Dagblaðið Vísir - DV - 23.02.1995, Qupperneq 3
FIMMTUDAGUR 23. FEBRÚAR 1995
17
DV
Stúlkan sem hvarf
Shadow of a Kiss er efnismikil kvikmynd sem
fjallar um leit bandarísks rithöfundar aö stúlku
sem átti hug hans allan á námsárunum í París.
Michael York leikur rithöfundinn Albert sem hafði
séð mynd af stúlku sem vekur upp ljúfsárar minn-
ingar. Hann heldur til Parísar til aö grafast fyrir
um afdrif hennar og hittir þar fyrir gamlan félaga
sem einnig var I tengslum viö stúlkuna. Albert
gengur illa að hafa upp á stúlkunni en inn á milli
er lýst sambandi hans og ungu stúlkunnar mörg-
um árum áður, sem endaði með því að hann hélt
heim til Bandaríkjanna og heyrði aldrei frá henni
eftir það. Hægt og sígandi nálgast Albert lausnina
á hvarfi stúlkunnar. Þegar hann svo kemst að
sannleikanum í málinu er honum brugöið og er
alls ekki viss um hvort það hafi verið rétt af hon-
um að leita stúlkunnar. Sagan býður upp á spenn-
andi og dramatíska mynd, en því miður er Shadow
gerð og er nokkur byrjendabragur á öllu, auk þess sem leikarar eru upp tij
hópa slæmir. Sagan er þó það góð að myndin verður aldrei leiðinleg.
SHADOW OF A KISS - Útgefandi: Bergvik.
Leikstjóri: Masslmo Mazzucco.
Aðalhlutverk: Mlchael York, Bernard Fresson og Catherlne Valandrey.
ítölsk/bresk 1994. Sýnlngartíml 90 mín. Bönnuð börnum innan 16 ára. -HK
of a Kiss um margt illa
Mikil þrautseigja
Forræðismál geta verið illvíg og í Thicker than
Blood er fjallað um eitt slikt, sem er að mörgu leyti
nokkuð sérstakt þar sem í miðjum látunum kemur
í Ijós við blóðrannsólm að faðirinn var ekki hinn
raunverulegi faðir. Peter Strauss leikur mann í
góðri stöðu sem hefúr verið í fóstu sambandi en er
ekki viss um hvort hún sé sú eina rétta. Þegar í
Ijós kemur að kærastan er ófrísk kemur ekkert
annað til greina hjá honum en að giftast bamsmóð-
urinni. Það kemur fljótt í ljós að þau eiga illa sam-
an og grunar hann að hún ætli að fara burt með
bamið, sem reynist rétt. Eiginkonan kemur í leit-
imar og er fljót að ná sér í nýjan eiginmann. Nú
hefjast deilur í réttarsal um yfirráðin yfir drengn-
um. Þrátt fyrir niðurstöður blóðrannsóknarinnar
heldur faðirinn áfram baráttunni um forræðið, þar
sem hann telur aö drengurinn eigi möguleika á
betri framtíð hjá sér en móðurinni. Peter Strauss sýnir góðan leik í hlutverki
fóðurins sem berst hatrammri baráttu, kannski vegna þess aö hann þurfti sjálf-
ur að sjá á eftir foöur sinum í æsku.
THICKER THAN BLOOD - Útgefandl: Skrfan.
Lelkstjórl: Mlchael Dlnner.
Aðalhlutverk: Peter Strauss, Rachel Ticontln og Lynn Whltfield.
Bandansk, 1993. Sýnlngartíml 104 mín. Leyfð öllum aldurshópum. -HK
Viðkunnanlegir skúrkar
Þegar litið er á söguþráðinn í Maverick er hann
ekki merkilegur. Nokkrir einstaklingar í peninga-
harki svo þeir geti tekið þátt í fjárhættuspili aldar-
innar (síðustu aldar). En þótt sagan sé ekki merki-
leg er handritið vel skrifað, með hárfinum húmor
sem kemst vel til skila hjá úrvalsleikurum.
Skemmmtunin er það mikil aö það vill gleymast að
nánast engin heiðarleg persóna kemur viö sögu.
Maverick var vinsæl sjónvarpssería fýrir mörgum
árum og þá lék James Gamer kappann og varð
frægur fyrir. Hann er hér í hlutverki vafasams lög-
reglumanns sem er á hælunum á Maverick, sem
Mel Gibson leikur í þetta skiptið og gerir vel. Ma-
verick veröur einstaklega lifandi persóna, sem
þrátt fyrir hortugheitin má ekki sjá neinn sem á
bágt. Jodie Foster hjálpar svo upp á að gera Maver-
ick að skemmtflegri kvikmynd, kvikmynd sem al-
veg eins hefði verið hægt að láta gerast í nútimanum.
MAVERICK - Útgefandl: SAM-myndbönd.
Leikstjóri: Rlchard Donner.
Aðalhlutverk: Mel Gibson, Jodie Foster og James Garner.
Bandarisk, 1994. Sýningartíml 129 mfn. Bönnuð bðmum Innan 12 ára. -HK
I® a ,■ v,. 'SísiSik
Fastur í svikavef
Jack Kennelly (Patrick Bergen) hefði sjálfsagt
hugsað sig tvisar um þegar hann tók tilboði fallegr-
ar stúlku um veðmál ef hann hefði vitað hvað beið
hans. Af skiijanlegum ástæðum tók hann þátt i
veðmálinu og eftir það verður ekki aftur snúiö.
Myndin byrjar þegar Vera Blanchard (Kelly
Preston) keyrir á bil Kennellys og fær hann til að
segja lögreglurmi að það hafi verið vinur hennar,
rikur spilavítiseigandi sem hefði keyrt. Daginn eft-
ir finnst eiginkona spilavitiseigandans myrt og
fjarvistarsönnun hans er að hann hafi lent í
árekstri við Kennelly. Kennelly, sem er nýsloppinn
úr fangelsi, kærir sig lítið um að lenda þar aftur og
tekur því þátt i þessum hættulega leik og sekkur
dýpra og dýpra í svikavef sem hefur verið ofinn á
hugvitssamlegan hátt. Double Cross er eins og
nafhið bendir til þriller og áður en yfir lýkur á sag-
an eftir að taka nokkra stefnubreytingar sem koma áhorfandanum á óvart.
Myndin er að mörgu leyti hugvitssamlega samin en frekar illa er unnið úr sög-
unni og hefði mátt gæta meiri frumleika. 1 staðinn er allt einfaldaö og fátt sem
kemur áhorfandanum á óvart.
DOUBLE CROSS - Úlgefandl: SAM-myndbönd.
Lelkstjórí: Mlchael Keusch.
Aðalhlutverk: Patrlck Bergln, Kelly Preston og Jennlfer Tllly.
Bandarísk, 1994. Sýnlngartíml 89 mín. Bönnuð bömum Innan 16 ára. -HK
Local Hero var ein af síðustu kvikmyndum Burt Lancasters.
Burt Lancaster:
Hollywood-
stjarna í hálfa öld
Burt Lancaster, sem lést fyrr í
Burt Lancaster ásamt Ava Garner í sinni fyrstu mynd, The Killer.
vetur rúmlega áttatíu ára gamall,
átti að baki glæsilegan feril í
Hollywood. Hann var hin fullkomna
Hollywoodstjarna, myndarlegur og
glæsilegur á velli og hafði sérkenni
sem tekið var eftir. Síðast en ekki
síst var hann mjög góður leikari.
Burt Lancaster var einn af risunum
í Hollywood, sem engin gleymir, og
var eftirsóttur í kvikmyndir allt
fram í andlátið. Hann hafði þó lítið
látið á sér kræla undanfarin fjögur
ár eða allt frá því hann fékk alvar-
legt hjartaáfall.
Loftfimleikastj arna
Burt Lancaster fæddist 7. nóvem-
ber 1913 í New York. Sautján ára
gamall gekk hann til liðs við loftfim-
leikaflokk í sirkus og hitti þar fyrir
Nick Cravat sen varð hans besti
vinur allt til æviloka. Lék Cravat
við hlið hans í þeim ævintýramynd-
um sem Lancaster gerði á sínum
fyrstu árum í Hollywood.
Við sirkusinn starfaði Burt
Lancaster í nokkur ár en hætti þeg-
ar hann hafði ekki gaman af þessu
lengur. Lancaster gerðist meðal
annars sölumaður, gifti sig en skildi
stuttu síðar. Þegar Bandaríkjamenn
gerðust aðilar að heimsstyrjöldinni
síðari skráði hann sig í herinn. í
hernum tók hann þátt í skemmti-
prógrammi og fékk áhuga á að
reyna fyrir sér sem leikari.
Þegar heimsstyrjöldinni lauk fór
hann beint til New York og reyndi
fyrir sér á Broadway. Hann fékk
fyrst hlutverk í leikritinu A Sound
of Hunting. Ári síðar, eða 1946, þá
32 ára gamall, lék hann í sinni
fyrstu kvikmynd, The Killer, og ný
kvikmyndastjama leit dagsins ljós.
Stofnaði eigið
kvikmyndafyrirtæki
Burt Lancaster varð strax eftir-
sóttur leikari og vegna likamslegs
atgervis og hæfileika í fimleikum
lék hann á sínu fyrstu árum í mörg-
um léttvægum ævintýramyndum á
borð við The Flame and the Arrow
og The Crimson Pirate en auk þess
nokluaun ágætum sakamálamynd-
um. í All My Sons, sem gerð var eft-
ir leikriti Arthurs Millers, sýndi
Lancaster mjög góðan leik og sann-
aði að hann gat farið vel með
dramatísk hlutverk.
í dag þykir það ekki tiltökumál
að vinsæll leikari stofni sitt eigið
framleiöslufyrirtæki en 1948, þegar
Burt Lancaster stofnaði ásamt fram-
leiðandanum James Hill eigið kvik-
myndafyrirtæki voru það tímamót
og þetta fyrirtæki var i rauninn
fyrsta atlaga óháðs kvikmyndafyrir-
tækis að gömlu grónu kvikmynda-
fyrirtækjunum. Fyrirtæki þeirra
varð sterkt og framleiddi margar
verðlaunamyndir. Má nefna ósk-
arsverðlaunamyndirnar Marty auk
kvikmynda sem Lancaster lék í.
Næstu tuttugu árin var Burt
Lancaster ein skærasta stjarnan í
Hollywood, tók sér sjaldan hvíld og
var mjög afkastamikill. Hann var
fjórum sinnum tilnefiidur til ósk-
arsverölauna, var það fyrir leik í
From here to Etemify (1953), Elmer
Gantry (1960), Birdman of Alcatraz
(1962) og Atlantic Cify (1980). Hlaut
hann óskarsverðlaunin fyrir leik
sinn í Elmer Gantry.
Á löngum leikferli lék Burt
Lancaster í mörgum eftirminnileg-
-um kvikmyndum. Á myndbanda-
leigum er örugglega hægt aö fá
margar eldri kvikmynda hans. í
heild lék hann í 73 kvikmyndum.
Hér á eftir fer listi yfir helstu kvik-
myndimar sem hann lék í.
The Killers (1946)
All My Sons (1948)
Ten Tall Men (1951)
Come Back, Little Sheba (1952)
From here to Etemity (1953)
Vera Cruz (1954)
The Rose Tattoo (1955)
Trapeze (1956)
The Rainmaker (1956)
Gunfight at the O.K. Corral (1957)
Sweet Smell of Success (1957
Run Silent, Run Deep (1958)
The Unforgiven (1960)
Elmer Gantry (1960)
The Young Savage (1961)
Judgment at Nuremberg (1961)
Birdman of Alcátraz (1962)
A Child Is Waiting (1963)
The Leopard (1963)
Seven Days in May (1964)
The Train (1964)
The Professionals (1966)
The Swimmer (1968)
Airport (1970)
Lawman (1971)
Ulzana’s Raid (1972)
Scorpio (1973)
1900 (1976)
The Cassandra Crossing (1977)
The Island of Dr. Moreau (1977)
Atlantic City (1980)
Local Hero (1983)
The Osterman Weekend (1983)
Tough Guys (1986)
Field of Dreams (1989)