Dagblaðið Vísir - DV - 10.11.1994, Qupperneq 3

Dagblaðið Vísir - DV - 10.11.1994, Qupperneq 3
Dúettinn Birthmark var stofnaður uppúr tilrauna- og myndbandshljómsveitinni Orange Empire. DV-mynd BG r hétdu í Singapore á t )g talsvert fjör farió að ii skyndilega inn og stc rráðamenn hennar urði indrunin þegar lögreglí letur var að gáð kom í re, semfylgdustmeðtc Dúettinn Birthmark var stofnaður upp úr tilrauna- og myndbands- hljómsveitnni Orange Empire. Eftir 5 ára samstarf breytti sveitin um nafn og frá henni er nú væntanleg breiðskífa sem ber nafnið Unfinished Novels. Það eru þeir Svanur Kristbergsson og Valgeir Sigurðsson sem standa að baki Birthmark. Nýja platan inni- heldur 10 lög og tónlistarstefnan er skilgreind sem nokkurs konar „ambient" popp. Strákamir stóðu þó ekki einir að gerð plötunnar. Real World hljóðverin Á plötunni er að finna aragrúa hljóðfæraleikara. Einar Scheving sá um trommuleik,- Birgir Bragason bassa, Óskar Guöjónsson sax, Kjartan Valdimarsson píanó og Veigar Margeirsson trompet, auk þess sem félagar úr Caput-hópnum komu við sögu. Til aðstoðar við upptökustjóm var Bretinn Richard Evans fenginn til landsins. Hann hefur meðal annars unnið með Seal, The Grid, Nigel Kennedy, Khaled og Peter Gabriel. Svanur og Valgeir hittu einmitt Gabriel á ferð sinni til Englands. Allur söngur var nefnilega tekinn upp í Real World hljóðverum Gabriels, auk þess sem platan var mixuð og masteruð á staðnum. „Hann er viðkunnanlegur," segja strákamir. Platan hefúr þegar vakið athygli erlendra útgefenda og má segjaað ekkert þessu líkt verði gefið út á íslandi fyrir þessi jól. Þess má geta að útgáfutónleikar hljómsveitarinnar verða haldnir í hátíðarsal MH þann 25. nóv. en platan er væntanleg f verslanir á næstu dögum. -GBG Tónlistargetraun DV og Japis Tónlistargetraun DV og Japis er léttur leikur sem allir geta tekið þátt í og hlotið geisladisk að launum. Leikurinn fer þannig fram að I hverri viku em birtar þrjár léttar spumingar um tónlist. Þrír vinningshafar, sem svara öllum spumingum rétt, hljóta svo geisladisk að launum frá fyrirtæk- inu Japis. Að þessu sinni er það plata trúbadorsins Sigga Bjöms, Bísinn á Trínidad, sem er í verðlaun. Hér koma svo spumingamar: 1. í hvaða söngleik tekur söng- kona Spoon, Emilíana Torrini, þátt um þessar mundir? 2. Hvemig rokk spilar X-ist? 3. Hvað heitir söngvari Bubble- flies? Rétt svör sendist DV merkt: DV, tónlistargetraun Þverholti 11 105 Reykjavík Dregið verður úr réttum lausnum 17. nóvember og rétt svör verða birt í blaðinu 24. nóvember. Hér eru svörin úr getrauninni sem birtist 27. október: 1. Ham. 2. Taboo. 3. Gosi. Vinningshafar úr þeirri getraxm em: Róbert Gils Róbertsson, Túngötu 13,430, Suðureyri. Guðmundur Þór Friðriksson, Boðagranda 3,107 Reykjavík. Erla Birna, Melavegi 4,530 Hvammstanga. í hvaða söngleik tekur söngkona Spoon, Emilíana Torrini, þátt um þessar mundir? DV-mynd ÞÖK

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.