Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.1994, Side 3

Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.1994, Side 3
FIMMTUDAGUR 15. SEPTEMBER 1994 25 tónli0t I Eric Clapton blúsar á ný - platan From the Cradle boðar afturhvarf til upphafs tónlistarferilsins Eric Clapton hefur snúið sér að blústónlistinni á ný, tæpum þrjátíu árum eftir að hann yfirgaf popp- grúppuna Yardbirds - sem hann kallar svo - og fór að spila blús með John Mayall’s Bluesbreakers. Og hann segist allt eins vera aö hugsa um að halda sig við blúsinn það sem eftir er. Lofar þó engu. „Sumir tóniistarmenn geta spilað hvað sem er og fara létt með það. Ég hef prófað ýmislegt; tónlist i þjóð- lagastíl, kántrí og vestem - jafnvel djass-ognáttúrlegafulltafpoppi. En ég get ekki spilað neitt nema blús,“ segir hann. „Ég hef í raun og veru alltaf verið með annan fótinn á blússtígnum þótt menn hafl kannski ekki tekið eftir því á stundum." Clapton sendi í fyrradag frá sér plötuna From the Cradle. Á henni em sextán blúslög. Sum vel þekkt, önnur síður, en öll í gamla góða andanum. Enda segist listamaðurinn hafa lagt allt kapp á að láta lögin halda sínum upprunalegu einkennum. Meðal laganna má nefna Hooche Coochie Man, Motherless Child, Groaning the Biues, Driftin’ og Reconsider Baby. „Það var heilmikil yfirlega að ná öllu rétt og ég þurfti að beita mig hörðum aga til að geta sungið lögin eins og á að gera það,“ segir Clapton. „Ég hef að sjálfsögðu öðlast rétt til að syngja þessi lög eftir allt sem yflr mig hefur dunið á ævinni en ég verð aldrei jafti góðu^ og svörtu strákamir frá Mississippi. Það er erfiðast að syngja lög eftir Muddy Waters. Ég hef fengist við nokkur fyrr á ferlinum og flest reyndar í óþekktari kantinum. Að þessu sinni ákvað ég þó að takast á við Hoochie Coochie Man og ég hætti ekki fyrr en ég var orðinn fullkomlega ánægður með lagið. Við spiluðum það aftur og aftur. Lögin voru nefhiiega hljóðrituð „lifandi". Ailt var tekið upp í einu og ef einhver gerði mistök var annaðhvort byrjað upp á nýtt eða mistökunum leyft að halda sér. Flest lögin runnu inn á bandið í annarri tilraun en við höm- uðumst við Hoochie Coochie Man þar til við gátum ekki gert það betur.“ Unplugged breytti öllu Eric Clapton segist hafa lengi átt sér þann draum að taka upp blúsplötu en ekki þorað að láta verða af því fyrr en nú. „Viðtökur Unplugged-plötunnar skiptu öllu máli fyrir mig,“ segir hann. „Auknum aldri fylgir líka meira sjálfsöryggi en ef Unplugged hefði ekki fengið jafn frábærar við- tökur og raun varð á hefði ég enn ekki verið búinn að gera plötu eins og From The Cradle. Mér komu vin- nafn vikunnar I I » sældimar og viðtökumar í heild gjör- samlega á óvart. Á nýju plötunni er ég samt enn meira ég sjálfur en á Un- plugged. Héma er tónlistin sem mig langar að fást við og kann að flytja.“ Platan Unplugged var unnin eftir samnefndum sjónvarpsþætti sem Eric Clapton tók þátt i fyrir MTV sjónvarpsrásina. Fyrst í stað vildi hann raunar ekki láta gefa lögin í þættinum út á plötu en lét loks undan nauðugur viljugur. Hann þurfti ekki að sjá eftir því. Platan er sú lang- vinsælasta sem hann hefur sent frá sér til þessa og færði honum fjölmörg Grammyverðlaun og aðrar vegtyllur eftir að hún kom út. „Mér flnnst ég núna vera kominn þangað sem mig langar til að vera,“ segir hann. „Eg er að reyna að endurgjalda gömlu blúsumnum það sem þeir hafa kennt mér allt frá því að ég fór að hafa áhuga á tónlist. Ég man ennþá hrifninguna þegar ég heyrði í Bo Diddley og Chuck Berry í gamla daga. Og ekki minnkaði ánægjan við að kynnast því sem að baki þeirra bjó. Fyrst gaf maður Muddy Waters gaum. Þá lá leiðin til Roberts Johnsons og loks aftur til upphafs aldarinnar, aftur i vinnu- söngvana. Þetta var ómetanlegur skóli. Þegar ég hætti með Bluesbreakers ætlaði ég að halda áfram að spila blús. Enn betri blús. En það fór öðruvísi en ætlað var,“ heldur hann áfram og vísar þar til hljómsveitarinnar Cream. „Núna vonast ég til að geta haldiö mig við það sem mig langaði alltaf til að gera - og gerði best.“ Tónlistargetraun DV og Japis er léttur leikur sem allir geta tekið þátt í og hlotið geisladisk að launum. Leikur inn fer þannig fram að í hverr i viku eru birtar þrjár léttar spum- ingar um tónlist. Fimm vinningshafar, sem svara öllum spurningum rétt, hljóta svo geisladisk að launum frá fýr irtækinu Japis. Að þessu sinni em verölaunin nýútkominn diskur með með Skagfirsku söngsveitinni og heitir hann Kveðja heimanað Hér koma svo spumingamar: 1. Hvað heitir nýjasti diskurinn með hljómsveitinni Body Count? 2. Nefnið 3 söngvara á nýútkomna Hvað heftir nýr diskur með harmóníku- leikaranum Braga Hlíðberg? diskinum, Fagurt syngur svan- urinn. 3. Hvað heitir nýr diskur með harmóníkuleikaranum Braga Hlíðberg? Rétt svör sendist DV merkt: DV, tónlistargetraun Þverholti 11 105 Reykjavík Dregið verður úr réttum lausnum 22. september og rétt svör verða birt í tónlistarblaöinu 29. september. Hér era svörin úr getrauninni sem birtist 1. september: 1.1799 krónur. 2. 990 krónur. 3.199 krónur. Eric Clapton: Platan Unpiugged ruddi brautina fyrir þeirri nýju. Tónlistargetraun DV og Japis

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.