Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.1994, Page 3

Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.1994, Page 3
FIMMTUDAGUR 1. DESEMBER 1994 29 JOV Besta platan okkar hingað til - segir Helgi Björnsson söngvari um Blóð, nýjustu plötuna með SSSól tónliQt: Tónlistargetraun DV og Japis Tónlistargetraun DV og Japis er léttur leikur sem allir geta tekið þátt í og hlotið geisladisk að launum. Leikurinn fer þannigfram að í hverri viku eru birtar þrjár léttar spurn- ingar um tónlist. Þrír vinningshafai-, sem svara öli- um spumingum rétt, hljóta svo geisla- disk að launum frá fyrirtækinu Japis. Að þessu sinni er það platan Spilaðu lagið, 20 ára afmælisútgáfa með vinsælustu lögum hljómsveitarinnar Mannakom, sem er í verðlaun. Hér koma svo spumingarnar: 1. Hvað heitir ný bamaplata Olgu Guðrúnar? 2. Nefniö a.m.k. 3 söngvara sem syngja á plötunni Minningar 3. 3. Hvaða hljómsveit gaf nýlega út plötuna Blót? Rétt svör sendist DV, merkt: DV, tónlistargetraun Þverholti 11 105 Reykjavík Dregið verður úr réttum lausnum 8. desember og rétt svör verða birt í blaðinu 15. desember. Hvað heitir ný barnaplata "oí Guðrúnar? Hér em svörin úr getrauninni sem birtist 17. nóvember: 1. Þór Eldon, Dr. Gunni, Heiða. 2. Real World Studio. 3. 3299 krónur. Vinningshafar í þeirri getraun sem fá plötuna „Æ“ með Unun em: Gunnar Gunnarsson, Asparfelli 2,111 Reykjavík. Óskar Sæmundsson, Lyngmóum 12, 210 Garðabæ. Rögnvaldur Hjörleifsson, Hringbraut 86,230 Keflavík. Blóð, nýjasta plata hljómsveitar- innar SSSól, er að mati Helga Bjöms- sonar sú sem næst kemst því að gefa hlustandanum til kynna hvernig hann og samstarfsmenn hans fjórir hljóma á tónleikum. Plötumar eru orðnar sex talsins á sjö ára ferli Sólarinnar. Allar hafa þær hlotið góðar viðtökur og þegar við bætist velgengni hljómsveitarinnar á hljóm- leikum er vart ofmælt að segja aö Helgi og félagar skipi vinsælustu hljómsveit landsins þessi misserin. „Já, Sólin eldist vel og nýjasta útgáfan af henni er sú besta hingað til," segir Helgi og auðheyrt er að hann er stoltur af sér og sínum mönnum. Þeir eru önnum kafnir við það um þessar mundir að spila á tónleikum víðs vegar um landið og ætla að fóma bæði blóði, svita og tárum við að kynna nýju plötuna allt fram að jólum. Hún virðist lika vera þess virði að hún se vel kynnt - að minnsta kosti er Helgi Björnsson sáttur við útkomuna. „Mér finnst platan vera sú lang- besta sem hljómsveitin hefur sent frá sér hingað tÚ. Ég er stoltur af hennir“ segir hann. „Ég er ekki vanur að taka svona sterkt til orða um eigin verk en ég geri það heils hugar að þessu sinni. Eg þakka árangurinn helst því að lögin á plötnnni voru lengi í gerj- un. Við komum vel æfðir í stúdíóið, höfðum með okkur góðan upptöku- mann og upptökustjóra og duttum niður á réttu aðferðina við að taka lögin upp. Við tókum allan hljóð- færaleikinn upp „live“, síðan var bætt við söng og smávegis af gítar, allt hljóöblandað og platan var tilbúin. Við erum margoft búnir að ætla að vinna plötumar okkar svona hrátt en hingað til höfúm við alltaf gleymt okkur og unnið lögin of mikið.“ Að gefa sig 130 prósent Helgi bætir því við að sér fmnist Aðalatriðið er að hafa gaman af því sem maður er að gera, segir Helgi Bjömsson söngvari. tónlistin á nýju plötunni höfða til breiðari hóps en til dæmis sú síðasta semSSSólsendifrásérífyrra. „Lögin em melódískari núna, ég hafði meira að segja af því áhyggjur meðan á vinnslunni stóð að platan yrði of melódisk," segir hann. „Ég hef orðið var við að margir halda að við höföum eingöngu til fólks á aldrinum sextán til tuttugu og fimm ára. Vissulega em flestir á þeim aldri sem koma og hlusta á okkur á hljóm- leikum en ég hef það nú á tilfinn- ingunni aö fleiri hafi gaman af okkur og þá sér í lagi nýju plötunni." Hljómsveitimai' kepptu haröar en noklou sinni fyrr um hylli fólks á sveitaböllum síðasta sumars. Það er mál manna að þar hafi SSSól staðið með pálmann í höndunum. Helgi Bjömsson segir reyndar að þessar skemmtanir eigi ekkert skylt við sveitaböll fyrri ára þegar fólk á ýmsum aldri kom saman og skemmti sér eina kvöldstund. Sveitaböll nútimans eru að hans áliti ekkert annað en rokkhljómleikar og þar gildir að halda vel á spöðunum ef vel á að ganga. „Aðalatriðið er að hafa gaman af þessum konsertum sjálfur og gefa sig hundrað og þijátíu prósent í hvert skipti," segir Helgi þegar hann er spurður um leyndarmálið að baki því að vera á toppnum sumar eftir sumar. „Það skiptir ekki máli hjá okkur hvort tíu manns em í salnum eða eitt þúsund. Við rokkum af jafnmiklum krafti burtséð frá því hve margir em að hlusta. Hingaö til höfum við ekki þurft að aflýsa tónleikum vegna lélegrar aðsóknar. Einu skiptin sem konsertar falla niður hjá okkur era þegar við komumst ekki á staðinn vegna veðurs." Það gerðist einmitt á dögunum á Vopnafirði þegar Sólin komst ekki þangað. Þá sömu helgi stóð flutn- ingabíli hljómsveitarinnar tvívegis fastur á Möðradalsöræfum en með harðfylgi tókst. henni að brjótast til byggða og alla leið til Eskifjarðar. Þangað kom Sólin í tæka tíð til að leika á dansleik en varð að sleppa tónleikunum á undan. Um komandi helgi þarf hljóm- sveitin sömuleiðis að leggja land undir fót. Hún leikur á útgáfutón- leikum á skemmtistaðnum 129 á Akureyri í kvöld, verður annað kvöld í Bifröst á Sauðárkróki. Þaðan verður ekið til Reykjavíkur, flogið til ísa- fjarðar á laugardag, spilað í Sjall- anum þar um kvöldið og síðan haldið afhm til Reykjavíkur og skemmt á Gauknum á sunnudagskvöld. „Það getur reynt á menn að vera rokkarar á íslandi þegar langt er liðið á haustið," segir Helgi Bjömsson og brosir dauflega. „En þetta er hlut- skiptið sem maður valdi sér. Síðan verðum við reyndar aðallega á höfuð- borgarsvæðinu til áramóta nema hvað við skreppum aftur norður síðustu helgina fyrir jól. Stærsti viöburðurinn hér syðra verður konsert í íslensku óperunni 14. desember þar sem við ætlum að spila ásamt Unun og Spoon.“ Sólóplata? Helgi Björnsson á alla textana á plötunni Blóði og að þessu sinni á hann að auki mestan hlutann í lög- unum, Hingað til hafa allir liðsmenn Sólarinnar verið skr ifaðir fyr ir þeim. Helgi tekur fram að allur hópurinn standi hins vegar að útsetningum að þessu sinni. En í ljósi þessara breyt- inga er ekki úr vegi að forvitanst um hvort hann hyggi jafnvel á gerð sólóplötu fyrr en síðar. „Nei, það er ekkert slíkt í vænd- um,“ segir hann. „Ég get þó ekki neitað því að slíkt hefur komið til tals. Stefnan á slíkri plötu? Ja, ætli ég myndi ekki bara rokka enn harðar en hingað til. Mig hefur alltaf langað til að gera virkilega harða rokkplötu, enn harðari en Blóð. Kannski kemur einhvem tíma að því:“ SSSól TOPIF 2@ 1. Mannakorn - Spilaðu lagið 2. Ýmsir - Minningar 3 3. Utangarðsmenn - Utangarðsmenn 4. Spoon - Spoon 5. Olga Guðrún - Babbídí-bú 6. Ýmsir - Now 29 7. Birthmark - Unfinished Novels 8. Unun - æ 9. Strigaskór *42 - Blót 10. Sigga Beinteins - Desember 11. Kolrassa krókríð- andi - Kynjasögur 12. Svanhildur - Litlu börnin leika sér 13. The Prodigy - Music for the Jilted Gen- eration 14. Ýmsir - Barnabros 15. Bryndís Halla/ - Steinunn Birna 16. Snælda & Snúð- arnir - Komdu kisa mín 17. Verkstæði jóla- sveinanna 18. Bubbleflies - Pinocchio 19. Auður Hafsteins- dóttir - Nocturne 20. Urmull - Ull á víðavangi Ef þú býrð úti á landi og pantar 5 diska af þessum lista, er póstkröfukostnaður enginn. JAPIS3 tónlistardeild Brautarholti og Kringlunni Símar 625290 og 625200 Dreifing: Sími 625088

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.