Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.1994, Side 6
Sagan gerist í Detroit sem orðin er borg martraðanna og tilgangslaust of-
beldi er orðið daglegt brauð.
Sambíóin sýna:
Maverick
Sambíóin hafa tekiö til sýninga
stórmyndina Maverick meö þeim
Jodie Foster og Mel Gibson í aðal-
hlutverkum.
Myndin gerist í Villta vestrinu og
íjallar um metnaðarfulla pókerspil-
ara sem allir leita að því sama - stóra
vinningnum í stærsta spilinu. Brat
Maverick (Mel Gibson) er haldinn
mikilli spilafíkn en hefur ótrúlega
persónutöfra. Hann öölast þátttöku-
rétt í spilinu en tekst á ótrúlegan
hátt að tapa honum aftur... og vinna
síðan aftur. Maverick er alltaf að
lenda í vandræðum með fógetann á
hælunum en hin fagra Annabelle
Bransford (Jodie Foster) er ávallt
skammt undan. Málin leysast þó á
óvæntan hátt og stóri leikurinn fer
fram... en hver sigrar?
Myndin er byggð á gömlum banda-
rískum sjónvarpsþáttum og hefur
notið mikilla vinsælda í Bandaríkj-
unum. Þetta er fyrsta stóra sumar-
myndin í ár og það verður enginn
svikinn af viðskiptum sínum við
Maverick.
Maverick lendir í stöðugum vandræðum í endalausri spilafiækju.
Laugarásbíó sýnir:
Serial Mom
Laugarásbíó sýnir um þessar
mundir gamanmyndina Serial Mom.
Myndin fjallar um hina fullkomnu
amerísku fjölskyldu. Við fyrstu sýn
virðist mamman (Kathleen Tumer)
vera hin fullkomna húsmóðir. Hún
heldur heimilinu hreinu, eldar góðan
mat, sendir eiginmanninn brosandi
í vinnuna og leysir öll vandamál
bamanna - í einu orði sagt er hún
súpermamma. Mamman gerir allt til
að vemda fjölskyldu sína og hún
mun gera allt til að vernda fjölskyldu
sína og hún mun gera allt til að
tryggja hamingju sína... allt!
Mamman er nefnilega ekki öll þar
sem hún er séð.
Myndin fjallar um hina fullkomnu amerisku fjölskyldu en ýmislegt leynist
bak við tjöldin.
Laugarásbíó frumsýnir:
Krákan
Laugarásbíó fmmsýnir í kvöld
myndina The Crow eða Krákuna.
Krákan er síðasta mynd Brandons
Lees en hann lést af voðaskoti er á
tökum myndarinnar stóð.
Sagan gerist í Detroit sem nú er
borg martraðanna. Tilgangslaust of-
beldi er raunveruleiki þessa staðar,
sérstaklega á nótt djöfulsins þegar
venjulegt fólk þorir ekki einu sinni
út fyrir dyr. En eins og rokksöngvar-
inn Eric Draven (Brandon Lee) og
unnusta hans, Shelly Webster (Sop-
hia Shinas), eiga eftir að uppgötva
er maður ekki einu sinni óhultur
innandyra á þessu kvöldi. Hópur
ribbalda og misindismanna ræðst til
inngöngu í íbúð þeirra og myrðir þau
á hrottalegan hátt. Sumir glæpir eru
svo hræðilegir í tilgangsleysi sínu að
þeir krefjast hefndar. Nákvæmlega
ári síöar rís Eric upp frá dauðum í
krafti yfirnáttúrlegra afla sem hann
kann engin skil á. Hann ætlar að ná
fram réttlæti fyrir ranglætið sem
hann hefur verið beittur.
20. öldin kemur riddaranum og þræii hans heldur betur annarlega fyrir
sjónir.
Regnboginn sýnir:
Gestimir
Regnboginn sýnir um þessar
mundir frönsku gamanmyndina Le
Visiteurs eða Gestina sem hlotið
hefur fádæma aðsókn í heimaland-
inu. Tæplega 15 milljónir Frakka
sóttu sýningar myndarinnar og
hún hefur að auki gengið mjög vel
í fleiri löndum.
Miðaldariddarinn hugumprúði,
Godefroy, og þræll hans slysast
fram í nútímann þegar kölkuðum
seiðkarli bregst bogahstin. Seiöur,
sem átti að færa Godefroy aftur í
tímann til að breyta hræðilegum
atburðum sem áttu sér stað, sendir
þá fram til ársins 1993. Þegar Gode-
froy og þræll hans vakna á ný hef-
ur heimurinn því heldur betur
breyst. Hvernig í ósköpunum
bregðast þeir við þessari klípu?
Höfundur og leikstjóri myndar-
innar er Jean-Marie Poiré en með
aðalhlutverk fara þau Christian
Clavier, Jean Reno og Valerie Le-
mercier.
FÖSTUDAGUR 15. JÚLÍ 1994
Kvikmyndir
BÍÓBORGIN
Simi 11384
Blákaldur veruleiki ★★'/2
Hugguleg litil og gamansöm mynd um
unga Bandaríkjamenn i tilvistarkreppu.
-GB
Fjandsamlegir gislar -k-k'/i
Vel leikin og alla jafna hnyttin og skemmti-
leg mynd um hjónaerjur og klaufalegan
innbrotsþjóf. -GB
BÍÓHÖLLIN
Sími 78900
Löggan í Beverly Hills ★'/2
Þaö virðist enginn hafa ofreynt sig á því
að gera þessa mynd eftirminnilega. Fyrir
utan eitt frábært áhættuatriði er ekkert yfir
meðallagiogflestundir. -GE
Þrumu-Jack ★
Paul „Krókódíla-Dundee” Hogan er langt
frá sínu besta hér sem ástralskur útlagi og
bankaræningi í villta vestrinu. -G B
SAGA-BÍÓ
Sími 78900
Hvað pirrar Gilbert Grape? ★★
Mynd í hugljúfari kantinum um ungan
mann sem fórnar sér fyrir fjölskylduna en
losnar úr prísundinni fyrir tilstilli ástarinnar.
-GB
HÁSKÓLABÍÓ
Sími 22140
Græðgi ★★
Erfingjar gamals moldríks skröggs togast á
um arfinn í nokkuð skemmtilegri mynd sem
hefði verið enn betri ef hún þættist ekki
vera göfugri en húner. -GE
Veröld Waynes 2 ★★
Þokkalega fyndið framhald af góðri gaman-
mynd. Wayne og Garth eru ennþá þægi-
lega lúðalegir sakleysingjar, en sagan hefði
að ósekju mátt gefa þeim lausari tauminn.
-GE
Brúðkaupsveislan ★★★
Mjög sniðuglega gerð og skemmtileg
mynd um sviðsett hjónaband og áhrif þess
á alla aðila málsins. Forðast farsalæti og
sjónvarpshúmor og gerir persónurnar mun
raunverulegri en ætla mætti. -GE
Beint á ská 33'A ★l/2
Lautinant Drebin og co eru ekki lengur
fyndnir nema að örlitlu leyti. Þessi sería er
löngu búin að vera og það er vandræða-
legt að sjá klórað árangurslaust í bakkann.
Einnigsýndí Bíóhöllinni. -GE
Nakinn ★★,/2
David Thewlis heldur einsamall uppi nýj-
ustu mynd Mikes Leighs með frábærri böl-
sýnisspeki og eitruðu háði sem hann hellir
yfir alla meðleikara sína á einstaklega lífleg-
anhátt. Stjarnaerfædd. -GE
Listi Schindlers ☆☆☆
Spielberg tvinnar saman helförina og starf-
semi þýsks stríðsmangara í Póllandi með
misjöfnum árangri en veitir óneitanlega
eina bestu innsýn í þennan kafla mann-
kynssögunnar sem má ekki gleymast. -GE
LAUGARÁSBÍÓ
Sími 32075
Serial Mom ★★★
Kolsvartur og geggjaður húmor. John
Waters og leikarar hans I miklu stuði.
-GB
Lögmál leiksins ★★
Það er fullgróft að sjóða saman formúlu-
mynd úr körfubolta og glæpamönnum, en
myndin kemst upp með það þar til á þlá-
endanum vegna þægilegrar frásagnar. -GE
Ögrun ★★
Létt erótik og ádeila á siðavendni kirkjunn-
ar manna í Astralíu sem vilja koma vitinu
fyrir„subþulegan" listmálara. -GB
REGNBOGINN
Sími 19000
Gestirnir ★★★
Franskur tímaflakksfarsi af bestu gerð þar
sem fornir riddarar glíma við hversdags-
hluti ársins 1992.
-GB
Sugar Hill ★ ,/2
Umbúðir og innihald eiga trauðla saman í
frásögn þessari af dópsala sem snýr af villu
síns vegar vegna fallegrar stúlku. -G B
Nytsamir sakleysingjar ★★'/2
Enn ein hrollvekjan úr smiðju Stephens
Kings. Nú eiga íbúar í Cashe Rock í bar-
áttu við þann í neðra sem er í líki forngripa-
sala. Vel leikin og vel uppbygð spennu-
myndsemgamanerað. -HK
Kryddlegin hjörtu ★★★
Heillandi frásagnarmáti í bragðmikilli og
dramatískri mynd þar sem ýkjukennd
sagnahefð nýtur sín vel. Athyglisveró og
vel leikin kvikmynd í háum gæðaflokki.-HK
Píanó ★★★ /2
Píanó er einstaklega vel heppnuð kvik-
mynd, falleg, heillandi og frumleg. Þrátt
fyrir að rauði þráðurinn sé erótík með öllum
sínum öfgum er myndin aldrei yfirþyrmandi
dramatísk. -HK
STJÖRNUBÍÓ
Sími 16500
Bíódagar ★★★
Friðrik Þór hefur gert skemmtilega og
mannlega kvikmynd um æskuár ungs
drengs I Reykjavík og I sveit. Sviðsmynd
einstaklegavelheppnuð. -HK
Stúikan min 2 ★★
Stúikan min er þremur árum eldri, þrosk-
aðri og farinn að fá áhuga á strákum. Alveg
eins og búast mátti við, þægileg, gaman-
söm og rómantísk kvikmynd sem allir geta
sættsigvið. -HK
Tess í pössun k'A
Heldur daufleg gamanmynd um fyrrum
forsetafrú sem gerir lifverði sina og aöra
snælduvitlausa með uppátækjum sínum.
-GB
Philadelphia ★★★
Áhrifamikil kvikmynd um eyðnisjúkan lög-
fræðing sem fer i mál við vinnuveitendur
sina sem ráku hann. Tom Hanks fékk óskar-
inn fyrir leik sinn og var það verðskuldað.
-HK