Dagblaðið Vísir - DV - 23.08.1994, Side 6

Dagblaðið Vísir - DV - 23.08.1994, Side 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 23. ÁGÚST 1994 Neytendur Hvert á að fara í berjamó? Beijasprettan best á Vesturlandi - einnig stór og safarík ber við Dalvík Þaö lítur út fyrir að beijasprettan í ár ætli að verða betri en í fyrra þótt víða vanti enn 1-2 vikur upp á að berin hafi náð fullum þroska, þá sérstaklega bláberin. Við höfðum samband við berjatínslufólk hér og þar á landinu og var hljóðið áberandi best í þeim sem búa á Vestfjörðum, á Snæfellsnesi og á Dalvík. í kringum Hellissand á norðan- verðu Snæfellsnesi er mjög gott útlit fyrir góða krækiberjasprettu, mikið af berjum og þau sæmilega stór. Krækiberin er aðallega að finna í Prestahrauni, í kringum Rauðhólana og suður um alla Beruvík. Bláberin eru á svipuðum slóðum en eitthvað minna af þeim. Á sunnanverðu nes- inu er blábeijasprettan ekkert sér- stök en krækiberin ágæt og tilbúin til átu. Eitthvað er um aðalbláber en þó ekki mikið. í botni Arnarfjarðar á Vestfjörðum eru bláberin orðin þroskuð og eru þau bæði stór og safarík. Einnig er krækibeijasprettan þar mjög góð. Aðalbláberin er að sögn kunnugra helst að finna aðeins sunnar, t.d. í Djúpafirði og Kjálkafirði. Lítið er um ber í Eyjafjarðarsveit og austur með Laxá, þó er meira af krækibeijum sem enn eru frekar lít- il. í nágrenni Lundar, um 40 km frá Akureyri sunnan við Vaglaskóg, eru berin seint á ferðinni en útlit er fyrir að sprettan verði í meðallagi. Bláber- in eru að koma og krækiberin verða orðin vel þroskuð innan örfárra daga. í Hrísmóum við Dalvík er sprettan mjög góð, berin stór og safa- rík og nóg af þeim. Þar tók það við- mælanda blaðsins 20 mínútur að fylla stóra könnu af aðalblábeijum. Minnst er þar af venjulegum bláberj- um en nóg af bæði krækiberjum og aðalblábeijum. Við Víkingavatn á N-Austurlandi er beijasprettan mjög léleg þótt hún sé aðeins skárri en í fyrra. Við Ás- byrgi og í Kelduhverfi er sama sag- an, hörmuleg spretta, berin lítil og lítið af þeim. í Borgarfirði eystra og á Austurlandi er sama og ekkert af krækibeijum og blábeijum en eitt- hvað af aðalbláberjum. Útbreiðsla berja Arnarfjörður Vatnsfjörður o O v-'Djúpifjöröur oo Dalvík QHellissandur O Snæfellsn. sunnanvert OHúsafell OHeiömörk Svínafell # Bláber O O Krækiber o Aöalbláber —IXkííU Krækiberin eru yfirleitt fyrr á ferðinni en bláberin þótt til séu undantekning- ar þar á. Margir ráðleggja fólki þó að tína krækiberin ekki fyrr en í ágústlok til þess að fá þau stór og safarík. DV-mynd JAK Á Svínafelh, rétt austan við Skafta- fell, fengust þær upplýsingar að þar væri berjasprettan í meðallagi, nokk- uð af krækiberjum en bláberin ættu einhveija daga eftir í að ná fuhum þroska. Krækiberin viö Húsafell eru lítil en eitthvað af þeim og bláberin eiga u.þ.b. viku eftir í að ná þroska. Ekki er mikið af beijum á Þingvöll- um og það litla sem var er mikið til búið að tína. í Heiðmörk er sprettan í meðallagi góð, meira um krækiber en eitthvað er þó um bláber í Hjalla- brekkunum. Nýtið berin í sultur, súpur og saft Þeir sem á annað borð fara í beij- amó tína oft töluvert meira en þeir geta torgað á meðan berin eru ný svo það er um að gera að kunna að geyma þau eða búa tíl eitthvað úr þeim. Bláber eru meðhöndluð öðruvísi en krækiber því hægt er að frysta bláberin heh. Þá eru þau þvegin og velt upp úr sykri svo þau festist ekki saman og síðan fryst í hentugu plastíláti. Þar er hins vegar ekki hægt að frysta krækiber og því verður að búa strax th saft eða sultu úr þeim. Hér fyrir neðan birt- um við uppskriftir að sultu, saft, hlaupi og súpu sem við áttum í fór- um okkar og vonum að gagnist ykkur. Berjasaft og hlaup Hakkið krækiberin í hakkavél eða beijapressu og látið þau síast í gegnum bleiugas. Þá er komin krækiberjahrásaft sem síðan má nota í hlaup og grauta. Hægt er að blanda saftina tæplega til helminga með sykri og geyma þannig. Eftir nokkra daga er hún tilbúin beint th drykkjar eða út á grauta. Sömu aðferð má nota til að búa til saft úr blábeijum. Krækiberjahlaup Blandið lítra af krækibeijahrá- saft saman við kíló eða örlítið minna af sykri og hitið löginn að suðu. Setjiö sultuhleypinn út í og látið sjóða örskamma stund áður en hlaupið er látið kólna. Athugið að hleypirinn má í mesta lagi sjóða í 2-3 mínútur eftir að hann er kom- inn út í löginn. Það getur verið gott að blanda bláberjum og krækibeijum saman í sultu. Þá er t.d. 500 g af kræki- beijahrásaft, með eða án hrats, blandað saman við 500 g af blábeij- um og kíló af sykri. Krækiberjasúpa og sætsúpa Krækibeijasúpa er góð með tví- bökum. Blandið krækibeijahrásaft til helminga með sykri og bætið örlitlu vatni út í. Látið örlítið salt saman við, svona rétt á mhli fingr- anna, og látið sjóða. Notið síðan kartöflumjöl th að hleypa súpunni aðeins saman. Þegar búin er th sætsúpa eru perlugrjón sett í sjóðandi vatn, sveskjur, rúsínur og kanhstöng. Þetta er soðið saman svohtla stund og þá er bætt út í dágóðum slatta af krækiberjahrásaft og sykri th jafns við það. Suðan er látin koma aðeins upp aftur og sítrónusneið- um bætt út í en viö það kemur fall- egur Mtur og gott bragð á súpuna. Bláberjasulta Hreinsið berin og þvoið. Á móti einu kílói af beijum fer 1 kg af sykri (eða örlítið minna eftir smekk, t.d. 700 g). Setjið bláberin í stóran pott og stráið sykrinum yfir. Látið berin liggja yfir nótt, eða þar th sykurinn hefur bráðnað. Látið pottinn þá yfir vægan hita þar til suða kemur upp. Gott er að hræra í leginum og sprengja berin. Látið löginn sjóða örhtla stund við væga suðu áður en sultuhleypirinn er settur út í. Þá er hert aðeins á suðunni í 2-3 mín. en sultan síðan látin kólna. Kraekiber árúmar300 kr. kg Til að fá hugmynd um hvað kílóið af íslenskum betjum kostar út úr búð hringdum við í Vínber- ið á Laugaveginum og í Hagkaup. í Vínberinu kostar kílóið af krækiberjum 335 kr. en þar eru 5 kg jafhframt seld á 1.490 kr. (298 kr. kg). Bláberin voru að berast þeim í gær og kostar 3-400 gramma bakki af handtíndum berjum 498 kr. (1.245 kr. kg). Eng- in íslensk ber fengust i Hagkaupi en þar var hægt að kaupa banda- rísk bláber í 350 g öskjum á 249 kr. (711 kr. kg). Bosch ogAEG farsímar í kjölfar umfjöllunar okkar um GSM-farsíma í síðustu viku, þar sem við birtum upplýsingar um hvað th væri á markaðnum, hvar tækin fengjust og hvert verð þeirra væri, var haft samband við okkur frá Bræðrunum Ormsson hf. og Hljómbæ hf. og við beðin að koma því á framfæri að þessir aðilar væru líka með GSM-far- síma th sölu. Símarnir sem Bræðurnir Ormsson selja eru frá Robert Bosch í Þýskalandi og heita ann- ars vegar CarTel SC og hins vegar CarTel SL. Sá fyrrnefndi vegur 315 g og kostar 63.525 kr. en sá síðarnefhdi vegur 240 g og kostar 78.249 kr. Helsti munurinn á SL símanum og SC, fyrir utan stærð- ina, er að SL síminn býður upp á SMS (short message service) og er þá hægt að senda stutt skhaboð th og frá símanum þegar þessi hluti kerfisins verður gerður virkur hjá Pósti og síma. Verslun- in á eimhg von á Teleport 9020 GSM-farsimum frá AEG í haust en þeir eru enn minni en Bosch símarnir og rafhlaðan endist í 30 tíma i biðstöðu. Pioneer far- símar í GSM Hljómbær hf. býður mjög ftjót- lega upp á tvær tegundir Pioneer farsíma, PCC-D 710 sem kostar 69.900 kr. og PCC-D 700 sem kost- ar 56.900 kr. Pioneer 710 vegur 220 g en hinn 265 g ef notað er minnsta rafhlaðan. „Munurinn felst aðallega í þyngdinni, að öðru leyti eru sím- arnir eins. Það er eitthvað fínni mekanismi í öðrum símanum svo hann er léttari. Svo er hægt að fá fleiri geröir af raihlöðum en eftir því sem þær eru stærri verð- ur síminn þyngri,“ sagði Bjarni Stefánsson, forstjóri í Hljómbæ hf. Verslunin gefur þriggja ára ábyrgö á Pioneer tækjum og gerir Bj arm ráð fy rir að s vo verði einn- ig um GSM-símana.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.