Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.1994, Page 3
FIMMTUDAGUR 18. ÁGÚST 1994
25
tónliQt i
Grafskrift goðsagnar
-Ham lengi lifi!
í mars 1988 ruddist fram á mark-
aðinn ein umdeildasta rokksveit íyrr
og síðar á íslandi. Fyrirbærið kaliaði
sig Ham og spilaði þungt rokk með
djöfullegum undirtón. Þessi neðan-
jarðarsveit spilaði sveitt og þreytt í
mörg ár og ávallt bættist við i að-
dáendahópinn. Hún reyndi meira að
segja fyrir sér erlendis en nú 6 árum
síðar hefur hljómsveitin lagt upp
laupana. Hljómsveitarmeðlimir segj-
ast hafa verið komnir á einstigi,
stefnan varð ekki þróuð frekar.
Jarðarfórin fór fram 4. júní 1994 í
Tunglinu að viðstöddum fjölda
manns. Við tímamót sem þessi er rétt
að staldra við, líta um öxl og skoða
feril þessarar „goðsagnakenndu"
sveitar sem Ham var.
Myndbandið brennt
Suttu eftir stofnun hljómsveitar-
innar gaf hún út smáskífu sem fékk
nafnið Hold. Platan var mjög umdeild
hér á landi og fékk enga útvarps-
spilun, auk þess sem hljómsveitinni
var bannað að spila á nokkrum stöö-
um í Reykjavík vegna árásargimi og
hávaðamengimar þeirrar sem hlaust
af. Sjónvarpið átti líka sinn þátt
í niðurbælingu sveitarinnar og
brenndi eina eintakið af myndband-
inu Trúbadorssleikjarinn í mótmæla-
skyni við myndefnið. í nóvember 1988
hitaði Ham síðan upp fyrir Sykur-
molana á fimm tónleikum í Þýska-
landi og fékk þar góðar móttökur
gagnrýnanda.
Útgáfa erlendis
Árið 1989 reyndist gott fyrir hljóm-
sveitina. Hún kláraði sína fyrstu
stóru plötu, Buffalo Virgin, sem
fyrirtækið One Little Indian gaf út í
október það árið. í kjölfarið fylgdi að
koma fram í sjónvarpi og um sumarið
spilaði hún á New Music Seminar í
New York. Meö henni komu fram
hljómsveitimar Risaeðlan og Bless
en allar vom þessar hljómsveitir á
Þess má geta að meðfylgjandi myndir eru liður í áformum hljómsve'rtarmeðlima Ham um að láta ekki taka myndir af sér persónulega.
samningi hjá útgáfufyrirtækinu
Smekkleysu. Árið 1990 hljóöritaði
nafn
vikunnar
Ham síðan aðra plötu (Pleasing The
Pirhana) en af einhverjum ástæðum
var hún aldrei gefm út. Þrátt fyrir
þetta komu út tvö lög með henni þetta
árið á plötunni World Domination or
Death Vol. 1. Annað þeirra var Abba
lagið Voulez Vous sem fékk frábærar
viðtökur en hitt var hennar eigið lag,
Lonesome Duke.
Endalokin
Árin 1991 og 1992 voru fremur
viðburðalítil hjá hljómsveitinni og
fór meirihluti tímans í upptökur á
kvikmyndinni Sódóma Reykjavík en
þar samdi Sigurjón Kjartansson
meirihluta tónlistarinnar. Ham átti
einnig þrjú lög í myndinni: Partýbær,
Animalía og Manifesto. Árið ‘93 kom
síðan Saga rokksins út og var hljóð-
færaskipan þá eftirfarandi. Sigurjón
Kjartansson (gítar og söngur), Óttar
Proppé (söngur), S. Björn Blöndal
(bassi), Jóhann Jóhannsson (gítar og
hljómborð) og Arnar Geir Ómarsson
(trommur). Eftir þá útgáfu var
hljómsveitin komin á einstigi eins og
áður segir og átti aðeins eitt eftir,
tónleikaplötu. Sá átján laga minnis-
varði var tekinn upp á Tunglinu
4. júní 1994 með aðstoð Sveins Kjart-
anssonar og ívars Ragnarssonar og
er nú kominn í plötubúðir. Þess má
geta að meðfylgjandi myndir eru
liður i áformum hljómsveitarmeð-•
lima um að láta ekki taka myndir af
sér persónulega. Það var Brynhildur
Þorgeirsdóttir sem hannaði líknesk-
in. Og grafskriftin getur ekki verið
önnur en þessi. Ham lengi lifi!
GBG
Tónlistargetraun DV og Japis
lunum.
medal þess sem
verður boðið upp
ýmsir hlutir úr eigu Jimi
heitins Hendrix. Þar má
nefna hinn V-laga Gibson
gítar sem hann lék lengi á
og átta strengja Hag-
ström bassagítar. Enn-
fremurverðurboðinnupp
alls kynsfatnaóurúreigu
Hendrix,bæöisviösbúni
nýlega íleitirnaro
nú eru nákvæmlega
Woodstock-tónl
aðhafaíhuga ai
dags í næstu viku.
Tónlistargetraun DV og Japis er léttur leikur
sem allir geta tekið þátt í og hlotið geisladisk að
launum. Leikurinn fer þannig fram að í hverri
viku eru birtar þrjár léttar spumingar um tónlist.
Fimm vinningshafar, sem svara öllum spurn-
ingum rétt, hljóta svo geisladisk að launum frá
fyrirtækinu Japis. Að þessu sinni eru verðlaunin
safndiskurinn Brit Awards.
Hér koma svo spurningamar:
1. Hvað kostar Bogomil Font diskurinn á Hunda-
dögum i Japis?
2. Hvað kostar S.H. Draumur diskurinn á Hunda-
dögum í Japis?
3. Hvað kostar diskurinn Bein leið með KK á Hunda-
dögum í Japis?
Rétt svör sendist DV, merkt:
DV, tónlistargetraun
Þverholti 11
105 Reykjavík
Dregið verður úr réttum lausnum 25. ágúst og rétt
svör verða birt í tónlistarblaðinu 1. september.
Hér eru svörin úr getrauninni sem birtist 4. ágúst:
1. David Byme.
2. Talking Heads.
3. í september.
Hvað kostar diskurinn Bein leið með KK á Hundadögum í Japis?