Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.1994, Page 3
FIMMTUDAGUR 22. SEPTEMBER 1994
25
tónlOt I
Bresk danshljómsveit
- The Prodigy treður upp í Kaplakrika
Löngum höfum viö íslendingar
liðið fyrir smæð eyjunnar okkar og
fólksfæð þegar innfLutningur á menn-
ingu annarra þjóða hefur komið til
tals. Þessi fyrrum staðreynd hefur
svo sannarlega verið hrakin það sem
af er þessu ári. Hvem tónlistarvið-
burðinn á fætur öðrum hefur rekið á
flörur okkar; Saint Etienne, Under-
world, David Byme, Björk og nú The
Prodigy.
Framtakssemin er nú í höndum
Kvikmyndafélags íslands hf. í sam-
vinnu við Midi Management Ltd. og
Concorde International Artistes.
Viðburðurinn mun eiga sér stað í
Kaplakrika laugardaginn 24. septem-
ber nk. Upphitunarhljómsveitir
verða Bubbleflies, T-World, Scope og
POK.
Upphafið
Fyrsta smáskífa hljómsveitarinn-
ar kom út í febrúar árið 1991. Hún bar
titilinn „What Evil Lurks“ og mark-
aði upphaf sveitarinnar á sinn hátt.
Platan er orðin nokkurs konar þjóð-
söngur „hardcore" tónlistarinnar og
er enn í dag einn eftirsóttasti dans-
„vinyllinn".
Að baki tónlistinni stendur hinn
tuttugu og tveggja ára gamli Liam
Howlett þó sveitin samanstandi í
raun af fjórum þegar hún kemur
fram. Auk Liams eru það Leeroy
Thornhill (dansari), Keith Flint
(dansari) og Maxim Reality (Master
of Ceremonies). Liam var eitt sinn
plötusnúður fyrir rappsveitina Cut to
Kill í London en tljótlega upp úr 1990
varð hann leiður á ofbeldisrappinu
og sneri sér að hippaboðskapnum
sem „rave“ tónlistin hefur upp á að
bjóða.
Liam er klassískt menntaður
píanóleikari sem átti sér þann draum
æðstan.....að taka upp nokkur lög
og koma þeim út á plötu . . .“ í dag
er hann einn eftirsóttasti maðurinn í
dansbransanum, kominn á heims-
mælikvarða.
Fyrsta stóra
platan . . .
. . . kom út 28. september 1992 og
ber hún nafnið „Thé Prodigy
Experience". Platan innihélt nýtt efni
auk laganna af þeim smáskífum sem
áður höfðu komið út. Sögusagnir um
að dansplötur seldust ekki voru
fljótlega kæfðar.
í fyrstu viku fór platan beint í
ellefta sæti breska vinsældalistans og
var á honum í 25 vikur samfleytt.
Platan náði gulli. Lög eins og „Every-
body in the Place“, „Fire“ og „Öut of
Space" náðu gífurlegum vinsældum
og innan árs hafði hljómsveitin
ferðast um heiminn þveran og endi-
langan aðdáendum sínum til mikillar
ánægju.
Liam hefur einnig verið eftirsóttur
í endurhljóðblöndun fyrir hinar
ýmsu hljómsveitir og er skemmst að
minnast lagsins „Zeros and Ones“
(með hljómsveitinni Jesus Jones) en
Prodigy endurhljóðblöndun þess lags
náði feiknavinsældum um allan heim
í fyrra.
nafn
vikunnar
Music for the Jitted Generation er nýjasta afrek hljómsveitarinnar Prodigy á útgáfusviðinu.
\ JL ,.Jf [ í : 'JZ- mi' f
fc.\v .á Æ
Heimsóknin
„Music for the Jdted Generation"
er nýjasta afrek sveitarinnar á út-
gáfusviöinu. Diskurinn fór rakleiðis
í fyrsta sæti breska sölulistans. Viku
eftir útgáfuna fór lagið „No Good
(Start the Dance)“ beint í fyrsta sæti
breska vinsældalistans og er nú í
fyrsta sæti í Belgíu, Hollandi, Þýska-
landi, Danmörku og Svíþjóð.
Nýi diskurinn hefur selst í 1500
eintökum á íslandi og má segja að
hljómsveitin sé í miklu uppáhaldi hjá
fólki á aldrinum 12-22 ára. Einnig má
minnast á að Sjónvarpið mun í kvöld
sýna 20 mínútna langan þátt um
bljómsveitina og mun þátturinn án
efa kynda vel undir þá spennu sem
myndast hefm- fyrir tónleikana 24.
september nk. GBG
Tónlistargetraun DV og Japis
Tónlistargetraun DV og Japis er léttur
leikur sem allir geta tekið þátt í og hlotið
geisladisk að launum. Leikurinn fer þannig
fram að í hverri viku eru birtar þrjár léttar
spumingar um tónlist.
Fimm vinningshafar, sem svara öllum
spurningum rétt, hljóta svo geisladisk að
launum frá fyrirtækinu Japis. Að þessu sinni
eru verðlaunin diskurinn Musicfor the Jilted
Generation með hljómsveitinni Prodigy sem
mun heimsækja landann og halda hér
hljómleika eftir 2 daga.
Hér koma svo spumingarnar:
1. Hvernig tónlist spilar hljómsveitin
Prodigy?
2. Hvað kostar diskurinn Music for The
Jilted Generation hjá Japis?
3. Hvað kostar diskurinn Allh' heimsins
morgnar hjá Japis?
Rétt svör sendist DV, merkt:
DV, tónlistargetraun
Þverholti 11
105 Reykjavík
Dregið verður úr réttum lausnum 29.
september og rétt svör verða birt í blaðinu 6.
október.
Hér eru svörin úr getrauninni sem birtist
8. september:
1. Þrír.
?. Tveir. , j ,, . , | ,
. 3.1799 krónur. AH j u 'i /gí
Að þessu sinni eru verðlaunin diskurinn Music for the Jilted Generation
með hljómsvertinni Prodigy sem mun heimsækja landann og halda héi
hljómleikaeftir2daga. srt/ífCT u tiiíi'í