Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.1994, Blaðsíða 25
MIÐVIKUDAGUR 7. SEPTEMBER 1994
25
Afmæli
Leikhús
Bjami V. Magnússon
Bjarni V. Magnússon, forstjóri Is-
lensku umboðssölunnar, Ægisíðu
46, Reykjavík, verður sjötugur á
morgun.
Starfsferill
Bjarni fæddist á Akureyri og ólst
þar upp. Hann lauk stúdentsprófi
frá MA1946, nam hagfræði við land-
búnaðarskólann í Ultina i Svíþjóð
1946-48, lauk viðskiptafræðiprófi frá
HÍ1953, stundað hagfræðinám í
Múnchen 1953-54 og lauk MA-prófi
í hagfræði við Columbia University
íNew Yorkl955.
Bj arni var hagfræðingur hj á
Landsbanka íslands 1955 og hjá Út-
flutningsdeild SÍS1955-57, fram-
kvæmdastjóri Iceland Products
1957-63, framkvæmdastjóri Útflutn-
ingsdeildar SÍS1963-68, fram-
kvæmdastjóri Söluskrifstofu SÍS í
London 1968-69, framkvæmdastjóri
Sameinaðra framleiðenda frá 1971
og forstjóri íslensku umboðssölunn-
ar hf. frá 1970.
Bjami sat í stjórn Stéttarsam-
bands fiskiðnaðarins frá stofnun
1964-68, í stjórn Sölusambands ís-
lenskra fiskframleiðenda 1965-68,
stjórnarformaður íslensku umboðs-
sölunnar frá 1970, Netasölunnar hf.
1973-86 og Loðskinns hf. 1974-78 og
í stjórn Loðskinns hf. frá 1978,
stjórnarformaður í Höfn hf. á Sel-
fossi 1976-91 og Langeyri hf. í Hafn-
arfirði frá 1976, í stjórn Verðjöfnun-
arsjóðs fiskiðnaðarins 1979-87, í
stjórn Hafskips hf. 1980-85, stjórnar-
formaður í Þríhyrningi hf. 1988-91
þegar Höfn hf. og Þríhyrningur hf.
voru sameinuð í Höfn-Þríhyrningur
hf., og stjórnarformaður í því fyrir-
tæki síðan.
Fjölskylda
Kona Bjarna er Stefanía Þóra
Árnadóttir, f. 2.3.1925, húsmæðra-
kennari frá Hjalteyri. Hún er dóttir
Árna Jónssonar símstöðvarstjóra
frá Arnarnesi, bróður Kristínar
Jónsdóttur hstmálara, og Þóru Stef-
ánsdóttur húsmóður, systur Daviðs
Stefánssonar skálds.
Börn Bjama og Stefaníu em Guð-
rún Inga, f. 1.2.1956, viðskiptafræð-
ingur og era börn hennar Stefaní a
og Magnús; Árni Þór, f. 10.6.1957,
markaðsstjóri og eru börn hans
Bjarni, Helga og Linda; Gunnar Við-
ar, f. 4.3.1961, viðskiptafræðingur
og eru börn hans Kristrún og Jök-
ull; Birgir Sveinn, f. 2.7.1962, við-
skiptafræðingur og er sonur hans
Hilmar; Stefán Bragi, f. 13.10.1964,
Bjarni V. Magnússon.
lögfræðingur og er sonur hans Dav-
íö.
Systkini Bjarna; Sverrir, f. 22.2.
1921, framkvæmdastjóri; Bragi, f.
1.2.1922, framkvæmdastjóri; Ingi-
björg, f. 23.6.1923, deildarstjóri;
Ragnar, f. 9.9.1925, heildsali; Gunn-
ar, f. 22.7.1929, tæknifræðingur.
Foreldrar Bjarna voru Magnús
Pétursson, f. 26.2.1891, d. 17.10.1976,
kennari, og Guðrún Bjarnadóttir, f.
5.5.1890, d. 4.11.1952, húsmóðir.
Bjarni og Stefanía taka á móti
gestum í tilefni afmælisins að Síð-
umúla 35, sal Tannlæknafélagsins,
á afmælisdaginn, fimmtudaginn 8.9.
millikl. 17.00 og 19.00.
ÞJÓDLEIKHÚSIÐ
Sími 11200
Sala áskriftarkorta til nýrra korthafa er
hafin.
Með áskriftarkorti má tryggja sæti að
óperunni Vald örlaganna.
Miðasala á operuna hefst 9. september.
Miðasalan er opin alla daga frá kl. 13-20
meðan á kortasölu stendur. Tekið á
móti símapöntunum alla virka daga frá
kl. 10.
Græna línan 99 61 60. Bréfsími 61 12 00.
Sími 112 00 - Greiðslukortaþjónusta.
A Hótel íslandi.
Frumsýning 10. sept. Miða- og
borðapantanir á Hótel íslandi i
síma 687111.
SONGSMIÐJAN
LEIKFÉLAG
REYKJAVÍKUR
Litla svið kl. 20.00
ÓSKIN (GALDRA-LOFTUR)
eftir Johann Sigurjónsson
Leikgerð og búningar: Páll Baldvin Bald-
vlnsson.
Lýsing: Lárus Björnsson.
Leikmynd: Stigur Steinþórsson.
Hljóömynd: Hilmar Örn Hilmarsson.
Þjálfun: Árni Pétur Guójónsson.
Leikstjórn: Páll Baldvin Baldvinsson.
Leikarar: Árni Pétur Guðjónsson, Benedikt
Erlingsson, Ellert A. Ingimundarson,
Margrét Vilhjálmsdóttir, Sigrún Edda
Björnsdóttir, Theodór Júlíusson.
Frumsýning laugardaginn 10. sept., upp-
selt.
Sunnud. 11. sept., uppselt.
Þriðjud. 13. sept., uppselt.
Miðvikud. 14. sept., uppselt.
Fimmtud. 15. sept., uppselt.
Föstud. 16. sept., uppselt.
Laugard. 17. sept., uppselt.
Sunnud. 18. sept., uppselt.
Þriðjud. 20. sept.
Miðvikud. 21. sept.
SALA AÐGANGSKORTA ER HAFIN.
SEX SÝNINGAR AÐEINS KR. 6.400.
Miðasala er opin alla daga kl. 13.00-
20.00 á meðan kortasalan stendur
yfir. Pantanir i síma 680680 aila virka
dagafrákl.10.
Greiðslukortaþjónusta.
Leikfélag Reykjavíkur-
Borgarleikhús
Fréttir
Ná Rangárnar
toppsætinu?
Norðurá í Borgarfirði hafði enn-
þá forystuna á veiðitoppnum í gær-
kveldi með 1604 laxa en rétt fyrir
neðan er Þverá í Borgarfirði með
1550 laxa. Ennþá er veitt í Kjarrá
svo að þetta eru ekki lokatölur úr
þeirri verstöðinni. Síðan koma
Rangárnar með 1430 laxa í þriðja
sæti. Grímsá í Borgarfirði er í því
fjórða með rétt 1400 laxa.
„Félagarnir úr Fjaðrafoki voru
„Það eru komnir 525 laxar á þess-
ari stundu úr Víðidalsánni, við vor-
um að koma úr ánni og veiddum
aðeins 11 laxa holhð. Næsta holl á
eftir okkur veiddi engan lax,“ sagði
Lúther Einarsson í gærkvöldi en
hann var á bökkum Víðidalsár í
Húnavatnssýslu fyrir fáum dögum.
Þar hefur tveggja ára laxinn bjarg-
að því sem bjargað varð þetta sum-
arið, eins árs laxar hafa htið láta
sjá sig.
„Það eru boltafiskar í Dalsárósn-
að hætta veiðum hjá okkur og
veiddu 15 laxa, þá er áin komin
með 1604 laxa,“ sagði Halldór Niku-
lásson, veiðivörður í Norðurá í
Borgarfirði, í gærkvöldi en veitt er
í ánni fram á fostudag og Norðurá
hefur ennþá góða forystu á veiði-
toppnum.
„Þetta er kropp þessa dagana en
veiðimenn hafa mikið verið að
missa fiska þessa síðustu daga
um, þetta era hnallar þessir stóru
fiskar. Af þessum 11 löxum veidd-
um við Magnús Jón Sigurðsson 6
laxa en þetta eru hörkuveiðimenn.
Laxarnir sem eru í ánni eru flestir
lagstir og fást ekki til að taka með
nokkru móti,“ sagði Lúther enn-
fremur.
Lúther ætlaði að renna fyrir lax
aftur í Víðidalsánni í vikunni.
Skyldu þessir stóru taka þá hjá
honum?
veiðitímans. Laxarnir taka mjög
grannt. Stærstu laxarnir era 18,5
og 18 punda fiskar. Það eru til
stærri laxar en þeir hafa ekki feng-
ist til að taka. Þessir stóra eru í
Kaupmannapolh, Efri-Ferjuhyl og
uppi í Króki,“ sagði Hahdór.
Rangárnar eru líklegar til að verða
efsta veiðiáin þetta sumarið því að
töluvert er eftir af veiðitímanum
þar.
Lúther Einarsson með einn af sex
löxum sem hann og Magnús Jón
Sigurðsson veiddu i Viðidalsá fyrir
fáum dögum. Þessi 18 punda fiskur
tók maðk. DV-mynd Magnús Jón
Víðidalsá í Húnavatnssýslu:
525 laxar
komnir á land
Tilkyimingar
Hafnargönguhópurinn,
Rauðibás - Blikastaðakró
í dag, 7. september, fer Hafnargönguhóp-
urinn níunda og síðasta áfangann í
gönguferðaröð sem farin hefur verið með
ströndinnl frá Fossvogslæk að Korpúlfs-
staðaá, um 40 km leið. Fariö verður frá
Miðbaítkatjaldinu við Hafnarhúsið kl. 20.
Aliir eru velkomnir í gönguferð með
Hafnargönguhópnum.
Tombóla
Jóhanna Helga Viðarsdóttir og Ásta Mar-
ía Einarsdóttir héldu tombólu til styrktar
Rauða krossi íslands og söfnuðu alls 4.051
kr.
Flöskusöfnun
Þeir Ami Már Erlingsson og Oddur
Ástráðsson gengust nýlega fyrir flösku-
söfnun til styrktar Rauða krossi íslands.
Þeir söfnuðu alls 2611 kr.
Tilkynningar
ITC deildin Korpa
heldur deildarfund í kvöld, 7. september,
kl. 20 í safnaðarheimili Lágafellssóknar.
Upplýsingar veitir Guðrún Adólfsdóttir í
síma 668485.
Félag eldri borgara
Lögfræðingur félagsins er til viðtals fyrir
félagsmenn flmmtudaginn 8. september,
panta þarf tíma í síma 28812. Minningar-
kort Félags eldri borgara í Reykjavík og
nágrenni fást á skrifstofu félagsins,
Hverfisgötu 105. sími 28812, gíróþjónusta.
Tveir vinir og annar í fríi
Annar hluti í karaoke-keppni starfsfólks
á leikskólum verður haldinn í kvöld, 7.
september. Hljómsveitin Pile frá Keflavík
ásamt gestum heldur tónleika fimmtu-
dagskvöldiö, 8. september. Þeir spila rokk
í anda Pearl Jam og Soundgarden.
Tapad fundið
Myndavél fannst
í Gljúfrum Skjálfandafljóts neöan Aldeyj-
arfoss 1. september sl. Upplýsingar í sima
93-66767.
Nýi ökuskólinn h/f
Klettagörðum 11, et húsið
Meirapróf
Innritun stendur yfir
Allar upplýsingar í síma 884500
Utboð
F.hT Skólaskrifstofu Reykjavíkur er óskað eftir
tilboðum í 76 ræstivagna fyrir grunnskóla borg-
arinnar.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Frí-
kirkjuvegi 3, Reykjavík.
Tilboðin verða opnuð á sama stað miðvikudag-
inn 14. september 1994, kl. 11.00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3 - Sími 2 58 00
Viðskiptalífið
í hnotskurn