viö sitt hæfi.
„Við búumst við að 9 til 12 þúsund
manns mæti á svæðið en það er auð-
vitað háð veöri. Það verður örugg-
lega mjög góð aðsókn því það er svo
mikið um að vera hérna um helg-
ina,“ sagði Ólafur. Aðgangseyri er
stillt í hóf og kostar 3 þúsund kr.
fyrir fullorðna fyrir alla dagana en
1500 kr. fyrir börn.
—.....1
....
-..">-*«**■
rí-í'-r ("ur
íþróttamennirnir reyna með sér í frjálsum iþróttum, sundi, knattspyrnu, handknattleik, hestaiþróttum o.fl. en ál-
menningur fær að spreyta sig i stafsetningarkeppni.
Hlaupið gegn
unglingadrykkju
A laugárdag fer fram svokallað
Fræ-hiaup i Reykjavík. Hlaupið er
liður í nýstofnuðu átaki margra aðila
undir kjörorðinu Stöðvum unglinga-
drykkju. Markmiðið með hlaupinu
er að fá fiölskyldur saman til útivist-
ar og sýna um leið stuðning við átak-
ið.
Upphitun fyrir hlaupið hefst við
Fræðslumiðstöð í fíknivömum að
-Grensásvegi 16 kl. 13.10. Henni
stjórnar Anna Sigurðardóttir, þre-
faldur íslandsmeistari í parakeppni
í þolfimi. í hlaupinu keppir hver við
sjálfan sig og ræður því hvort hann
gengur, skokkar eða hleypur á fullu.
Hægt er að velja á miUi tveggja vega-
lengda, 3,1 km og 6,3 km.
Allir fá sérstakan viðurkenningar-
pening fyrir þátttökuna og boðið er
upp á svaladrykk og súkkulaði að
loknu hlaupinu. Á eftir gefst þátttak-
endum kostur á að fara frítt í sund
í boði Reykjavíkurborgar.
Hljómleikar í
Hafnarborg
Á sunnudag kl. 16 verða hljómleik-
ar í Hafnarborg í Hafnarfirði þar sem
Reynir Guðmundsson tenór syngur
við undirleik Ólafs Vignis Alberts-
sonar lög eftir Beethoven, Faure og
Jón Ásgeirsson ásamt ítölskum og
spönskum lögum.
Reynir hefur starfað í Bandaríkj-
unum í u.þ.b. tuttugu ár sem tónhst-
armaður og tónhstarkennari. Hann
lauk meistaragráðu frá Boston-
háskólanum í tónlistarkennslu og
síðar doktorsprófi frá sama skóla í
kennslu og fiöhniðlun. Lengst af hef-
ur hann starfað í skólum í Nýja Eng-
landi og einnig í Puerto Rico. Að
loknu doktorsprófi varð hann hsta-
ráðunautur í Vestur-Massachusets
en býr nú og starfar í Connecticut
við skóla New Haven borgar.
Reynir Guðmundsson hefur komið
víða við með söng sínum sem ein-
söngvari með kórum og hljómsveit-
um, í óperuflutningi og söngleikjum.
21
Tónleikar
í Norræna
húsinu
- í anda Jenny Lind
Á sunnudag kl. 20.30 verða tón-
leikar í anda Jenny Lind í Norr-
æna húsinu. Flytjendur eru Sus-
anna Levonen sópran og Þórólfur
Stefánsson gítarleikari. Á efnis-
skránni er verk eftir Grieg, De-
Falla, Schubert, Rossini auk tón-
listar við ljóð eftir Gyröi Elíasson.
í anda Jenny Lind er efnisskrá
sem Susanna og Þórólfur ferðast
meö i sumar um Finnland, Sví-
þjóð, Danmörku og ísland. Þau
fengu styrk frá Norræna menn-
ingarsjóönum til þessarar farar.
Jenny Lind var fyrsta sænska
söngkonan sem öðlaðist frægð
utan síns heimalands.
Fimleikar
í Árbæjar-
safni
Hópur frá fimleikadeild Ár-
manns mun sýna fimleika í Ár-
bæjarsafni á sunnudag. í hópnum
eru ungmenni á aldrinum 10 til
18 ára og munu þau sýna ýmis
atriöi. Eftir léttar fimleikaæfing-
ar mun Tromphópur Ármanns
sýna dans og meistarahópur 12
til 18 ára drengja mun sýna sér-
stakar æfingar á trampólíni.
Messa verður í gömlu safn-
kirkjunni kl. 14 en hún var upp-
haflega reist á Silfrastöðum í
Skagafirði 1842. Prestur er sr. Þór
Hauksson
Upp-
græðsla
Hola-
sands
í dag er sérstök kyrnúng á upp-
græðslu Hólasands. Safnast verð-
ur saman kl. 13 við Sandvatns-
brekku á Kísilvegi við Húsavík.
Verkefnið er að græða upp 140
ferkílómetra eyðimörk í alfara-
leið að einni mestu náttúruperlu
landsins, Mývatni. Landgræðslu-
aðgerðir veröa kynntar, svo sem
raðsáning Landgræðslunnar og
dreift verður slógi frá Fiskiðju-
samlagi Húsavíkur. Fulltrúi frá
Hagkaupi afhendir veglegt fram-
lag til verkefhsins að viðstöddum
ráðherrum og þingmönnum auk
áhugamanna og sveitarstjórnar-
manna. Allir eru hvattir til að
mæta og sýna góðu málefni
stuðning.
Harmón-
íkuhátíð
á Siglu-
firði
Á laugardag verður harmón-
íkuhátíð á Siglufirði. Harmón-
íkuspiiarar víðs vegar aí’landinu
munu koma til Siglufiarðar og
spila af fingrum fram. Dagskráin
hefst kl. 14 á síldarpalli við Dag-
slóð og er áætlað að henni Ijúki
um kl. 16.30. Fram koma harmón-
íkuleikarar úr Dölunum, Þin-
geyjarsýslu, Reykjavík og Siglu-
firði. Síld veröur söltuð með
gamla laginu viö síldarmipja-
safniö i Roaldshrakka kl. 15 en
síðan tekur við meiri tónlist. Um
kvöldið verður svo harmóníku-
dansleikur að Hófel Læk þar sem
leikið verður fyrfr dansi.