Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.1994, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.1994, Blaðsíða 4
26 FIMMTUDAGUR 25. ÁGÚST 1994 Edie Brickell án The Bohemians - gift Paul Simon og sendir nú frá sér fyrstu einherjaplötu sína Þeir sem þekkja nafn Edie Brickell tengja það ósjálfrátt við The Bohem- ians, hljómsveitina sem hún sló í gegn með árið 1988. Nokkuð er um liðið síðan því samstarfi lauk, Edie er nú gift kona og hefur upp á síðkastið unnið að fyrstu einherjaplötu sinni. Sú heitir Picture Perfect Moming og er einmitt nýkomin út. Edie semur sjálf öll ellefu lög plöt- unnar og sömuleiðis textana, syngur lögin og leikur á kassagítar. Dálag- legur hópur tónlistarmanna kemur fram með henni á plötunni. Þeirra þekktastir eru Dr. John, bræðumir Art og Cyril Neville, gamli soul- söngvarinn Barry White (þessi sem Sykurmolamir aíþökkuðu að vinna með um árið), David Bromberg, Michael Brecker, Dave Samuels og gamla söngtríóið The Dixie Cups sem syngur bakraddir í einu lagi. Og ekki má gleyma þeim þekktasta í öllum hópnum, Paul Simon sem kroppar strengi kassagítarsins í þremur lögum. Paul Simon er reyndar hinn nýi eiginmaður Edie og hann er þess heiðurs aðnjótandi að stjóma upp- tökum plötunnar ásamt gamla brýninu Roy Halee sem er einna þekktastur fyrir áralangt samstarf sitt við hljómsveitina Dr. Hook. Simon hefur verið þekktur fyrir að fara ótroðnar slóðir í tónlist sinni og blanda saman við hana áhrifum frá ýmsum heimshlutum, Afríku, Suður- Ameríku, Karíbahafsríkjunum og fleirum. Edie Brickell er hins vegar á hefðbundnu nótunum á Picture Perfect Moming. Tónlistin er mest- megnis þægilegt og afslappað popp, hér og þar með soulívafi. Enda hefur Edie það sem kallað hefur verið hvít soulrödd. Þekkt og óþekkt Edie Brickell er frá Dallas í Texas, nánar tiltekið frá útborginni Oak Cliff. Faðir hennar var atvinnumað- ur í keiluspili og í viðtölum hefur hún sagst hafa dvalið langdvölum í keilu- spilssölum í æsku. Einhver tónlist hefur þó siast inn í stúlkuna með skellunum í keilum og hljóðum veltandi kúlna og hún segist aðallega hafa orðið fyrir áhrifum frá A1 Green, Harry Nilsson og Irma Thomas. Litium sögum fer þó af tónlistar- afrekum fyrr en árið 1985. Edie var þá á fyrsta ári í listsögunámi við háskóla i Dallas. Rétt eins og gengur og gerist fékk hún sér vinnu með náminu sem barþjónn á næturklúbbi í borginni, stað sem reyndar hafði opið fram imdir morgun. Þar höguðu atvikin því þannig að Edie fór á sviðið stöku sinnum og söng lög og texta sem hún segist hafa spunnið upp úr sér. Viðtökur voru bærilegar og á end- anum fékk hún tilboð um að ganga til liðs við hljómsveit sem kallaði sig The New Bohemians. Edie sló til og áður en langt um leið fór hróður hljómsveitarinnar að berast víða. Útsendarar plötufyrirtækjanna fóru að leggja við eynm og á endanum þótti einum af yfirmönnum Geffen útgáfunnar ástæða til að gera sér ferð til Dallas síðla í nóvember það ár til að heyra í bandinu. Niðurstaða þeirrar ferðar varð sú að Edie Brickell & The New Bohemians gátu haldið upp á jólin 1985 með nýfenginn plötusamning upp á vasann. Hljómsveitin var þó óþekkt áfram á landsvísu, hvað þá heimsvísu, þar til platan Shooting Rubberbands at the Stars kom út síðla árs 1988. Hún var unnin undir stjóm Pats Morans og á henni söng Edie Brickell um hversdagslega hluti í lífl fólks. Hvers- dagslega fólkið virðist hafa lagt við hlustir og áður en yfir lauk hafði plt^tugagnrýni Aerosmith - Pandora's Toys ★ ★ ★ Safn úr safni Pandora’s Toys er valdir kaflar eða eins konar sýnishom úr þriggja geislaplatna ennþá stærra sýnishomi af ferh hljómsveitarinnar Aerosmith frá því að hún var á mála hjá CBS útgáfúnni. Á þeim árum var hún i millistærð bandarískra rokkhljóm- sveita og þótti einhverra hluta vegna draga dám af Rolling Stones. Við að hlusta á tónlistina á Pandora’s Toys er alls ekki hægt að taka undir þá samlikingu. Aerosmith er miklu frekar eins konar samnefiiari fyrir amerískt þungarokk áttunda áratug- Sweet Emotion, Walk This Way og Dream On. Þetta eru lög sem heyrð- ust ekki í útvarpi hér á landi á sínum tíma en vom bókstaflega spiluð í klessu í herstöðvaútvarpinu á Mið- nesheiði. Þau em löngu orðin sígræn í rokkflórunni. Önnur lög á Pandora’s Toys standa þessum þekktu að baki en era i sjálfú sér ágætis þverskurður fyrir þessa gamalgrónu hljómsveit sem virðist eiga langt í land með að dala á ferli sínum. Ásgeir Tómasson Everything butthe Girl -Amplified Heart ★ ★ ★ Ljúffengt gæðapopp Þrátt fyrir að dúettinn Everything but the Girl haff starfað í rúm tíu ár við ágætar undirtektir er hann enn að mestu óþekkt fyrirbæri hér á landi. Það helgast kannski fyrst og fremst af vinsældalistaþjónkun íslendinga, en heita má að útvarps- stöðvar landsins spili eingöngu vin- sældalistapopp allan sólarhringinn. Fyrir vikið verður útundan óhemju mikið af góðri tónlist sem ekki er samin fyrir þessa lista og að sama skapi verður tónlistamppeldi ungs fólks afskaplega einhliða og fátæklegt. Hvað um það, þau Tracey Thom og Ben Watt sem skipa Everything but the Girl hafa hingað til ekki verið að eltast við vinsældalistana og gera það heldur ekki á þessari nýju plötu sinni, sem kemur eftir nokkuð langt hlé. Þau halda ótrauð áfram á sinni mjúku línu sem þau mörkuðu sér í upphafi. Þetta er engin átakatónlist, í sjöunda sæti á listanum yfir vin- sælustu lögin. Þegar blaðamenn og lesendur tímaritsins Rolling Stone fágunin og vandvirknin er í fyrir- rúmi, hver tónn á sínum stað. Lögin semja þau ýmist saman eða sitt i hvora lagi og sama er að segja um textana. Lög Thom era öllu fjörlegri en lög Watts en þetta blandast sérlega vel saman og greinilegt að þama era tvíburasálir í tónlist á ferð. Þetta era allt afskaplega melódísk lög sem láta gerðu upp árið 1989 lenti platan í einu af tíu efstu sætuninn. Þessum skyndilegu vinsældum fylgdu Edie Brickell & The Bohem- ians eftir með hljómleikaferðum. Þau fengu aö koma fram sem opnunar- hljómsveit fyrir Bob Dylan á hljóm- leikaferð hans um Evrópu og einnig tók hljómsveitin þátt í ferð Grateful Dead og Dons Henleys um Banda- rikin. Þá fóru Edie og The Bohemians einnig í ferð um Bandarfkin þver og endilöng sem aðalnúmerið og komu einnig fram með söngvaranum. og lagasmiðnum Steve Forbert. Árið 1990 kom út önnur plata með Edie Brickell & The Bohemians, Ghost of a Dog. Hún hlaut ekki nándar nærri jafn góðar viðtökur og hin fyrri en náði þó inn á topp-40 í Bandaríkjunum. Síðan þá hafa nokkur lög komið út með Edie og félögum hennar í Bohemians, tO dæmis fluttu þau Dylanlagið A Hard Rain’s Gonna Fall í kvikmyndinni Bom on the Fourth of July. Þá átti Edie eitt lag á plötunni Nobody’s Child sem George og Olivia Harrison stóðu að til styrktar rúmenskum munaðarleysingjum. Á plötunni Trios voru einnig með henni lögin Zillionaire og Amer ican Popsicle sem hún flutti með Rob Wasserman og Jerry Garcia. Nú heyrir samstarf Edie Brickell og fjórmenninganna í The Bohemian væntanlega sögunni til. Fróðlegt verður að sjá hvemig henni vegnar í eigin nafni - með dálitilli hjálp vina sinna og eiginmanns. platan selst í meira en tveimur og háifri milljón eintaka um allan heim. Shooting Rubberbands at the Moon komst hæst í fjórða sæti bandaríska Billboardlistans. Vinsælasta lagið af plötunni var What I Am og það endaði arins og líkist í raun og vera engu öðra fremur. Aerosmith hefúr blómstrað öðrum rokkhljómsveitum fremur á síðustu fimm árum eða svo og er nú vafalaust ein sú stærsta og þekktasta í heimin- um. Fjölmargir aðdáendur hafa bæst í hópinn á síðustu árum - krakkar sem kannski era ekkert allt of vel að sér um fortíð hljómsveitarinnar (á tónlistarsviðinu vel að merkja). A Pandora’s Toys era þekktustu lög Aerosmith frá því i gamla daga, Ride er bresk indýrokksveit í mýkri kantinum. Þessi plata þeirra, Camival of Light, hefúr upp á ágætis- tónlist að bjóða en vantar eitthvað meira trukk til að teljast virkilega góð. Lögin standa svo sem ágætlega ein og sér sem frekar þæg og góð nýbylgjurokklög en era of keimlík til að mynda góða heild. Platan rennur þægilega og átakalítið í gegn. Eftir eina hlustun man maður aðeins eftir tveimur lögum - því fyrsta vegna þess að það er áleitið og gott og þvi síðasta vegna bamakórsins sem syngur í því og gefúr laginu aðeins öðravísi hljóm en gerir þó í rauninni lítið til að bæta það. Sérstaklega er það söngurinn sem gítarleikaramir Mark Gardener og Andy Bell sjá um sem dregur plötuna niður. Tónlistin i lögunum er oft ágæt en söngurinn er það einhæfúr og geldur að öll lögin hljóma mjög svipað. Þeir syngja að vísu vel en ópersónulega og flatt. Þeir Gardener og Bell semja líka flest lög- in og skipta plötunni bróðurlega milli sín. Gardener á fyrri hlutann en Bell þann seinni. Tónlistarlega séð er ekki hægt að greina þessi skipti frá Gardener til Bell á miðri plötunni. Þeir semja mjög svipaöa tónlist en þó virðist Gardener aðeins metnaðar- gjamari því skástu lögin era einmitt fyrst á plötunni og hann á besta lagiö, Moonlight Medicine, sem sameinar góðan texta og frábæra laglínu sem ber sterkan keim af gömlu hippa- rokki a la Zeppelin og Floyd. Platan hefði þurft á fleiri svona lögum að halda til að gera hana kraftmeiri og áleitnari. Pétur Jónasson vel í eyram; sum einfóld, önnur flóknari en öll fyrst og fremst ljúf. Ef ætti að lýsa þessari plötu með einu orði er rétta orðið einmitt, ljúf. Sigurður Þór Salvarsson Ride — Carnival of Light ★ ★ ★ Vantar kraft

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.