Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.1994, Page 2

Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.1994, Page 2
32 LAUGARDAGUR 26. NÓVEMBER 1994 Mamma er byrj- uð aö pakka inn jólagjöfunum. En hvaða gjöf fer í hvern kassa? Sendið svörin til: Barna-DV. JÓLAFÖNDUR Einföld, falleg og nytsöm jólagjöf! Til gamans má stinga göt út í botninn og festa þar fal- lega tvo hnappa. Þeir eru augu á andliti sem kemur í ljós þegar askjan er opnuð! Teiknið síðan hjarta og stingið göt í brún þess. Þræðið borða og límið hjartað á öskjuna. Góða skemmtun! SYSTKININ Bjössi er bróðir minn. Hann er líka vinur þinn. Stína er stóra systir mín og hún er mágkona þín. Anna hleypur ansi hratt, upp hóla og hæðir þar sem er bratt. Einu sinni á magann datt, en mamma vel um sárið batt. Guðrún Hrönn, 11 ára. VISSIR ÞÚ AÐ ...? LITIL SAGA UM FRIÐRIK Ég var að bíða eftir strætó í Grafarvogi. Það var aðeins tvennt sem beiö líka, ung glæsileg kona með fallegan son sinn, ljóshærðan og bláeygan. Hann var í voldugum skóm, uppháum, óreimuðum og aðeins í jogginggalla þótt þaö væri svolítið kalt. Ég tók eftir aö hann var eitt- hvað leiöur og skapið mjög erfitt, þannig að hann sparkaði í steina og henti þeim út um allt. Einnig var hann reiður við skýlið, það fékk líka högg. Ég spurði mömmuna hvað hann væri gamall. Fimm ára, svaraði hún. Allt í einu var sá stutti farinn að rífa upp stóra steina og henda þeim í haug. Þar voru líka smáir með. Þetta gerði hann af svo miklum krafti að ég undraðist hvað þessar litlu hendur gátu rifið þetta upp, því það var smá frost í jörðu og erfitt að ná þeim. Það var komin þó nokkuð myndarleg hrúga, eins og hann hefði ekki gert annað en hlaða garða. Þá datt mér í hug að spyrja hann hvort hann vissi hvað svona hrúga væri kölluð. Hann hristi höfuðið og hélt áfram af krafti. Ég hélt áfram og sagði honum að þetta væru kallaðar vörður. Hann leit aðeins upp til mín. Þá sá ég þessi fallegu bláu augu sem voru svo æst. Áfram hélt ég og sagði að svona hefðu mennimir gert í gamla daga þegar þeir voru að ferðast gangandi milli bæja til þess að rata. Það komu engin orð, bara unnið áfram af kappi við grjótið. Næst spurði ég hann að nafni. Jú, Friðrik, hét hann. „Þá köllum við þetta Friðriks vörðu,“ sagði ég. Þá var aðeins htið á mig aftur, meira að segja með smábrosi, - en engin orð. Hajnn var langt kominn með vörðuna sína þótt aðeins væru liðnar nokkrar mínútur frá því hann byrjaði. Ég hélt áfram. „Hvaö á ég nú að segja ef strákar eða stelpur spyrja mig hver hafi gert þessa flottu vörðu?“ spurði ég. Augun ljómuðu og nú horfði hann vel á mig og svaraði: „Þú mátt alveg segja að þú hafir gert hana!“ Þannig endaði þetta með okkur Friðrik því strætó var að koma. Hann fór kátur og glaður með mömmu sinni í nr. 115, en ég í nr. 15. „Vona að ég sjái þig aftur. Þú ert duglegur og góður strákur. Vertu þægur við mömmu og pabba. Kær kveðja og gangi þér vel.“ Frá konunni sem beið eftir strætó og kynntist þér í nokkrar mínútur. Þær voru góðar. Margrét Björnsdóttir, Bláhömrum 2, Grafarvogi. Fyrir löngu notaði fólk hendur og hand- leggi til aö mæla með lengd og breidd. Breidd VÍSIFINGURS var köhuð FING- URBREIDD. Hún var notuð til að mæla smáa hluti. Breidd LÓFANS var kölluð ÞVERHÖND og lengdin milli útspenntra fingra, þumalfingurs og litla fingurs, var kölluð SPÖNN. Lengdin frá olnboga að fingurgómi löngutangar var einnig notuð. Sú lengdareining var nefnd ÖLN (ALIN). JÓIOGINGA Einu sinni var Jói aö heyja. Þá hitti hann Ingu og fór að tala við hana. Svo kyssti hann Ingu. Síðan fóru þau heim og giftu sig. Rósa Kristín, Auðbrekki 2, Kópavogi. Hérna eru ðpil. Þú færð\ helminginn af ea~-lokunnr( minni efpú ðpáir fyrir mig' um framtíðina! Humm, glænýr , epila • ðtokkuri Miklar ekammir, mikil leiðindi! lendir í miklum vandræðum ■•vVlt-v y'h’ú tapar ^ peninqum,. . , ’ . .verður að borga dágóða upphæði Ótrúlegt, - en bað er allt komið fram eem hún ðpáðii Stundum er ég ejálf jafn hiððal

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.