Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.1995, Síða 7
FÖSTUDAGUR 17. FEBRÚAR 1995
23
Messur
Árbæjarkirkja: Barnaguðsþjónusta kl. 11.
Foreldrar boðnir velkomnir með börnum sín-
um. Guðsþjónusta kl. 14. Biblíudagurinn.
Tekið á móti gjöfum til Biblíufélagsins.
Áskirkja: Biblíudagurinn. Barnaguðsþjón-
usta kl. 11. Guðsþjónusta kl. 14. Starfs-
kvennakór Hrafnistu í Reykjavlk syngur.
Breiðholtskirkja: Barnaguðsþjónusta kl. 11.
Biblíudagurinn. Guðsþjón. á sama tíma.
Tekið við gjöfum til Hins íslenska biblíufé-
lags. Börn fædd árið '90 og fjölsk. þeirra
sérstaklega boðin velkomin til guðsþjón.
Samkoma Ungs fólks með hlutverk kl.
20.30.
Bústaðakirkja: Barnamessa kl. 11. Guðs-
þjónusta kl. 14.
Digraneskirkja: Barnasamkoma kl. 11.
Guðsþjónusta á vegum Hins íslenska biblíu-
félags kl. 11. (Ath. breyttan messutíma.)
Tekið á móti framlögum til Biblíufélagsins.
Ársfundur þess verður haldinn í safnaðarsal
Digraneskirkju kl. 15.30. Kl. 17 hefst sam-
koma helguð minningu Ölafs Ólafssonar
kristniboða.
Dómkirkjan: Messa kl. 11.00. Prestur Hjalti
Guðmundsson. Barnastarf í safnaðarheimil-
inu kl. 11.00 og í Vesturbæjarskóla kl. 13.00.
Bænaguðsþjónusta kl. 14.00.
Elliheimilið Grund: Guðsþjónusta kl. 14.
Prestur sr. Stefán Lárusson.
Fella- og Hólakirkja: Barnaguðsþjónusta kl.
11. Umsjón Ragnar og Ágúst. Guðsþjón-
usta á sama tíma. Guðsþjónusta með altaris-
göngu kl. 18.
Fríkirkjan i Hafnarfirði: Barnasamkoma kl.
11. Guðsþjónusta kl. 14. Sigríður Valdimars-
dóttir, nývígður djákni kirkjunnar, verður
sett í embætti og mun prédika. Kaffiveiting-
ar í boði kvenfélagsins að lokinni guðsþjón-
ustu.
Fríkirkjan í Reykjavík: Barnaguðsþjónusta
kl. 11.15. Guðsþjónusta kl. 14.00. Fermd
verður Tinna Hrönn Proppé, Þinghólsbraut
63, Kópavogi.
Gaulverjabæjarkirkja: Messa kl. 14.
Grindavíkurkirkja: Barnastarfið kl. 11.
Messa kl. 14. Fermingarbörn aðstoða. Kaffi-
veitingar í safnaðarheimilinu I umsjá ferm-
ingarbarna og foreldra þeirra.
Grafarvogskirkja: Barnaguðsþjónusta kl. 11.
Umsjón Valgerður, Hjörtur og Rúna. Barna-
starf Grensáskirkju kemur í heimsókn. Guðs-
þjónusta kl. 14. Fundur eftir guðsþjón-
ustuna með foreldrum fermingarbarna.
Grensáskirkja: Barnasamkoma kl. 10.30.
Börn og foreldrar fara í heimsókn í Grafar-
vogskirkju og taka þátt í barnasamkomu
þar. Lagt af stað frá Grensáskirkju kl. 10.30.
Messa kl. 14.00.
Hallgrimskirkja: Fræðsluerindi kl. 10. Eru
guðspjöllin traustar heimildir? Sr. Karl Sigur-
björnsson. Barna- og fjölskmessa kl. 11.
Háteigskirkja: Barnaguðsþjónusta kl. 11.
Messa kl. 14.
Hjallakirkja: Barnaguðsþjónusta kl. 11.
Messa kl. 14. Altarisganga. Sr. Brvndís
Malla Elídóttir verður sett inn í embætti
prests við kirkjuna og mun hún þjóna fyrir
altari ásamt sóknarpresti. Kaffisala Safnaðar-
félagsins að lokinni messu.
Hvalsneskirkja: Guðsþjónusta kl. 14.00.
Benedikt Arnkelsson prédikar og kynnir starf
Kristniboðssambandsins. Sunnudagaskóli í
Grunnskólanum I Sandgerði kl. 13.00.
Keflavíkurkirkja: 80 ára vígsluafmæli Kefla-
víkurkirkju. Sunnudagaskóli kl. 11 árd. Há-
tíðarmessa kl. 14. Minnst verður 80 ára
vígsluafmælis Keflavíkurkirkju og 30 ára af-
mælis Systra- og bræðrafélags kirkjunnar.
Sr. Sigurður Sigurðarson vígslubiskup préd-
ikar og prestar kirkjunnar. Kór Keflavlkur-
kirkju flytur Mozartmessu ásamt hljómsveit
o.fl. Athöfninni.verður útvarpað á Útvarpi
Bros þar til eftir prédikun og einnig verður
útvarpað frá kaffisamsætinu í Stapa.
Kópavogskirkja: Biblíudagurinn. Guðsþjón-
usta kl. 11. Barnastarf í safnaðarheimilinu
Borgum á sama tíma.
Kvennakirkjan: Messa í Seltjarnarneskirkju
í kvöld kl. 20.30 undir yfirskriftinni „mann-
réttindi kvenna". Sr. Yrsa Þórðardóttir pré-
dikar. Anna Pálína Árnadóttirsyngur. Bjarn-
ey I. Gunnlaugsd. stjórnar kirkjusöng.
Messukaffi.
Landspítalinn: Messa kl. 10. Sr. Ragnar Fjal-
ar Lárusson.
Langholtskirkja, Kirkja Guðbrands biskups:
Guðsþjónusta kl. 11. Prestur sr. Sigurður
Haukur Guðjónsson. Kór Langholtskirkju
(hópur III) syngur. Börn fædd 1990 fá af-
henta bókina Kata og Óli fara í kirkju.
Sunnudagaskóli á sama tíma í umsjá Hauks
I. Jónassonar. Kaffisopi á eftir messu.
Laugarneskirkja: Messa kl. 11. Félagar úr
Kór Laugarneskirkju syngja. Barnastarf á
sama tíma. Guðsþjónusta kl. 14.00 í umsjá
sr. Ingólfs Guðmundssonar. Drengjakór
Laugarneskirkju syngur undir stjórn Friðriks
S. Kristinssonar. Eldri borgurum boðið til
kaffidrykkju eftir messu. Þeir sem þurfa akst-
ur til og frá kirkju láti vita f slma 889422
kl. 11-12 á sunnudagmorgun.
Mosfellsprestakall: Messa í Lágafellskirkju
kl. 14.00. Altarisganga. Sigurður Ragnars-
son stud. theol. predikar. Barnastarf í safn-
aðarheimilinu kl. 11. Bíll frá Mosfellsleið fer
venjulegan hring.
Neskirkja: Barnasamkoma kl. 11. Opið hús
frá kl. 10. Munið kirkjubílinn. Guðsþjónusta
kl. 14.00.
Seljakirkja: Barnaguðsþjónusta kl. 11.
Guðsþjónusta kl. 14. Gfsli H. Friðgeirsson
eðlisfræðingur og Ragnar Baldursson húsa-
smíðameistari ræða um gildi Biblíunnar.
Seltjarnarneskirkja: Messa kl. 11 á konu-
deginum. Konur úr Kvenfélaginu Seltjörn
taka þátt í guðsþjónustunni og sjá um há-
degisverð að lokinni messu. Ihugunarefni
dagsins er „ár umburöarlyndis". Barnastarf
á sama tfma.
Stokkseyrarkirkja: Barnaguðsþjón. kl. 11.
jþróttir
Útivist:
Tuttugu ára afmæli
A tuttugu ára afmæli Útivistar
verða mánaðarlega rifjaðar upp
valdar gönguleiðir frá fyrri árum. A
sunnudag verður fyrir valinu allsér-
stæð gönguleið sem farin var 8. okt-
óber 1989 sem lokaáfangi í tveimur
raðgöngum sem félagið hafði farið
umhverfis landnám Ingólfs á tveim-
ur árum í 43 dagsferðum. Þessi nýi
ferðamáti í dagsferðum, raðgöngurn-
ar, hefur síðan verið fastur hður hjá
félaginu.
í ferðinni 1989 var gengið frá
Hrauni í Ölfusi skemmtilega leið út
að þá nýbyggðri Óseyrarbrúnni. í til-
efni af því að þetta var lokagangan
var brugðið á leik. Meðal annars var
stofnað til reiptogs á brúnni milli
liðsmanna landnámsmanna sitt
hvorum megin við ána. Hugmyndin
er að endurtaka þetta á sunnudaginn
og stofna til tveggja gönguferða. í
aðra verður farið frá Hrauni að Ós-
eyrarbrú en hin, sem verður töluvert
styttri, yrði farin frá Eyrarbakka.
Hægt verður að koma í rútuna við
Fossnesti á Selfossi kl. 11.30 og ganga
frá Eyrarbakka.
Einnig stendur Útivist fyrir skíða-
göngu á Hellisheiði að Kolviðarhóli.
Gangan hefst austarlega á heiðinni
og farið verður milli hrauns og hlíðar
niður Helhsskarð að Kolviðarhóli.
Fimmtudagur
16. febrúar
Sigríður Guðmundsdóttir, Engihjalla 13,200 Kóp.
(Úttekt í LEVTS búðinni)
Jón Sigfússon, Lyngási 10 a, 210 Garðab.
(YOKO ferðaútvarpstæki með segulbandi)
Valgerður Björk Einarsdóttir, Dalhúsum 33,112 R.
(SEVERIN Espresso kaffi vél)
Arnór Steinar Einarsson, Miðgarði 4, 700Egilst.
(AIWA vasadiskó með útvarpi)
Sigurður Magnússon, Skipagötu 2, 600 Akueyri
(EQUADOR bakpoki)
Vinningar verða
jsendir til vinningshafa
b ' AUGLYSINGAR
- skila árangri!
Leikfélag Akureyrar:
Hátíðarsýningar um helgina
Það verður hátíð í leikhúsinu á
Akureyri um helgina því forseti ís-
lands, frú Vigdís Finnbogadóttir,
mun verða gestur á báðum leikritun-
um. sem Leikfélag Akureyrar sýnir
um þessar mundir. Á laugardag á
sýningu þess á Óvæntri heimsókn
og á sunnudag á Á svörtum fjöðrum.
Sýningar á þessum tveimur verk-
um hafa hlotið góða dóma en þeim
fer senn að ljúka og fer hver að verða
síðastur að sjá þær. Óvænt heimsókn
var frumsýnd á jólum. Með aðalhlut-
verkið fer Arnar Jónsson. Á svörtum
fjöðrum eftir Erhng Sigurðarson var
frumsýnt á aldarafmæli Davíðs Stef-
ánssonar og vinnur höfundurinn
verkið upp úr ljóðum skáldsins.
Forseti íslands, frú Vigdís Finnbogadóttir, verður viðstödd sýningu á
Óvæntri heimsókn.
Iþróttir
Úrvalsdeildin
í körfubolta
Síðasti leikurinn í 28. umferð
úrvalsdeildarinnar í körfuknatt-
leik verður í kvöld í Njarðvík þeg-
ar heimamenn leika á mótí Þór
klukkan 20. 29. umferðin hefst
síðan á laugardag klukkan 14.30
með leik ÍA og Skallagríms á
Akranesi. Á sunnudagskvöldið
lýkur umferðinni með fimm leikj-
um og hefjast þeir allir klukkan
20. Þá leika Grindavík-KR, ÍR-
Keflavik, Haukar-Þór, Snæfell-
Njarðvík og Valur-Tindastóll.
1. deild karla
í körfubolta
Þrír leikir verða i 1. deild karla í
körfubolta um helgina. Á laugar-
dag leika lH og KFl í Hafnarfirði
klukkan 11 og í Þorlákshöfn leika
Þór og Selfoss klukkan 14. Á
sunnudag klukkan 14 leika
Breiðablik og ÍS í Smáranum.
Handbolti
kvenna
Fimm leikir eru á dagskrá I 1.
deild kvenna i handknattleik á
laugardag. KLukkan 13 leika
Haukar og Stjarnan í Hafnarfirði.
Klukkan 16 eru fjórir leikir. Fylk-
ir-KR, Fram-Valur, ÍBV-FH og
Viklngur Ármann.
Ferðir
Ferðafélagið:
Helgarferð
íTindfjöll
I dag kl. 20 hefst helgarferð hjá
Ferðafélagi íslands í Tindfjöll.
Gist verður I skála Alpaklúbbsins.
Þarna er frábært sklðagöngu-
land. Gengið verður á Ymi og
Ýmu ef tfmi vinnst til.
Á sunnudag verður úrval dags-
ferða á vegum Ferðafólagsins.
Kl. 10.30 verður farið í ökuferð
að Seljalandsfossi undir Eyjafjöll-
um og til baka verður ekið um
Fljótshlíð. Einnig verður farið í
skíðagöngu í Bláfjöll og Lamba-
fell kl. 10.30. Kl. 13 stendur
Ferðafólagið fyrir skíðaferð á
Hellisheiði og i Hverahlíð. Einnig
verður farið til Viðeyjar kl. 13,
siglt frá Sundahöfn og gengið
um eyjuna.
Dagur Sigurðsson og samherjar hans í Val leika gegn Stjörnunni að Hliðarenda á morgun. Með sigri verða Vals-
menn deildarmeistarar en auk þeirra eiga Stjarnan og Víkingur einnig möguleika á að vinna deildina.
Lokamriferðin
í handboltanum
Lokaumferð deildarkeppninnar í
handknattleik lýkur á laugardag og
er óhætt að segja að mikil eftirvænt-
ing ríki meðal handknattleiksáhuga-
fólks eftir þessum leikjum. Þrjú lið
eiga möguleika á að verða deildar-
meistarar, Valur, Stjarnan og Vík-
ingur. Þegar leikjum laugardagsins
lýkur kemur í ljós endanleg niður-
röðun átta efstu liðanna sem hefja
úrslitakeppnina.
Tvö efstu liðin fyrir lokaumferðina,
Valur og Stjaman, mætast á Hlíðar-
enda. Valsmenn tryggja sér þar
deildarmeistaratitilinn ef þeir ná að
leggja Stjömuna að velli. Þarna er
því mjög áhugaverður leikur sem á
í öllu falh að verða mjög skemmtileg-
ur og jafn. Þessi tvö félög hafa á að
skipa sterkum hðum og verður við-
ureign þeirra örugglega hin besta
skemmtun fyrir áhorfendur. Fari
hins vegar svo að Stjarnan vinni sig-
ur í leiknum verður Garðabæjarhðið
deildarmeistari.
Víkingar etja kappi við Hauka í
Hafnarfirði en Víkingar eygja einnig
möguleika á sigri í deildinni. Sá
möguleiki felst í því að liðið verður
aö vinna Haukana og Valur og
Stjarnan að gera jafntefli. Einnig
spilast inn í þetta markamunur en
hann er mjög svipaður hjá þessum
þremur efstu hðum.
KA leikur á Akureyri við Aftureld-
ingu en bæði liðin era örugg í 8-liða
úrshtin. Sömu sögu má segja af ÍR
og FH en þessi hð leika saman í Selja-
skóla. HK, sem þegar er fallið í 2.
dehd, leikur á heimavelli við KR sem
sighr lygnan sjó. Loks leikur Selfoss
eystra við ÍH, sem einnig er fallið í
2. dehd.
Allir leikirnir á laugardag hefjast
klukkan 16.30.