Dagblaðið Vísir - DV - 29.09.1994, Blaðsíða 6
6
FIMMTUDAGUR 29. SEPTEMBER 1994
Neytendur
Forstöðumaður Manneldisráðs ráðleggur um mataræði fyrir veturinn:
Reglan um fjölbreytt
fæði í fullu gildi
- íslendingum hættir til að þyngjast á vetuma
„Sykur og fita flokkast ekki undir eiturefni, þetta eru fæðuefni, en mörg börn og unglingar borða hins vegar alltof
mikinn sykur, ekki síst i gosdrykkjum og sætindum. Meðal fullorðinna er algengara að fituneysla sé óhóflega
mikil,“ sagði Laufey m.a. í viðtalinu en hér situr hún tii borðs með fjölskyldunni. DV-mynd ÞÖK
„Gamla góða reglan um fjölbreytt
fæði er enn í fullu gildi en allar öfgar
eiga lítinn rétt á sér,“ sagði Laufey
Steingrímsdóttir, forstöðumaður
Manneldisráðs, aðspurð hvað við
ættum að leggja áherslu á varðandi
mataræði í vetur.
„Með fjölbreyttu fæði á ég þó ekki
bara við sína ögnina af hverju heldur
nægilegt magn úr hveijum fæðu-
flokki. Grænmeti og ávextir verða
t.d. oft út undan í fæði fólks og marg-
ir virðast þeirrar skoðunar að græn-
meti sé fyrst og fremst til skrauts
þegar mikið stendur til en ekki mat-
ur á sama hátt og kjöt eða fiskur.
Þetta viðhorf kemur sér illa því
grænmeti og ávextir eru auðug af
hollustuefnum. Helst ættum við að
borða bæði ávexti og grænmeti að
minnsta kosti tvisvar á dag og setja
grænmeti á diskinn til jafns við aðra
fæðu,“ sagði Laufey.
Veljið magrar vörur
„Það er þó ekki nóg að borða bara
grænmeti og ávexti, hver fæðuflokk-
ur þarf að eiga sinn sess í fæðinu.
Það er t.d. æskilegt að drekka 2-3
glös af mjólk eða borða sambærilegt
magn af mjólkurvörum dag hvem,
ekki síst vegna kalksins, og þá er
skynsamlegast að velja magrar vör-
ur því annars er hætt við að fitu-
neysla verði of mikil," sagði Laufey.
Hún sagði brauð og annan kommat
heldur ekki mega verða út undan þvi
hann veitir okkur trefjar, B-vítamín,
járn og sterkju. „Kjöt, fiskur og
baunir eru bæði prótín- og járnríkar
fæðutegundir og því ættum við að
borða a.m.k. einu sinni á dag úr þess-
um flokki matvara. Fitu- og sykur-
neyslu reynum við hins vegar að
stilla í hóf þótt öfgar í slíku eigi held-
ur ekki rétt á sér. Sykur og fita flokk-
ast ekki undir eiturefni, þetta eru
fæðuefni, en mörg börn og unglingar
borða hins vegar alltof mikinn syk-
ur, ekki síst í gosdrykkjum og sæt-
indum. Meðal fullorðinna er algeng-
ara að fituneysla sé óhóflega mikil.
Með því að smyija þunnu lagi á
brauðið og velja fituminni mjólkur-
vörur verður fituneysla yfirleitt
hæfileg en það er ekki æskilegt að
borða enga fitu,“ sagði Laufey.
Þyngri á veturna
Aðspurð sagði Laufey að hver og
einn ætti að miða magnið við sína
eigin orkuþörf. „Ef fólk borðar fjöl-
breytt fæði og notar sykur og fitu í
hófi þá er lítil hætta á að það fitni.
Ef tUgangurinn er hins vegar að
grenna sig þarf að minnka skammt-
ana og leggja mestu áhersluna á að
minnka það sem er sætt og feitt, velja
t.d. magrar mjólkurvörur og magurt
kjöt og fisk,“ sagði Laufey.
Hún sagði áherslubreytingu í mat-
aræði frá sumri til vettrar stjórnast
fyrst og fremst af framboði. „Þörfin
er ekki önnur nema ef vera kynni
að maður hreyfði sig meira eða
minna á einni árstíð en annarri, sem
er einstaklingsbundið. Rannsóknir
sýna að íslendingar eru aöeins
þyngri á vetuma en á sumrin. Fólk
er greinilega svolítið að safna forða
yfir veturinn en það er sjálfsagt
vegna þess að það hreyfir sig minna
en ekki að það sé okkur eðlilegt."
Lítið í eigin barm
Aðspurð hvort hún ráðlegði fólki
að fylgjast grannt með mataræðinu
og fjölda skammta úr hveijum fæðu-
flokki sagði hún að yfirleitt væri
fremur leiðinlegt að velta því stöðugt
fyrir sér hvað maður setti ofan í sig,
það tæki jafnvel ánægjuna af því að
borða góðan mat. „Hins vegar hafa
allir gott af því að líta í eigin barm
af og til og spyrja sjálfa sig hvort
þeir borði nægilega hollan og góðan
mat. Hvort einhver fæðuflokkurinn
sé greinilega út undan, t.d. græn-
meti, ávextir eða mjólkurmatur og
hvort sykur og fituneysla sé ef til
vill óhófleg. Það er oft hægt að bæta
heilsu og líðan með tiltölulega litlum
breytingum, t.d. fá sér ávöxt eöa safa
í staðinn fyrir fjórða kaffibollann,"
sagði Laufey.
Smjör og smjörlíki i hófi
Aöspurð sagði Laufey að hægt væri
að leggja smjör og smjörlíki að jöfnu
m.t.t. hollustu. „Þetta er hvort
tveggja hörð fita sem við hvetjum
fólk til að nota í hófi. Hörð fita er í
föstu formi við stofuhita og hún hef-
ur að geyma ýmist mettaðar eða
trans-ómettaðar fitusýrur. Mettaðar
fitusýrur er að finna í smjöri og kjöt-
fitu en trans-fitusýrur eru í hertri
fitu, t.d. smjörlíki. Við hvetjum fólk
til að nota harða fitu sparlega, hvort
heldur um er að ræða smjör eða
smjörlíki, en velja fremur mjúka fitu
sem er í fljótandi formi við stofuhita,
t.d. ohur, þar sem því verður við
komið,“ sagði Laufey að lokum.
Sértilboð og afsláttur:
KEA-Nettó
Tilboðin gilda tfi sunnudags..
Þar fást MS beyglur pizza, 6 stk.,
á 139 kr., Frón smellur, 225 g, á
82 kr., Kjarna appelsínumarmel-
aði, 400 g, á 98 kr., Kjarna sól-
beijasulta, 400 g, á 98 kr., Lottó
úlpur á 3.995 kr., Tríkó sokkar, 3
pör, á 482-618 kr. (e. stærð),
kuldaskór á 1,495 kr„ bama-
sokkabuxur á 695 kr. og barna-
náttfót á 245 kr„ vinnuskyrtur á
995 kr. Kynning á Kim’s frönsk-
um m/papriku fimmtudag til
laugardags á 119 kr. og sokka-
buxnakynning á fóstudag.
Áskriftarsími DV er 63«27»00
4 /:■ IÉÉ ik;.. Ævintýraferðir
A m í hverri viku
til heppinna
áskrifenda
DV!
Island
Sækjum
það heim!
Sértiiboð og afsláttur:
Kjöt og fiskur
Tilboðin gilda til fimmtudags.
Þar fæst lambaframhryggur á 669
kr. kg, svínahnakki í sneiðura á
670 kr. kg, sneitt bacon á 595 kr.
kg, Cheerios, 425 g, á 199. kr.,
Sunquick safi, 840 ml, á 299 kr„
Libby’s tómatsósa, 567 g, á 79 kr„
Royal í skex, 200 g, á 99 kr. og DDS
púðursykur, 500 g, á 59 kr.
Garöakaup
Tilboðin giida til laugardags.
Þar fæst svínahnakki m/beini á
699 kr. kg, folaldahakk á 330 kr.
kg, svínabógur á 445 kr. kg,
kindakæfa á 599 kr. kg, jarðarber,
250 g, á 199 kr„ kínakál á 39 kr.
kg, vatnsmelónur á 95 kr. kg,
gular melónur á 89 kr. kg, Annas
piparkökur, 2 teg„ 250 g, á 109
kr„ nestispoki m/rennilás, 25 stk„
á 215 kr„ 4 korna Musli, 400 g, á
125 kr. og pasta í pokum, 500 g, á
79 kr. og ísl. tómatar 129 kr. kg.
Fjarðarkaup
Tilboðin gilda til fóstudags. Þar
fást ferskar perur á 79 kr. kg, gul
epli á 79 kr. kg, sólberjasulta, 400
g, á 89 kr„ appelsinumarmelaði,
400 g, á 89 kr„ kremkex, 500 g, á
139 kr„ vínarterta á 198 kr„ Fanta
appelsín/lemon, 21, á 98 kr„ Twist
pokar á 169 kr„ þriggja koma
formbrauð á 98 kr„ rauðvínsleg-
inn lambaframpartur á 798 kr.
kg, bacon pylsa á 398 kr. kg,
nautahakk, 1. fl„ á 498 kr. kg,
mjúkís, 2 1, á 345 kr. og mais-
stubbar, 350 g, á 99 kr.
10-11
Tilboðin. gilda til miðvikudags.
Þar fást Pampers bleiur á 798 kr„
lifur á 198 kr. kg, 5 slátur í kassa
á 2.395 kr„ Komax rúgmjöl, 2 kg,
á 78 kr„ saltkjöt, 1 fl„ á 398 kr.
kg, hangikjöt, niöurs. framp., á
498 kr. kg, ítalskar ömmu pizzur
á 248 kr„ Lambhagasalat á 68 kr.
og eldhúsrúllur, 4 stk„ á 148 kr.
Bónus
Tilboðin gilda til miðvikudags,
eða á meðan birgðir endast. Þar
fást svina „stórkaup," 2,8 kg, á
849 kr„ Drippers bleiur á 1.299
kr„ brauðskinka á 649 kr. kg,
London lamb á 579 kr. kg, heitur
súkkulaðidrykkur, 700 g, á 197
kr„ Dole rúsinur, 1 kg, á 169 kr„
ljósaperur, 60 W/75 W/100 W, á
29 kr„ After Eight, 200 g, á 197
kr„ Frón smellur, 2 pk„ á 95 kr„
Svali, 2 1, á 79 kr„ Létta viðbit á
69 kr„ tómatar á 89 kr. kg, ufsi á
99 kr. kg og vasaljós, 2 stk.
m/rafhl„ á 225 kr. Holtagarðan
örbylgjuofh m/snúningsdiski á
12.900 kr„ verkfærakassi á 159
kr„ 100 umslög á 197 kr„ hand-
klæði, 50x1 m, á 197 kr„ barna-
samfella m/inyndum á 269 kr„
ungbamasokkabuxur á 187 kr„
ungbama kuldalúffur á 197 kr.
og barna og unglinga kuldalúffur
á 439 kr.
TUboðin gilda til miðvikudags.
Verðið miðast við staögreiðslu.
Þar fást Osram Ijósapemr, 40 W
og 60 W, á 49 kr„ Mackintosh
Quality Street, 227 g, á 198 kr„
Heinz bakaðar baunir, 420 g, á 41
kr„ Heinz kremsveppasúpa, 400
g, á 52 kr„ Hinari ávaxtapressa á
1.494 kr„ 10 kerti á 159 kr. og 6
manna hnífapör á 1.999 kr.
Hagkaup
TUboöin gilda til miðvikudags.
Þar fæst Pepsi max, 2 1, á 99 kr„
Myllu innbökur, 300 g, 2 teg„ á
229 kr„ San Marco pitsur, 2 teg„
á 229 kr„ Cote d’or bouché sæl-
keramolar, 2 teg„ á 279 kr„
Kjama sultur, 400 g, 2 teg„ á 99
kr„ Ryvita hrökkbrauð, 2 teg„ á
49 kr„ Marguese franskar kart.,
750 g, á 99 kr„ brasihskar gular
melónur á 79 kr. kg, Húsavikur
jógúrt, 5 teg„ á 69 kr. og nýsjá-
lenskt kiwi á 159 kr. kg.