Dagblaðið Vísir - DV - 23.08.1994, Page 29

Dagblaðið Vísir - DV - 23.08.1994, Page 29
ÞRIÐJUDAGUR 23. ÁGÚST 1994 Myndir á sýningunni eru i eigu Hafnarborgar. Samband íslensks landslags- málverks við afstraktlist Nú stendur yfir sýning í Hafn- arborg á verkum í eigu safnsins. Tema sýningarinnar er samband íslenskt landslagsmálverks viö afstraktlist - uppbrot landslags- Sýningar mynda og ómur af landslagi í annars óhlutbundnum verkum. Það er einna helst í landslags- málverkinu aö segja má aö nokk- uö samhengi hafi verið milli kyn- slóöa í íslensku listalífi og hefðin var svo sterk aö margir sem lært höfðu á nýjasta módernmálverk- ið í listaskólum Evrópu fundu sig knúna til að takast á viö landsl- lagið þegar þeir sneru aftur heim. Þannig varð hæg endurnýjun í meðferö listmálara á landslaginu eftir því sem fleiri fóru að bræða það saman við nýjar og tillærðar aðferðir. Á sýningunni er teflt saman myndum úr ýmsum áttum sem sýna fram á náin tengsl sem oft eru á milli landslagsmynda og afstraktlistar, þar sem myndhst- armenn hafa sitthvorn háttin á að túlka íslenskt landslag. 29 Fyrsta stór- verslunin Fyrsta stórverslunin hét La belle Jardinére og var stofnuð af Pierre Parissot í París 1824. Aug- lýsinga- og söluhættir Parissots, fast verð og greiðsla út í hönd, ollu minni háttar byltingu í við- skiptaheiminum, en fast verö og staögreiðsla voru viöskiptahættir sem ekki þekktust. Yfirleitt var fólk í reikningi og samdi um verð. í London var fyrsta stórversiunin Crystal Palace Bazar og var hún opnuð 1855. í New York var stór- hýsið Harper’s Building reist 1854. Blessuö veröldin Fyrsti innkaupavagninn Það var eigandi Humpty Dumpty stórverslunarinnar í Oklahoma sem fann upp fyrsta innkaupa- vagninn í júní 1937. Hann sá að viðskiptavinum hans reyndist oft erfitt að hemja vaming sinn og bjó því tR vagna úr fellistólum sem hann átti tiltæka. Hann setti hjól undir fæturna, karfa kom í stað sætis og bakið var notaö til að stýra ökutækinu. Diner’s Club elsta greiðslukortafyrirtækið Bandaríkjamaðurinn Ralph Schneider stofnaði fyrsta greiðslukortafyrirtækiö. Þetta var 1950 og fyrirtækið var Diner’s Club. Var það mjög einfalt í snið- um og í fyrstu var, eins og nafnið bendir til, eingöngu hægt að nota kortið í veitingahúsum. 27 fyrir- tæki gerðu í fyrstu samning við fyrirtækið um reikningsvið- skipti. Árið 1958 stóð Bank of America fyrir gerð fyrsta banka- greiðslukortsins: Bankamericard hét það. Litlar breytingar á hálendisvegum Færð á þjóðvegum landsins er yfir- leitt góð og greiðfært í alla lands- hluta. Á einstaka stöðum eru vega- vinnuflokkar að vinnu og ber þar að Færð á vegum gæta varúðar, má nefna að á leiðinni austur á Höfn frá Reykjavík er verið að vinna viö leiðina frá Jökulsá að Höfn og einnig við Kirkjubæjar- klaustur. Litlar breytingar eru á vegum á hálendi íslands. Flestar leiðir eru aðeins færar jeppum og fjórhjóla- drifsbílum en þó eru nokkrar vinsæl- ar leiðir opnar öUum bílum og má þar nefna leiðina í Landmannalaug- ar. Ástand vega 02 Hálka og snjór @ Vegavinna-aögát @ Öxulþungatakmarkanir C^) Lokaö^000 ® Þungfært 0 Gert fjallabílum ŒX5IJ Listasafn Sigurjóns Ólafssonar: Á þriðjudagstónleikum í Listasafni Siguijóns koma fram þrír ungir tónlistarmenn, Hólmfríður Þórodds- dóttir óbóleikari, Darren Stonham fagottleikari og Sólvcig Anna Jónsdóttir píanóleikari. Á tónleikunum, sem heflast kl. 20.30, verða leikin eftirtalin tónverk: sónata fyrir óbó og basso continuo efdr G.Ph. Tele- mann og sónata fyrir fagott og pianó eftir sama höf- und, tvö verk fyrir óbó og píanó op. 41 eftir Niels Viggo Bentzon, consertino i B-dúr op. 12 fyrir fagott og píanó eftir Ferdmand David og trió fyrir píanó, óbó og fag- ott eftir Francis Poulenc. Hólmfríður Þóroddsdóttir er Akureyringur sem starfar í Sinfóníuhljómsveit íslands en kemur einnig fram á kammermúsíktónleikum. Sólveig Anna Jóns- dóttir er einxúg Akureyringur sem starfar sem píanó- leikari og kennari í Reykjavík og Garðabæ. Darren Hólmfríður Þóroddsdóttir, Darren Stonham og Sól- velg Anna Jónsdóttir. Stonham er breskur og ólst upp í London. Hann býr hófst fyrir ári og hafa þau haldíð tónleika á Norður- á íslandi og starfar sem tónlistarkennari í Reykjavík. Samstarf þeirra I-Iólmfríðar, Darrens og Sólveigar um. Tinnu Litla stúlkan sem sefur vært á myndinni fáeddist á fæðingardeild Landspítalans 5. ágúst klukkan 10.14. Hún var við féeðingu 3900 grömm að þyngdog52,5 sentímetra löng. Foreldrar hennar eru Ingi- björg Einarsdóttir og Songmunag Wongwan og á hún eina systur, Tinnu Jai. Dana Carvey leikur ungan mann sem missir minnið á hverri nóttu í myndinni Út á þekju. Minnislaus einkaspæjari Það er erfitt að vera einkaspæj- ari, rannsaka morðmál og vera að missa minnið á hverjum degi. Þetta er hlutskipti Maurice Pogue í Út á þekju (Clean Slate). Á hverj- um morgni þarf hann í fyrstu að uppgötva hver hann er þar sem hann þjáist af sjaldgæfum sjúk- dómi sem veldur þessu minnis- leysi. Stærsta vandamálið hjá honum er að hann er aðalvitni í morðmáli sem hann man ekkert eftir og því síður að hann geti bent á morðingjann eins og ætlast er til af honum. Bíóíkvöld Maurice Pogue er leikinn af Dana Carvey sem er þekktastur fyrir að leika Garth í Wayne’s World-myndunum tveimur og eiga sjálfsagt margir erfitt með aö þekkja hann þegar hann er ekki í því hlutverki. Dana Carvey er meðlimur Saturday Night Live hópsins í Bandaríkjunum og vann nýlega til Emmy-verðlauna fyrir frammistöðu sína í þeirri þáttaröð. Nýjar myndir Háskólabíó: Blóraböggullinn Laugarásbíó: Umrenningar Saga-bíó: Ég elska hasar Bíóhöllin: Valtað yfir pabba Stjörnubíó: Gullæðið Bíóborgin: Út á þekju Regnboginn: Flóttinn Gengið Almenn gengisskráning Ll nr. 200. 23. ágúst 1994 kl. 9.15 Eining Kaup Sala Tollgengi Dollar 67.490 67,690 68,890 Pund 104,880 105.190 105,330«, Kan. dollar 49,000 49,190 49,870 Dönsk kr. 11,1230 11,1670 11,1040 Norsk kr. 10,0010 10,0410 10,0120 Sænskkr. 8,8970 8,9320 8,9000 Fi.'mark 13,4660 13,5200 13,2540 Fra. franki 12,8360 12,8870 12,7710 Belg. franki 2,1356 2,1442 2,1209 Sviss. franki 52,2300 52,4400 51,4600 Holl. gyllini 39,2100 39,3600 38,8900 Þýskt mark 44,0300 44,1600 43,6300 It. líra 0,04306 0,04328 0,04352 Aust. sch. 6,2510 6,2820 6,1970 Port. escudo 0,4289 0,4311 0.4269 Spá. peseti 0,5262 0,5288 0,5300 Jap. yen 0,68860 0,69070 0,70160 írskt pund 103,480 104,000 103,960 SDR 99,14000 99,63000 100,26000 ECU 83,6500 83,9900 83.4100 Símsvari vegna gengisskráningar 623270. Krossgáta 1 T~ T~ r 7 2 „ 1 r 10 1/ rr" 7?™ tt* rr 15- mmm 1*7 tr 'IZ 22 Lárétt: 1 hvessa, 8 þjást, 9 eira, 10 kraft-*11 ar, 11 fjær, 12 glampar, 15 ljós, 17 oddi, 19 rúma, 21 eyktamark, 22 hraði, 23 mátt- lausi. Lóðrétt: 1 kasta, 2 deila, 3 náttúra, 4 róm- ur, 5 fmgurna, 6 þjóta, 7 brak, 13 karl- mannsnafn, 14 frumeind, 16 látbragð, 18 fífl, 20 sting Lausn á síðustu krossgátu. Lárétt: 1 spöl, 5 úrs, 8 mær, 9 urin, 10 ákaft, 11 sa, 12 riss, 14 ösp, 15 el, 16 talan,-. 18 sljóu, 20 rá, 21 sjá, 22 prúö. Lóðrétt: 1 smár, 2 pækill, 3 öra, 4 lufsa, 6 rissar, 7 snap, 13 stjá, 15 ess, 17 náð, 19 óp.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.