Dagblaðið Vísir - DV - 03.11.1994, Page 3
?IMMTUDAGUR 3. NÓVEMBER 1994
25
tónli0t I
Diddú syngur dægurlög
„Flest eru þetta lög sem ég hef
hrifíst af í flutningi annarra söng-
kvenna. Lög sem hafa mótað tónlist-
arsmekk minn, jafnvel allt frá
fjögurra til fimm ára aldri, Heyr mína
bæn, Siboney og fleiri slík,“ segir
Sigrún Hjálmtýsdóttir - Diddú - um
lagavalið á nýrri plötu sinni sem kom
út um síöustu helgi. Platan nefnist
Töfrar. „Þama eru nú reyndar líka
tvö lög sem hafa ekki komið út áður,“
bætir hún við. „Annað heitir ísland
og er eftir Jóhann G. Jóhannsson.
Hitt er eftir Gunnar Þórðarson og
heitir Nú á ég allt. Hann samdi það
sérstaklega fyrir mig. Ég hef
nefnilega aldrei fyrr sungið lag sem
var sérstaklega ætlað mér svo að ég
fór til Gunnars og bað hann um eitt.“
Hún brosir. „Gunnar brást náttúr-
lega vel við og samdi handa mér lag
og Jónas Friðrik gerði við það texta.“
Það er Sinfóníuhljómsveit íslands
sem leikur með Diddú á nýju
plötunni. Bretinn Robin Stapleton
stjómar, Þórir Baldursson útsetur og
Björgvin Halldórsson hafði umsjón
með útgáfunni og stjórnaði upp-
tökum.
„Robin Stapleton stjómaði hljóm-
sveitinni á hálfri síðustu plötunni
minni,“ segir Diddú. „Við völdum
hann núna því að hann er vanur að
vinna undir mikilli pressu. Við
höfðum nauman tíma og urðum að
vinna hratt. Stapleton stjórnar
hljómsveit BBC í beinni útsendingu
aðra hverja viku. Hann er líka
alvanur að vinna með Kiri Te
Kanawa. Að auki þekkir hann vel til
verka þegar léttari tegund tónlistar
er annars vegar. Maður verður að
velja mann sem ræður vel við þessa
stærð verkefnisins þegar ætlimin er
að vinna hratt.“
Djassplata næst?
Það er nokkuð algengt að söngv-
arar sem fást alla jafna við sígilda
tónlist syngi einnig dægurlög inn á
plötur. Tenórsöngvarar hafa verið
sérlega iðnir við það en Diddú segir
að sópransöngkonur séu að færa sig
upp á skaftið. Kiri Te Kanawa hefur
sent frá sér slíka plötu og sömuleiðis
Jessy Norman.
„Eg hóf minn söngferil í dægur-
tónlistinni og það stóð aldrei til að
leggja hana alveg á hilluna," segir
Diddú. „Ég er að vona að með nýju
plötunni sé ég að brúa bil milli
sígildrar tónlistar og dægurtónlistar.
Ég sem einungis um eina plötu í einu
við útgefandann en ef Töfrar ganga
vel gæti ég vel hugsað mér að gera
aðra svona plötu einhvem tíma síðar.
Það er af nógu að taka, bæði íslensk-
um lögum og erlendum. Síðan hef ég
alltaf haft áhuga á léttum sígildum
djassi og gæti vel hugsað mér að
hljóðrita slíka plötu. Ég vil hins vegar
ekki ganga of rösklega til verks. Það
borgar sig að láta nokkur ár líða á
milli platna. Markaðurinn er svo lítill
að það er ekki á færi manna nema
Bubba Morthens að senda árlega frá
sér plötu.
Kamelíufrúin
Diddú fer með hlutverk Kamelíu-
■y 1
¥Íkunnar
Diddú: Eg gaeti vel hugsað mér að gera aðra plötu í þessum dúr síðar. Af nógu efni er að taka, erlendu og íslensku.
Ljósm. Sigurgeir Sigurjónsson
frúarinnar i óperunni La Traviata í
íslensku óperunni eftir áramót.
Syngur þar á móti Ólafi Árna
Bjamasyni og segist hlakka mikið til.
Hún er á fórum til Ítalíu til að búa sig
undir hlutverkið.
„Við ætlum að prófa að sigla til
Evrópu eins og fólk gerði í gamla
daga. Það er einhver rómantík eða
ævintýraljómi yfir þeim ferðamáta,"
segir Diddú. „Við verðum í Verona i
nokkrar vikur. Þar ætla ég að vinna
með raddþjálfaranum mínum og
túlkunarmeistaranum sem hjálpar
mér að kafa í hlutverkið. Það
útheimtir að ég þarf að sameina vel
leikræna þáttinn og hinn söngræna
svo að það er vissara að hafa tímann
fyrir sér. Af þessum sökum get ég
ekkert fylgt plötunni eftir fyrr en ég
kem heim tólfta desember. Þá hef ég
hálfan mánuð til að árita og gera
annað sem þarf til að kynna gripinn.
Ég vona bara að platan rúlli af sjálfu
sér þangað til,“ segir söngkonan
fjölhæfa sem er jafhvíg á óperutónlist
gömlu meistaranna, dægurtónlist og
djass og er tilbúin að sinna öllu
saman á komandi árum.
Tónlistargetraun DV og Japis
Tónlistargetraun DV og
Japis er léttur leikur sem allir
geta tekið þátt í og hlotið
geisladisk að launum. Leik-
urinn fer þannig fram að í
hverri viku eru birtar þrjár
léttar spumingar um tónlist.
Þrír vinningshafar, sem
svara öllum spumingum rétt,
hljóta svo geisladisk að laun-
um frá fýrirtækinu Japis. Að
þessu sinni er það Kynja-
sögur, önnur platan sem
hljómsveitin Kolrassa krók-
ríðandi sendir frá sér sem er
í verðlaun.
Hér koma svo spurning-
amar:
1. Hvað hét fyrri plata
Kolrössu krókríðandi?
2. Hvaðan kemur hljóm-
sveitin Urmull?
3. Hver gaf nýlega út plöt-
una Bísinn á Trínidad?
Rétt svör sendist DV,
merkt:
DV, tónlistargetraun
Þverholti 11
105 Reykjavík
Aö þessu sinni er það Kynjasögur, önnur platan sem hljómsveitin Kolrassa krókríðandi
sendir frá sér, sem er í verðlaun.
DV-mynd ÞÖK
Dregið verður úr rétt-
um lausnum 10. nóv. og
rétt svör verða birt í
blaðinu 17. nóvember. Hér
eru svörin úr getrauninni
sem birtist 20. október:
1. Stokkhólmi.
2. 66.
3. Nei.