Dagblaðið Vísir - DV - 12.09.1994, Qupperneq 7

Dagblaðið Vísir - DV - 12.09.1994, Qupperneq 7
MÁNUDAGUR 12. SEPTEMBER 1994 23 Heimsmet í sundi Nokkur heimsmet féllu á heimsmeistaramótinu í sundi sem lauit í Róm á Ítalíu i gær. Ástralinn Kieren Perkins bætti heimsmetið i 400 metra skrið- sundi þegár hann synti á 3:43,80 mínútum en gamla metið, sem var 3:45,00, átti Rússinn Evgeny Sadovyi. Samantha Riley setti heimsmet í 100 metra bringusundi þegar hun kom í mark á 1:07,69 minút- um og bætti met þýsku stúlkunn- ar Silke Hörner sem var 1:07,91, sett fyrir 7 árum. Methjákínverskum Kínverska kvennasveitin setti heimsmet i 4x100 metra íjórsundi þegar hún tryggði sér heims- meistaratitihnn með því að synda á 4:01,69 mínútum. Annaðmethjále Le Jingyi bætti heimsmetið í 50 metra skriðsundi þegar hún kom í mark á 24,51 sekúndu og bætti met löndu sínnar Vang Wenyi frá árinu 1992. í síðustu viku setti Le heimsmeti lOOmetra skriðsundi. Finninnmeðmet Þá setti Finninn Jani Sievinen heimsmet í 200 metra fjórsundi með því að synda á 1:58,16 mínút- um og bætti met Ungverjans Tamas Darnyi frá árinu 1991. Kínverjar bestir Kínverjar unnu til flestra verð- launa á mótinu en þeir hlutu 17 guilverðlaun af 46, 10 silfur og 2 brons. Bandaríkjamenn hlutu 7 gull, 10 silfur og 8 brons. Ástralir 6 gull, 3 silfur og 4 brons, Rússar 5 gull, 7 silfur og 5 brons og Ung- verjar 3 gull, 3 silfur og 5 brons. Jordan með 52 stig Michael Jordan sýndi það og sannaði að hann hefur engu gleymt í körfuboltanum en eins og kunnugt er þá hætti hann fyr- ir keppnistímabiliö í fyrra og sneri sér að hafnabolta. Jordan tók fram skóna að nýju um helg- ina og lék ágóðaleik í Clticago- höllinní fyrir heimilislaus börn i borginni. Jordan leiddi hð sitt til sigurs gegn liði Scottie Pippens, 187-150. Jordan skoraði 52 stig og sýndi snilldartakta. UðJordaiis í hði Jordans léku Gary Payton, Seattle, John Starks og Charles Oakley hjá New York, Mitch Richmond, Sacramento og Vern- on Maxwell, Houston. í liði Pip- pens, sem var stigahæstur í sínu liði með 24 stig, léku í liðinu B.J. Armstrong og Tony Kukoc frá Chicago, Isah Rider, Minnesota, Nick Anderson, Orlando, Eric Murdock, Milwaukee, Antonio Davis, Indiana og Ron •Harper. Uppselt var á leikinn, 18.000 manns og söfnuðust 150.000 doh- arar. Lyníúrslitín Það verða Molde og Lyn sem leika tii úrslita um norska bikar- meistaratitilinn í knattspyrnu 23. oktober. Síðari undanúrslitaleik- imir voru um helgina. Rosenborg og Molde skildu jöfn, 2-2, og sigr- aði Molde samanlagt, 4-3. Moss sigraði Lyn í hinum undanúr- shtaleiknum, 2-1, en Lyn vann samanlagt, 3-2. Aab efst í Danmörku Þrír leikir voru í dönsku úr- valsdeildinni. Fremad tapaði fyr- ir Aab, 1-2. Ikast og Lyngby gerðu 2-2 jafntefli og Bröndby sigraði Silkeborg á útivefli, 2-0. Aab er efst í deildinni eftir sjö umferðir með 12 stig, Bröndby 11 og OB og Lyngby 9. Alþjóðlega Kumho-rallið: Þriðji sigur- inn hjá Ás- geiri og Braga Ásgeir Sigurðsson og Bragi Guð- mundsson á Metro bfl Sínum unnu sigur í Kumho-raflinu sem lauk í gær. Þeir félagar héldu forystunni nánast óslitið í gegn og urðu 1,57 mínútum á undan Rúnari Jónssyni og Jóni Ragnarssyni á Mazda. Þetta var þriðji sigur þeirra Ásgeirs og Braga í Kumho-rallinu. Feðgarnir Rúnar og Jón tryggðu sér Islandsmeistaratitilinn í ralli með því að hafna í öðru sæti en eins og kunnugt er þá hafa þeir Ásgeir og Bragi, íslandsmeistararar und- anfarinna ára, ekki keppt í sumar. Tæpt stóð hjá Steingrími Ingasyni og Hirti P. Jónssyni sem óku allan síðasta daginn með brotinn gírkassa og aðeins 5. gír virkan en náðu á ótrúlegan hátt að halda 3. sætinu. Bretarnir Peter Vassallo og Alan Cathers héldu 4. sætinu út í gegn og enduðu rúmum fimm mínútum á eft- ir Steingrími og Hirti á afar öflugum, nýjum Ford Escort. Mikil barátta stóð um 5. sætið þar til bflar féllu út á laugardaginn, en taktískur akstur hjá Oskari Ólafssyni og Jóhannesi Jóhannessyni á Mazda í flokki óbreyttra tryggði þeim íslandsmeist- aratitihnn í þeim flokki. í 6. sæti náðu Stefán Ásgeirsson og Witek Bogdanski á 8 strokka Ford Escort, en Stefán var líka í hörkubaráttu fram að síðasta degi við bíla sem féflu úr keppni. Rúsínan í pylsuendanum í Kum- ho-rallinu í ár var það afrek hins tæpt sextuga Arnar „dalabónda" Ing- ólfssonar og sonar hans að komast alla leið á 30 hrossa Trabant sínum á yfir 70 km meðalhraða. 2. deild kvenna í knattspyrnu: ÍBA krækti í meistaratitilinn - og komst 11. deildina ásamt ÍBV Úrslitakeppni 2. deildar kvenna lauk á föstudag með leik ÍBA og ÍBV á Akureyri. ÍBA sigraöi, 5-2, og eru Akureyrarstúlkurnar sigurvegarar 2. deildar 1994, en þær urðu aö vinna til að fara upp, og með þremur mörk- um til að verða meistarar. „Þetta var ágætur leikur hjá okk- ur, við áttum mjög lélegan leik gegn Fjölni í fyrsta leiknum þegar við töp- uðum 1-0 en náðuni okkur á strik gegn ÍBy,“ sagði Hinrik Þórhallsson, þjálfari ÍBA. „Ég gerði 3ja ára samn- ing við ÍBA og verð með liðið í tvö ár enn. Við setjum okkur markmið fyrir hvert ár og markmiðið fyrir þetta ár náðist," sagði Hinrik. ÍBV fylgir ÍBA upp í 1. deildina en þau hafa betra markahlutfall heldur en Fjölnir sem situr eftir í 2. deild. Liðin unnu hvert annað en marka- tala Fjölnis var lökust. Mirostau Mojsiuszko, þjálfari ÍBV, hefur verið að gera góða hluti með liðið og verð- ur hann áfram þjálfari. Úrslit 2. deildar: ÍBA.........2 10 15-33 ÍBV.........2 10 17-63 Fjölnir.....2 10 12-50 íþróttir Bragi Guðmundsson og Ásgeir Sigurðsson blómum skrýddir á þaki Metrós- ins fræga eftir að sigurinn var í höfn í gær. DV-mynd Brynjar Gauti Bikarkeppni KSÍ: Fram og Breiðablik urðu meistarar Halldór Halldórsson skrifer: Bikarkeppni KSÍ í 3. og 2. flokki karla lauk í gær á Valbjarnarvelli. Til úrslita í 3. flokki léku Fram og KR og sigruðu Framarar stórt, 5-1. Þrír KR-ingar fengu að sjá rauða spjaldið. í 2. flokki karla léku tfl úrslita Breiðabhk og Akranes og sigraði Breiðablik, 2-1, eftir spennandi og skemmtilegan leik. Nánar verður greint frá þessum leikjum á unghngasíðu síðar í vik- unni. UNHDOIELD ÁIRMAIMM Sundskóli Innritun stendur yfir í vetrarstarf sundskólans Boðið verður upp á: • Ungbarnasund • Sundnámskeið fyrir 1-6 ára • Sundnámskeið fyrir vatnshrædda • Sundnámskeið fyrir fullorðna o.fl. Veceksleit krossböndin Nú er ljóst að Tékkinn Jan Vecek mun ekki leika með HK í 1. deildinni í handknattleik í vetur. Hann sleit krossbönd í hné fyrir skömmu og verður frá keppni í hálft ár. HK- menn leita að örvhentri skyttu í stað- inn, en ljóst er að það verður ekki fyrrum leikmaður þeirra, Michal Tonar, sem hafnaði tilboði um að koma aftur til Kópavogsliðsins. Rhodesfesti fingurínn John Rhodes, þjálfari og leikmaður ÍR í körfuboltanum, meiddist á fingri í leik í Reykjavíkurmótinu um helg- ina þegar hann flæktist í körfunet- inu. Hann ætti þó að verða orðinn heill áður en íslandsmótið hefst. KR-ingar sigruðu Val KR-ingar sigruðu Val, 85-77, í topp- leik Reykjavíkurmótsins í körfubolta í gærkvöldi. ORUURVAL FYRIR TRES1\ L I AKA, RAFVIRKJA OG V FRABÆR VERÐ SENDUM í PÓSTKRÖFU UM ALT LAN ISELCO KEIFUNNI

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.