Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.1994, Qupperneq 6
6
MIÐVIKUDAGUR 7. SEPTEMBER 1994
Viðskipti
Þorskur á fiskm.
85 w
s
kr/kg" Þrl Mi Fl Fö Má
Þingvíst. hlutabr.
Þri Mí Fi Fö.Mð.
Álverð erlendis
1480 3:
s [.
$/!onn Þri Mi fi Fó Mé Þrl'
Doliarinn
69.2
69
68,8
68,6
68,4
68.2
68
B 1 1
Þrl Mi Fl. Fó MS
Kauph. f London
Þrí Mi Fi Fö Má Þrí
Dollar lækkar
Frá því á fimmtudag hefur
þorskur á ílskmörkuðum verið
að lækka. Lækkunin nemur 15%.
Kílóverðið á mánudag var að
meðaltali 89 krónur.
Þingvísitala hlutabréfa lækkaði
eilítið á mánudag eftir nokkuð
stöðuga hækkun í síðustu viku. Á
mánudag endaði talan í 979 stig-
um.
Þegar viðskipti hófust með ál í
London í gær var stgverðið 1543
dollarar tonnið sem er hæsta verð
í 3'A ár.
Gengi dollars hefur verið á níð-
urleið, var 68,22 krónur á mánu-
dag. Á einni viku hefur gengið
lækkað um 1,2%.
Hlutabréfaverð í kauphöllinni í
London hefur haldist frekar stöö-
ugt undanfarið. FT-SE100 vísital-
an var í 3231 stigi þegar viðskipti
hófust í gærmorgun.
Sex mánaða uppgjör á hlutabréfamarkaði:
723 milQóna
uppsveifla
hjá 7 fyrirtækjum samtals
Undanfarið hafa fregnir af afkomu
fyrirtækja á hlutabréfamarkaði eftir
fyrri helming þessa árs verið að birt-
ast. Þegar tölur frá þeim sjö fyrir-
tækjum sem hafa birt 6 mánaða upp-
gjör eru skoðaðar kemur í ljós gríð-
arlegur bati frá sama tíma í fyrra.
Uppsveiflan er upp á 723 milljónir
króna.
Hagnaður hjá sex af sjö
Fyrirtækin sem um ræðir eru Eim-
skip, Grandi, Hampiðjan, Hluta-
bréfasjóðurinn, Marel, Skagstrend-
ingur og Útgerðarfélag Akureyringa.
Öll fyrirtækin skiluðu hagnaði á ár-
inu nema Skagstrendingur sem tap-
aði 10 milljónum. Samtals nemur
hagnaöur fyrirtækjanna 430 milljón-
um króna.
Tap þessara sjö fyrirtækja eftir
fyrstu sex mánuðina í fyrra var 293
milljónir samtals. Munar þar mestu
um 282 milljóna króna tap Skag-
strendings og 70 milljóna tap ÚA. Að
auki töpuðu þá Eimskip 12 milljón-
um og Hlutabréfasjóðurinn 28 millj-
ónum. Á sama tíma högnuðust
Grandi um 52 milljónir, Hampiðjan
um 38 milljónir og Marel um 9 millj-
ónir.
Beðið eftir Flugleiðum
Hagnaðartölur þessa árs eru 206
milljónir hjá Eimskip, 104 hjá
Granda, 56 hjá Hampiðjunni, 19 hjá
Hlutabréfasjóðnum, 15 hjá Marel og
40 hjá ÚA. í fréttabréfi Verðbréfa-
þings kemur fram að enn sé einn
Milliuppgjör fyrirtækja
- fyrstu 6 mán. 1993 og 1994 -
500 milljónir ~
400
300
200
100
-100
-200
-300
'94
-293
'93
*Þau fvrlrtæki 6 hlutabrétámatKaöi
sem höföu skilaö uppgjöri 1. sept.
sl.: Eimskíp. Grandi. Hampiöian,
Hlutabréfasjóöurinn, Marel,
.„.Skaestrendlnfiur.QeÚA..
mánuður til stefnu fyrir þau hlutafé-
lög sem eiga eftir að skila milliupp-
gjöri. Nokkur félög hafa nefnilega
leyfi Verðbréfaþings til að skila fjög-
urra og átta mánaða uppgjörum.
Meðal þeirra uppgjöra sem beðiö er
eftir er frá Flugleiðum. Þar er búist
við einhverjum mínustölum en þó
eilítiö betri afkomu en í fyrra.
Uppgjörin juku viðskipti
Fregnir af sex mánaða uppgjörun-
um voru einkum að koma í ágúst-
mánuði. Þá urðu viðskipti með hluta-
bréf líflegri en áður. Sem dæmi
hækkaði þingvísitala hlutabréfa um
9% milli mánaða sem er mesta
hækkun í einum mánuði sem mælst
hefur frá því byrjað var að reikna
vísitöluna 1. janúar 1993. Hlutabréfa-
viðskipti í ágúst voru upp á 93 millj-
ónir króna. Þar af voru viðskipti
mest með hlutabréf íslandsbanka
upp á 23 milljónir og 22 milljónir með
Eimskipsbréfin.
Milliuppgjörin benda til þess að
afkoma fyrirtækja í ár stefnir í að
vera margfalt betri en á síðasta ári.
Ástæðan er einkum rakin til mikillar
hagræðingar í rekstri fyrirtækja og
betra rekstrarumhverfis.
Gámasala í Englandi:
Þorskur rauk upp
Þorskur í gámasölu í Englandi
rauk upp í verði í síðustu viku þegar
kílóið seldist að meðaltali á 176 krón-
ur. Hærra verð hefur ekki fengist
þarna síðan í febrúar á þessu ári.
Almennt náðist mjög gott verð í
gámasölunni. Alls seldust 305 tonn
fyrir tæpar 40 milljónir króna, þar
af seldust 120 tonn af ýsu.
Tveir togarar seldu 420 tonn í
Þýskalandi fyrir 33,5 milljónir króna.
Það voru Viðey RE og Skafti SK.
Skafti náði ágætri sölu með 13 millj-
ónum fyrir 102 tonn. Hins vegar fékk
Viðey aðeins 20 milljónir fyrir 319
tonn. Skafti var mest með karfa en
Viðey með karfa og ufsa. Líklega er
það ufsinn sem dró sölu Viðeyjar
niður.
Enn hækkar álið
Straumsvíkurmenn geta tekið gleði
sína á ný þvi álverð á heimsmörkuð-
um er aftur á uppleið. Miðað við
verðið í gærmorgun hefur það ekki
verið hærra í 3 'A ár. Margar spár um
framhaldið eru í gangi en allar miða
þær að hækkandi álverði, allt upp
undir 1700 dollara tonnið.
Helstu gjaldmiðlar eiga það sam-
merkt að hafa hækkað gagnvart ís-
lensku krónunni í síðustu viku en
síðan lækkað verulega eftir helgi, sér
í lagi dollar og pund.
Hlutabréfaviðskipti hafa verið
óvenju lífleg síðustu vikur. Viðskipt-
in námu rúmum 26 milljónum í síð-
ustu viku og hækkaði þingvísitala
hlutabréfa um 17% milli vikna. Mest
var höndlað með hlutabréf Eimskips
í vikunni, eða fyrir 7,7 milljónir.
Næst komu viðskipti með hlutabréf
íslandsbanka og Flugleiða. Alls urðu
viðskipti í 16 hlutafélögum.
Útflutningsafurðir, gjaldmiðlar og verðbréf
69 v 11 /fv 68.5 V 1111 68 lll/
67 66.5 Kr. J J Á
58,22 S
BH|
lOOmilljóna
hagnaðurBorg-
eyjara
Afkoma útgerðarfélagsins
Borgeyjar á Höfn í Homafirði var
jákvæð um rúmar 100 milljónir
króna fyrstu sex mánuði þessa
árs. Hagnaður fyrir vexti og af-
skriftir var 165,3 milljónir sem er
22,4% af veltu. Veltan á tímabil-
inu var upp á 737 milljónir.
Þetta eru nokkur umskipti á
rekstri frá því í fyrra. Eftir fyrstu
sex mánuðina varð 44 milljóna
króna tap hjá Borgey. Forráöa-
menn fyrirtækisins þakka þessi
umskipti endurskipidagningu á
fjárhag og rekstrí. Eignir voru
seldar, skuldum breytt í hlutafé
og afskrifaðar í nauðasamningi
ásamt því að 100 milljónir voru
lagðar til félagsins í nýju hlutafé.
GóðsalaáVerð-
bréfumog
áhættu
Fjármálabókin Verðbréf og
áhætta, sem VÍB gaf út sl. vor,
hefur fengið góðar móttökur á
bókamarkaðinum. Þegar hafa
selst um 1.500 eintök. Aðstand-
endur bókarinnar eru ánægðir
með þessa sölu, sér í lagi með til-
liti til þess að sala á bókum er
yfirleitt dræm á sumrin.
Búist er við að bókin seljist vel
í haust þar sem ekki er ólíklegt
að hún verði tekin upp í kennslu
við sumar menntastofnanir
landsins.
Fjórirerlendir
bankaráíslandi
Samkvæmt EES-samningnum
er erlendum viðskiptabönkum og
sparisjóðum heimilt að veita þjón-
ustu hér á landi án stofnunar úti-
bús. Frá því samningurinn tók
gildi um síðustu áramót hafa fjór-
ir erlendir aðilar fengið leyfl.
banliaeftirlits Seölabanka íslands.
Þetta eru allt bankar i London.
Um er að ræða Toronto Dominion
Bank Europe, Lazard Brothers &
Co., N.M. Rothsclúld & Sons og
Royal Bank of Canada Europe.
Seðlabankinn mun framvegis birta
lista opinberlega a.m.k. einu sinni
ári yfir þær stofnanir sem fengið
hafa leyfi til að starfa á íslandi.
Hæg þróunáís-
lenskum hluta-
bréfamarkaði
Þróun hluta-
bréfamarkaðar
á íslandi hefur
veriðrajöghæg,
veltan lítil og
takmarkaöur
áhugi íjárfesta
á hlutabréfum.
Þotta kernur
fram í yfirliti sem Edda Helgason,
framkvæmdastjóri Handsals,
hefur unnið um þróun markaðar-
ins. í yfirlitinu kemur fram að
heildarmarkaðsvirði lúutabréfa
er núna um 34 milljarðar króna.
Það samsvarar um 8,6% af áætl-
aðri vergri landsframleiðsiu á
þessu ári. Til samanburöar er
þess getiö að sama hlutfall 1 Jap-
an er 120%, 60% í Bretlandi og
Bandaríkjunum, 25% í Þýska-
landi, 33% í Svíþjóð, 24% í Dan-
mörku og 16% í Noregi.
Að mati Eddu er skýringin á
þessari þróun sú að afkoma og
arðsemi íslenskra hlutafélaga sé
ekki nógu góð, hlutabréf séu of
hátt verðlögö miðað viö arðsemi
og að skattareglur séu óeðlilegar.
Edda vill afnám eignaskatts og
afiiám tekjuskatts af söluhagnaði
hlutabréfa. Edda vekur athygli á
því að engin hlutafélög með nýjan
rekstur hafi veriö skráð á mark-
aðnum um langan tíma.