Dagblaðið Vísir - DV - 22.10.1994, Blaðsíða 2
26
LAUGARDAGUR 22. OKTÓBER 1994
Ferðir_____________________________________pv
Sædýrasafnið í Baltimore:
Höfrungar að leik og
líkt eftir hitabeltinu
- af verslun, afþreyingu og menningarlífi í Baltimore, Washington og Annapolis
Innri höfnin. Húsið með glerpýramídunum er Sædýrasafnið.
í Baltimore og nágrenni er afþreying fyrir alla fjölskyld-
una. Mikilvægt er að skipuleggja daginn vel fyrir fram
og njóta þannig ríkulega þess sem Bandaríkin hafa
upp á að bjóða. DV-myndir GM
Leiðsögukona í Annapolis klædd í 18. aldar föt til að
gefa betri tilfinningu fyrir þeim tíma sem verið er að
fjalla um.
Baltimore í Maryland í Bandaríkjun-
um hefur á undanförnum árum vax-
ið svo mjög sem borg ferðaþjónustu
og athafnalífs að eftir er tekið innan-
lands sem utan. Fyrir um tveimur
áratugum voru þar augljós hnign-
unareinkenni og samdráttur á öllum
sviðum. Undir forystu Williams D.
Schaefers, þáverandi borgarstjóra og
núverandi ríkisstjóra í Maryland,
var þá hafist handa um algjöra end-
ursköpun atvinnulífs og borgar-
skipulags. Árangurinn varð glæsi-
legur og er almennt talinn einn hinn
markverðasti af því tagi í Bandaríkj-
unum á síðari árum. Baltimore er
nú orðin 13. stærsta borg landsins
og fimmta stærsta flutningahöfnin.
Miðborgin státar af iðandi mannlífi,
verslunum, söfnum og hvers kyns
aíþreyingu. Ferðafólk streymir að
hvarvetna úr heiminum og frá öðr-
um hlutum Bandaríkjanna.
Á kortið
hjá íslendingum
Baltimore er smám saman að kom-
ast á kortið hjá íslendingum enda
hafa Flugleiðir haldið uppi samgöng-
um þangað með hléi um nokkurt
árabil.
Baltimore hefur marga kosti fyrir
ferðalanga, íslendinga sem aðra. Og
vilji menn líta í kringum sig er ekki
nema um einnar stundar akstur til
höfuðborgar Bandaríkjanna, Was-
hington, og um tveggja stunda akstur
til höfuðborgar Marylands, Anna-
polis, sem er afar sérstök borg gam-
alla húsa og viðkunnanlegs and-
rúmslofts.
Bandaríkjamenn eru góðir heim að
sækja. Hvarvetna mætir mönnum
vingjamlegt viðmót. Verðlag er yfir-
leitt í lægri kantinum miðaö við það
sem við þekkjum hér á landi og gengi
dollars gagnvart íslensku krónunni
afar hagstætt þessa dagana. í versl-
unarmiðstöðvunum er hægt aö gera
reyfarakaup.
Skemmtilegt
sædýrasafn
Flugið frá Keflavík til Baltimore
tekur rúma sex tíma og síðan er um
fjögurra stunda munur á tímanum
hér heima og þar. Þegar lent er í
Baltimore er klukkan að ganga tólf
á miönætti að íslenskum tíma en að
verða átta að staðartíma. Til að jafna
sig á tímamuninum er því rétt að
fara í háttinn með fyrra fallinu hafi
menn ekki sofið þeim mun betur í
flugvélinni.
Þar sem almenningssamgöngur í
Bandaríkjunum eru yfirleitt ekki
eins fullkomnar og í Evrópu er skyn-
samlegt að leigja sér bíl áður en farið
er úr landi og aka sjálfur. Vegir eru
vel merktir og akstur á þjóðvegum
ekkert vandamál því Bandaríkja-
menn eru að jafnaði tillitssamir öku-
menn. Flugleiðir hafa gert samning
við bílaleiguna Hertz og er afgreiðsla
hennar í anddyri flugstöðvarbygg-
ingarinnar í Baltimore.
Hver og einn ferðalangur sem til
Baltimore kemur ræður að sjálf-
sögðu sinni dagskrá. Sumir vilja
rölta um miðborgina og byrja dvöl-
ina á rólegu nótunum með því að
sækja söfn eða veitingastaði, aðrir
fara strax á vit ævintýra í nágranna-
borgunum eða út í verslunarmið-
stöðvamar.
í Baltimore er margt að sjá á tiltölu-
lega htlu svæði. Mest er um að vera
við Innri höfnina og í miðborginni.
Af stööum sem mæla má sérstaklega
með kemur Sædýrasafnið (National
Aquarium) fyrst upp í hugann. Það
mun eitt stærsta og tæknivæddasta
safn sinnar tegundar í Bandaríkjun-
um. Meðal undra þar inni er sérstakt
svæði sem líkir eftir dýralífi og
gróöri hitabeltisins. Höfrungar sýna
listir sínar á degi hverjum og er
hreint ótrúlegt að sjá hvað hægt er
kenna þessum merkilegu skepnum.
Þegar farið er um Innri höfnina er
sjálfsagt að leigja sér bát (Water Taxi)
og sigla um hafnarsvæðið. Bátamir
stoppa á um 17 stöðum við höfnina
þar á meðal við Sædýrasafnið.
Fjöldi skemmtilegra verslana er í
Baltimore, t.d. Lexington markaður-
inn, matvörumarkaður sem er elsti
markaður Bandaríkjanna sem er
innandyra. Steinsnar utan við Balti-
more er síðan verslunarmiðstöðin
Towson Town Centre. Hún er heim-
ur út af fyrir sig. Þeir sem fara til
Bandaríkjanna til þess eins að versla
geta í rauninni dvalið þar allan tím-
ann og sífelit verið að uppgötva eitt-
hvað nýtt.
I fótspor 20 milljóna
Höfuðborg Bandaríkjanna, Was-
hington, er ekki stórborg af sama
tagi og t.d. New York. En hún hefur
margvíslegt aðdráttarafl og hana
sækja heim um 20 milljónir ferða-
manna á ári hverju. Ef menn eru á
annað borð staddir á þessum slóðum
er freistandi að sjá með eigin augum
ýmsa þá staði og mannvirki sem svo
mjög hafa verið og eru í heimsfrétt-
unum: Hvíta húsiö, þinghúsið Capi-
tolium, Watergate-bygginguna,
Kennedy-listamiöstöðina, Arlington
kirkjugarðinn eða söfnin einstæðu í
miðborginni, t.d. flug- og geimferða-
safnið.
Gaman er líka að skoða gamla
bæjarkjarnann, Georgetown, þar
sem meðal annars er samnefndur
háskóli og skemmtilegt verslunar-
hverfi. íþróttaunnendur geta bókað
miða á einhvern þeirra reglulegu
körfuboltaleikja sem fram fara.
Veitingastaðir eru fiölmargir í höf-
uðborginni, en ætli menn að fara á
einhvern hinna frægari staða, s.s.
Kinkead’s við Pennsylvaniu stræti,
er rétt að panta borð með góðum fyr- ’
irvara.
Sérstætt andrúmsloft
Þótt Baltimore sé stærsta og helsta
borg í Marylandríki er Annapolis
höfuðborg frá fornu fari. Annapolis
er ákaflega fallegur bær og vinaleg-
ur. Gömul hús, frá 17. og 18. öld, eru
fiölmörg og setja sterkan svip á bæ-
inn. Sum þeirra er hægt að skoða
með sérstökum leiðsögumönnum.
Þeir sem ekki hafa tíma til þess geta
hins vegar notið þess andrúmslofts
og stemmningar sem gömlu húsin
skapa.
í Annapohs er skóli bandaríska sjó-
hersins og stunda á fimmta þúsund
sjóliðsforingjaefni þar nám á vetri
hveijum. Snýst bæjarlífið að tölu-
verðu leyti um skólann og nemend-
ur.
Annapolis er á síðari árum orðinn .
mjög vinsæll áningarstaður banda- ’
rískra siglingamanna. Smábátahöfn-
in þar er heimahöfn fiölmargra segl-
báta og skemmtibáta. Á dögunum
var þar alþjóðleg bátasýning sem
menn sóttu hvaðanæva úr heimin-
um.Hægtersiglaumhöfninaogfara (
til dæmis á milli veitingahúsa á litl-
um bátum.
Höfrungar leika listir sínar í Sædýrasafninu í Baltimore. Hæfni þeirra er
með ólíkindum.