Dagblaðið Vísir - DV - 29.09.1994, Qupperneq 3
FIMMTUDAGUR 29. SEPTEMBER 1994
25
Þeir eru ungir, efnilegir, alíslensk-
ir og kaUa sig Maus. Hljómsveitar-
nafnið hringir bjöllu en hvaðan
þekkir maður það? Maus þýðir á
íslensku það „að dunda sér“ en Maus
er líka nafnið á hljómsveitinni sem
vann Músíktilraunir í ár. Hljóm-
sveitina skipa Birgir Steinarsson
(gítar/söngur), Páll Ragnar Pálsson
(gítar), Daníel Þorsteinsson (tromm-
Hljómsveitin Maus mun halda útgáfutónleika í Rósenbergkjallaranum 13. október nk. DV-mynd ÞÖK
►T4
líka gert undanfarið ár við hin ýmsu
tækifæri en útgjöldin eru mikil og
tekjur litlar. Að þeirra mati telst
útgáfa á íslandi til áhugamáls
hverrar hljómsveitar fyrir sig. Platan
var tekin upp í sumar, jafnt í stúdíó
Sýrlandi og Gný. „Við þurftum að
sýna okkur og sanna til þess að fá
þessa plötu útgefna en við erum
ánægðir með árangurinn."
„Allar heimsins kenningar
... og ögn meira"
- alíslensk hljómsveit með nýja plötu í október
ur) og Eggert Gíslason (bassi). Fyrsta
stóra platan kemur út nú í október
eftir aðeins eins árs samstarf hljóm-
sveitarinnar en hvemig tónlist má
markaðurinn búa sig undir frá
hljómsveitinni Maus?
„Nýbylgjurokk...
... sagði maðurinn. „Þarna má
kannski finna áhrif frá venjulegu
rokki, poppi og jafnvel danstónlist, en
við spilum fyrst og fremst ný-
bylgjurokk," segir Birgir Stein-
arsson, söngvari og aðaltextasmiður
hljómsveitarinnar. Birgir segir einn-
ig allar textasmíðar fara fram á
móðurmálinu. „Það er erfiðara að
syngja á íslensku en ensku fyrir
íslenskan markað. En við erum að
syngja fyrir íslendinga og gerum það
þess vegna á íslenskunni, hversu
ómóðins sem það kann að virðast. Ef
við værum að gefa út á erlendum
markaði myndum við hiklaust semja
enska texta við lögin okkar.“ í textum
nýju plötunnar má finna skírskotanir
í trúmál, sjónvarpsgláp og upplifanir
af ýmsu tagi. Strákamir taka þó skýrt
fram að aðaláherslan sé lögð á tón-
listina.
Útgáfa er áhugamál
Frumverk drengjanna hefur fengið
nafnið „Allar heimsins kenning-
ar ... og ögn meira“ og skal gefin út
3. október næstkomandi. Platan er
gefin út f samvinnu við Smekkleysu
hf. og mun Japis þá sjá um dreifingu
plötunnar sem inniheldur 9 lög.
Peningalega séð verður tónlistin enn
að teljast áhugamál hjá ungum og
efnilegum tónlistarmönnum sem
þessum. Þeir hafa einsett sér að spila
einungis eigin tónlist, sem þeir hafa
Spila með skoskri
hljómsveit
6. október næstkomandi kemur
skoska hljómsveitin Dawson til
landsins og mun hún spila á Tveim
vinum það kvöld. Hljómsveitin Maus
hefur verið valin til þess að hita upp
fyrir þessa skosku kappa og verður
það að teljast til stærri viðburða sem
hljómsveitin hefur tekið þátt í. Maus
mun einnig halda útgáfutónleika í
Rósenbergkjallaranum 13. október
nk. Hljómsveitin mun síðan halda
áfram að kynna plötuna með tón-
leikahaldi fram að jólum. Svo vonum
við bara að strákamir halda áfram
„að dunda sér“ og fari að vinna að
annarri plötu.
GBG
Tónlistargetraun DV og Japis er
léttur leikur sem allir geta tekið þátt
í og hlotiö geisladisk aö launum.
Leikur inn fer þannig fram að i hverri
viku eru birtar þrjár léttar
ingar um tónlist.
Fimm vinningshafar, sem svara
öllum spurningum rétt, hljóta svo
geisladisk að launum frá fyrirtækinu
Japis. Að þessu sinni er það diskur
með lögum Bjarkar, The Best Mixes
from the Album - Debut for All
People That Don’t Buy White-Labels
(6 laga diskur með endurhljóð-
blöndun), sem er í verðlaun.
Hér koma svo spumingamar:
1. Hvaða hljómsveit gaf nýlega út
plötuna Klæðskeri keisarans?
2. Úr hvaða hljómsveit eru með-
limir 66?
3. Hver eftirtalinna hljómsveita
gefur ekki út plötu fyrir jólin:
Bubbleflies, Dos Pilas, Unun, Ný
dönsk, Maus?
Rétt svör sendist DV, merkt:
DV, tónlistargetraun
Þverholti 11
105 Reykjavík
Dregið verður úr réttum lausnum
6. október og rétt svör verða birt í
blaðinu 13. október.
Hér eru svörin úr getrauninni sem
birtist 15. september:
1. BomDead.
2. Þrjú nöfn: Garðar Cortes, Kol-
beinn Ketilsson, Kristinn Sig-
mundsson, Rannveig Braga-
dóttir, Sigrún Hjálmtýsdóttir,
Sólrún Bragadóttir eða Sverrir
Guðjónsson.
3. í léttum leik.
Gefur hljómsveitin Bubbleflies út plötu fyrir jólin?
DV-mynd JAK
Tónlistargetraun DV og Japis