Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.1994, Blaðsíða 7
FÖSTUDAGUR 15. JÚLÍ 1994
23
Messur
Árbæjarkirkja: Guðsþjón-
usta kl. 11. Organisti Sigrún
Steingrímsdóttir. Sr. Guðmundur
Þorsteinsson.
Áskirkja: Guðsþjónusta kl.
11.00. Fermdir verða Davíð
Fannar Magnússon, Bandaríkj-
unum, p.t. Fljallavegur 38, og
Ragnar Þór Kristjánsson, Sví-
þjóð, p.t. Kleppsvegur 52. Árni
Bergur Sigurbjörnsson.
Breiðholtskirkja: Vegna
sumarleyfa er fólki bent á aðrar
messur í prófastsdæminu. Biblíu-
lestur kl. 20.30 í safnaðarheimil-
inu. Sóknarprestur.
Bústaðakirkja: Guðsþjónusta
kl. 11.00. Organisti Guðni Þ.
Guðmundsson. Pálmi Matthías-
son.
Dómkirkjan: Messa kl. 11.00.
Prestur sr. Jakob Á. Fljálmarsson.
Dómkórinn syngur. Organleikari
Marteinn H. Friðriksson.
Fella- og Hólakirkja: Helgi-
stund kl. 20.30 í umsjón Ragnars
Schram. Organisti Ferenc Ut-
assy. Prestarnir.
Garðakirkja: Guðsþjónusta kl.
11. Fermd verða: Sveina Baldurs-
dóttir, Fannafelli 10, Reykjavík,
og Halldór Helgi Arnórsson,
Ölduslóð 9, Hafnarfirði. Bragi
Friðriksson.
Grafarvogskirkja: Guðs-
þjónusta kl. 11. Guðsþjónusta
kl. 12.15 á Hjúkrunarheimilinu
Eir. Organisti Ólafur Finnsson.
Sr. Vigfús Þór Árnason.
Grensáskirkja: Messa kl.
11.00. Prestur sr. Kjartan Örn
Sigurbjörnsson. Organisti Árni
Arinbjarnarson.
Hallgrímskirkja: Messa kl.
11.00. Fermd verða Svanhildur
Hafliðadóttir, Bergen, p.t. Akra-
sel 19, og Hallgrímur Friðrik Hall-
grímsson, London, p.t. Vífilsgata
5. Organisti Kári Þormar. Sr. Karl
Sigurbjörnsson. Orgeltónleikar
kl. 20.30. Andreas Liebig, organ-
isti i Noregi, leikur.
Háteigskirkja: Messa kl.
11.00. Organisti Pavel Smid. Sr.
Tómas Sveinsson.
Kópavogskirkja: Guðsþjón-
usta kl. 11. Organisti Örn Falkn-
er. Sr. Ægir Fr. Sigurgeirsson.
Kvennakirkjan: Guðsþjón-
usta í Kópavogskirkju sunnu-
dagskvöld kl. 20.30. Sr. Jóna
Kristín Þorvaldsdóttir predikar.
Iris Guðmundsdóttir syngur ein-
söng við undirleik Aðalheiðar
Þorsteinsdóttur. Gunnbjörg Óla-
dóttir stjórnar almennum kirkju-
söng. Kaffi og kaka eftir guðs-
þjónustu. Kvennakirkjan.
Landspítalinn: Messa kl. 10.
Sr. Jón Bjarman.
Langholtskirkja: Kirkja Guð-
brands biskups: Guðsþjónusta
sunnudagskvöld kl. 21.00. Prest-
ursr. Pálmi Matthíasson. Organ-
isti Jón Stefánsson.
Laugarneskirkja: Vegna
sumarleyfa starfsfólks Laugar-
neskirkju er minnt á guðsþjón-
ustu I Áskirkju sunnudag kl.
11.00.
Neskirkja: Guðsþjónusta kl.
11.00. Sr. Frank M. Halldórsson.
Seljakirkja: Guðsþjónusta kl.
20. Sr. Valgeir Ástráðsson pre-
dikar. Organisti Kjartan Sigur-
jónsson. Sóknarprestur.
Seltjarnarneskirkja: Messa
kl. 1'1.00. Ræðuefni: i sátt við
Guð og menn. Prestur sr. Ingólf-
ur Guðmundsson. Organisti
Hrönn Helgadóttir.
Viðeyjarkirkja: Messa kl.
14.00. Prestur sr. Jakoþ Á.
Hjálmarsson. Organleikari Mar-
teinn H. Friðriksson. Bátsferð úr
Sundahöfn kl. 13.30.
Þórdís Gísladóttir, hástökkvari úr HSK, verður á meðal keppenda á landsmót-
inu á Laugarvatni um helgina.
21. landsmót UMFÍ
haldið á Laugar-
vatni um helgina
Landsmót Ungmennafélags Is-
lands verður haldið að Laugarvatni
um helgina. Mótið, sem er það 21. í
röðinni, var sett á fimmtudaginn og
hófst þá keppni í hinum >Tnsum
keppnisgreinum. Síðan þá og alla
helgina verður látlaus dagskrá frá
morgni og fram eftir degi. Mótshald-
arar búast við 10-12 þúsund gestum
og er staðurinn vel í stakk búinn að
taka við öllum þessum fjölda því að
undirbúningur hefur allur verið
hinn besti og aðstæður eystra mjög
góðar.
Þetta er í annað sinn sem landsmót
er haldið á Laugarvatni, í fyrra skipt-
ið 1965 og muna eflaust flestir eftir
þeirri einstöku veðurblíðu sem þá
var alla dagana. Um helgina er spáð
mildu hæglætisveðri. Á mótinu
verða saman komnir margir af bestu
íþróttamönnum landsins en innan
ungmennafélaganna er að finna
íþróttamenn í fremstu röð.
Bestu körfuknattleikslið landsins
munu etja kappi hvert viö annað á
mótinu og nægir þar að nefna lið
Keflvíkinga, Grindvíkinga, Borgnes-
inga og Sauðárkróksbúa sem öll eiga
sæti í úrvalsdeildinni. í knattspyrnu-
keppninni nægir að nefna lið Kefl-
víkinga og Kópavogsbúa sem bæði
eiga hð í 1. deildinni í karla- og
kvennaflokki. Auk annarra bolta-
greina verður keppt í blaki, hand-
bolta og borðtennis, svo eitthvað sé
nefnt.
Ekki má gleyma öðrum keppnis-
greinum sem vekja ekki síður at-
hygli á landsmóti. Má þar nefna
keppni í línubeitingu, hestadóma,
dráttarvélaakstur, pönnukökubakst-
ur, jurtagreiningu og að leggja á
borð. Margt fleira verður á boðstól-
um þannig að gestir ættu að hafa nóg
fyrir stafni.
Mótinu lýkur um kl. 17 á sunnudag
og um kvöldið verður lokaball.
Útivist:
Dags-
ferð á
Heklu
Á laugardag stendur Feröafélagið
Útivist fyrir dagsgönguferð á Heklu.
Nú er tækifærið að ganga á þetta
sögufræga fjall sem er 1491 metri á
hæð yfir sjávarmáli. Hekla er eitt af
kunnustu eldfjöllum heims. Var það
trú margra fyrr á öldum að í Heklu
væri inngangur að helvíti. Gangan
sjálf er þægileg en tekur sinn tíma.
Reikna má með að hún taki að
minnsta kosti 8 klukkustundir.
Nauðsynlegt er að útbúa sig vel með
nesti og góða gönguskó. Léttur
klæðnaður þykir góður í gönguferðir
en hafa ber í huga að allra veðra er
von þegar íslensk fjöll eru annars
vegar.
Gengið verður á Heklu sem er 1491 metra yfir sjávarmáli.
w
Fjórir leikir
í Mjólkurbikar
Fjórír leikir verða í 16-liða úr-
slitum I Mjólkurbikarkeppni KSi
í kvöld. Akranes og KR leika á
Skipaskaga, Grindavík og FH í
Grindavík, Valurog Fram á Hlið-
arenda og KA og Stjarnan á Ak-
ureyri. Allir leíkírnir hefjast klukk-
an 20.
Stigamót
í golfi
í Grafarholti
Stigamót verður haldið á fé-
iagssvæði Golfklúbbs Reykjavík-
ur í Grafarholti og hefst á laugar-
daginn og stendur fram á sunnu-
dag. Mótið gefur stig til landsliðs
og munu allir bestu golfarar
landsins verða samankomnír í
Grafarholti um helgina,
3. deild karla
í knattspyrnu
Tveir leikir verða í 3. deild is-
landsmótsíns í knattspyrnu í
kvöld klukkan 20. Tíndastól og
Reynir leika á Sauðárkróki og
Skallagrímur og Fjölnir i Borgar-
nesi. Á laugardag leika Víðir og
Bi I Garðinum klukkan 14.
Fjórir leikir í
1. deild kvenna
Fjórir leíkir verða í 1. deild
kvenna t knattspyrnu á laugardag
og hefjast þeir allir klukkan 14.
Dalvík og Haukar leíka á Dalvík,
KR og Breiðablik á KR-vellinum,
Stjarnan og Valur á Stjörnuvelli
og ÍA og Höttur á Akranesi.
Útivist:
Gengið á Þyril
Á sunnudag verður gengið á
Þyril sem stendur við innanverð-
an Hvalfjörð að norðan. Fjallið
er 388 metra hátt og er úr bas-
alti. í hlíðum þess hafa fundist
mikið af geislasteinategundum.
Reikna má með að gangan teki
um 5 klst.
Lagt er af stað kl. 10.30 frá
Bensínsölu BSÍ. Frítter fyrir börn
15 ára og yngri I fylgd með full-
orðnum.
Ferðafélagiö:
Þrjár helgar-
ferðir
Farið verður í gönguferð á milli
Rauðafossa, Dalakofa og Land-
mannalauga um belgína. Fyrri
nóttina veröur gist í Dalakofa,
vestan Laufafellsá Fjallabaksleið
syðri og seinni nóttina I sæluhúsi
Ferðafélags íslands í Land-
mannalaugum.
Gönguferðir verða um Þórs-
mörk við allra hæfi um helgina.
Gist verður I Skagfjörðsskála í
Langadal.
Einnig stendur Ferðafélagið
fyrir gönguferðum um Lauga-
svæðið við Landmannalaugar.
Gist verður I sæluhúsi Ferðafé-
lags íslands.