Dagblaðið Vísir - DV - 03.11.1994, Síða 4
26
FIMMTUDAGUR 3. NÓVEMBER 1994
V A
: t@nlist
Bong með mörg járn í eldinum
-fyrsta stóra platan, Release, er að koma út um þessar mundir
Fyrsta starfsár Bong dúettsins
hefur verið viðburðarikt. Það sýna til
dæmis staðirnir sem hann hefur
komið fram á: Ingólfstorg, Heijólfs-
dalur, Thamesá, Regent Park,
Njálsbúð og Vopnaíjörður svo að
nokkrir séu nefndir.
Kannski er stærsti viðburður
ársins einmitt að gerast í þessari viku
þegar fyrsta stóra platan frá Bong
kemur út. Hún heitir Release og hefúr
að geyma tólf lög. Tvö hafa áður
komið út á safnplötum, - lögin
Furious og Do You Remember. Hið
þriðja Live In A Life er einnig með
en í breyttri útgáfu.
Þá hefur fjölgað í Bong að und-
anfórnu. Hingað til hafa Eyþór
Arnalds og Móeiður Júníusdóttir
verið einu liðsmennimir en nú eru
Guömundur Jónsson gítarleikari,
Jakob Magnússon bassaleikari og
trymbillixm Amar Ómarsson komnir
í hópinn.
„Það er allt óljóst um hvort þessi
fjölgun er til frambúðar eöa ekki,“
segir Eyþór. „Það er eins með tón-
listina og stjómmálin að þar getur allt
gerst. Reyndar er framtíðin síður en
svoþrautskipulögð hjá okkur Móeiði.
Ómögulegt að segja hvaða stefnu
Bong tekur.“
Um tónlistina á plötunni segja þau
að hún sé að þróast. Laglínan sífellt
að koma betur í ljós. „Við ákváðum
að hafa mikið af klassískum hljóð-
færum á plötimni, strengja- og blást-
urshljóðfærum. - Ög hefðbundin
hljómborð nútimans urðu að víkja
fyrir öðrum, gömlum og klassískum,
svo sem Moog synthesizer, Farfisa,
Fender Rhodes og fleiri slíkum.
Tónlistin er vissulega dansvæn eins
og fyrr en á plötunni er einnig tals vert
af rólegum lögum."
Bong verður nokkuð á faraldsfæti
á næstunni. Heimsækir meðal
annars Vestmannaeyinga, Akureyr-
inga, ísfirðinga og Selfyssinga.
Einnig er ætlunin að koma fram í
skólum. Áheyrendúrnir geta ráðið
því hvort um dansleiki eða tónleika
er að ræða. Það fer eftir þeim sjálfum.
Eyþór Amalds og Móeiður Júníus-
dóttir segja það vera markmiðið að
koma tónlist Bong á markað erlendis.
Lagið Do You Remember hefur þegar
verið gefið út í Þýskalandi, Bene-
lúxlöndunum og Skandinavíu og þá
hefur það. komið út á þremur
safnplötum í Noregi, Svíþjóð og
Danmörku. Þær eru með danstónlist
úr ýmsum áttum og er áætlað að þær
eigi eftir að seljast í hundrað til tvö
Hörður Torfason með
plötu númer þrettán
„Af hverfu platan heitir Áhrif? Ja,
það er svo margt sem hefur áhrif á
mig. Til dæmis samvinnan við Jens
Hansson, útsetjarann minn og aðal-
ráðgjafa við gerð plötunnar. Sam-
starf okkar heppnaðist með ein-
dæmum vel og hann var nákvæm-
lega sá sem mig vantaði til að vinna
aö þessari plötu,“ segir Hörður
Torfason um nafn sinnar nýjustu
plötu sem er að koma út um þessar
mundir.
Áhrif er önnur platan sem Hörður
sendir frá sér á árinu. Hin fyrri var
Þel, safn áður útgefmna laga allt frá
árinu 1971 til ‘92. Fyrir þá útgáfu
endurvann hann lagið Dúfuna sem
áður hafði komið út á plötu til
styrktar Sophiu Hansen og þar lágu
leiðir þeirra Jens fyrst saman. „Þá
gerði ég mér grein fyrir að ég var
búinn að finna manninn sem ég hafði
verið að leita að fyrir næsta verk-
efnið" segir Hörður.
Á Áhrifum er tónlist frá ýmsum
tímum. „Þetta eru eiginlega lög sem
hafa ekki fengið að vera með hingað
til því að ég hef ekki fengið þau til að
falla að heildarmyndinni," segir
listamaðurinn. „Ég get nefnt sem
dæmi lagið Regn. Það er frá árinu
1973. Ég hef margoft flutt það á
tónleikum en aldrei sæst almenni-
lega við það fyrr en nú. Jens skildi
strax hvað ég vildi með þessu lagi og
tókst að koma því í þann búning sem
ég er sáttur við. Regn er langelsta
lagið á plötunni. Á henni er líka
dálítið af lögum sem urðu tilbúin i
sumar. Ég á alltaf dálítið.af ljóðum
sem ég geymi og vinn í þegar mér
hentar. Eg tíndi fram nokkur í vor
og gekk frá þeim. Lögin verða til um
leið og ljóðin og taka stundum breyt-
ingum með ljóðunum þannig að
yfirleitt verður hvort tveggja tilbúið
í einu.“
Einyrki
Áhrif er þrettánda plata Harðar
Torfasonar. Hann hefur gefið út lögin
sín sjálfur allt frá þriðju plötunni og
segist kunna því vel að þurfa ekki að
láta útgefanda hefta sig og fjötra.
„Það hefur harla lítil breyting
orðið á vinnunni við að gefa út plötur
frá því að ég byijaði á þessu sjálfur,"
segir hann. „Þetta er vinna og aftur
vinna. Það vill svo til að ég geri varla
annað en að vinna. Maður þarf að
vera duglegur við að halda konserta
og koma sér á framfæri á annan hátt.
Það er sama sagan núna og þegar ég
var að byija að það verður enginn
ríkur af plötunum sínum, ja nema
kannski einn eða tveir sem eru á
vegum stóru aðilanna."
Hörður Torfason er með meira á
prjónunum. Fyrir nokkru kom út
kassetta með bamaefni eftir hann og
síðan er hann að búa sig í að end-
urútgefa gömlu plöturnar sínar á
geisladiskum. Hann ætlar að hafa
tvær plötur á hverjum diski og er
hinn fyrsti væntanlegur á næsta ári.
„Ég hef orðið var við að fólk langar
að eignast þessar gömlu plötur. Þær
eru löngu uppseldar og hafa verið
ófáanlegar árum saman. Ég held því
að það sé markaður fyrir þær. Hve
stór hann er verður bara að koma í
3jós.“
Hörður Torfason. Starf einyrkjans á íslenskum hljómplötumarkaði hefur Irtið breyst
síðan hann fór að gefa út plötumar sínar sjálfur DV-mynd Jóhann A. Kristjánsson
Bong. Það hefur fjölgað um þrjá í grúppunni en ómögulegt að segja hvort það verður til frambúðar.
DV-mynd Jóhann A. Kristjánsson
hundruð þúsund eintökum. Það er berast víða á næstu vikum og erlendum hljómplötum sem inn-
því ljóst að tónlist Bong á eftir að mánuðum, jafnt lifandi og á lendum.
plt^tugagnrýni
Almættið og BJF
★★★
Björn
Jörundur
Friðbjörnsson
Það þarf á allan hátt sérstakan
mann til að framkvæma hugmynd
sem þessa. Horft á sköpunarsögima í
gegnum augu almættisins, þemaplata
á Islandi. Bjöm Jörundur hefur
skapað sér sérstöðu í lagasmíðum
sínum með hljómsveitinni Nýdönsk í
gegnum tíðina. Hann telst þó seint til
okkar ffemstu dægurlagasöngvara en
rödd hans er engu að síður mjög
sjarmerandi. Á þessum frumburði
sólóferils hans skín þetta tvennt í
gegn auk þess sem öll textasmíð
jaðrar við snilld. Til að skilja plötuna
veröur að hlusta á hana í heild sinni,
hver texti, hver tónn geymir
ákveðinn hluta sögunnar sem gæti
auðveldlega túlkast sem guðlast en er
í raun bara hugmynd. í byrjun
fylgjumst við með „Æxlun“, plánetan
verður að veruleika, „Vatnið" og
„Ljósið". Þessi þrjú lög skapa
óijúfanlega heOd í stíl Pink Floyd
hvað varðar útsetningu. Næst skapar
meistarinn „Leikfóngin" mennina í
sinni mynd. Taktpælingar og
lagasmið til fyrirmyndar. Svo kemur
að því að almættið óskar sér þess að
geta átt holdlegt samræði. Um þetta
fjallar „Upprisan" á mjög svo
sérstakan hátt og er að mínu mati
besta lag plötunnar. Síðan fær
meistarinn mikilmennskubijálæði
þegar „Himnasmiðjan“ er sungin
með meistaratöktum. Eftir það lag
hefst hingnun almættisins og að
mínu mati hefst hnignun lagasmíða
Bjöms á þessum sama tímapunkti.
Tónamir verða einungis fýlgifiskar
hinnar bráðsnjöllu sögu sem á eftir
kemur. Allur hljómur og hljóðfæra-
leikur er eins og best verður á kosið
enda engir aukvisar sem aðstoða
Bjöm. Þegar horft er á plötuna í heild
er sagan frábærlega undirstrikuð.
Undursamlegar melódíur í upphafi og
sífellt stígandi í tónsmíðunum eftir
því sem nær dregur toppnum en
óhnitmiðað haf tóna undirstrikar
hnignun almættisins. Aðrir tónlist-
armenn gætu tekið sér þessa plötu til
fyrirmyndar hvað varðar texta-
smíðar. Bjöm Jörundur hefur sýnt
sig og sannað sem tónlistarmaður og
textahöfundur í sérflokki.
Guðjón Bergmann
Suede - Dog Man Star
★★★
Staðið undir
væntingum
Bretar gera mikið að því að hefja
ákveðnar hljómsveitir upp tO skýj-
anna og hlaða á þær slíku lofi að það
er aOt að því ómennskt að standa
undir allri mærðinni. Hljómsveitin
Suede er ein þessara rómuðu sveita
sem lyft var á guðlegan staO jafhvel
áður en hún gaf út fyrstu plötu sína.
Hljómsveitinni tókst bærOega að
standa undir væntingum og því biðu
menn með öndma í hálsinum eftir
framhaldinu. Það hefur nú htið dags-
rns ljós og ekki verður annað sagt en
hljómsveitin haldi dampi og jafh vel
gott betur. í það minnsta er þessi
nýja plata sveitarinnar mun heOd-
stæðara verk en sú fyrsta en um leið
pínulítið klisjukennd; menn em bún-
ir að koma sér niður á formúlu sem
gengur upp. Ekki er þó alveg hægt að
miða stöðu sveitarinnar í dag út frá
þessari plötu þrátt fyrir að hún sé ný,
því undir lok plötuvnmslunnar fór
Bemard Butler gitarleikari og annar
aðaOagasmiður Suede, burt í fússi. í
hans stað er kominn komungur
pOtur, 17 ára, sem ku nálgast að vera
undrabam í bransanum ef marka má
bresku popppressuna. Áhrif hans á
hljómsveitina em því óskrifað blað
enn sem komið er og sama er að segja
um brotthvarf Butlers. Hvað um það
þá er Dog Man Star stórgóð
poppplata, stútfuO af góðum
melódískum lögum sem krefjast
virkrar hlustunar. Sum hver em
dálítið íburðarmikO og það sama má
reyndar segja um útsetningar. AOt er
þetta ákaflega vandað og mikið í lagt.
Söngur Bretts Andersons er
sérkapítuli út af fyrir sig, en þar er á
ferðnmi aldeOis frábær söngvari.
Hann sækir áhrif sín greinOega mik-
ið tO Davids Bowies og reyndar verð-
ur að segja það eins og er að tónlist
Suede er öh eins og hún leggur sig
undir miklum áhrifum frá Ziggy
Stardust tímabih Bowies. Munurinn
á meðferð Suede á þessum áhrifum
og meðferð Dave Stewarts á sömu
áhrifum sem hér var ritað um í síð-
ustu viku, er sá að Suede reynir að
nota þau tO að skapa eitthvað nýtt á
meðan Stewart er bara í afritunar-
deOdinni. Vissulega feUur Suede í þá
freistingu á stöku stað á plötunni en
við skrifúm slíkt á bemskubrek þar
tO annað kemur á daginn.
Sigurður Þór Salvarsson