Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.1994, Síða 3
FIMMTUDAGUR 27. OKTÓBER 1994
25*
t A
tónl©t:
„Uppgangs- og hnignunar-
saga almættisins...
sem skapara alheims" - BJF með sólóplötu
Mi
Hann er hvað þekktastur sem einn
aðallagahöfundur hljómsveitarinnar
Nýdönsk sem þegar hefur gefið út 6
breiðskífur. Með hljómsveitinni hef-
ur verið nóg að gera undanfarið við
spilun á fjölum Þjóðleikhússins. En
fyrir utan dyr leikhússins hefur
hljómsveitin hætt störfum í bili.
Þetta hefur gefið meðlimum sveit-
arinnar tækifæri til að gera eitthvað
annað, tækifæri sem Bjöm Jörundur
Friðbjömsson greip fegins hendi því
þann 25. okt. síðastliðinn kom út
fyrsta einherjaplata kappans og nefn-
ist hún einfaldlega BJF.
Greip fyrsía tækifæri...
... sem gafst,“ segir BJF. „Ég var
búinn að ganga með hugmyndina
lengi í maganum en fram að þessu
hafði mér ekki gefist tækifæri til þess
að framkvæma hana.“
Nýja platan inniheldur 10 lög og
era þau öll komin úr smiðju BJF. Sér
til aðstoðar fékk Bjöm einvalalið tón-
listarmanna. Eyþór Gunnarsson sá
um píanóleik, Þorsteinn Magnússon
spilaði á gítar, Ólafur Hólm tromm-
aði, Bjöm sá um bassa, kassagítar og
gítar og Sigurður Bjóla Garðarsson
aðstoðaði sem upptökumaður og
alhliða tónlistarmaður í senn.
„Þetta var hópurinn sem gerði
plötuna sem aðstoðaði mig við að
útsetja," segir Bjöm en sjálfur var
hann upptökustjóri. „Þetta er alltaf
spuming um samvinnu." Auk ofan-
talinna tónlistannanna koma Eyþór
Arnalds, Daníel Á. Haraldsson og
K.K. lítillega við sögu á plötunni.
Þemað er
„Ég hef alltaf leitast við að gera
popptexta sem fjalla um annað en
ástir og örlög ungmenna í nútíð eða
fortíð.“ Lögin á plötunni vora meira
og minna samin á tímabilinu jan-
maí 1994, á kassagítar og píanó. Þema
plötunnar var síðan ákveðin i janúar
og textagerðin felld inn í.
„Heildarsvipurinn er í textagerð-
inni frekar en tónlistarstefnunni. Ég
elti ekki tiskustrauma danstaktsins
en á plötunni er miki* af gítarspili,"
segir BJF. Þema plötunnar er: „Upp-
gangs- og hnignunarsaga almættisins
sem skapara alheims." Til nánari
útskýringar er það almættið sem
segir söguna á plötunni....og það
er gaman að horfa á hlutina frá hans
sjónarmiði“.
Að sögn BJF sturlast almættið á
leið sinni í gegnum sköpunarsöguna,
en til þess að fá nánari útskýringu
eð honum en hún hefur verið tilbúin í nokkui
ækisins er einfaldlega sú að nýlega kom
rince og því ekki talið heillavænlegt aó ge
íanninum strax þótt hann hafi skipt um naf
ega koma nióur á sölu beggja platnann
ymbol man) er hinn fúlasti enda afkastamik
hans séu gefnar út jafnóðum c
:alsmanna hans er honum nol
þeim út. Að si
nafn
vikunnar
Þann 25. okt. síðastliðinn kom út fyrsta einherjaplata Bjöms Jörundar og nefnist hún einfaldlega BJF.
verður hver og einn að hlusta á plöt-
una:
Örþreyttur uppgjafatrúður
Klippingin sem BJF hefur borið á
undaförnum vikum hefur vakið
verðskuldaða eftirtekt. „Hún er til
þess að undirstrika örþreyttan
uppgjafatrúðinn sem er sögumaður
plötunnar."
Þann 10. nóvember nk. verða
haldnir útgáfutónleikar í Tunglinu.
Tónleikagestir fá þá að vera í beinu
sambandi við Himnasmiðjuna, auk
þess sem mikil sýning verður sett í
gang. Fram að jólum verða síðan
hljómleikar í framhaldsskólum, á
öldurhúsum Reykjavíkurborgar ogá ^
Akureyri. Björn Jörundur er sem
sagt ekki bara bassaleikari, hann er
tónlistarmaður.
GBG
Tónlistargetraun DV og
Japis er léttur leikur sem allir
geta tekið þátt í og hlotið
geisladisk að launum.
Leikurtnn fer þannig fram að
í hverri viku em birtar þrjár
léttar spumingar um tónlist.
Þrír vinningshafar, sem
svara öllum spumingum rétt,
hljóta svo geisladisk að
launum frá fyrirtækinu
Japis. Að þessu sinni er það
önnur plata Bubbleflies,
Pinocchio, sem er í verðlaun,
en Bubbleflies höfðu áður
gefið út plötuna The Worid Is
still Alive.
Hér koma svo spurning-
amar:
1. Hljómsveitin Olympia
mun gefa út plötu á
næstu dögum. I hvaða
hljómsveit var eini með-
limur hljómsveitarinnar
áður?
2. Hljómsveitin Spoon gef-
ur út plötu á næstu vik-
um. Hvað heitir lagið
sem hún slóg í gegn með
í sumar?
3. Nýjasta plata Bubbleflies
heitir Pinocchio. Hvað
þýðir Pinocchio?
Heppnir vinningshafar fá nýjustu plötu Bubbleflies, Pinocchio, í verðlaun.
Rétt svör sendist DV,
merkt:
DV, tónlistargetraun
Þverholti 11
105 Reykjavík
Dregið verður úr rétt-
um lausnum 3. nóvember
og rétt svör verða birt í
blaðinu 10. nóvember.
Hér eru á eftir koma
svörin úr getrauninni
sem birtist 13. október:
1. Einn.
2. The Boys 2.
3. Tvær.