Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.1994, Síða 4
30
FIMMTUDAGUR 1. DESEMBER 1994
l@nlist
The Beatles: A nýju plötunni eru meöal annars lög sem hljómsveitin lék á Hamborgarárunum áður en hún sló í gegn.
The Beatles kveðja
' I |B a X * r
ser hljoðs a ny
- Tvöfaldur 56 laga diskur kom út með hljómsveitinni í gær
The Beatles, brautryðjendurnir
margumtöluðu frá sjöunda áratugn-
um, sendu í gær frá sér „nýja“ plötu,
tvöfaldan geisladisk nánar tiltekið. Á
diskunum eru samtals 56 lög, þar af
þrjátíu sem hljómsveitin hljóðritaði
aldrei með plötuútgáfu í huga. Öll
voru lögin upphaflega leikin í út-
varpsþáttum hjá breska útvarpinu,
BBC. George Martin, upptökustjóri
hljómsveitarinnar, fór yfir þessar
gömlu upptökur, valdi efnið og bjó
það til útgáfú.
Meðal forvitnilegra laga á plöt-
unni, sem nefnist Live at The BBC,
er lagið I’ll Be on My Way eftir
Lennon og McCartney sem upphaf-
lega var samið fyrir Billy J. Kramer
og var að finna á B-hlið smáskifu
hans með laginu Do You Want to
Know a Secret. Þá eru á plötunni
nýjar útgáfúr sígrænna Bítlalaga svo
sem Love Me Do og Ticket to Ride.
Þá er að frnna fjöldann allan af lögum
sem urðu vel þekkt með öðrum en
Bítlunum. Má þar nefna I Got a
Woman, That’s alright (Mama), To
Know Her Is to Love Her og Hippy
Hippy Shake. Lag það sem Paul
McCartney, George Harrison og
Ringo Starr hljóðrituðu nýlega og
notuðu með rödd Johns Lennons af
gamalli prufuupptöku er ekki á plöt-
unni. Það lag biður sérstakrar safn-
útgáfu sem unnið er að hjá Apple
fyrirtækinu.
Liður i vel heppnaðri markaðs-
sókn í upphafi ferils The Beatles var
að fá breska ríkisútvarpið tii að leyfa
hljómsveitinni að gera sína eigin
útvarpsþætti. Þeir urðu alls 52 á
árunum 1962 til ‘65. Undir það síðasta
höfðu fjórmenningarnir nánast
engan tíma til að gera þessa þætti -
og þurftu náttúrlega ekkert á þeim að
halda lengur til að vekja á sér athygli.
Þættir þessir voru margir hverjir
mjög á léttu nótunum og snerust á
stundum upp í hreinan fíflagang en
eru núna, eftir um það bil þrjá ára-
tugi, merkileg menningarverðmæti
og hlekkur í sögu hljómsveitarinnar.
Á nýju plötunni má meðal annars
heyra orðaskipti hljómsveitarmann-
anna og dagskrárgerðarmannanna
Brians Matthews og Alans Freemans.
Verðlagning endurútgefinna Bítla-
platna á geisladiskum hefur þótt
nálgast það að vera ósvifin. Það er
sölumönnum því áreiðanlega léttir
að nýja Bítlaplatan, Live at The BBC,
verður seld frá útgefandanum á sama
verði og aðrar tvöfaldar geislaplötur.
Með nýju plötunni fylgja ítarlegar
upplýsingar um hljóðritanimar og
samstarf The Beatles og BBC. Þá er
þar að finna talsvert af ljósmyndum
af hljómsveitinni sem ekíd hafa birst
áður. ÁT
^^tugagnrýni
DinosaurTlr. - Without a So und
★ ★ ★ ★
Þunglyndis-
rokk
Myndin framan á umslaginu á
þessari plötu og fyrsta lína textans í
fyrsta laginu, „I feel the Pain of
Everyone", gefa til kynna hvers kon
ar andrúmsloft ræður ferðinni á plöt-
unni. Þunglyndið ræður rikjum og
satt að segja er platan svo þunglynd-
AÍnil
m E ^ p £•*
9 9 • 1 7*00
Verð aðeins 39,90 mín.
5 wv&nmimrm
Krár
Dansstaöir
Leikhús
Leikhúsgagnrýni
Bíó
Kvikmgagnrýni
isleg að hún gæti nánast verið hættu-
leg fyrir sálarheill manna i skamm-
deginu. Dinosaur Jr. er tveggja
manna hljómsveit. J. Mascis er leið-
togi dúettsins og sér um hljómborð,
trommur, gitara og söng, ásamt því
að semja lögin. Mike Johnson virðist
vera i hlutverki hjálparhellu, spilar á
bassa og syngur bakraddir, ásamt ein-
hveiju fleiru. Ýmsir aðstoðar menn
fylla upp í restina. Söngstíll J. Mascis
er afar sérstakur. Rödd hans svipar
til Bonos í U2. Hann syngur mjög
letilega, eins og það sé með herkjum
að hann nenni þvi, og hljómar einna
helst eins og Bono á róandi. Besta lag
plötunnar er fyrsta lagið, Feel the
Pain. Lag og texti eru einfóld en vel
útfærð og mynda sterka heild sem
kemur hughrifum til skila á áhrifa-
rikan hátt. Klingj andi gítarleiknum
svipar til stíls The Edge í U2, og það,
ásamt rödd J. Mascis, varð til þess að
þegar ég heyrði þetta lag fyrst í
útvarpinu hugsaði ég: Hva! Eru U2
orðnir góðir aftur? Get out of This og
Over Your Shoulder slást um silfrið á
plötunni. Bæði lögin eru þung og til-
finningaþrungin. Flest lög plötunnar
eru annars frábær en platan í heild
er svo stór þunglyndisskammtur að
erfitt er að taka hann inn allan í
einu. Fyrir þá sem hafa sterkar
taugar er þetta besta platan í haust.
Pétur Jónasson
Sheryl Crow
-Tuesday Night Music Club
★ ★ ★
Spennandi
kokkteill
Bandaríska söngkonan Sheryl
Crow hefur vakið talsverða athygli
upp á síðkastið og það ekki að
ósekju. Lag hennar All I Wanna Do
nýtur mikilla vinsælda bæði
vestanhafs og austan og í kjölfarið
hefur platan Tuesday Night Music
Club slegið í gegn. Þaö má greini-
lega heyra að Crow er upprunnin í
bandarískum sveitajarðvegiþar
sem blúsinn á líka rætur sínar.
Saman við þetta tvennt blandar
hún í tónlist sina slatta af soultón-
list, poppi og fleiru svo úr verður
forvitnilegur kokkteill. Crow semur
lungann af lögum sínum sjálf í
samvinnu við ýmsa aðila þar sem
fer fremstur í flokki gitarleikarinn
og upptökustjórinn Bill Bottrell. All
Dans, dans, dans
- danssafnplöturnar streyma á markaðinn
Safnplötur með danstónlist hafa
verið áberandi á markaðnum á árinu
sem er að líða og þær eru enn að koma
út. Fjrir nokkrum dögum sendi Spor
. frá sér tvær slikar i einu og sama
hulstr inu. Önnur heitir Reif í skeggið
og hefur ekki að geyma gömul jólalög
í dansútsetningum heldur nýja og
nýlega tónlist, íslenska og erlenda.
Hin platan er Dans(f)árið 1994 og er
eins konar yfirlit yfir danstónlistina
á árinu þar sem þó er stiklað á afar
stóru.
Nokkur íslensk lög eru á þessum
tveimur plötum, svo og erlend lög
með íslenskum flytjendum. Til
dæmis syngur Sigríður Beinteins-
dóttir útgáfu Friðriks Karlssonar á
gamla Talk Talk-laginu It’s My Life.
Bong býður upp á nýja útgáfu lagsins
Devotion. Gott mál með Tweety er í
svonefhdr i gump-blöndun og Þúsund
andlit eru á ferð með nýja útgáfu af
laginu Geggjað. Af öðrum þekktum
flytjendum má nefna Seal, Max, Ace
off Base, Whigfield, Inner Circle,
Haddaway og 2 Unlimited. Samtals
eru 32 lög á þessum tveimur plötum.
Þá kom önnur dansplata út á
dögunum, Trans Dans 3. Þar er
sömuleiðis blandað saman innlendri
og erlendri danstónlist. íslensku
flytjendumir eru Scope og Dancin’
Mania og af þekktum erlendum má
nefna Real U Reel, D J Bobo og Bomb
the Bass.
Danssafnplöturnar hafa notið
töluverðra vinsælda hér á landi á
árinu. Ein þeirra, Reif í sundur, er
meðal hinna mest seldu á síðari hluta
ársins.
Bong á tvö lög á plötunum Reif í skeggið og Dansffjárið 1994, lögin Devotion og
Do You Remember.
I Wanna Do er langt í frá eina fram
bærilega lagið á plötunni; hér eru
fjölmörg önnur lög sem verðskulda
athygli þó ekki væri nema bara
fyrir frábæran söng Sheryl Crow.
Ekki skal neinu spáð um framtið
Sheryl Crow þó svo hún sýnist hafa
alla burði til að komast í fremstu
röð. Dæmin um söngvara/söng-
konur sem fara ótrúlega vel af stað
en verða jafnskjótt að engu aftur
eru svo mörg að best er að segja
sem minnst. Þessi plata verðskuld-
ar hins vegar alla at hygli.
Sigurður Þór Salvarsson
Luther Vandross - Songs
**
Ohemju væmið
Það er ekki heiglum hent að syngja
gömul og þekkt lög svo vel fari og
hefur margur söngvarinn farið flatt á
þeirri hálu braut. Luther Vandross
bætist nú í þann hóp og gerir það
með stæl því hann fer ekki bara flatt
á að syngja eitt lag heldur eru þau 13
talsins. Kannski er ósanngjamt að
segja að hann klúðri þeim öllum en
hann fer langt með það. Oftast er það
yfirmáta væminn söngur hans sem
gerir út um máhð en stundum bæta
ofhlaðnar og íburðarmiklar út
setningar um betur og fullkomna
glæpinn. Annars staðar hefði þurft að
útsetja lög upp á nýtt til að komast
hjá óþægilegum samanburði, eins og
tfi að mynda í lagi Robertu Flack,
Killing Me Softly. Það nær auðvitað
engri átt að ætla sér að syngja það
óbreytt án þess að allir heyri rödd
Robertu til samanburðar. Svo þekkt
er þetta lag hennar. Það góða við
þessa plötu fyrir Luther Vandross er
að héðan getur leiðin bara legið upp á
við.
Sigurður Þór Salvarsson