Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.1994, Síða 12
12
MIÐVIKUDAGUR 7. SEPTEMBER 1994
Spumingin
Verslarðu á skólabóka-
markaði?
Rúna Lind Jóhannesdóttir: Nei, ekki
núna.
Elín Ösp Gísladóttir: Nei, ég hef ekki
þörf fyrir það núna.
Björn Sigurðsson: Já, það sem ég
þarf.
Jón Friðrik Hjaltested: Já, það sem
ég þarf.
Einar Lárusson: Já, eins og ég get.
Ásta Guðmundsdóttir: Já, slatta.
Lesendur___________________________________
Hagvaxtarleysið og erlendar flárfestingar:
Er gengislækkun
eftirsóknarverð?
O 0 6 6 ■ 8 5 0 6 8 .8 7 0
O 0 1 0 4 •272 1 0 7-4 2 3
0 0 4 7 • 9 7 2 5 0 -15 4
O 0 1 0 9 5 0 4 11 -2814
O 0 9 7 7 5 3 1 0 ■ 1 7 0 2
O 0 8 5 5 8 6 8 -9 04 3
0 0 .1 2 9 0 5 7 1 3 .4 2 7 0
0 0 ,12 4 8 3 1 .12- 9 8 7.3
0 0 r 2 0 7 8 4 2 -1 6 2 3
00 ,5 0 7 8 2 7 52.8341
00 3 8 18 8 1 3 9 .7 3 07
o o 43 0 5 9 0 4 4 .3 6 04
0 0 0 • 0 4 2 9 0 0 • 0 4 4 8 5
„Hve oft skyldum við Islendingar vera búnir að færa krónuna niður frá
árinu 1950?“
Guðjón Magnússon skrifar:
Ég hef þónokkuð fylgst með því
hvað menn leggja til þessa dagana
varðandi aðgerðir í efnahagsmálum
okkar. Þaö er nefnilega eins og sí-
fellt þurfi að vera hér á döfinni ein-
hverjar efnahagsráöstafanir, ólíkt
því sem gerist annars staðar þar sem
atvinnulífið er stöðugra og undir-
stöðubetra. Ég hef alltaf verið þeirrar
skoðunar að kyrrstaða í efnahagslífi
sé affarasælust til að ná árangri í
hagvexti. Það er byggt á sparnaðar-
hugsuninni en ekki loftbólum og
nýhugmyndum um þetta eða hitt
átakið eða lausafréttum um erlenda
framkvæmdaaðila eða fyrirtæki sem
séu tilbúin að koma hér með fullar
hendur fjár til að framkvæma.
Hagfræðingur einn skrifar grein í
Mbl. nýlega þar sem hann segist færa
gild rök fyrir því að nú sé rétti tíminn
til að „rjúfa kyrrstöðuna", styrkja
stöðu atvinnulífsins og leggja grunn-
inn aö hagvexti. Hann vitnar til
tveggja síðustu gengisfelhnga og seg-
ir þær vel heppnaðar. Nú sé slakinn
í hagkerfinu orðinn það mikill ásamt
lítilli verðbólgu að enn ein gengisfell-
ingin geti heppnast vel! Þessi maður
virðist sammála forstjóra járnblend-
isins á Grundartanga sem leggur til
allt að 20% gengisfellingu (ef mig
minnir rétt).
Nú er ég ekki að segja að gengisfell-
ing sé allsendis óþörf við sérstakar
aðstæður en þær þurfa þá líka aö
vera mjög sérstakar. - í Danmörku
og raunar alls staðar á Norðurlönd-
um svo og í Evrópu og Bandaríkjun-
um er gengisfelling sjaldgæf. Sem
dæmi frá Danmörku er staöreyndin
sú að danska krónan hefur litið sem
ekkert breyst gagnvart dollar frá ár-
unum upp úr 1950! Hve oft skyldum
við íslendingar vera búnir að færa
krónuna niður frá 1950?
Og svo eru það erlendu íjárfestarn-
ir sem allir bíða eftir eins og jóla-
sveini. En hvað bjóðum við Islend-
ingar upp á? Jú; skattlagningu, verk-
falladýfur og óróa og upphlaup á
vinnumarkaðnum ásamt neikvæðri
umíjöllun um aðild erlendra fyrir-
tækja að íslenskum framkvæmdum
og framleiðslu. - Það sem hér hefur
veriö nefnt er ekki vísirinn að aukn-
um hagvexti eða ásókn erlendra að-
ila til íjárfestinga hérlendis.
Það getur verið að við sérfræðing-
um í efnahagsmálum (en það er ég
auðvitað ekki) blasi veruíegur árang-
ur í efnahagsmálum verði gengið
fellt umtalsvert. Ég fullyrði þó að það
eina sem við íslendingar eigum eftir
að reyna í fjármálum er verulegt
átak í sparnaði og samdrætti á öllum
sviðum þjóðlífsins.
Heimilisföng í þjóðarsál
Helgi skrifar:
Undatifarin ár hefur þeim stöðugt
fjölgað sem telja að gera verði rót-
tækar breytingar á útvarpsþætti
nokkrum sem Ríkisútvarpið heldur
úti og kallast Þjóðarsál.
Mörgum hefur ofboðið hvað fólk
lætur sér um munn fara í þessum
þætti. Þingmenn stjórnar og stjóm-
arandstöðu hafa lagt til að RUV verði
gert að nota sérstakan búnað er geri
kleift að vinsa það versta úr þegar
fólk á misjöfnu stigi siöferðis eða
þroska og stundum út út heiminum
sökum vímuefna einhvers konar
æpir alls kyns svívirðingar yfir
landslýð. - Er það heldur ekki nema
sjálfsögð tillaga.
Annað er og mikilvægt í þessu sam-
hengi. - Nú er gert að skyldu að fólk
segi til nafns þegar það hringir í Þjóð-
arsálina. En hvaða nafns? Fólki er í
lófa lagið aö gefa upp hvaða nafn sem
er og því er nauðsynlegt að þeir sem
hringja kynni sig með nafni og heim-
ilisfangi. Margir hafa iðkað það að
fá nöfn fólks að láni þegar þeir hafa
talið sig þurfa að jafna sakir við ein-
hvem í gegnum útvarpið. Líklega
myndu menn þó hika við að gefa upp
heimili annars fólks. Og með því
móti mætti hugsanlega koma í veg
fyrir að menn geti hringt og brotið
adlar velsæmisreglur í skjóli nafn-
leyndar og á annarra kostnað.
Á lesendasíðum dagblaða virðast
blaðamenn gæta þess að.j)eir sem
ekki kunna við að láta riafns síns
getið haldi sig innan velsæmismark-
anna en í Þjóðarsál tala allir í beinni
útsendingu og engin leið er því aö
gæta almennrar kurteisi og virðing-
ar við tilfinningar annars fólks.
Drápsfýsn í þjóðareðlinu
Gunnar Sigurðsson skrifar:
Er nokkuð fjarri lagi að halda að
þessi þjóð sé haldin drápsfýsn, svo
framarlega sem hún stendur í lík-
amsárásum, barsmíðum og drápum
eða tilraunum til dráps. Atburðir
sem eiga sér stað á almannafæri og
að tilefnislausu á síðustu misserum
gefa til kynna að meira en lítið er
brogað við hugsanagang hjá veruleg-
um hluta þjóðarinnar. Kannski
henni allri. - Eða hvað sagði ekki
presturinn á Seltjarnarnesi í predik-
un sinni sl. sunnudag: „Við erum öll
þjáð af einhveiju. Það er eitthvað
eins og það á ekki að vera... það er
sótthiti í okkur öllum.“ - Eflaust er
mikið tU í þessu.
Atburðir á borð við þann er varð í
Austurstræti þegar sparkað var í
unga stúlku svo að hún bíður þess
aldrei bætur og fólskuleg árás á 35
gamlan mann í Keflavík sl. helgi
sýna aö hér er að skapast þjóðfélag
sem er meingallað og beinlínis
hættulegt hinum almenna borgara.
Verst er þó að hér eru mál af þessu
tagi ekki Utin nægUega alvarlegum
augum af ráðamönnum, t.d. dóm-
skerfinu, eins og sýnir sig best að
Þetta meö drápsfýsnina; skyldi hún vera eðlislæg eða áunnin?
ekki skuli hægt að leggja fram kæru eðlislæg eða áunnin? Er þetta ekki
vegnalíkamsárásarnemavirkadaga rannsóknarefni fyrir hugvísinda-
og það á sérstökum tímum! En þetta menn okkar?
með drápsfýsnina; skyldi hún vera
DV
Hugrayndabankinn:
Sífeiltaukin
umsvif
Dóri skrifar:
Við íslendingar virðumst aldrei
þreytast á að skipta við „Hug-
myndabankann". Sífellt koma
fram nýjar og nýjar hugmyndir
að „styrkari stoðum" undir at-
vinnulífiö. Það eru erlendir auö-
jöfrar sem hugsa hlýtt til íslands,
hvað sem það nú þýðir, og það
eru íslenskir hugmyndasmiöir á
ferðalögum um allan heim að
leita verkefna og allt „lofar góðu“.
íslenskir lakkríspottar í Kína,
hvað þá annað! - í DV sl. mánu-
dag sá ég fréttir um þrennt
splunkunýtt sem áreiðanlega á eftir
að auka umsvif hér á landi: Sýnis-
horn af íslensku sjávarfangi til
Kina: Upphaf að útflutningi. Fram-
leiðsla á sinkí: Könnunarleiðangur
til íslands i aðsigi. Og svo koma 4
erlendir bankar í bankaslaginn
hér. Hvað þurfum við fleira? Heim
með Smuguskipin!
Hvenær lækkar
bensínið?
Eiríkur Árnason hringdi:
Nú les maður í fréttum aö bensín
á alþjóðamarkaöi hafi verið að
lækka í verði á síðustu tveimur
til þremur vikum. Þegar slíkar
fréttir berast um hækkun líður
ekki svo langur tími þar til bens-
ínverö hækkar hér á landi. Því
er tími til kominn að knýja fram
svör við því hvenær bensínverö
lækki aftur hér við þessar að-
stæður erlendís.
Námsflokkar
Reykjavikur
SigurbjBrg hringdi:
Nú eru alls kyns tungumála-
skólar að hefja starfsemi sína. Ég
hef reynt hvort tveggja, svona
tungumálaskóla og svo Náms-
flokka Reykjavíkur, og ég legg
ekki að lfku hvað Námsflokkarn-
ir standa hinum framar. Að ekki
sé nú talað um gjaldið sem er afar
hagstætt hjá Námsflokkunum.
Fyrsta hafskipa-
bryggjan
Birgir Þórisson skrifar:
Leiðsögumenn sem blekkja
ferðamenn eni hvimleiðir, en þó
er það fyrirgefanlegt ef þeir vita
ekki betur, Þegar menn hins veg-
ar eru svo hrokafullir að þeir
lireinlega þræta ef þeim fróðari
menn reyna að leiðrétta þá eiga
þeir skilda opinbera ádrepu. -
Þannig mann hitti ég úti í Viðey
sunnud. 28. ág. sl., staðarhaldar-
ann, sem fæst ekki ofan af því að
fyrsta hafskipabryggjan á íslandi
hafi verið bryggja Milijónafélags-
ins í Viöey, byggð 1907-9.
Traustar heimiidir herma þó,
þar á meðal í Sögu ísafjaröar, eft-
ir Jón Þ. Þór sagnfraiðing,' að
fyrsta liafskipabryggjan hérlend-
is hafl verið byggð á Isafirði 1868.
Minkabanareru
ekkióþokkar
H.Ó. skrifar:
í DV 24. ág. sl. skrifar Haraldur
nokkur Sigurösson undir fyrir-
sögninni „Upprennandi óþokk-
ar?" og visar til 7 ára drengjanna
sem drápu mink nýlega. Ef bréf-
ritari (Haraldur) vissi um
grimmd og drápsfýsn villiminka
myndi hann ekki tala um „mink-
greyið" og annað í þeim dúr. Ég
veit til þess að viliiminkur komst
nin í hænsnahús og annað hvort
drap eða limiesti flestar hænurn-
ar og 5 aliendur að auki. Eina
drap hann en hinar 4 lágu alblóð-
ugar eftir og varð að lóga þeim
strax. Það er greinilegt aö dren-
girnir, sem Haraldur gagnrýnir í
bréö sínu, eru mun vitrari en
Haraldui’.